Morgunblaðið - 16.01.2020, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 16.01.2020, Blaðsíða 6
Ísafjörður Unnið við stoðvirki í Kubba, lofthræðslan víðs fjarri. Ljósmyndir/Sigurður Hlöðversson Sigufjörður Mikil varnarmannvirki hafa risið fyrir ofan Siglufjörð, myndin er frá uppsetningu stoðvirkja í Hafnarfjalli. standa undir gerð hættumats fyrir aðra náttúruvá, þ.e. eldgos, vatnsflóð og sjávarflóð sem Veðurstofa Ís- lands annast. Lögunum var síðan breytt 2018 og þá var kveðið á um að gjaldið sem áður skyldi renna í Ofan- flóðasjóð rynni í ríkissjóð í samræmi við ný lög um opinber fjármál en fjárheimildir sjóðsins eru sem fyrr ákvarðaðar í fjárlögum. „Fjöldi varnarvirkja hefur þegar sannað gildi sitt en yfir 40 flóð hafa fallið á varnargarða sem reistir hafa verið frá flóðunum á Vestfjörðum ár- ið 1995. Einstök sveitarfélög hefðu ekki haft tök á að fara í þessar fram- kvæmdir vegna hættu á snjóflóðum og skriðuföllum án stuðnings Ofan- flóðasjóðs,“ segir í grein Hafsteins og Tómasar. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Alls hefur verið unnið fyrir 21 millj- arð króna á núgildandi verðlagi við varnarvirki vegna snjóflóða síðasta aldarfjórðung. Áætlað hefur verið að eftir sé að vinna að snjóflóðavörnum í þéttbýli fyrir svipaða upphæð, eða um 21 milljarð, samkvæmt upplýs- ingum úr umhverfisráðuneytinu. Samkvæmt svari umhverfisráðu- neytisins við fyrirspurn Morgun- blaðsins hafa alls verið gerðar varnir eða eignir keyptar upp á 15 þétt- býlisstöðum. Staðirnir eru Ólafsvík, Patreksfjörður, Tálknafjörður, Bíldudalur, Flateyri, Bolungarvík, Hnífsdalur, Ísafjörður, Súðavík. Siglufjörður, Ólafsfjörður, Seyðis- fjörður, Neskaupstaður, Eskifjörður og Fáskrúðsfjörður. Ólokið er gerð varna fyrir íbúða- byggð í þéttbýli á átta stöðum á hættusvæði C, en í þeim flokki er hættan talin mest og á þeim svæðum skal öryggi tryggt með varanlegum varnarvirkjum eða uppkaupum íbúðarhúsnæðis. Þessir staðir eru Patreksfjörður, Tálknafjörður, Bíldudalur, Hnífsdalur, Siglu- fjörður, Seyðisfjörður, Neskaup- staður og Eskifjörður. Vinna hófst á síðasta ári við varnir undir Urðarbotni í Neskaupstað og er áætlað að gerð þeirra ljúki 2021. Þá hefst vinna við varnargarða við Urðir, Hóla og Mýrar á Patreksfirði nú í vor og er áætlað að þeirri vinnu ljúki árið 2023. Undirbúningur ann- arra verkefna er mislangt á veg kominn. Gjörbreyttu viðhorfi Í grein eftir Hafstein Pálsson, verkfræðing í umhverfis- og auð- lindaráðuneytinu, og Tómas Jóhann- esson, sérfræðing á Veðurstofunni, í Morgunblaðinu 1. apríl á síðasta ári, kemur fram að mannskæðustu nátt- úruhamfarir seinni tíma á Íslandi hafi orðið þegar snjóflóð féllu í Súða- vík og á Flateyri 1995 með þeim af- leiðingum að 34 létu lífið. „Þessir atburðir gjörbreyttu við- horfi landsmanna til öryggis vegna ofanflóðahættu enda ljóst að ekki yrði unað við að slík hætta væri fyrir hendi. Í kjölfarið var því gripið til róttækra aðgerða til að tryggja ör- yggi íbúa á svæðum þar sem hætta er á ofanflóðum,“ segir í greininni. Allt regluverk var styrkt og ofan- flóðanefnd sett á laggirnar og heyrði hún undir umhverfisráðherra. Þá var ákveðið að ríkissjóður mundi veita sveitarfélögum sem byggju við snjóflóðahættu á íbúðasvæðum fjár- hagslegan stuðning til að tryggja ör- yggi byggðarinnar gagnvart ofan- flóðum. Veðurstofu Íslands var falin ábyrgð á gerð hættumats, reglulegu snjóflóðaeftirliti, mati á aðstæðum, rannsóknum og ráðgjöf um ofan- flóðavarnir. Til þess að fjármagna fram- kvæmdir og önnur verkefni þeim tengd kváðu lögin á um stofnun á nýjum sjóði, Ofanflóðasjóði. Tekju- stofn hans var árlegt gjald sem lagt var á allar brunatryggðar fasteignir, en þær námu um 2,5 milljörðum króna árið 2019. Þó takmarkast fjár- heimildir sjóðsins við þá upphæð sem ákveðin er árlega í fjárlögum,“ segir í greininni. Lögum um varnir gegn snjóflóð- um og skriðuföllum var breytt 2014 og 2017 til þess að heimila notkun á hluta fjármuna Ofanflóðasjóðs til að Varnarvirki fyrir 21 milljarð  Róttækar aðgerðir eftir snjóflóðin 1995  Aðgerðir til þessa á 15 þéttbýlisstöðum  Ólokið er gerð varna fyrir byggð í þéttbýli á átta stöðum  Viðbótarkostnaður gæti verið um 21 milljarður króna Neskaupstaður Næst leiðigarður, þvergarður og keilur undir Tröllagili. 6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2020 Reykjavík • Mörkin 3 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 ÚTSALAÁRSINSALLT AÐ 75% AFSLÁTTUR AF YFIR 1000VÖRUM. ALLT AÐ 50.000 AFSLÁTTUR AFYFIR 300 FARTÖLVUM ÚTSALAN Á FULLU Í TÖLVUTEK Opið í dag 10-18 Snjóflóð á Flateyri og í Súgandafirði Kolmunnaskipin sem síðustu daga hafa legið í fær- eyskum höfnum héldu á miðin suður af Fær- eyjum í gær. Tíðarfarið hefur verið afleitt á þessum slóðum undanfarið og lítið tóm gefist til veiða. Í gær voru Beitir, Börkur, Aðal- steinn Jónsson, Jón Kjartansson, Margrét, Venus og Víkingur á leið á miðin. Þá var Hoffell á suðurleið miðja vegu milli Íslands og Færeyja síðdegis í gær. Skipin héldu flest frá Íslandi 3.-4. janúar. Þokkalega fiskaðist á gráa svæðinu suður af færeysku lögsög- unni en skipin náðu þó aðeins um sólarhring á miðunum. Skipin voru flest með slatta og lönduðu sum þeirra í Færeyjum. Til kolmunnaveiða eftir brælukafla Venus NS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.