Morgunblaðið - 14.01.2020, Side 19

Morgunblaðið - 14.01.2020, Side 19
HINSTA KVEÐJA Elsku amma Stella, þú varst skemmtileg og góð. Það var svo gaman að gista hjá þér. Ég mun sakna þín mikið. Það var alltaf gaman að spila við þig, fá ís og horfa á mynd hjá þér. Þú varst svo góð í að spila og vera amma. Viltu passa ömmu Bínu fyrir okkur? Ég elska þig, þín Ársól Ella. ✝ Elín Heiðdalfæddist á Pat- reksfirði 28. nóv- ember 1942. Hún lést 31. desember 2019. Þar ólst hún upp hjá móður sinni, Önnu Sigríði Jóhannesdóttur, og móðursystrum, El- ínu og Ólafíu Þór- nýju. Systkini hennar eru: Agnes Ágústsdóttir, f. 1926, d. 1998; Hannes Ágústsson, f. 1928, maki Jóhanna Pétursdóttir, f. 1929, d. 1991; Jóhannes Árnason, f. 1935, d. 1989, maki Sigrún Sig- urjónsdóttir, f. 1938; Herdís Heiðdal, f. 1939, maki Magnús Ólafsson, f. 1942, d. 2003; Hauk- ur Heiðdal, f. 1941, maki María Haraldsdóttir, f. 1939. Einnig ólst upp á heimilinu dóttir Agnesar, Elín Herdís Þorkels- dóttir, f. 1946, maki Ólafur Pét- ursson, f. 1945. Elín giftist Jóni Baldvinssyni 15. október 1960. Þau skildu. Dætur þeirra: 1) Elín Anna, at- hafnakona, f. 17.2. 1961, d. 1.12. 2001. Maki hennar var Guð- mundur Ólafur Guðmundsson, f. 1957. Börn þeirra: a) Katrín, fluttu til Skotlands vegna náms Jóns var Elín aðeins 23 ára með tvær ungar dætur. Eftir að þau fluttu heim til Íslands fæddist yngsta dóttirin, Helena. Vegna atvinnu Jóns fluttu þau á milli höfuðborgar og Patreksfjarðar og enduðu í Mosfellssveit árið 1974. Elín var 34 ára þegar þau Jón skildu og hún flutti til Reykjavíkur inn í Ljósheima með dæturnar þrjár. Á sama tíma hóf hún sjúkraliðanám og var í fyrsta útskriftarbekk árið 1977. Síðar tók hún meira nám í Fjölbrautaskólanum við Ár- múla. Hún starfaði sem sjúkra- liði mestan hluta starfsævinnar og vann við heimahjúkrun síð- ustu árin. Um miðjan 9. áratuginn hóf hún sambúð með Gísla Þor- valdssyni. Í framhaldi af því fóru þau að reka húsgagna- verslun saman og tók hún þá hlé frá sjúkrahússtörfum. Þau Gísli slitu samvistir 2001 en hún hélt alltaf góðu sambandi við börn hans. Dætur Elínar eignuðust sex börn samanlagt og varð Elín af- ar ung amma og langamma.Hún spilaði reglulega félagsvist og stjórnaði spilakvöldum bæði í sal og heima fyrir. Útför Elínar fer fram frá Langholtskirkju í dag, 14. jan- úar 2020, klukkan 13. f. 1980, maki Jónas Dagur Jónasson, f. 1975. Börn: Ólafur Gunnar og Jón Páll, stjúpbörn Katrínar eru Ásta og Dagur. b) Júl- íanna, f. 1988, maki Raghed Saadieh, f. 1990. c) Eiríkur Árni, f. 1992, maki Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir, f. 1992. Börn: Elín Indra og Ragn- hildur Stella. d) Davíð Árni, f. 1994, maki Thelma Rún Matt- híasdóttir, f. 1997. Dóttir þeirra Eyvör Emma. 2) Guðrún Hlín, bókari, f. 19.4. 1963, d. 14.7. 2019. Hún var í sambúð með Haraldi Sverrissyni, þau skildu. Dóttir þeirra er Steinunn Anna, f. 1981, maki Hallur Árnason, f. 1982. Börn: Áróra, Árni Hrafn og Ársól Ella. 3) Helena, lista- kona, f. 26.7. 