Morgunblaðið - 16.01.2020, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2020
sp
ör
eh
f.
Það er draumi líkast að ferðast til Brasilíu og Argentínu. Þessi ævintýraferð er blanda
af stórfenglegri náttúru, mikilfenglegum fossum og tveimur af fallegustu borgum
veraldar, Buenos Aires og Rio de Janeiro. Við heimsækjum Iguazú þjóðgarðinn, förum
á tangósýningu og skoðum hina þekktu Kristsstyttu. Hér er um að ræða ógleymanlega
ferð sem skilur eftir ljúfar og litskrúðugar minningar.
Allir velkomnir á kynningarfund fimmtudaginn 16. janúar kl. 20:00
hjá Bændaferðum í Síðumúla 2, 2. hæð.
Fararstjóri: Steingrímur Gunnarsson
Kynntu þér úrval ferða á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík
6. - 19. október
Brasilía & Argentína
Umboðsmaður skuldara svararmeð grein í Morgunblaðinu í
gær umfjöllun Staksteina frá því á
mánudag þar sem bent var á að ekki
væri lengur þörf á stofnuninni en
samt sem áður legðu
skattgreiðendur enn
til hennar nærri 280
milljónir króna.
Um þetta segirumboðsmaður-
inn: „Þetta er bein-
línis rangt þar sem
gjaldskyldir aðilar (fjármálafyrir-
tæki, Íbúðalánasjóður, lífeyrissjóðir
og vátryggingafélög) standa straum
af kostnaði en ekki skattgreið-
endur.“
Í lögum um embættið kemur ein-mitt fram að þessir aðilar „skulu
standa straum af kostnaði við rekst-
ur umboðsmanns skuldara með
greiðslu sérstaks gjalds í samræmi
við ákvæði laga þessara sem rennur í
ríkissjóð.“
Þarna er sem sagt um að ræðaskatt á þessa aðila sem vitaskuld
er svo á endanum greiddur af við-
skiptavinum þessara aðila, almenn-
ingi.
Sú fullyrðing umboðsmannsins aðþjónustan sé „ókeypis“ er auð-
vitað fjarstæða.
Raunar þarf ekki að fara í lögin tilað sjá þetta, því í ársreikningi
embættisins sjálfs segir að „framlög
ríkisins“ nemi 275.900.000 kr.
Mikilvægt er að ríkisstarfsmenn,ekki síst forstöðumenn, hvað
þá þeir sem starfa við að veita ráð-
gjöf um fjármál, átti sig á þessu sam-
hengi hlutanna.
Ásta S.
Helgadóttir
Rangfærslur
umboðsmanns
skuldara
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við fögnum þessum framkvæmdum
enda auka þær til muna öryggi á
gatnamótunum þar sem mörg slys
hafa orðið,“ segir Anton Kári Hall-
dórsson, sveitarstjóri Rangárþings
eystra.
Vegagerðin hefur óskað eftir til-
boðum í gerð nýs vegar frá þjóðvegi 1
að Gljúfurá. Mikil umferð ferða-
manna er alla daga ársins að Selja-
landsfossi og Gljúfrabúa og mun nýr
vegur bæta aðgengi að svæðinu.
Byggja á átta metra breiðan veg
nokkru vestar en núverandi vegur er.
Skal verkinu ljúka 1. júlí í sumar.
Opið er fyrir tilboð í verkið hjá Vega-
gerðinni til 28. janúar.
„Þessi nýi vegur gefur fossunum og
svæðinu þar í kring meira vægi. Nú-
verandi vegur verður að einhverju
leyti nýttur til göngustíga,“ segir
Anton Kári.
Hann segir að 900 þúsund gestir
hafi heimsótt Seljalandsfoss árið 2018
og kveðst ekki búast við því að fækk-
un hafi orðið í fyrra, þó að ferðamönn-
um á landinu öllu hafi fækkað. „Það er
smekkfullt þarna alla daga ársins.
Þessi vetrarferðamennska hefur auk-
ist ofboðslega undanfarin ár,“ segir
sveitarstjórinn.
Leggja nýjan veg að Seljalandsfossi
Nýr vegur tilbúinn 1. júlí í sumar
Gamli vegurinn nýttur í göngustíga
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Seljalandsfoss Mikil umferð ferða-
manna er við fossinn árið um kring.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Afar brýnt er að endurskoða heim-
ildir einstaklinga til innflutnings á
ávana- og fíknilyfjum og sterum til
eigin nota, að mati tollgæslustjóra.
Vill tollgæslustjóri þrengja um-
ræddar heimildir verulega í ljósi
mála sem hafa komið upp undan-
farin ár og hefur lagt fram tillögur
þess efnis til heilbrigðisráðherra. Í
umsögn sinni um ný lyfjalög, sem
undirrituð er af Hjalta B. Árnasyni
lögfræðingi, gagnrýnir tollgæslu-
stjóri að lítið sé vikið að reglum um
þetta.
Grunsamlegar ávísanir lækna
Ný lyfjalög eru nú í meðförum Al-
þingis og hefur verið kallað eftir um-
sögnum víða að. Ætlunin er að
breyta regluverki lyfjamála hér á
landi, meðal annars vegna breytinga
á íslensku heilbrigðiskerfi og ýmissa
tilskipana og reglugerða frá ESB
sem tekið hafa gildi vegna aðildar
Íslands að EES-samningnum. Gert
er ráð fyrir að lyfjagreiðslunefnd
verði lögð niður og verkefni hennar
flutt til Lyfjastofnunar og Landspít-
ala, svo dæmi séu tekin.
Í umsögn tollgæslustjóra er enn-
fremur getið að skynsamlegt væri að
tollayfirvöldum verði heimilt að upp-
lýsa Lyfjastofnun eða Embætti
landlæknis um grunsamlega lyfja-
ávísun lækna í málum þar sem grun-
ur leikur á að brotið sé gegn núver-
andi reglugerð um innflutning
einstaklinga á lyfjum til eigin nota.
Upp hafi komið tilvik þar sem grun-
ur leikur á að einstaka læknar hafi
útvegað fólki síðbúið vottorð eða lyf-
seðil fyrir slíkan innflutning.
Erfiðara verði að
flytja hingað stera
Tollgæslustjóri vill
þrengja heimildir í
nýjum lyfjalögum
Morgunblaðið/Golli
Vaxtarrækt Sumir íþróttamenn
hafa freistast til að nota stera.