Morgunblaðið - 14.01.2020, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 2020
Vatnsheldir útivistarskór
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
• Léttur útivistarskór úr leðri
• Vatnsheldur
• Ortholite innsóli
• Góður sóli sem gefur gott grip
Verð 19.995
Stærðir 36 - 47
Titlis Jab
60 ára Ísleifur ólst upp
í Njarðvík og Sandgerði
en býr í Reykjavík.
Hann er með sveins-
próf í offsetprentun frá
Odda og er prentari hjá
Prentmet Odda.
Maki: Halldóra Sigrún
Guðmannsdóttir, f. 1972, geislafræðingur
á Landspítalanum.
Börn: Sigvarður Hans, f. 1979, Hermann,
f. 1984, Guðrún María, f. 1986, Elísabet
Lilja, f. 2003, og Alexander Freyr, f.
2006. Barnabörnin eru orðin þrjú.
Foreldrar: Jakob Þorsteinsson, f. 1912,
d. 1994, starfsmaður Íslenskra aðal-
verktaka á Keflavíkurflugvelli, og Lilja
Guðmundsdóttir, f. 1918, d. 1998, hús-
móðir í Njarðvík og Sandgerði.
Ísleifur Óli Jakobsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Dagurinn í dag er kjörinn til að tala
opinskátt um hlutina. Með því að full-
komna þína opinberu persónu kemstu
áleiðis á sviðinu sem þú einbeitir þér að.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú færð góðar hugmyndir í dag.
Dugnaður þinn hefur verið svo mikill að nú
getur þú notað orku þína í eitthvað full-
komlega léttúðugt.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Ekki bregðast illa við þótt sam-
starfsmenn þínir hafi uppi efasemdir um
verklag þitt. Forðastu að dragast inn í at-
burðarás sem í raun kemur þér ekkert við.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Gefðu sjálfum þér tíma til að sinna
áhugamálunum og fjölskyldunni. Biddu
þann sem þú treystir best til að hjálpa þér
að sjá hvar þú stendur í ákveðnu máli.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Ekki reyna að neyða einhvern til þess
að samsinna þér í dag. Gefðu þér tíma til
að greiða úr flækju og þá leysast allir hlut-
ir auðveldlega.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú vilt að gjörðir þínar beri árang-
ur, og sérð mörg tækifæri til að breyta og
bæta. Vertu sjálfri/um þér samkvæm/ur.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú stendur á þröskuldi nýrra tæki-
færa. Hugur þinn er skarpur og skýr og þú
kemur auga á hugmyndir og aðferðir sem
hvörfluðu aldrei að þér áður.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ekki halda að með því að eiga
meiri peninga verði líf þitt sveipað dýrð-
arljóma. Gerðu öðrum ljóst að þögn þín sé
ekki sama og samþykki.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Allt virðist ætla að ganga upp
hjá þér svo það er ærin ástæða til að
fagna með góðum vinum. Njóttu þess og
efldu styrk þinn fyrir átakameiri tíma.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Nú er komið að því að fjárfesta
arðinn af erfiði þínu. Svo þegar þér gengur
vel, skaltu verðlauna sjálfa/n þig.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þetta er fínn dagur þar sem
heimurinn reynir að koma til móts við
kröfur þínar. Reyndu að fara gætilega og
láta þér ekki sjást yfir smáatriði og vertu
sveigjanleg/ur.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú hefur lofað upp í ermina á þér
og sérð nú fram á að geta ekki staðið við
orð þín nema biðja um aðstoð.
grafíkdeild og myndhöggvaradeild
við skólann. Áður hafði hann verið
meðstofnandi Grafíkfélagsins (Ís-
lensk grafík) og fyrsti formaður þess.
Einar var um tíma listrænn stjórn-
andi Kjarvalsstaða og Ásmundar-
safns. Þar kom hann að fjölda sýn-
inga og alþjóðastarfi. Í safnatíð hans
var þátttaka Íslendinga í Feneyja-
tvíæringnum endurvakin. Einar hef-
ur komið að ýmsum menningar-
störfum, m.a. sem stjórnarmaður í
Norrænu menningarsamstarfi kennt
við Hässelby í Svíþjóð.
Árið 1996 byggði hann sjálfur og
rak fyrstu einkareknu menningar-
miðstöð á Íslandi, Listaskálann í
Hveragerði. Það var 1.000 fermetra
menningarmiðstöð með áherslu á
málverk. Þar voru haldnir tugir mál-
verkasýninga auk fjölda tónlistar-,
leiklistar- og bókmenntaviðburða. Í
dag er Listaskálinn Listasafn Árnes-
inga.
Síðustu áratugi hefur Einar ein-
göngu helgað sig listsköpun. Árið
2015 hélt Listasafn Reykjavíkur yfir-
litssýningu á verkum hans sem bar
heitið Púls tímans og spannaði 50 ára
feril hans.
„Ég er eiginlega veðurtepptur í
Reykjavík núna og útlitið er svart
um að komast heim,“ sagði Einar
arsamfélagið, Íslendingasögurnar og
trúarmyndir en Einar hefur unnið
talsvert að kirkjulist. Oft má finna
samtímasögur í verkunum, t.d.
Gunnlaugssundið við Vestmanna-
eyjar og gagnrýni á íslenskt sam-
félag t.a.m. byggðastefnu, sjávar-
útvegsmál og umhverfismál.
Árið 1974 stýrði hann stórsýning-
unni um 1.100 ára afmælissýningu
Íslandsbyggðar fyrir íslenska ríkið.
