Morgunblaðið - 14.01.2020, Page 18

Morgunblaðið - 14.01.2020, Page 18
✝ Gréta fæddistá Kleifum í Seyðisfirði 10. desember 1938. Hún lést á líkn- ardeild Landspít- alans 3. janúar 2020. Gréta bjó á upp- vaxtarárum sínum með fjölskyldu sinni á Ísafirði en hún samanstóð af foreldrum, Aðalsteini Sigurðs- syni skipasmið og Möru Bald- eyju Markúsdóttur, konu hans, ásamt eldri systrum, Sigríði Maríu og Kristínu Herborgu og Trausta sem var yngstur þeirra systkina. Gréta fór í Verslunarskóla Íslands og tók verslunarpróf og fór svo í Hjúkrunarkvennaskóla Stykkishólmi og Búðardal áður en þau fluttu búferlum vegna frekara náms til Skot- lands 1972 og dvöldu þau þar í eitt ár. Svo lá leiðin til Nor- egs þar sem fjölskyldan dvaldi í tvö ár í góðu yfir- læti. Þá sneri Gréta aftur til Íslands með börnin og hóf að kenna við Nýja Hjúkr- unarskólann en Árni dvaldi einn vetur til viðbótar í Sví- þjóð vegna vinnu. Við heim- komu fluttu þau í Mosfells- sveit. Árni veiktist svo fljótlega eftir heimkomu og lést svo langt fyrir aldur fram árið 1980. Gréta bjó áfram í Mosfellssveit með börnum sínum og hóf að vinna við Heilsugæsluna í Mosfellssveit og varð svo hjúkrunarforstjóri á Reykja- lundi þar sem hún starfaði út starfsævina. Gréta var fé- lagslynd, starfaði í ýmsum nefndum og naut sín vel á þeim vettvangi. Útför Grétu fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Íslands og lærði hjúkrun. Eftir námið fór hún í framhaldsnám til Noregs og kynntist þar eiginmanni sín- um Árna Kárasyni dýralækni og gengu þau í hjóna- band 1964. Árið eftir fæddist þeim sonur, Kári, og 1967 eignuðust þau dóttur, Herborgu. Hún er gift Erni Marinó Arnarsyni, þeirra börn eru: Birta Sif, fædd 1994, unnusti Þorfinnur Gústaf Þor- finnsson, þeirra sonur er Sölvi Marinó, fæddur 2019. Árni Steinn, fæddur 1997, og hans unnusta er María Ramos. Ari Marinó, fæddur 2003. Gréta og Árni bjuggu bæði í Elsku mamma, ég trúi því varla ennþá að þú sért farin í Sumarlandið! Ég er búin að hugsa það síðustu daga að ég þurfi nú að fara að heyra í þér, hringja í þig en svo man ég eftir því að þú ert ekki lengur hér. Ég man þegar ég var lítil hvað ég hugsaði oft um það hvað þú værir glæsileg og kynnir ráð við öllu. Sama hvað amaði að og mér þóttu vandamálin stór þá varst þú alltaf með svörin og lausnirnar á hreinu. Þú varst alltaf svo sterk og sjálfstæð og hvattir okkur Kára áfram hvað sem á dundi. Ég sé þetta í öðru ljósi núna þegar ég er sjálf kom- in yfir þann aldur, sem þú varst á þegar pabbi dó, hvað þú hefur verið mikil hetja! Kona á besta aldri ein með tvo unglinga og ekki með mikið milli handanna en það kom ekki að sök, við fengum mikinn stuðning frá þér og þú meira að segja keyptir bíl fyrir okkur, svo við kæmumst nú saman í skólann. Þú fórst í framhaldsnám og bættir við þig á þessum erfiða tíma til þess að geta hugsað betur um fjölskyld- una þó að það væri þér og okkur erfitt oft á tíðum. Það voru líka ófá partíin sem þú leyfðir okkur að halda, alltaf stóðu dyrnar opnar fyrir okkur og alla okkar vini, þú varst