Morgunblaðið - 14.01.2020, Page 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 2020
ICQC 2020-2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
LOKAKAFLINN Í SKYWALKER SÖGUNNI
F ROM T HE D I R E C TOR OF S K Y FA L L
TILNEFNINGAR TIL
BAFTA VERÐLAUNA9
Neil Peart, trommari og textahöf-
undur kanadíska prog-rokk-tríós-
ins Rush, er látinn, 67 ára að aldri,
eftir þriggja ára glímu við heila-
æxli. Peart hefur af rokkunnendum
sem gagnrýnendum verið talinn
meðal bestu rokktrommara sög-
unnar. Til að mynda völdu álits-
gjafar Rolling Stone-tímaritsins
hann þann fjórða besta, á eftir John
Bonham, Keith Moon og Ginger
Baker.
Peart var í senn afar tæknilegur
og taktfastur trymbill; hann gat
bæði slegið upp sannkölluðum flug-
eldasýningum að baki sínum stóru
trommusettum, svo tugþúsundir
gesta voru hugfangnir á stórum
leikvöngum, sem leikið á fínlegan
og fágaðan hátt.
Rush-tríóið var stofnað árið 1968
en sló ekki í gegn af alvöru fyrr en
eftir að Peart hafði gengið til liðs
við Geddy Lee, sem söng, lék á
bassa og hljómborð, og gítarleik-
arann Alex Lifeson. Þá varð Peart
einnig textahöfundur sveitarinnar
og lög hennar breyttust í sannkall-
aðar svítur, oft í mörgum þáttum,
sem fjölluðu til að mynda um vís-
indaskáldskap, töfra og heimspeki.
Peart var trommari Rush í meira
en fjóra áratugi en lagði kjuðana á
hilluna árið 2015. Hann skrifaði
einnig bækur, um ferðalög sín og
endurminningar.
AFP
Dáður Peart þótti einstaklega snjall tækni-
lega en sláttur hans var einnig ákveðinn.
Einn fremsti rokk-
trommarinn allur
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Tilnefningar til Óskarsverðlaunanna
voru kynntar í gær og er Hildur
Guðnadóttir meðal fimm tónskálda
sem tilnefnd eru fyrir bestu frum-
sömdu tónlist fyrir kvikmynd. Hild-
ur er tilnefnd fyrir tónlist sína við
kvikmyndina Joker sem hún hefur
þegar hlotið nokkur merk verðlaun
fyrir, m.a. Golden Globe-verðlaunin.
Samkeppnin er hörð í þessum
flokki því aðrir tilnefndir eru Alex-
andre Desplat fyrir Little Women,
Randy Newman fyrir Marriage
Story, Thomas Newman fyrir 1917
og John Williams fyrir Star Wars:
The Rise of Skywalker. Hljóti Hild-
ur verðlaunin verður hún fyrst Ís-
lendinga til þess en nokkrir hafa
verið tilnefndir, þeirra á meðal Jó-
hann heitinn Jóhannsson fyrir tón-
list sína við The Theory of Every-
thing og Sicario árin 2014 og 2015.
Óskar aftur hvítur
Í flokki bestu kvikmyndar eru til-
nefndar Ford v Ferrari, The Irish-
man, Jojo Rabbit, Joker, Marriage
Story, Little Women, 1917, Once
Upon a Time in ... Hollywood og
Parasite. Leikarar tilnefndir fyrir
aðalhlutverk eru Antonio Banderas
fyrir Dolor y gloria, Leonardo Di-
Caprio fyrir Once Upon a Time …
in Hollywood, Adam Driver fyrir
Marriage Story, Joaquin Phoenix
fyrir Joker og Jonathan Pryce fyrir
The Two Popes.
Í flokki kvenna eru það Cynthia
Erivo fyrir Harriet, Scarlett Joh-
ansson fyrir Marriage Story, Sao-
irse Ronan fyrir Little Women,
Charlize Theron fyrir Bombshell og
Renee Zellweger fyrir Judy. Fyrir
aukahlutverk eru tilnefndir leikar-
arnir Tom Hanks fyrir A Beautiful
Day in the Neighborhood, Anthony
Hopkins fyrir The Two Popes, Al
Pacino og Joe Pesci fyrir The Ir-
ishman og Brad Pitt fyrir Once
Upon a Time … in Hollywood og
leikkonurnar Kathy Bates fyrir
Richard Jewell, Laura Dern fyrir
Marriage Story, Scarlett Johannson
fyrir Jojo Rabbit, Florence Pugh
fyrir Little Women og Margot
Robbie fyrir Bombshell.
Óskarsverðlaunin í fyrra voru
gagnrýnd fyrir hversu einlit þau
væru en þá voru allir tilnefndir leik-
arar hvítir, 20 talsins. Nú er aðeins
ein þeldökk leikkona meðal til-
nefndra, Cynthia Erivo. Óskarinn er
því aftur nær eingöngu hvítur, þrátt
fyrir þá hörðu gagnrýni.
Í flokki leikstjóra eru tilnefndir
Martin Scorsese fyrir The Irish-
man, Todd Phillips fyrir Joker, Sam
Mendes fyrir 1917, Quentin Tarant-
ino fyrir Once Upon a Time … in
Hollywood og Bong Joon Ho fyrir
Parasite. Engin kona er meðal til-
nefndra í þeim flokki en í sögu verð-
launanna hafa aðeins fimm verið til-
nefndar.
Sá hlær best sem síðast hlær?
Kvikmyndin Joker, sem segir af
geðsjúkum uppistandara sem missir
tökin á tilverunni og brýst fram sem
síhlæjandi illmennið Jókerinn, hlýt-
ur flestar tilnefningar til Óskarsins,
ellefu talsins en næstflestar hljóta
1917 og Once Upon a Time … in
Hollywood, tíu hvor. Þykir Joaquin
Phoenix líklegur til að hreppa verð-
laun sem besti leikari í aðalhlutverki
fyrir túlkun sína á Jókernum en
samkeppnin er þó hörð í þeim flokki.
Af öðrum verðlaunaflokkum má
nefna bestu erlendu kvikmynd, þ.e.
kvikmynd á öðru tungumáli en
ensku en Parasite eftir Bong Joon
Ho er líka meðal tilnefndra þar.
Hinar eru Corpus Christi eftir leik-
stjórann Jan Komasa, Honeyland
eftir Tamara Kotevska og Ljubo
Stefanov, Les misérables eftir Ladj
Ly og Dolor y gloria eftir Pedro
Almodovar.
Heildarlista yfir tilnefningar má
finna á mbl.is. Verðlaunin verða af-
hent 9. febrúar.
Óskar á leið til Hildar?
Hildur Guðnadóttir tónskáld er tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir tónlist sína
við kvikmyndina Joker Kvikmyndin hlýtur flestar tilnefningar, ellefu talsins
AFP
Tilnefnd Hildur Guðnadóttir.
Tilþrif Joaquin Pheonix þykir frábær í hlutverki Jókersins í kvikmyndinni
Joker. Hér stígur hann dans við tónlist Hildar í eftirminnilegu atriði.
AFP
Sjóaðir Leikarinn Joe Pesci og leikstjórinn Martin Scorsese á frumsýningu.
Ein Leikkonan Cynthia Erivo í kvik-
myndinni Harriet, sú eina þeldökka
af 20 leikurum sem tilnefndir eru til
Óskarsverðlaunanna 2020.