Morgunblaðið - 16.01.2020, Síða 1
Ljósmynd/Önundur Pálsson
Björgun Varðskipið Þór flutti vistir, björgunarsveitarmenn, lækni, áfallateymi og aðra viðbragðsaðila til Flateyrar. Skipið gat ekki lagst að bryggju.
Ragnhildur Þrastardóttir
Hjörtur J. Guðmundsson
„Auðvitað átti þetta ekki að geta
gerst,“ segir Guðmundur Gunnars-
son, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, um
snjóflóð sem féll á einbýlishús á Flat-
eyri á þriðjudagskvöld.
Varnargarður hefði átt að verja
húsið og íbúa þess fyrir flóðinu en
gerði það ekki.
Stúlka á unglingsaldri, sem var í
húsinu, grófst undir snjóflóðinu en
móðir hennar og tvö systkini komust
út. Félagar í björgunarsveitinni Sæ-
björg komu fljótt á staðinn.
„Húsið var allt smekkfullt af snjó,
upp í loft, inni í herberginu og á
ganginum, í forstofunni og inn í stof-
una,“ segir Egill Ólafsson, einn
björgunarmannanna. „Við komum
móðurinni út og byrjuðum svo að
moka. Fjórir, fimm náðu að skríða
með loftinu. Það voru kannski 50-60
sentímetrar upp í loftið og þeir byrj-
uðu að moka þar niður. Við hinir fór-
um fyrir framan og byrjuðum að
moka þar inn. Mér hefur held ég
aldrei liðið eins vel og þegar ég
heyrði stúlkuna gráta,“ segir Egill.
Stúlkan er ekki mikið slösuð. Hún
og fjölskylda hennar voru flutt til
Ísafjarðar með varðskipinu Þór í
gærmorgun og dvöldu á sjúkrahús-
inu þar í gær.
Guðmundur fór til Flateyrar í gær
með varðskipinu og var ánægður
með það hversu margir ákváðu að
nýta sér áfallahjálp sem þar var í
boði.
„Þegar fólk fær að tala um hlutina
og setja tilfinningar sínar í orð þá
holar dropinn steininn,“ segir Guð-
mundur.
„Ég held að það sé alveg óhætt að
segja að ástandið á Flateyri sé við-
kvæmt,“ bætir hann við.
Snjóflóðin sem féllu á Flateyri
voru tvö og var fjöldahjálparstöð
opnuð vegna þeirra. Þegar Morgun-
blaðið fór í prentun hafði enginn
ákveðið að dvelja þar yfir nótt en
fjöldi fólks sótti þangað sálrænan
stuðning.
Auður Ólafsdóttir, hjúkrunar-
fræðingur og félagi í áfallateymi
Rauða krossins, segir að flóðið hafi
ýft upp gömul sár frá snjóflóðinu
sem féll á Flateyri árið 1995. Þá lét-
ust 20 manns.
„Mér finnst fólk taka þessu með
miklu æðruleysi. Auðvitað hreyfir
þetta svolítið við, þetta ýfir upp sár
frá 1995 en heilt yfir tekur fólk þessu
vel. Það er rosalega mikil samheldni
hérna og íbúarnir halda vel utan um
hver annan. Maður er ekki að upplifa
neina skelfingu heldur meðtekur fólk
ástandið og veltir því fyrir sér hvern-
ig það eigi að vinna sig út úr því.“
Annað snjóflóð féll á sama tíma úr
Norðureyrarhlíð í Súgandafirði og
olli flóðbylgju sem skall á höfninni á
Suðureyri. Engan sakaði en bátar
losnuðu og sjór flaut um götur.
„Átti ekki að geta gerst“
Varnargarður hefði átt að koma í
veg fyrir að snjóflóð félli á hús í
bænum og stúlka græfist undir
Björgunarsveitarmaður segir að
honum hafi aldrei liðið jafn vel og
þegar hann heyrði grát stúlkunnar
MSnjóflóð á Vestfjörðum»2, 4, 6, 10, 32-33, 38
Snjóflóðið ýfir upp 25 ára gömul
sár frá snjóflóðum á Flateyri þar
sem 20 manns týndu lífi
Ljósmynd/Önundur Pálsson
Eyðilegging Snjóflóð sem féll í höfnina á Flateyri sökkti sex bátum. Það flóð féll á svipuðum tíma og snjóflóðið sem
féll á heimili stúlkunnar sem grófst undir flóðinu. Mikil læti voru í báðum flóðum og fylgdu þeim háværar drunur.
F I M M T U D A G U R 1 6. J A N Ú A R 2 0 2 0
Stofnað 1913 13. tölublað 108. árgangur
MISSAGNIR UM
DRÁP SÍÐASTA
GEIRFUGLSINS
BAKSLAG
GEGN UNG-
VERJUM
SIGRÍÐUR
SENDIR MDE
ANDMÆLI
EVRÓPUMÓTIÐ Í MALMÖ ÍÞRÓTTIR LANDSRÉTTARMÁLIÐ 30ÉG VIL VERA KETILL 40-41
ow, Gula miðanum og Bio-Kult á 25% afslætti
VÍTAMÍNDAGAR Í NETTÓ! -25%