í bakgrunninum og passaðir að allt færi vel fram. Þegar ég flutti svo að heiman og bjó erlendis þá héldum við alltaf mjög góðu sambandi með mörg- um símtölum og sendibréfum, sem er núna ómetanlegt að ylja sér við að lesa. Þú varst líka svo frábær amma, alltaf boðin og búin að passa og vera með börn- unum, bjóst til alls kyns ævin- týri við hvert fótmál. Bara ein- föld gönguferð breyttist í ævintýraferð sem krakkarnir nutu og þú sagðir þeim alls kyns sögur. Þú lagðir mikið upp úr því að kenna þeim bænir og allt- af endaðir þú símtölin eða sam- tölin á að segja Guð geymi þig og Ari minn segir þetta ennþá. Ég er svo fegin að við náðum að fara saman í ferðina góðu til Skotlands þó að veikindin hafi verið byrjuð að gera vart við sig þar, þá er það svo dýrmæt ferð. Undir það síðasta var líkaminn farinn að gefa sig meir og meir en hugurinn ennþá svo skýr. Þú beiðst eftir því að hitta lang- ömmuprinsinn hann Sölva Mar- inó og sagðir við mig þegar hann fæddist ekkert er fallegra en Birtu- og Tobbasonur. Þú varst svo ánægð fyrir þeirra hönd. Ég veit að það á eftir að vera erfitt að geta ekki tekið upp símann og heyrt í þér eða að geta skot- ist aðeins til þín en ég veit að þú ert komin í Sumarlandið góða með pabba og öllum hinum. Ég kveð þig, elsku mamma mín, með þeim orðum sem þú sagðir alltaf við okkur: Guð geymi þig. Þín dóttir Herborg. Elsku amma, við munum sakna þín. Við minnumst þín á svo ótal marga vegu: ferðir á Brekku, segjandi okkur þjóð- sögur, kryddbrauð úr Mosfells- bakaríi, horfandi á Formúlu 1 og skíðaskotfimi og hve traust þú varst er aðeins brot af minning- unum sem við geymum um þig. Þú kenndir okkur ótal margt um lífið og fyrir það erum við þér ævinlega þakklát. Við vitum að þér líður vel núna og þú vakir yfir okkur nú og að eilífu. Nú legg ég augun aftur, ó Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Í nafni Guðs föður, sonar og heilags anda. Guð geymi þig. Birta Sif, Árni Steinn og Ari Marinó. Gréta Aðalsteinsdóttir, hjúkr- unarfræðingur, vinkona og skólasystir mín er látin. Með fá- einum orðum langar mig að minnast hennar og kveðja. Við vorum jafnaldra og skólasystur á Ísafirði. Seinna þegar við vor- um báðar í Reykjavík í námi höfðum við líka töluvert sam- band. Svo skildi leiðir okkar um tíma eins og gengur, við fórum að vinna þau störf sem við höfð- um valið okkur, hún sem hjúkr- unarfræðingur og ég sem leik- skólakennari. Kynni okkar Grétu endurnýjuðust svo aftur þegar Árni maður hennar var ráðinn dýralæknir í Dalasýslu. Við höfðum þá mikið samband, áttum börn á líkum aldri sem urðu góðir félagar. Við Gréta hittumst oft til að spjalla saman. Gréta var mjög hreinskilin og ófeimin við að láta skoðun sína í ljós. Gréta var ákveðin og rösk í fasi en hlýleg og nærgætin þeg- ar þess þurfti við. Hún var fljót að koma auga á spaugilegar hliðar á tilverunni, bæði hjá sjálfri sér og öðrum. Við gátum hlegið og skemmt okkur yfir einhverju sem við hefðum aldrei sagt neinum öðrum. Við rædd- um einnig alvörumál og ýmis hugðarefni okkar. Oft voru það