1968, eiginmaður Þorvaldur Þorsteinsson, f. 1960, d. 2013. Sonur Dagur Benedikt Reynisson, f. 1993. Hún giftist ung Jóni Baldvins- syni og var 18 ára þegar fyrsta dóttirin, Elín Anna, kom í heim- inn. Tveimur árum síðar mætti Guðrún Hlín og þegar þau Jón Það er skammt stórra högga á milli. Elsku amma Stella sem var minn klettur og mín stoð í veik- indum mömmu sem lést í júlí sl. farin svo óvænt og skyndilega. Svo margar minningar æsku minnar tengjast ömmu Stellu á einhvern hátt. Ljósheimarnir sem voru okkur alltaf opnir, sumrin á Höfn, dillandi hláturinn og spil á borði. Grýtufjölskyldan er sam- heldin og því svo margar góðar stundir sem maður getur verið þakklátur fyrir á svona stundum. Mikið sem ég mun sakna nota- legra heimsóknanna í Ljósheim- ana, kaffi og skraf og sérleg úttekt á gæðum vínarbrauðs helstu bak- aría höfuðborgarinnar. Og mikið sem börnin mín munu sakna því amma var frábær langamma sem naut stundanna með hópnum sín- um. Þau voru ávallt velkomin til hennar og oftar en ekki gerðist það að þau fengu að velja sér eitt- hvað fallegt úr töfraskáp ömmu sem virtist endalaus uppspretta af gjöfum fyrir öll börnin. Amma var mér dýrmætur vin- ur, við vorum líkar á svo margan hátt og því svo gott að hafa getað hallað höfði á trygga öxl þegar á móti blés og deilt með gleði þegar þannig stóð á. Ég hefði svo óskað að stundirnar okkar hefðu orðið fleiri og það var svo margt sem mig langaði að bralla með henni. En ég ylja mér við þær ljúfu stundir sem náðum að njóta saman. Ferðin okkar norður í haust, grauturinn á aðfangadag, spilakvöldið á öðrum degi jóla. Þetta eru dýrmætar minningar sem ég ætla alltaf að geyma. Ég veit að það verður vel tekið á móti þér á nýjum stað enda hefur þú misst svo margt, elsku amma. Elsku Helenu og öðrum að- standendum votta ég mína dýpstu samúð. Steinunn Anna Haraldsdóttir. Elskuleg móðursystir okkar, Stella, er horfin frá okkur allt of skjótt og með engum fyrirvara. Hún og dæturnar eða „Stella og stelpurnar“ hafa verið órjúfanleg- ur hluti af lífi okkar alla tíð en mikill samgangur var okkar á milli og stutt á milli heimilanna í Álfheimum og Ljósheimum. Það var að lágmarki ein heimsókn á dag en oftast sátu þær þrjár við eldhúsborðið í Álfheimunum; mamma okkar, Stella og auka- systirin hún Ella Dísa sem er dóttir elstu systur þeirra, Agnesar, og ræddu lífsins gagn og nauðsynjar. Þær áttu margt sam- eiginlegt, t.a.m. nöfnin sem voru bara tvö (Elín, Herdís og Elín Herdís), en það var örugglega snemma ákveðið að kalla þær mis- munandi nöfnum þar sem rugling- ur hlýtur að hafa verið tíður. Minning frá æskuárum tengist þessum þremur stöllum saman- komnum ásamt ilmi af nýlöguðu kaffi, seinnipartssígarettunni sem fékk svo að fjúka þegar fór að líða á níunda áratuginn og permanenti í hárinu. Þetta var bara fastur lið- ur í tilverunni. Stella var ein af þessum per- sónum sem eru á óræðum aldri; jafnvel þótt árin færðust yfir var hún alltaf svo ungleg og það fylgdi henni þessi léttleiki og kímni sem erfitt er að lýsa í orðum en þau sem umgengust hana tengja svo auðveldlega við. Bros, hlýja og þægileg nærvera. Það var Stella. Síðustu árin hafa verið Stellu erfið og er stutt síðan við settumst niður og skrifuðum minningar- grein um Guðrúnu Hlín, ekki einu sinni sex mánuðir liðnir. Féll þar frá önnur systirin af þremur en Elín Anna lést einungis fertug í bílslysi. Mikið var því lagt á herðar Stellu. Að þurfa að sjá á bak þeim Elínu og Guðrúnu setti óneitanlega sín spor á hana og var síðasta höggið þungt