Morgunblaðið - 14.01.2020, Blaðsíða 27
Ljósmynd/Einar Ragnar Haraldsson
Öflugur Sigvaldi Björn Guðjónsson svífur
inn í rússneska vítateiginn og skorar eitt af
sex mörkum sínum í leiknum í Malmö í gær.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 2020
Eftir að úrslit gærkvöldsins á
EM voru með allra hagstæðasta
móti er óhætt að fara að skoða
möguleika Íslands á að komast í
undankeppnina í handbolta karla
fyrir Ólympíuleikana í Tókýó
2020.
Nú er staðan þannig að Ísland
er ein af tíu þjóðum sem eiga enn
möguleika á þeim tveimur sætum
sem eru á lausu í undankeppni
ÓL.
Danmörk fer beint á ÓL sem
heimsmeistari og Noregur,
Spánn, Frakkland, Króatía, Þýska-
land og Svíþjóð hafa tryggt sér
sex af þeim átta sætum sem Evr-
ópa fær í undankeppninni.
Hin tvö fá þær tvær þjóðir sem
verða efstar á EM, fyrir utan þær
sjö sem upp voru taldar. Þær fara
væntanlega allar í milliriðla nema
Frakkar og kannski Danir og þar
með gætu liðin í 7. og 8. sæti
fengið umrædd tvö sæti í undan-
keppninni.
Nú eru það semsagt Ísland,
Hvíta-Rússland, Austurríki, Tékk-
land, Norður-Makedónía, Úkraína,
Ungverjaland, Portúgal, Slóvenía
og Sviss sem eiga ennþá mögu-
leika á þessum tveimur sætum.
Þrjú þessara liða munu helt-
ast úr lestinni í dag þegar keppni í
þremur riðlum lýkur á EM og ljóst
verður hverjir fara úr þeim í milli-
riðlana. Það fjórða gæti dottið út
á morgun, ef Ísland nær að koma í
veg fyrir að Ungverjaland fari
áfram úr E-riðlinum.
Leikurinn við Ungverja í
Malmö á morgun hefur því gríðar-
lega þýðingu þótt Ísland sé þegar
búið að tryggja sér sæti í milliriðli.
Ísland þarf á sigri að halda, ann-
ars vegar til þess að fara með tvö
stig í milliriðil (hvort sem það eru
Danir eða Ungverjar sem fylgja ís-
lenska liðinu þangað) og hins veg-
ar til að losa sig við skæðan
keppinaut í ólympíubaráttunni.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Ísland vann lygilegan 4:3-sigur á Búlgaríu í fyrsta leik
sínum í 3. deild karla á heimsmeistaramóti 20 ára og
yngri í íshokkíi í gærkvöld, en mótð fer fram í Sófíu, höf-
uðborg Búlgaríu.
Búlgaría jafnaði í 3:3 þegar 18 sekúndur voru til leiks-
loka og voru flestir farnir að búa sig undir framlengingu
þegar Unnar Hafberg Rúnarsson skoraði sigurmarkið,
einni sekúndu fyrir leikslok.
Staðan eftir fyrstu lotu var 1:1, en Unnar Hafberg
jafnaði eftir að heimamenn komust yfir. Sölvi Freyr
Atlason og Kári Arnarsson sáu til þess að íslenska liðið
var með 3:1-forskot fyrir þriðju og síðustu lotuna.
Búlgörum tókst að jafna í lokalotunni og fögnuðu gríðarlega, en eins og
áður segir kom þetta hádramatíska sigurmark í blálokin.
Ísland leikur við Mexíkó í öðrum leik sínum í dag, en Mexíkó vann sann-
færandi 5:0-sigur á Nýja-Sjálandi í dag. Tvö efstu lið riðilsins fara í undan-
úrslitin á mótinu. johanningi@mbl.is
Ævintýralegur sigur Íslands
Sölvi Freyr
Atlason
Magðalena Ólafsdóttir, 19 ára
knattspyrnukona úr Þór/KA, verð-
ur líklega fyrst íslensk kvenna til
að spila í skosku úrvalsdeildinni.
