Morgunblaðið - 16.01.2020, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 16.01.2020, Qupperneq 1
Ljósmynd/Önundur Pálsson Björgun Varðskipið Þór flutti vistir, björgunarsveitarmenn, lækni, áfallateymi og aðra viðbragðsaðila til Flateyrar. Skipið gat ekki lagst að bryggju. Ragnhildur Þrastardóttir Hjörtur J. Guðmundsson „Auðvitað átti þetta ekki að geta gerst,“ segir Guðmundur Gunnars- son, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, um snjóflóð sem féll á einbýlishús á Flat- eyri á þriðjudagskvöld. Varnargarður hefði átt að verja húsið og íbúa þess fyrir flóðinu en gerði það ekki. Stúlka á unglingsaldri, sem var í húsinu, grófst undir snjóflóðinu en móðir hennar og tvö systkini komust út. Félagar í björgunarsveitinni Sæ- björg komu fljótt á staðinn. „Húsið var allt smekkfullt af snjó, upp í loft, inni í herberginu og á ganginum, í forstofunni og inn í stof- una,“ segir Egill Ólafsson, einn björgunarmannanna. „Við komum móðurinni út og byrjuðum svo að moka. Fjórir, fimm náðu að skríða með loftinu. Það voru kannski 50-60 sentímetrar upp í loftið og þeir byrj- uðu að moka þar niður. Við hinir fór- um fyrir framan og byrjuðum að moka þar inn. Mér hefur held ég aldrei liðið eins vel og þegar ég heyrði stúlkuna gráta,“ segir Egill. Stúlkan er ekki mikið slösuð. Hún og fjölskylda hennar voru flutt til Ísafjarðar með varðskipinu Þór í gærmorgun og dvöldu á sjúkrahús- inu þar í gær. Guðmundur fór til Flateyrar í gær með varðskipinu og var ánægður með það hversu margir ákváðu að nýta sér áfallahjálp sem þar var í boði. „Þegar fólk fær að tala um hlutina og setja tilfinningar sínar í orð þá holar dropinn steininn,“ segir Guð- mundur. „Ég held að það sé alveg óhætt að segja að ástandið á Flateyri sé við- kvæmt,“ bætir hann við. Snjóflóðin sem féllu á Flateyri voru tvö og var fjöldahjálparstöð opnuð vegna þeirra. Þegar Morgun- blaðið fór í prentun hafði enginn ákveðið að dvelja þar yfir nótt en fjöldi fólks sótti þangað sálrænan stuðning. Auður Ólafsdóttir, hjúkrunar- fræðingur og félagi í áfallateymi Rauða krossins, segir að flóðið hafi ýft upp gömul sár frá snjóflóðinu sem féll á Flateyri árið 1995. Þá lét- ust 20 manns. „Mér finnst fólk taka þessu með miklu æðruleysi. Auðvitað hreyfir þetta svolítið við, þetta ýfir upp sár frá 1995 en heilt yfir tekur fólk þessu vel. Það er rosalega mikil samheldni hérna og íbúarnir halda vel utan um hver annan. Maður er ekki að upplifa neina skelfingu heldur meðtekur fólk ástandið og veltir því fyrir sér hvern- ig það eigi að vinna sig út úr því.“ Annað snjóflóð féll á sama tíma úr Norðureyrarhlíð í Súgandafirði og olli flóðbylgju sem skall á höfninni á Suðureyri. Engan sakaði en bátar losnuðu og sjór flaut um götur. „Átti ekki að geta gerst“  Varnargarður hefði átt að koma í veg fyrir að snjóflóð félli á hús í bænum og stúlka græfist undir  Björgunarsveitarmaður segir að honum hafi aldrei liðið jafn vel og þegar hann heyrði grát stúlkunnar MSnjóflóð á Vestfjörðum»2, 4, 6, 10, 32-33, 38  Snjóflóðið ýfir upp 25 ára gömul sár frá snjóflóðum á Flateyri þar sem 20 manns týndu lífi Ljósmynd/Önundur Pálsson Eyðilegging Snjóflóð sem féll í höfnina á Flateyri sökkti sex bátum. Það flóð féll á svipuðum tíma og snjóflóðið sem féll á heimili stúlkunnar sem grófst undir flóðinu. Mikil læti voru í báðum flóðum og fylgdu þeim háværar drunur. F I M M T U D A G U R 1 6. J A N Ú A R 2 0 2 0 Stofnað 1913  13. tölublað  108. árgangur  MISSAGNIR UM DRÁP SÍÐASTA GEIRFUGLSINS BAKSLAG GEGN UNG- VERJUM SIGRÍÐUR SENDIR MDE ANDMÆLI EVRÓPUMÓTIÐ Í MALMÖ ÍÞRÓTTIR LANDSRÉTTARMÁLIÐ 30ÉG VIL VERA KETILL 40-41 ow, Gula miðanum og Bio-Kult á 25% afslætti VÍTAMÍNDAGAR Í NETTÓ! -25%
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.