Morgunblaðið - 14.01.2020, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 14.01.2020, Qupperneq 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 2020 Ítalski sýningarstjórinn Cecilia Alemani hefur verið skipuð sýn- ingarstjóri 59. Feneyjatvíæringsins, sem verður opnaður í maímánuði á næsta ári. Er það talin ein mesta áhrifastaða í myndlistinni á hverjum tíma, en hún mun bera ábyrgð á því að setja saman fyrir tvíæringinn hina stóru yfirlitssýningu um hrær- ingar í samtímalistinni í ítalska skál- anum og Arsenale-skipasmíðastöð- inni frá miðöldum. Alemani starfar sem aðal- sýningarstjóri High Line-garðsins í New York. Þar hefur hún á síðustu árum sett upp verk og sýningar með listamönnum víða að, meðal annars Nari Ward og El Anatsui. Þess má geta að á sumarsýningu High Line fyrir þremur árum var verk eftir Katrínu Sigurðardóttur. Alemani er ekki ókunnug vinnu við Feneyjatvíæringinn því hún stýrði ítalska framlaginu til sýn- ingarinnar árið 2017. Þá stýrði hún einnig árið 2018 verkefninu „Hop- scotch/(Rayuela)“, sem lista- kaupstefnan Art Basel stóð fyrir í Buenos Aires, en það fólst í innsetn- ingum og gjörningum 18 listamanna víða um borgina. Í Feneyjum Frá myndlistartvíæringnum sem settur var upp í Feneyjum í fyrra. Alemani stýrir næsta tvíæringi Meðlimir bresku kvikmyndaaka- demíunnar sem bera ábyrgð á til- nefningum til Bafta-kvik- myndaverð- launanna, sem tilkynntar voru í liðinni viku, hafa verið harðlega gagnrýndir fyrir að velja nær ein- göngu hvíta listamenn og þá aðal- lega karla. Hörundsdökki leikstjór- inn og myndlistarmaðurinn Steve McQueen, sem hlotið hefur tvenn Bafta-verðlaun fyrir kvikmynd- irnar Hunger og 12 Years a Slave, segir ómyrkur í máli í samtali við The Guardian að verðlaunin eigi á hættu að verða marklaus fari þau ekki að hylla hæfileikafólk með fjölbreytilegri bakgrunn. Til að mynda voru einungis hvítir leik- arar tilnefndir til verðlauna í ár, þrátt fyrir að svartir leikarar af báðum kynjum hefðu einnig hlotið lof fyrir hin ýmsu hlutverk. Þá hefur Marc Samuelson, for- maður kvikmyndanefndar Bafta, sagst bálreiður yfir einsleitninni í vali á tilnefndum listamönnum til verðlaunanna og því að konur séu enn og aftur ekki tilnefndar fyrir bestu leikstjórn, og sé við hugarfar meðlima akademíunnar að sakast. Bafta-valið harð- lega gagnrýnt Steve McQueen Hildur var ekki eina íslenska kon- an sem var tilnefnd til Critics Choice-verðlaunanna því Heba Þórisdóttir var einnig tilnefnd í flokknum hár og förðun fyrir kvik- myndina Once Upon a Time … in Hollywood. Hún sigraði þó ekki, heldur hár- og förðunarteymið við kvikmyndina Bombshell. Kvikmyndin Once Upon a Time … in Hollywood hreppti þó verðlaun gagnrýnendanna sem besta kvikmynd ársins. Val rýnananna þykir oft ágæt vísbending á það hvaða mynd hreppir Óskarinn. Joaquin Phoenix var valinn besti karlleikarinn, fyrir leik sinn í Joker, Tónskáldið Hildur Guðnadóttir hreppti á sunnudagskvöldið enn ein verðlaunin fyrir tónlistina í kvik- myndinni Joker, þegar samtök gagn- rýnenda í Los Angeles veittu henni viðurkenninguna sem kennd er við Critics’ Choice, fyrir bestu kvik- myndatónlist á liðnu ári. Þetta voru þriðju verðlaunin sem Hildur tekur á móti fyrir tónlistina í Jókernum, en hún hreppti Golden Globe-verðlaunin og einnig verðlaun á hátíð Samtaka tónskálda og texta- höfunda vestanhafs. Þá hefur Hildur verið tilnefnd til bresku Bafta- verðlaunanna og var í gær tilnefnd til Óskarsverðlauna. og Renée Zellweger besta leikkonan fyrir frammistöðuna í Judy. Tveir leikstjórar deildu leik- stjóraverðlaununum, Sam Mendes fyrir 1917 og hinn suðurkóreski Bong Joon-ho fyrir Parasite sem jafnframt var valin besta kvikmynd- in gerð utan hins enskumælandi mál- svæðis. Brad Pitt var valinn besti auka- leikarinn fyrir Once Upon a Time in …Hollywood og Laura Dern besta leikkonan í aukahlutverki fyrir Mar- riage Story. Quentin Tarantino var verðlaunaður fyrir handritið að Once Upon a Time … in Hollywood og Toy Story 4 var valin besta teiknimynd. Gagnrýnendurnir völdu Hildi AFP Lukkuleg Hildur Guðnadóttir með Critics’ Choice-verðlaunagripinn. Einföldun rekstrarumhverfis fyrir atvinnulífið Setrið, Grand Hótel 16. janúar Nordic Smart Government 13:30 Smart Iceland - Smarter Nordics Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra 13:45 Nordic Smart Government for Nordic Smart Businesses Kjersti Lunde, Danish Business Authority 14:05 Capabilities and Business Processes for the NSG Ecosystem David Norheim, Norwegian Registration Office 14:25 Why Structured Data? Vuokko Mäkinen, Consultant Finland 14:45 NSG Legal Environment Franck Mertens, Finnish Patent and Registration Office 15:05 From Government Programme to Automation in Tax Jenni Bärlund, Finnish Tax Administration 15:25 Umræður 16:00 Fundi slitið Fundarstjóri: Jónas Magnússon, sérfræðingur hjá Skattinum Nordic Smart Government Nordic Smart Government er norrænt samstarfsverkefni um einföldun rekstrarumhverfis lítilla og meðalstórra fyrirtækja á Norðurlöndunum. Verkefnið miðar að því að gera fyrirtækjum og stofnunum kleift að miðla/sækja viðskipta- og bókhalds- gögn á sjálfvirkan, snjallan og öruggan hátt í því sem næst rauntíma. Þátttakendur í verkefninu koma frá fyrirtækjaskrám, skattyfirvöldum, hagstofum og fleiri aðilum. Hvert land er með eigið landsteymi sem gegnir m.a. því hlutverki að hafa samráð við hagsmunaaðila í heimalandinu. Skatturinn stýrir vinnu íslenska landsteymisins. Nánari upplýsingar: http://www.nordicsmartgovernment.org Allir sem hafa áhuga eru velkomnir og hvattir til að mæta. Skráning fer fram á slóðinni https://www.rsk.is/skraning-a-nsg/ Fyrir áhugasama utan fundar verður fundinum streymt á fésbókarsíðu Skattsins https://www.facebook.com/rikisskattstjori/

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.