Hún hefur gert eins mánaðar
reynslusamning við Forfar Farm-
ington frá og með næstu mán-
aðamótum en keppnistímabilið í
Skotlandi hefst snemma í febrúar.
Magðalena var fyrirliði Íslands-
meistara Þórs/KA í 2. flokki og 2.
deildar liðs Hamranna á síðasta ári,
og lék tvo leiki með Þór/KA í úr-
valsdeildinni um haustið.
Fyrst að spila
í Skotlandi?
Ljósmynd/thorsport.is
Skotland Magðalena Ólafsdóttir fer
til Forfar í skosku úrvalsdeildinni.
Íþróttastjóri
sænska knatt-
spyrnufélagsins
Hammarby stað-
festir að félagið
hafi haft mikinn
áhuga á að fá
Viðar Örn Kjart-
ansson aftur í
sínar raðir en
segir að hann sé
of dýr fyrir fé-
lagið á þessari stundu. Laun Við-
ars í Rússlandi séu of há fyrir fé-
lagið.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu fyrir skömmu er Hamm-
arby eitt þeirra liða sem hafa vilj-
að fá Viðar í sínar raðir eftir að í
ljós kom að hann væri á leið frá
Rússlandi, þar sem hann er samn-
ingsbundinn Rostov og er nýkom-
inn aftur þangað úr láni hjá Rubin
Kazan. Viðar lék með Hammarby
sem lánsmaður fyrri hluta síðasta
árs og skoraði þá sjö mörk í 15
leikjum í sænsku úrvalsdeildinni.
Jesper Jansson staðfesti við Fot-
bollskanalen að hann hefði fylgst
vel með stöðu Viðars hjá Rostov
og verið í sambandi við hann, en
eins og staðan væri í dag væri
ekki raunhæfur kostur að fá hann
lánaðan eða keyptan. vs@mbl.is
Viðar er of
dýr fyrir
Hammarby
Viðar Örn
Kjartansson
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Gísla Þorgeiri Kristjánssyni, lands-
liðsmanni í handknattleik, er heim-
ilt að finna sér annað lið í janúar.
Hann hefur verið hjá þýska stórlið-
inu THW Kiel frá sumrinu 2018,
eða í eitt og hálft keppnistímabil.
Gísli hefur verið seinheppinn
varðandi meiðsli og hefur verið á
sjúkralistanum undanfarnar vikur
eftir að hafa farið úr axlarlið.
Fjölmiðlafulltrúi THW Kiel stað-
festi við Morgunblaðið að Gísli
hefði fengið grænt ljós til að finna
sér annað lið. Það væri væntanlega
besta lausnin fyrir hann á þessu
stigi ferilsins. Segir hann að for-
ráðamenn félagsins hafi rætt við
Gísla Þorgeir og umboðsmann hans
að undanförnu. Gísli gerði þriggja
ára samning við Kiel 2018.
Gísli varð tvítugur síðasta sumar
og hefur ekki verið í stóru hlut-
verki hjá Kiel þegar hann hefur
verið leikfær enda eru þar heims-
klassamenn fyrir á bás eins og
Domagoj Duvnjak. Næsta sumar
bætist norska stjarnan Sander Sag-
osen við hópinn hjá Kiel og er fyrir-
sjáanlegt að samkeppnin muni
harðna umtalsvert.
Ekki er Morgunblaðinu kunnugt
um á hvaða mið Gísli gæti róið en
þar sem hann hefur lengi þótt stór-
efnilegur getur hann vafalaust leik-
ið áfram í atvinnumennskunni út
keppnistímabilið. Fari svo að Gísli
kjósi að koma heim fram á sumarið
geta íslensk lið náð í leikmenn út
janúar.
AFP
Laus Gísli Þorgeir Kristjánsson
komst ekki á EM vegna meiðsla.
Gísla er heimilt að
finna sér nýtt lið
EM 2020
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Guðmundur Þ. Guðmundsson, þjálf-
ari íslenska karlalandsliðsins í hand-
bolta, var afar kátur eftir 34:23-
stórsigur á Rússlandi í öðrum leik
liðsins á EM í Malmö í gærkvöld. Ís-
land er með fullt hús stiga í E-riðli
eftir sigur á Danmörku í fyrsta leik.
