Morgunblaðið - 14.01.2020, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 2020
HÁDEGIS-
TILBOÐ
Mánudaga-föstudaga
kl. 11.00-14.30
Borðapantanir í síma 562 3232
Verð frá 990
til 1.990 kr.
Verði samningurinn samþykktur
gildir hann til 30. september 2023.
Safna í mínútubanka
Samið var um styttingu vinnuvik-
unnar með þeim hætti að frá 1. apríl
2020 mun hver vinnudagur styttast
um 13 mínútur. Í umfjöllun VLFA
kemur fram að Akraneskaupstaður
og VLFA eru sammála um að vinna
að því að taka upp svokallaðan mín-
útubanka þar sem starfsmenn geta
safnað sér upp mínútum sem birtist á
launaseðli starfsmanns. Nokkrir
kostir verði í boði um hvernig starfs-
menn muni nýta sér uppsöfnun á 13
mínútna styttingu á dag. Fólk getur
stytt hverja vinnuviku um 65 mínútur
eða safnað upp í heila daga.
omfr@mbl.is
fullu starfshlutfalli fá 151.000 kr.
greiddar út 1. febrúar fyrir aftur-
virkni og þennan nýja félagssjóð.
Kjarasamningurinn er sá fjórði
sem samninganefnd sveitarfélaganna
hefur gert í yfirstandandi kjarasamn-
ingalotu en sveitarfélögin sömdu við
sambönd og félög iðnaðarmanna inn-
an ASÍ í nóvember. Inga Rún Ólafs-
dóttir, sviðsstjóri kjarasviðs Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga, gerir
sér vonir um að nýgerður samningur
við VLFA verði til að greiða fyrir
gerð fleiri kjarasamninga en sveitar-
félögin eiga enn ósamið við þorra við-
semjenda eða 63 stéttarfélög sem
eiga ólokið 41 samningi. Samningur-
inn við VLFA er að sögn hennar á
sömu nótum og lífskjarasamningarn-
ir.
Nýgerður kjarasamningur Verka-
lýðsfélag Akraness (VLFA) og samn-
inganefndar Sambands íslenskra
sveitarfélaga gildir frá 1. janúar sl. en
samkomulag náðist um sérstaka 90
þúsund kr. leiðréttingu vegna aftur-
virkni samningsins, sem kemur til út-
borgunar 1. febrúar. Einnig var sam-
ið um svokallaðan félagssjóð „sem
virkar þannig að launagreiðandi
greiðir mánaðarlega framlag í fé-
lagsmannasjóð sem nemur 1,5% af
heildarlaunum starfsmanna. Greiðsla
úr sjóðnum fer fram 1. febrúar ár
hvert. En fyrsta greiðsla úr sjóðnum
kemur strax til útborgunar 1. febrúar
næstkomandi og verður sú upphæð
61.000 kr. fyrir fullt starfshlutfall,“
segir í umfjöllun VLFA um samning-
inn. Samtals muni því starfsmenn í
Morgunblaðið/Eggert
Kjaravetur Ríkið og sveitarfélögin eiga enn ósamið við mikinn fjölda félaga opinberra starfsmanna og ASÍ-félög.
90 þús kr. leiðrétting
og framlag í félagssjóð
Vonar að nýr samningur við VLFA opni á gerð fleiri
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Næstu daga má búast við umhleyp-
ingum í veðri og sterkum áhrifum af
lægðum sem koma úr suðvestri.
Þetta segir Einar
Sveinbjörnsson
veðurfræðingur
hjá Veðurvakt-
inni um tíðarfarið
að undanförnu,
sem einkennst
hefur af snjó-
komu og hvass-
viðri. Eitthvað
mun lægja undir
næstu helgi, en
langtímaspár
gera ráð fyrir því að veltingurinn í
veðrinu haldi áfram.
Styrkurinn eflist
Samgöngur á landinu röskuðust
mikið um helgina. Stórhríð var víða
og hífandi rok, svo leiðir lokuðust,
bílar fór út af vegum, farþegar urðu
innlyksa í þotum á Keflavíkur-
flugvelli og svo mætti áfram telja.
Allt er þetta með sama svip og verið
hefur frá 30. desember þegar urðu
straumhvörf í meginhringrás norð-
urhvelsins.
„Á veturna er vestlæg átt ríkjandi
umhverfis allt norðurhvelið og sú
hringrás stjórnar veðrakerfunum,“
segir Einar. „Framan af hausti var
þessi hringrás ýmist veik að styrk
eða í meðallagi og stundum raunar
löskuð eða uppskipt. Frá því
skömmu fyrir áramót hefur þessi
hringrás hins vegar eflst að styrk,
meðal annars vegna þess að inn á
Atlantshafið hefur komið hálofta-
kuldi á þekktum slóðum við vest-
anvert Grænland og Labrador.“
Einar Sveinbjörnsson segir enn-
fremur að þessi öfluga hringrás hafi
átt sinn þátt í myndun djúpra lægða
sem berast undan öflugum hálofta-
vindi út á Atlantshaf. Flestar fara
beint í áttina til Íslands, með þeim
birtingarmyndum sem landsmenn
hafa séð og reynt frá því fyrir ára-
mót. Síðasta lægðin sem nú gengur
yfir stefnir þó fremur á Færeyjar
en Ísland. Vindáttin hér á landi
verður þá af NA í stað þess að vera
suðlæg eins og verið hefur undan-
farið.
Svipar til ársins 1989
Til er mælikvarði á styrk hálofta-
vindanna úr vestri sem berast að
Íslandi, það er svokölluð NAO-
sveifla. Sveifla þessi hefur verið já-
kvæð frá straumhvörfunum sem
urðu fyrir áramótin og spár gera
ráð fyrir að svo verði áfram næstu
viku til tíu daga. Því fylgir, að sögn
Einars, áframhaldandi lægðagang-
ur við landið með stormum og úr-
komu, eins og gjarnan fylgir öfl-
ugum vestanvindum.
Aðstæður í veðráttunni nú eru
óvenjulegar en hreint ekkert eins-
dæmi. Í því sambandi minnir Einar
á fyrstu mánuði ársins 1989. Þá var
mjög snjóþungt bæði sunnanlands
og vestan og meðal annars var
Hellisheiðin lokuð í um það bil mán-
uð. „Árið 1989 gekk þessi hringrás í
veðrinu allan veturinn, það er frá
ársbyrjun og fram í apríl. Aðstæð-
urnar núna eru því ekkert eins-
dæmi þótt ég sé alls ekki að segja
að þróunin nú, 31 ári síðar, verði al-
veg á sömu lund,“ segir Einar.
Sterk hringrás stjórnar lægðunum
Umhleypingarnir halda áfram Veltingur í veðrinu frá því síðan fyrir áramót Stundum stór-
hríð og hífandi rok Lægðir koma frá Grænlandi og Labrador Sú næsta stefnir á Færeyjar
Morgunblaðið/Sigurður Unnar Ragnarsson
Óveður Dimm él og dæmigert janúarveður í Reykjavík. Myndin er tekin við Sæbrautarvitann sem lýsir upp leiðir.
Einar
Sveinbjörnsson