ýmis framfara- og menningar- mál í byggðinni. Það var gott að eiga Grétu að vin, við vorum ekki alltaf sammála en aldrei bar skugga á vináttu okkar þess vegna. Gréta fór fljótlega að vinna á heilsugæslunni í Búðardal og um tíma þegar læknislaust var í héraðinu og læknir í Stykkis- hólmi átti að sinna því þá fór hún í vitjanir að beiðni hans og eftir hennar lýsingu á veikindum sjúklinga ákvað læknirinn lyfja- gjöf eða hvernig bregðast skyldi við. Gréta afgreiddi þá tiltekin lyf og fylgdist með sjúklingum. Eftir að Gréta og Árni fluttu til Reykjavíkur hittumst við öðru hvoru og höfðum alltaf sam- band. Gréta missti mann sinn langt um aldur fram eftir erfið veikindi. Starfsferill Grétu var farsæll. Um árabil var hún m.a. hjúkrunarforstjóri á Reykja- lundi. Eftir starfslok starfaði hún mikið í Félagi eldri borgara í Mosfellsbæ og var í stjórn fé- lagsins. Ég vil að lokum þakka Grétu vináttu og samfylgd gegn- um árin og sendi börnum henn- ar, Kára og Herborgu og fjöl- skyldunni allri innilegar samúðarkveðjur. Þrúður Kristjánsdóttir. Gréta Aðalsteinsdóttir ✝ IngibjörgÁgústsdóttir fæddist í Land- eyjum 25. febrúar 1933. Hún lést á Landspítalanum Fossvogi 17. des- ember 2019. Foreldrar henn- ar voru þau hjónin Ágúst Guðlaugsson frá Búðarhóli í Austur-Landeyjum, fæddur 14. ágúst 1903, lést 26. ágúst 1991 og Steinunn Guð- munda Ólafsdóttir frá Kirkju- landi, fædd 4. apríl 1904, lést 12. október 1996. Systkini henn- ar eru Ingvi Guðlaugur Ágústs- son, fæddur 29. ágúst 1934 og Gréta Ólafía Ágústsdóttir, fædd 14. febrúar 1936. Ingibjörg giftist 16. desem- ber 1956 Þorsteini Guðlaugs- syni frá Vík í Mýrdal, fæddur 24. ágúst 1933, lést 30. júlí 1999. Birna Jóna Magnúsdóttir. Dæt- ur þeirra eru Díana María, fædd 1997 og Harpa Lind, fædd 1998. Yngst er Berglind, fædd 13. maí 1970. Eiginmaður hennar er Hallur Eiríksson. Börn Berg- lindar og Halls eru: Þorsteinn, fæddur 1988. Sambýliskona hans er Sigríður Diljá Blöndal, fædd 1990, synir þeirra eru Viktor Elí, fæddur 2012 og Hallur Frank, fæddur 2015. Dóttir Berglindar og Halls er Steinunn Sara, fædd 1994. Fyrir átti Hallur dótturina Guðbjörgu Rut. Sambýlismaður hennar er Ágúst Flóki Þorsteinsson. 16 ára gömul flutti Ingibjörg til Reykjavíkur og réð sig í vist hjá Guðmundi Hlíðdal, póst- og símamálastjóra, í eitt ár en snéri síðan aftur á heimaslóðir. Þá vann hún einnig í bakaríinu á Hellu og svo á Hótelinu í Skógum og einnig á gamla hót- elinu á Kirkjubæjarklaustri á sumrin. Fyrir utan húsmóð- urstörfin vann hún einnig í mörg ár við ræstingar hjá Saka- dómi Reykjavíkur og einnig hjá Ferðaskrifstofu ríkisins. Útförin fór fram í kyrrþey. Saman áttu Ingi- björg og Þorsteinn þrjú börn. Elst er Steinunn Ágústa Þorsteinsdóttir, fædd 4. apríl 1956, eiginmaður hennar er Grétar Kjart- ansson, fæddur 10. apríl 1953. Börn þeirra eru: Ingi- björg Ágústa, fædd 1975, synir hennar eru Breki, fæddur 1997 og Loki, fæddur 2012, Erla, fædd 1979 og Kjartan Fannar, fæddur 1982. Sambýliskona hans er Ásta Birna Gunnarsdóttir, son- ur þeirra er