„Ég fékk mjög mikið út úr leikn-
um,“ sagði Guðmundur í samtali við
Morgunblaðið eftir leikinn. „Ég var
mjög ánægður með varnarleikinn
okkar, hann var frábær. Sóknar-
leikurinn var stórkostlegur framan
af en svo hikstaði hann aðeins þegar
þeir breyttu um vörn.
Ég er mjög ánægður með leikinn í
heild. Varnarleikurinn var frábær
og ég var ánægður með að geta spil-
að á öllu liðinu og hvílt lykilleik-
menn, það var mjög mikilvægt. Það
komu inn menn sem stóðu sig frá-
bærlega; báðir hornamennirnir og
Viggó gerðu frábæra hluti o.s.frv.
Það var mjög jákvætt,“ sagði Guð-
mundur.
Ákveðið fyrir mótið
Bjarki Már Elísson og Sigvaldi
Björn Guðjónsson byrjuðu í horn-
unum í stað þeirra Guðjóns Vals Sig-
urðssonar og Arnórs Þórs Gunn-
arssonar, sem byrjuðu gegn Dönum.
Guðmundur tók ákvörðun um að
skipta um hornamenn með þessum
hætti fyrir mótið.
„Það var fyrir mótið. Þetta var
alltaf planið. Það verður að koma í
ljós hvort ég skipti þeim í hálfleik
eða hvernig það verður, það fer eftir
frammistöðu,“ sagði Guðmundur,
sem hrósaði svo Viktori Gísla Hall-
grímssyni, sem stóð sig gríðarlega
vel í markinu eftir að hann kom inn
fyrir Björgvin Pál Gústavsson.
„Viktor Gísli var frábær líka og
það var mjög ánægjulegt að sjá hann
með 80% markvörslu og það var frá-
bært að sjá hann koma inn og verja
mjög góða bolta úr dauðafæri.“
Með besta markvarðaþjálfara
í heimi
Guðmundur er ánægður með sam-
vinnu Viktors og Björgvins Páls
Gústavssonar og svo Tomas Svens-
son markmannaþjálfara.
„Björgvin og Viktor vinna mjög
vel saman og síðan erum við með
stórkostlegan markvarðaþjálfara í
Tomasi Svensson. Hann er að mínu
mati besti markvarðaþjálfarinn í
dag. Það er enginn vafi á því og
hann hjálpar gríðarlega mikið til,
bæði meðan á leik stendur og svo í
undirbúningi fyrir leik. Það fer mik-
il vinna í að undirbúa markmennina
og vonandi uppskerum við eftir því í
framhaldinu,“ sagði Guðmundur Þ.
Guðmundsson.
„Það var mikil-
vægt að geta
hvílt lykilmenn“
Ljósmynd/Einar Ragnar Haraldsson
Malmö Guðmundur Þ. Guðmunds-
son spenntur á hliðarlínunni.
Malmö Arena, EM karla, E-riðill,
mánudag 13. janúar 2020.
Gangur leiksins: 2:1, 6:3, 10:3, 15:6,
16:9, 18:11, 19:13, 22:14, 24:15,
26:17, 29:22, 32:23, 34:23.
Mörk Íslands: Bjarki Már Elísson
6/2, Alexander Petersson 6, Sigvaldi
Björn Guðjónsson 6, Arnór Þór
Gunnarsson 4/3, Viggó Kristjánsson
4, Janus Daði Smárason 4, Kári
Kristján Kristjánsson 2, Elvar Örn
Jónsson 2.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson
10, Viktor Gísli Hallgrímsson 6/1.
ÍSLAND – RÚSSLAND 34:23
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk Rússlands: Gleb Kalarash
6, Igor Soroka 4/4, Daniil
Shishkarev 4, Pavel Atman 2, Tim-
ur Dibirov 2, Alexsander Shkur-
inskij 2, Pavel Andreev 1, Aleks-
andr Ermakov 1, Dmitri Zhitnikov
1.
Varin skot: Victor Kireev 5/1,
Oleg Grams 2.
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Gjorgji Nachevski og
Slave Nikolov, Norður-Makedóníu.
Áhorfendur: 7.099