Hann var kennari við Myndlista- og
handíðaskólann um nokkurra ára
skeið og skólastjóri hans árin 1978-
1982. Á þeim árum stofnaði Einar
E
inar Hákonarson fædd-
ist 14. janúar 1945 í
Reykjavík og ólst upp í
Kleppsholti. Hann
gekk í Langholtsskóla
og síðan í Vogaskóla og þaðan beint í
Myndlista- og handíðaskóla Íslands
en Einar var einungis 15 ára gamall
þegar honum var veitt innganga þar.
„Ég byrjaði í myndlistinni þegar ég
var barn. Faðir minn var frístunda-
málari og það var mikið talað um list
í kringum mig, bæði af honum og
hans bræðrum svo þetta lá alltaf
beint við þótt sjórinn hafi aðeins tog-
aðh í mig.“
Á sumrin stundaði Einar sjó-
mennsku á síðutogurum en að lok-
inni skólavist hér heima tók við fram-
haldsnám í Valand-Listaháskólanum
í Gautaborg. Þar lagði Einar stund á
listmálun og svartlist. Í kjölfarið
hlaut hann alþjóðleg verðlaun fyrir
svartlist og Myndlistarverðlaun
Norðurlanda fyrir málverk sín.
Á Svíþjóðarárum Einars voru um-
rótatímar í alþjóðlegri myndlist sem
og samfélagslega og það hafði áhrif á
verk Einars. Fyrsta málverkasýning
hans á Íslandi 1968 var tímamóta-
sýning hér á landi þar sem mann-
eskjuform og tjástefna verka hans
voru á skjön við abstraktlist sem
hafði ráðið ríkjum á Íslandi í um 20
ára skeið. Sýningin markaði kaflaskil
með áhrifum popplistar, tjástefnu og
endurkomu manneskjunnar í ís-
lenska málverkið.
Einar hefur ávallt haldið sínu
striki í málverkinu þótt losnað hafi
um form og tjáningu hin síðari ár.
Hann hefur haldið yfir 40 einkasýn-
ingar á ferlinum og tekið þátt í fjölda
samsýninga á íslenskri og erlendri
grund. Einar hefur aðallega fengist
við listmálun og grafík en hann hefur
einnig unnið með skúlptúr, steint
gler, emaléringu og mósaík. Hann er
einn helsti portréttmálari okkar Ís-
lendinga og hann hefur málað marga
af helstu frammámönnum og ráða-
mönnum þjóðarinnar.
Manneskjan í umhverfi sínu hefur
verið sem rauður þráður í gegnum
ferilinn en Einar sækir oft innblástur
í íslenska náttúru og samfélag. Með-
al annarra yrkisefna má nefna borg-
þegar blaðamaður ræddi við hann í
gær. „Ég hef verið búsettur á
Hólmavík í 15-16 ár og mín aðal-
vinnustofa er þar. Margir héldu því
fram við mig þegar ég flutti þangað
að ég væri að fara í útlegð en nú
finnst mér eins og ég sé í útlegð í
Reykjavík. Á Hólmavík hef ég málað
flest af mínum bestu verkum, að ég
held, og er við sama heygarðshornið
í listinni. Samfélagið höfðar alltaf til
mín og ýmis vandamál sem snerta
landsbyggðina eru mér ofarlega í
huga í list minni. Ég hef alltaf haldið
því fram að fiskveiðistefna ætti að
vera byggðastefna og ég var að ljúka
við stóra mynd um það.“
Þrátt fyrir að vera strandaglópur í
Reykjavík var létt yfir Einari. „Ég
hef fulla starfsorku enn þá og ég á
lítinn bát og veiði mér stundum í soð-
ið. Það er ekkert betra en að vera á
spegilsléttum firðinum og draga
þorska.“
Fjölskylda
Eiginkona Einars er Sólveig
Hjálmarsdóttir, f. 29.5. 1944, hús-
freyja. Foreldrar hennar voru hjónin
Hjálmar Sigvaldi Halldórsson, f.
19.4. 1900, d. 30.11. 1961, rafvirki og
símstöðvarstjóri á Hólmavík, og Sól-
veig Magnúsdóttir, f. 2.1. 1903, d.
Einar Hákonarson listmálari – 75 ára
Ljósmynd/Alex Mirsch
Listmálarinn Einar á vinnustofu sinni á Hólmavík en þar hefur hann unnið mörg af sínum bestu verkum.
Fjallar um samfélagið í list sinni
Vinirnir Bragi Ásgeirsson listmálari
og Einar á góðri stundu um 1970.
30 ára Nadine er
fædd í Doha í Katar
en flutti til Íslands
fimm ára og býr í
Reykjavík. Hún er
með BA-gráðu í lög-
fræði frá Háskóla Ís-
lands en á ólokið
meistararitgerð í lögfræði frá HÍ.
Nadine er fréttamaður á Stöð 2, Vísi
og Bylgjunni.
Maki: Björgvin Ívarsson Schram, f.
1989, verkfræðinemi í HÍ.
Sonur: Theodór Nóel Schram, f. 2018.
Foreldrar: Guðrún Margrét Guð-
mundsdóttir, f. 1969, mannfræðingur,
búsett í Reykjavík, og Hannes Hassan
Yaghi, f. 1960, athafnamaður, búsettur
í Dúbaí.
Nadine Guðrún Yaghi
Til hamingju með daginn
Kópavogur Steinþór Hrafn Pétursson
fæddist 5. mars 2019 kl. 10.24 á Land-
spítalanum í Reykjavík. Hann vó 4.108
g og var 53 cm að lengd. Foreldrar
hans eru Soffía Arngrímsdóttir og
Pétur Brynjar Sigurðsson. Stóra
systir Steinþórs er Eyvör Þóra
Pétursdóttir.
Nýr borgari