Úlfur, fæddur 2018. Fyrir átti Grétar soninn Hlyn Inga, eiginkona hans er Elma Benediktsdóttir og börn hans eru Júlíus Kjartan, Henrý Jarl og Herdís Rún. Jakob er fæddur 24. nóv- ember 1957. Eiginkona hans er Elsku amma mín, með þessum fáu orðum langar mig að kveðja þig og þakka þér fyrir allar sam- verustundirnar okkar. Það er alltaf sárt að kveðja en ég er viss um að þér líður betur núna í faðmi afa og Lukku okkar. Þú tókst alltaf svo vel á móti mér á Kambsveginum, þú varst góð heim að sækja og mér leið alltaf vel í kringum þig. Þú hafðir einstakan húmor og þér fannst alltaf gaman að segja mér sögur af þér sem ungri konu, og þá fyrst og fremst til að gefa mér ráð í ástamálum. Þrátt fyrir veik- indi þín hélstu alltaf í þinn ein- staka húmor og ég mun seint gleyma þeirri stundu sem ég heimsótti þig á taugadeild Land- spítalans og þú tilkynntir mér það að þú værir búin að finna gott mannsefni fyrir mig og krafðist þess að fá mynd af mér til að hafa við höndina á spít- alanum til að sýna drengnum, ég meina hversu frábær er hægt að vera! Ég mun halda fast í allar góðu minningarnar og má þar meðal annars nefna allar þær stundir sem við áttum saman í kartöflu- garðinum góða þar sem þú bauðst alltaf upp á kræsingar, heimsins bestu pönnukökur og heitt súkkulaði á brúsa. Þú varst mjög heimakær og áttir það til að einangra þig svolítið seinustu árin og forðast að fara á staði það sem var margmenni og þess vegna finnst mér svo dýrmætt að þú hafir ákveðið að vera viðstödd þegar ég útskrifaðist úr mennta- skóla á sínum tíma. Takk amma fyrir allar þessar yndislegu minningar sem við eig- um saman, ég elska þig! Þín ástkæra dótturdóttir, Steinunn Sara. Elsku mamma, þótt það sé sárt að kveðja, þá var hvíldin kærkomin fyrir þig. Þú varst bú- in að glíma við erfið veikindi síð- astliðið ár. Greiningu á veikind- um þínum fékkstu í október síðastliðnum, MND var raunin, sjúkdómurinn var farinn að taka af þér allan mátt og þar á meðal áttirðu erfitt með að tjá þig. Erf- itt var fyrir þig að geta ekki tjáð þig almenninga þar sem þú hafð- ir mikla þörf fyrir að koma skoð- unum þínum á framfæri. Það er margs að minnast og margar góðar minningar sem ég á um þig. Þær voru ófáar ferð- irnar sem við fórum í kartöflu- garðinn þar sem þú elskaðir að eyða þínum stundum. Heilu og hálfu dagarnir fóru í að reyta arfa og vökva kartöflurnar og grænmetið þegar þannig viðraði. Þau voru ófá eplin og brauðin sem þú barst heim úr búðinni til að gefa fuglunum í hverfinu og það var ótrúlegur fuglasöngur- inn sem ómaði á Kambsveginum. Þú varst mikill dýravinur, mýsn- ar sem þú fangaðir í skúrnum þínum keyrðir þú niður í Laug- ardal og rottan sem settist að í bílskúrnum þínum um tíma fékk pönnukökur á jólunum. Þær voru ófáar flatkökurnar sem við bökuðum saman fyrir jólin og voru þessar flatkökur ómissandi hluti af jólunum hjá fjölskyldunni minni. Ekki má gleyma að nefna allar smáköku- tegundirnar, terturnar og aðrar kræsingar sem tóku á móti manni þegar maður kom á Kambsveginn. Nokkrar voru farnar ferðirnar til