Morgunblaðið - 14.01.2020, Side 1

Morgunblaðið - 14.01.2020, Side 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 4. J A N Ú A R 2 0 2 0 Stofnað 1913  11. tölublað  108. árgangur  FÆR HILDUR ÓSKARSVERÐ- LAUNIN? EKKI NÓGU ÖRUGG EINAR HÁKONAR- SON LISTMÁLARI 75 ÁRA Í DAG ÚTTEKT Á BARNARÚMUM 10 HALDIÐ SÍNU STRIKI 24Í SVIÐSLJÓSINU 14, 29 Gul viðvörun verður í gildi á höfuð- borgarsvæðinu í dag og eru foreldrar og forráðamenn barna yngri en 12 ára beðnir að fylgja þeim í skólann þar sem búist er við því að veðrið verði slæmt. Ekkert lát er á óveðrinu sem geng- ið hefur yfir landið undanfarnar vik- ur. Síðdegis í gær og í gærkvöldi var Hellisheiði, Þrengslum, Mosfells- heiði, Holtavörðuheiði, Vatnsskarði, Þverárfjalli, Bröttubrekku, Lyng- dalsheiði, Öxnadalsheiði og fleiri vegum lokað vegna ófærðar. Þá var veginum um Ólafsfjarðarmúla lokað vegna snjóflóðahættu. Fólk er beðið að fylgjast vel með fréttum af færð og veðri áður en það heldur í ferða- lög og út í umferðina. Í gær var óvissustigi vegna snjó- flóða lýst yfir á Ísafirði og síðdegis voru nokkur hús undir Seljalandshlíð rýmd. Víðar á norðanverðum Vest- fjörðum var í gærkvöldi talin hætta á snjóflóðum sem gætu orðið nokkuð stór. Landhelgisgæslan vekur athygli á því að veðurspár gera ráð fyrir að mjög djúp lægð verði í dag og mið- vikudag skammt undan Austurlandi og lágur loftþrýstingur hennar geti mögulega haft talsverð áhrif á sjávarstöðu. Óveður áfram um land allt  Yngri börnum verði fylgt í skóla á höfuðborgarsvæðinu Morgunblaðið/Sigurður Unnar R. Veður Vetrarlegt er í Reykjavík eins og alls staðar á landinu. Sjúkrahótel » Alls hafa 2.700 ein- staklingar gist á sjúkrahóteli Landspítala frá því í maí. » Meðaldvalartími gesta er 4,6 nætur. » Nýtingin 85-87%. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Ég held að með þessu úrræði höf- um við komið í veg fyrir töluvert af innlögnum á spítalann,“ segir Sól- rún Rúnarsdóttir, hjúkrunarfræð- ingur og hótelstjóri á sjúkrahóteli Landspítala. Páll Matthíasson, forstjóri Land- spítalans, sagði í viðtali við Morg- unblaðið í liðinni viku að tilkoma sjúkrahótelsins, sem opnað var í maí síðastliðnum, hefði stytt legu- tíma á sjúkrahúsinu. Sólrún segir að nýtingin á sjúkrahótelinu hafi verið mjög góð. Hún sé nú 85-87% en hafi dottið aðeins niður um jól og áramót. Alls hafa um 2.700 einstaklingar gist á sjúkrahótelinu frá því það var opn- að. Sólrún segir að meira og minna hafi verið fullbókað á hótelinu frá opnun og hópurinn sem nýti sér þjónustuna sé afar fjölbreyttur. Hún kveðst telja að það muni um að margir flytji sig yfir á sjúkra- hótelið eftir að hafa farið í aðgerðir en meira þurfi til. Meðaldvalartími á sjúkrahótelinu er 4,6 nætur. Koma í veg fyrir innlagnir  Nýting á sjúkrahóteli Landspítala hefur verið 85-87% frá því það var opnað í maí í fyrra  Styttir legutíma á Landspítala  Meðaldvalartími gesta er 4,6 nætur MNýting sjúkrahótels »4 Ísland er komið áfram í milliriðil Evrópumóts karla í handknattleik eftir að glæsilegur sig- ur vannst á Rússum, 34:23, í Malmö í gær og Danir gerðu jafntefli við Ungverja, 24:24. Ís- land er með fjögur stig eftir tvær umferðir, Ungverjaland þrjú, Danmörk eitt en Rúss- land ekkert og nú stendur baráttan á milli Ungverja og Dana um hvort liðið fylgir Ís- lendingum áfram úr riðlinum. Björgvin Páll Gústavsson, markvörður Íslands, hafði fulla ástæðu til að fagna vel eftir frábæra frammi- stöðu liðsins gegn Rússum. »26-27 Ljósmynd/Einar Ragnar Haraldsson Glæsilegur sigur á Rússum og Ísland er komið áfram á EM  Sérfræðingar telja ekki útlit fyr- ir raunverðshækkanir á sérbýli á höfuðborgarsvæðinu í ár. Er talið að hlutfallslega lítið framboð af nýju sérbýli hafi ekki áhrif til hækkunar. Talning Samtaka iðn- aðarins í haust sýndi að 328 sér- býli voru þá fokheld eða lengra komin á svæðinu. Til samanburðar voru þar 4.656 íbúðir í fjölbýlis- húsum á sama stigi. Það þýðir að 14,2 íbúðir eru komnar á þetta stig fyrir hvert sérbýli sem er jafnlangt komið, en fjöldi einbýlis- húsa er smíðaður af einstaklingum til eigin nota og fer því ekki í al- menna sölu. »12 Talið að verð sér- býlis hækki ekki í ár

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.