Morgunblaðið - 14.01.2020, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 14.01.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 2020 Á vefnum andriki.is var á dögun-um fjallað um kolefnisjöfnun, innflutta og innlenda. Þar segir að vegna „orkutilskipana ESB er skylda að blanda orku- snauðu og dýru lífeldis- neyti í bensín og díselolíu hér á landi. Ríkið niður- greiðir innflutning á þessum íblöndunarefnum með 90 króna skattaívilnun á hvern lítra þeirra. Ríkissjóður eyðir um 1,5 millj- örðum króna í þetta á ári. Þær skatttekjur áttu upphaflega að fara í vegagerð. Með hertum reglum frá ESB sem innleiddar hafa verið í blindni og taka gildi í lok þessa árs gæti kostnaður ríkisins af þessu orðið yfir tveir milljarðar á ári“.    Þá er bent á að Íslendingar hafináð miklum árangri í notkun endurnýjanlegrar innlendrar orku. Þetta á við um bílana, þar sem hlut- fall innlendrar endurnýjanlegrar orku fer vaxandi, en einkum al- mennt: „Ísland er heimsmethafinn í notkun endurnýjanlegrar orku á öllum sviðum með yfir 80% hlutfall. Á meðan er ESB í kjallaranum með um 17% sem er svipað hlutfall og Ís- land hafði 1943! Ísland hefur því ekkert við þessa óhagkvæmu íblöndun frá ESB að gera og inn- leiðing reglna ætti að taka mið af því.“    Loks segir Andríki að kostnaðurvið að kolefnisjafna einn lítra af lífeldsneyti sé um 180 krónur. Kolviður bjóði hins vegar fulla kolefnisjöfnun á bensínlítranum á tæpar fimm krónur og votlendis- sjóður á 12 krónur.    Allt þetta hlýtur að vekja spurn-ingar hjá stjórnvöldum og þingmönnum um þá ákvörðun að elta íblöndunarstefnu ESB. Rándýr innflutt kolefnisjöfnun STAKSTEINAR Störf Alþingis eru að hefjast eftir jólahlé þingmanna. Forsætisnefnd þingsins fundaði í gær og nefnd- adagar hefjast í dag, þriðjudag, og standa út vikuna. Fyrsti þingfundur eftir jólahlé verður mánudaginn 20. janúar kl. 15 og hefst þá vorþingið. Samkvæmt starfsáætlun Alþingis fyrir 150. löggjafarþingið mun þing- ið starfa fram undir miðjan júní. Síðasti þingfundur er áformaður miðvikudaginn 10. júní. Páskahlé verður gert frá 3. til 20. apríl. Alls er gert ráð fyrir 53 þingfundar- dögum fram að þingfrestun. Fyrri umræða um fjármálaáætlun verður 24. mars og 25. mars. Skýrsla utan- ríkisráðherra um utanríkismál og umræður um hana eru á dagskrá fimmtudaginn 7. maí. Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagur) fara fram 3. júní. Eins og algengt hefur verið er óvíst að starfsáætlun þingsins haldi og mögulegt er að þingið starfi eitt- hvað lengur fram í júní. Síðasti fundur Alþingis fyrir jólahlé var 17. desember. „Það er ánægjulegt að á þessu haustþingi hefur okkur í meginatriðum tekist að halda okkur innan starfsáætl- unar þingsins. Skeikar þar aðeins um tvo þingfundadaga,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon þingfor- seti þegar hann frestaði þinginu. sisi@mbl.is Þingstörf að hefjast eftir jólahlé  Fyrsti þingfundur á mánudag  Þingfrestun er áætluð 10. júní Morgunblaðið/Eggert Góð þjónusta í tæpa öld 10%afslátturfyrir 67 áraog eldri Flugvallarþjónusta BSR sér um að skutla þér út á flugvöll og aftur heim þegar þú ferð til útlanda. 5-8 manneskjur 19.500 kr. 1-4 manneskjur 15.500 kr. Verð aðra leið: Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Íslenskur karlmaður sem handtekinn var í Torrevieja á Spáni í gær verður leiddur fyrir dómara á morgun. Hann er grunaður um að hafa orðið íslensk- um sambýlismanni móður sinnar að bana aðfaranótt sunnudags. Beatriz Garcia, upplýsingafulltrúi lögreglunnar í Alicante, sem RÚV ræddi við, vill ekki svara því hvort maðurinn hafi játað sök. Samkvæmt fréttavef Informacion mun maðurinn hafa komist inn á heimili móður sinn- ar og stjúpföður með því að klifra yfir vegg. Til átaka kom á milli mannanna tveggja, sem endaði með því að stjúp- faðirinn, sem var 66 ára gamall, féll á glugga með þeim afleiðingum að glugginn brotnaði. Maðurinn hlaut fjölda áverka við fallið og lést á slysstað. Samkvæmt Informacion var fyrst um sinn talið að um manndráp af gáleysi hefði verið að ræða. Eftir frekari rannsókn lögreglu er vitnisburður móðurinnar um atburði hins vegar ekki talinn standast. Í frétt Informacion segir að staðsetning glerbrota, sem og stungusár á líkama mannsins, sem ekki megi rekja til glerbrotanna, bendi til annars. Lögregla bíður niðurstöðu krufn- ingar. Myrti stjúpföður sinn á Spáni  Íslendingur í haldi lögreglunnar Torrevieja Borgin er á Costa Blanca, um 50 km frá borginni Alicante.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.