að tína jurtir fyrir grasaá- burðinn góða sem kom mörgum að góðum notum. Þú kenndir mér ótrúlega margt sem ég mun búa að alla ævi og varst alltaf tilbúin að rétta hjálparhönd ef maður þurfti á henni að halda. Ég kveð þig með söknuð í hjarta elsku mamma. Takk fyrir að vera svona góð við mig og fjölskyld- una mína, ég er þér ævinlega þakklát fyrir allt. Þín ástkær dóttir, Berglind Þorsteinsdóttir. Elsku Íbba amma. Það má með sanni segja að við áttum margar góðar stundir saman, allt frá þeim degi sem ég fæddist til dagsins í dag. Þessi jól og ára- mót voru alls ekki eins án þín og hugsaði maður oft um hvað það væri leiðinlegt að geta ekki kíkt í heimsókn á Kambsveginn til að spjalla um lífið og tilveruna. Eftir að hafa aðstoðað þig núna í 30 ár í kartöflugörðum víðsvegar um landið með mikilli gleði og skemmtun, ásamt góm- sætum veitingum, þá held ég að kartöflurækt sé komin í smá stopp í bili, allavega hjá mér. Það er mikill söknuður hjá fjölskyldunni í Baugakór og mik- ið rætt hvar Íbba amma sé og hvort hún sé alveg farin frá okk- ur. Viktor og Hallur áttu það til að vilja fara í heimsókn til þín þegar þeir fengu að velja hvað ætti að gera enda fengu þeir að gera og borða allt sem þeir vildu á Kambsveginum. Ég vona að þér líði betur núna því maður sá alveg hvað þessi sjúkdómur fór illa með þig og að lokum tók þig frá okkur sem ég á mjög erfitt með að sætta mig við. En við áttum líka góðar stundir á spítalanum og mér er mest í minnum kvöldið sem ég kom með ísinn til þín og þú varst svo glöð að koma honum niður og talaðir um að þetta væri besti bitinn sem þú hefðir fengið lengi. Þinn ástkæri dóttursonur, Þorsteinn Hallsson. Ingibjörg Ágústsdóttir 18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 2020 Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir, JÓN VALUR JENSSON guðfræðingur, ættfræðingur, ljóðskáld, bloggari og aðgerðasinni, Framnesvegi 58, Reykjavík, lést á heimili sínu sunnudaginn 5. janúar. Útför hans fer fram frá Dómkirkju Krists konungs í Landakoti fimmtudaginn 16. janúar klukkan 15. Katrín María Elínborgard. Þorlákur Jónsson Lam Huyen Ísak Jónsson Sóley Kristín Jónsdóttir Andri Krishna Menonsson Rita Jørgensen Chinyere Elínborg Uzo Elsa María Bachadóttir Kolbrún Jensdóttir Ástkær móðir mín og systir, ELÍZA ÞORSTEINSDÓTTIR, Eiðistorgi 3, verður jarðsungin frá Kapellunni í Fossvogi miðvikudaginn 15 janúar klukkan 15. Jódís Jóhannsdóttir Lilja Þorsteinsdóttir Aðalheiður Þorsteinsdóttir Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð vegna andláts móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu, INGIBJARGAR G. GUNNLAUGSDÓTTUR frá Ólafsfirði, áður til heimilis í Hólmgarði 66, en hún lést laugardaginn 7. desember. Sérstakar þakkir til starfsfólks dvalarheimilisins Grundar í Reykjavík. Haraldur Kr. Haraldsson Guðný S. Marinósdóttir Kolbrún Jarlsdóttir Arna Haraldsdóttir Elfur Haraldsdóttir Rafn Andri Haraldsson Hlynur Haraldsson Ævar Jarl Rafnsson Sunna Björg Sigurjónsdóttir og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.