eftir að hafa hlúð að og hjúkrað Guðrúnu í erf- iðum veikindum hennar. Við eigum góðar minningar í farteskinu þrátt fyrir að söknuður sé okkur efst í huga núna. Við vilj- um ekki trúa því að hún sé farin frá okkur, heldur dúkki upp næst þegar við erum á Íslandi. Gefi okkur knús og gauki einhverju úr skápnum góða að krökkunum. Takk fyrir allt, elsku Stella okkar. Innilegar samúðarkveðjur sendum við öllum hennar nán- ustu. Ingibjörg Magnúsdóttir og Ólafur Magnússon. Elín Heiðdal er látin, höggið var þungt og snöggt. Hún var oft- ast kölluð Stella af sínum nánustu og vinum. Okkar kynni hófust síðla árs árið 1970 þegar Magnús bróðir minn kvæntist Herdísi systur hennar. Stella var fremur hlédræg og sein til kynna en þeg- ar inn úr skelinni var komið var viðkynningin góð. Þegar hún bjó á Patreksfirði var samgangur lítill en jókst þegar hún flutti suður, fyrst í Mosfellssveit og síðan til Reykjavíkur. Stella hóf fljótlega nám í Sjúkraliðaskólanum og lauk þaðan námi. Vann hún fyrst á Landspítalanum, síðan á Landa- koti og síðustu starfsárin við heimahjúkrun. Hún hafði mikla ábyrgðartilfinningu fyrir starfinu og veitti skjólstæðingum sínum umhyggju og hlýju sem er svo mikilvægt í hjúkrunarstarfinu. Ofarlega í huga mínum er þegar við mæðgur, Ingibjörg móðir mín og Jóhanna systir, fórum og heim- sóttum hana á Höfn í Hornafirði þar sem hún bjó í nokkur ár með Gísla Þorvaldssyni. Þar dvöldum við í nokkra daga við hinn besta viðurgjörning og ber að þakka það. Stella fór ekki varhluta af þungum áföllum í lífinu. Elín Anna, elsta dóttir hennar, lést í bílslysi árið 2001 og Guðrún Hlín, næstelsta dóttirin, lést úr krabba- meini í júlí sl. Helena, yngsta dótt- irin, býr í Belgíu. Við Stella áttum góðar stundir í nóvember sl. þeg- ar við aðstoðuðum Herdísi systur hennar við að ganga frá vegna íbúðaskipta. Þar komu í ljós skipulagshæfileikar hennar ásamt ríku fegurðarskyni. Skop- skynið var ekki langt undan held- ur. Ég kveð Stellu með miklum söknuði og votta Helenu og fjöl- skyldunni allri innilega samúð. Hvíl í friði. Sigríður P. Ólafsdóttir. Elín Heiðdal MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 2020 ✝ Friðjón Jó-hannsson fæddist í Hafn- arfirði 21. janúar 1957. Hann lést á heimili sínu í Reykjanesbæ 2. janúar 2020. For- eldrar hans voru Málfríður Björns- dóttir Þórodds- dóttir, húsmóðir frá Fáskrúðsfirði, f. 23. maí 1921, d. 19. sept- ember 1984, og Jóhann Þór- lindsson, útgerðarmaður frá Fáskrúðsfirði, f. 5. apríl 1920, d. 13. október 1983. Friðjón var næstyngstur átta systkina, en systkini hans eru þau Guð- laugur, f. 1. apríl 1943, Þórl- indur, f. 19. september 1945, Arnar Þór, f. 7. mars 1952, Jónína Sjöfn, f. 23. mars 1953, d. 27. október 2005, Smári, f. 23. október 1954, Gunnar, f. 6. desember 1955 og Magnús, f. 30. júní 1959, d. 4. júní 2001. Barnsmóðir Friðjóns var Sjöfn Jónsdóttir, f. 8. desember 1959, en þau slitu sam- vistum 1987. Þau eignuðust saman tvö börn: Davíð Friðjónsson, f. 22. mars 1978, og Völu Rut Sjafn- ardóttur, 25. desember 1979. Davíð er giftur Kolbrúnu Sif Marinósdóttir og saman eiga þau börnin Aldísi Ósk, Jó- hann Kára og Arneyju Sjöfn. Vala Rut er gift Ólafi Magn- úsi Ólafssyni og þau eiga börnin Davíð Leó og Hákon Val. Útför Friðjóns fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 14. janúar 2020, kl. 13. Elsku pabbi, mér finnst svo óraunverulegt að sitja hérna í stofunni heima og skrifa þessi kveðjuorð til þína núna. Það er svo stutt síðan við héldum jól saman heima hjá okkur og sátum við þetta sama borð. Það var alveg dásamleg stund og ég er svo þakk- látur fyrir að hafa fengið að eiga þann tíma með þér. Það er ómet- anleg minning fyrir krakkana sem sakna þín svo mikið. Ég lærði svo margt af þér. Þú sást alltaf það góða í öllum og dæmdir aldrei neinn. Þú varst allt- af svo umburðarlyndur og glaður alveg sama hvað gekk á. Ég leit alltaf upp til þín. Þú varst líka alltaf svo örlátur. Sem dæmi um það þá komst ég að því eftir að þú lést og ég fór inn á heimabankann þinn að þú varst mánaðarlegur styrktaraðili hjá alls konar góðgerðarsamtökum; eins og kvennaathvarfinu, Pieta- samtökunum, UNICEF, SOS barnaþorpunum, Blindrafélaginu, SÍBS, Gistiskýlinu og mörgum fleiri. Þú fannst alltaf leið til að leggja þitt af mörkum þó þú hefðir ekki mikið á milli handanna sjálf- ur. Ég hef reynt að temja mér þessa kosti þína. Þú kenndir mér að veiða þegar ég var pínulítill gutti og fram að fermingu var ég alltaf að fara með þér í veiðiferðir, bæði í vötn og ár, og líka nokkra túra á trillunni út á sjó. Sem krakki var ég mjög óþol- inmóður, en veiðin kenndi mér þolinmæði og að yfirstíga alls kon- ar ótta. Ég man þegar þú varst að kenna mér að skjóta úr byssu og ég ætlaði ekki að þora það, þá sagðir þú: „Þú ert sonur minn, svo þú getur þetta.“ Það hvatti mig áfram og fékk mig til þess að þora. Eftir að ég varð fullorðinn fékk ég sjálfur brennandi áhuga á veiði, og alltaf þegar ég fór í veiðiferðir hringdir þú í mig. Þú vildir vita hvernig hefði gengið og hvað ég hafði fengið. Þú fórst líka með mig í sveit þeg- ar ég var aðeins 9 ára, og komst mér svo eftir það að í sveit á sveita- bænum sem þú hafðir sjálfur verið á. Þú sagðir að það væri mikilvægt að læra að vinna og það gerði ég svo sannarlega og er þér mjög þakklátur fyrir þessa reynslu. Þú áttir svo auðvelt með að sýna okkur ástúð og hvað þér þótti vænt um okkur. Þegar við gistum hjá þér um helgar þá klóraðir þú okkur svo oft á bakinu, og það var svo notalegt, ég hef sjálfur gert það við mín börn og þau elska það. Þú varst mikill áhugamaður um fótbolta og alltaf þegar Chelsea var að spila þá hringdir þú og spurðir hvort ég ætlaði að horfa á leikinn, svo þegar Chelsea skoraði þá hringdir þú aftur og sagðir: „Ertu ekki örugglega að horfa? Sástu markið?“ Þú sást ekki sólina fyrir barna- börnunum. Þú varst alltaf að hringja og spyrja hvernig þau hefðu það og þú varst svo dugleg- ur að hrósa þeim og segja hvað þú værir stoltur af þeim. Aldís, Jó- hann og Arney, barnabörnin þín, elska þig svo mikið og munu sakna þín og við öll. Takk, elsku pabbi, fyrir allt saman. Ég mun aldrei gleyma þér. Heima hjá þér var innrömmuð mynd sem lýsir þér svo vel og kjarnar líf þitt: „Kærleikurinn gerir ekki náunganum mein, því er kærleikurinn fylling lögmáls- ins.“ (Róm. 13) Þinn sonur, Davíð Friðjónsson. „Þegar veturinn gengur í garð missa tré og aðrar plöntur lauf sín tímabundið. Þessar plöntur og tré innihalda hins vegar lífskraftinn sem þau þurfa til þess að bera brum að nýju þegar vorar. Það sama gerist við andlát mannlegrar veru. Við innihöldum lífskraftinn sem leiðir okkur til nýrrar tilvistar - að nýju hlutverki - þegar í stað og án sársauka.