Morgunblaðið - 14.01.2020, Side 10

Morgunblaðið - 14.01.2020, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 2020 Sími 555 2992 og 698 7999 Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra Gott fyrir: • Maga- og þarmastarfsemi • Hjarta og æðar • Ónæmiskerfið • Kolesterol • Liðina Læknar mæla með selaolíunni Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð Óblönduð – meiri virkni Selaolía Égheyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni bætta líðan og heilsu. Guðfinna Sigurgeirsdóttir. „Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“ Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Neytendastofa hefur fylgt eftir átaksverkefni sem gert var árið 2015 þar sem skoðað var öryggi barna- rimlarúma og barnaferðarúma. Um var að ræða evrópskt samstarfsverk- efni. „Fjöldi barnarúma var skoðaður og voru 23 barnarimla- og ferðarúm send til prófunar. Niðurstöðurnar sýndu að 87% þeirra stóðust ekki lágmarkskröfur um öryggi. Í flest- um tilfellum eða 74% vantaði mik- ilvægar merkingar eða upplýsingar með rúmunum,“ segir í umfjöllun um niðurstöðurnar á vef Neytendastofu. Fram kemur að einnig komu í ljós hönnunargallar á rúmunum þar sem 30% þeirra voru með of stór bil eða op þar sem hætta var á að barn gæti fest sig eða slasast alvarlega. „Til að mynda má op eða bil á milli rimla á rúmum ekki vera stærra en 6,5 cm. Ef það er stærra er hætta á slysum þar sem höfuð barnsins get- ur fest. Þá má bil á milli hliðar og dýnu aldrei verða meira en 3 cm. Ef bilið er stærra gæti höfuð barns farið á milli dýnu og rúms þannig að hætta verður á köfnun,“ segir þar. Niðurstöður evrópska átaksverk- efnisins sem ráðist var í árið 2015 vöktu athygli á sínum tíma. Þar kom fram að 80% rúmanna voru talin hættuleg börnum og helmingur þeirra var svo stórhættulegur að hann var innkallaður. „Í kjölfarið var unnið að því að bæta og herða kröfur um öryggi rimla- og ferðarúma. Því taldi Neytendastofa nauðsynlegt að fylgja verkefninu eftir og athuga hvort skýrari kröfur til framleiðsl- unnar skiluðu sér í öruggari barna- rimla- og ferðarúmum,“ segir á vef- síðu Neytendastofu. Hertar kröfur Herdís L. Storgaard, forstöðu- maður Mistöðvar slysavarna barna, segir í samtali við Morgunblaðið að þarna sé verið að kanna barnarúm sem eru til sölu í verslunum. Margt þurfi að hafa í huga þegar tryggja á öryggi barnarúma. Í dag sé vel þekkt hvernig örugg barnarúm og svefnumhverfi barna þurfi að vera. Oft sé fólk hins vegar að taka úr geymslu gömul rúm eða vöggur fyrir börn sem eru varasöm, m.a. rimlarn- ir og botn rúmanna, sem þarf að vera gegnheill. „Evrópusambandið hefur á seinustu árum endurskoðað og uppfært sína staðla og m.a. gert auknar kröfur um botnplötuna á ungbarnarúmum og rimlana, sem voru þannig í gamla daga að börnin gátu fest höfuðið á milli þeirra og af því hlutust nokkur dauðaslys. Því var málinu breytt og settar þær kröfur að bilin á milli rimla á barna- rúmum megi aldrei vera meiri en 4,5-6 sentimetrar,“ segir hún. Ungbarnavöggur standast heldur ekki alltaf þær kröfur sem gerðar eru í dag og minnir Herdís á að Neytendastofa setti nýlega sölubann á vöggur sem Blindrafélagið hefur verið að framleiða. Þar þurfti því að breyta framleiðslunni í samræmi við þá staðla og öryggiskröfur sem sett hafa verið. Dýnur séu öndunarprófaðar Einnig þarf að gæta að því að dýn- ur í vöggum og barnarúmum fylli al- gerlega út í hliðarnar og að yfirborð dýnanna hafi verið öndunarprófað vegna köfnunarhættu. Kornabörn sem velta sér á grúfu geta lent í and- nauð ef dýnurnar uppfylla ekki fyllstu öryggiskröfur og hafa verið öndunarprófaðar. Herdís segir að þegar gömul rúm eru tekin í notkun úr geymslum fari foreldrar oft til dýnuframleiðenda og láti sníða nýja dýnu í rúmið, en átti sig ekki á því að það geti verið mjög hættulegt öryggi barnsins því engin trygging sé fyrir því að dýnurnar standist þessar nýju kröfur sem gerðar eru. 87% barnarúma stóðust ekki kröfur  Neytendastofa kannaði öryggi barnarimlarúma og barnaferðarúma  Tók 23 rúm til prófunar  30% voru með of stór bil eða op þar sem hætta var á að barn gæti fest sig og slasast alvarlega AFP Öryggi Oft vantar mikilvægar merkingar eða upplýsingar með rúmunum. Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Haugasjór og hvassviðri var við Brekknasand í Þistilfirði aðra helgina í janúar og gengu öldur lengra upp á sandinn en göngu- fólk bjóst við og fékk væna gusu upp að hnjám. Á sandinum veltust vatnamýsnar um, brúnir hnettir af ýmsum stærðum. Vatnamýs eru fremur sjald- gæf fyrirbæri á Íslandi, segir á vef Náttúrufræðistofu Norðaust- urlands, en þær myndast þegar mosi veltist í ferskvatni vegna ölduhreyfinga í stöðuvötnum eða vegna strauma í straumvötnum. Verða þá til vöndlar, oftast kúlu- laga, en geta líka verið sívaln- ingar eða sporöskjulaga. Vatnamýs finnast oftast við vatns- eða árbakka en hafa þó fundist í sjávarfjörum og hafa þá borist til sjávar með straumvötn- um en Hafralónsá rennur til sjáv- ar þarna við Brekknasand. Óveðrið bjó til óvenjulegt landslag á Brekknasandi í Þistilfirði Vatnamýs veltast um sandinn Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.