Morgunblaðið - 14.01.2020, Qupperneq 32
Reyndir djassmenn koma fram á
djasskvöldi Kex hostels á Skúla-
götu 28 kl. 20.30 í kvöld. Þeir kalla
sig Kvartett Q og hann skipa Andr-
és Þór Gunnlaugsson á gítar, Sig-
urður Flosason á saxófón, Birgir
Steinn Theódórsson á kontrabassa
og Erik Qvick á trommur. Þeir fé-
lagar hyggjast leika fjölbreytilegt
og spennandi úrval tónlistar.
Djassmennirnir í
Kvartetti Q á Kexinu
ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 14. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Bæði Ungverjar og Danir gengu
vonsviknir af velli eftir að lið þeirra
skildu jöfn, 24:24, í seinni leik gær-
kvöldsins í E-riðli Evrópumóts karla
í handknattleik frammi fyrir 12 þús-
und áhorfendum í Malmö. Úrslitin
tryggðu Íslandi sæti í milliriðli og
þýða að Danir verða að treysta á að
Íslendingar vinni Ungverja til að ná
öðru sæti riðilsins. »26
Danir verða að treysta
á Íslendinga á morgun
ÍÞRÓTTIR MENNING
Gísla Þorgeiri Kristjánssyni,
landsliðsmanni í handknattleik,
er heimilt að finna sér annað lið í
janúar. Fjölmiðlafulltrúi THW Kiel
staðfesti við Morgunblaðið að
Gísli hefði fengið grænt
ljós til að finna sér ann-
að lið. Það væri vænt-
anlega besta lausnin
fyrir hann á þessu
stigi ferilsins. Hann
hefur verið hjá
þýska stórliðinu
frá sumrinu
2018, eða í
eitt og
hálft
keppn-
istímabil, en verið
seinheppinn með
meiðsli. »27
Gísla er heimilt að
finna sér annað lið
Skráningin nær ekki aðeins til
kirkjugarða heldur líka til votra
grafa. „Ég vil að þessi saga sé að-
gengileg, hvort sem fólk hefur horf-
ið í hafið eða hvílir í kirkjugarði.“
Hún bætir við að hún skrái líka
upplýsingar um Íslendinga sem hafi
verið jarðaðir erlendis. „Ef ég finn
myndir af legsteinum annars staðar
bið ég alltaf um leyfi til þess að fá
að nota þær á síðunni minni og svo
er alltaf mikilvægt að geta þess
hvaðan gögnin koma.“
Aðgangur að síðu Rakelar er öll-
um opinn. „Ég er alfarið á móti því
að fólk þurfi að borga fyrir aðgang
að ættfræði,“ segir hún. „Þvert á
móti vona ég að samantekt mín nýt-
ist sem flestum. Ég nýt góðs af
vinnu annarra og upplýsingarnar
eru sameign okkar allra.“
Legsteinar endast ekki að eilífu
og þess vegna vill Rakel skrá sög-
una á meðan upplýsingarnar eru
aðgengilegar. Hún bendir á að í
mörgum tilfellum hafi ekki verið
hugsað vel um leiði og legsteina og
stundum sé erfitt að lesa hvað á
þeim standi. „En það er saga á bak
við hvern legstein, eitthvað er um
alla að segja og ég lít á vinnu mína
sem varðveislustarf.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Verkfræðingurinn Rakel Bára Þor-
valdsdóttir safnar ljósmyndum af
legsteinum og birtir þær á vef sín-
um (legstadaleit.com) ásamt frekari
upplýsingum. „Ég er komin með
yfir 4.500 myndir af legsteinum,“
segir hún.
Rakel byrjaði markvisst að skrá
ættfræðiupplýsingar 2001, en hún
hefur búið í Danmörku undanfarin
nær tuttugu ár. Hún segir að
draumurinn hafi lengi verið að
koma upp svona heimasíðu og hafi
síðan orðið að veruleika fyrir um
fimm árum. Hún hafi auglýst eftir
myndum af legsteinum hjá hópnum
„Íslensk ættfræði“ sem hún stofn-
aði á fésbókinni. „Ég fékk góð við-
brögð og til dæmis hefur Trausti
Traustason verið ómetanlegur.
Hann hefur meðal annars ljós-
myndað flesta legsteina í kirkju-
görðum í Eyjafirði og víðar.“ Hún
segir að fólk á ferðalagi hafi líka oft
munað eftir henni. Rakel bætir við
að hún byrji oft á því að skrá upp-
lýsingar um jarðsett fólk í kirkju-
görðum í þeirri von að fólk taki eftir
því og sendi mynd af viðkomandi
legsteini.
Þjóðskjalasafnið hefur verið Rak-
el innan handar með aðgang að
kirkjubókum. Hún notfærir sér
einnig upplýsingar á erlendri upp-
lýsingasíðu (findagrave.com) og á
vef Kirkjugarðasambands Íslands
(gardur.is). „Ég legg líka mikið upp
úr því að fá myndir af fólkinu sem
ég hef skráð.“
Ættfræði opin öllum
Rakel segist alltaf hafa haft mik-
inn áhuga á ættfræði. „Föðuramma
mín var óþreytandi við að segja
sögur af ættingjum og mamma mín
hefur líka verið mikið í ættfræði,“
segir hún. „Ég ólst upp á Kalastöð-
um í Hvalfirði og sem unglingur
vann ég við að slá kirkjugarðinn í
Saurbæ. Þá las ég á legsteinana og
velti fyrir mér hvaða fólk þetta
væri, hugsaði um hvað hefði gerst
og spurði þegar ég kom heim.“
Heldur upplýsingum
um legsteina til haga
Rakel Bára er með yfir 4.500 ljósmyndir á vef sínum
Verkfræðingur Rakel Bára Þorvaldsdóttir býr í Danmörku.