“ (Daisaku Ikeda) Elsku pabbi, mér finnst svo óréttlátt að fá aldrei aftur að heyra þig hlæja eða segja aula- brandara, þú sem varst bestur og fyndnastur af öllum. Þú varst svo mikill húmoristi og alltaf að grínast eitthvað. Ég man eftir því þegar við stoppuðum einu sinni í lúgusjoppu og þú spurðir afgreiðslukonuna hvað vikan hjá henni kostaði, hún svaraði þér hvað blaðið Vikan kostaði, og þá sagðir þú: „Þá ætla ég bara að fá einn dag.“ Þú varst alltaf að segja brandara og fá fólk til að hlæja. Nú fæ ég aldrei aftur að hringja í þig 20. og 21. janúar til að óska þér til hamingju með báða afmæl- isdagana þína, en afmælisdagur þinn var rangt skráður í kirkju- bækur svo þú sagðist alltaf eiga tvo afmælisdaga. Þú varst svo óendanlega góður maður með svo stórt og gott hjarta. Þú vildir öllum vel og varst alltaf tilbúinn að rétta hjálpar- hönd. Þú talaðir aldrei illa um neinn og sagðir alltaf við mig ef ég blótaði: „Ekki blóta, Vala mín.“ Nú munt þú aldrei aftur segja „Vala mín“. Mér líður eins og hjarta mitt sé að brotna í tvennt þegar ég hugsa til þín. Þú hafðir mikinn áhuga á öllum tækninýjungum og varst mjög spenntur yfir forriti sem ég sagði þér frá sem við vorum með í sím- anum þar sem við í fjölskyldunni gátum séð hvar allir voru staddir og allar ferðir sem við fórum. Eftir að þú fékkst forritið í símann hjá þér hringdirðu reglulega í okkur til að spyrja af hverju við værum stödd hér eða þar, og ef ég keyrði óvart of hratt hringdir þú og sagð- ir: „Þú mátt ekki keyra svona hratt, Vala mín.“ Ég er svo þakklát fyrir að ég náði að tala við þig daginn áður en þú kvaddir. Ég náði að segja við þig „gleðilegt nýtt ár“ og „ég elska þig pabbi minn“. Takk fyrir allt elsku pabbi. Vonandi tóku Maggi og Sjöbba, systkini þín, vel á móti þér í sum- arlandinu. Ég hlakka til að sjá þig þegar minn tími kemur. Ég elska þig endalaust elsku pabbi minn. Þín dóttir, Vala Rut. Friðjón Jóhannsson Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðirog amma, GUÐBJÖRG BERGS Löngulínu 18, Garðabæ, lést fimmtudaginn 9. janúar. Útförin fer fram frá Langholtskirkju föstudaginn 17. janúar klukkan 15. Viðar Gunnarsson Gunnar Bjarni Viðarsson Inga Lára Ólafsdóttir Kolbrún Lís Viðarsdóttir Baldur Þór Jack og barnabörn Okkar yndislegi bróðir, mágur og frændi, BERGUR INGI GUÐMUNDSSON, Skálahlíð 11, Mosfellsbæ, lést á heimili sínu 7. janúar. Útförin fer fram frá Hólskirkju, Bolungarvík, laugardaginn 18. janúar klukkan 11. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Skálatúnsheimilið. Pálmi Á. Guðmundsson Lene B. Vestergaard Kristján J. Guðmundsson Drífa Gústafsdóttir Jónína Elva Guðmundsdóttir og fjölskyldur Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, KRISTÍN KOLBRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR, lést á HSU, Selfossi, föstudaginn 10. janúar. Útförin fer fram frá Oddakirkju laugardaginn 18. janúar klukkan 13. Samúel Guðmundsson Rúnar Samúelsson Amanda Berry Íris Björk Samúelsdóttir Jón Páll Gestsson Fjóla Björk Samúelsdóttir Dorte Holm Hansen og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.