Morgunblaðið - 16.01.2020, Page 12

Morgunblaðið - 16.01.2020, Page 12
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Þörfin á því að efla fjármála-læsi unga fólksins hefurreynst mikil,“ segir Þórunn Elfa Bjarkadóttir, kennari í samfélagsgreinum við Fjölbrautaskólann í Breiðholti. „Í gegnum tíðina hefur verið reiknað með að þekking á þessu sviði komi eiginlega af sjálfu sér og síist inn með reynslu sem lífið færir fólki. Allir fjármálagjörningar í dag eru hins vegar mjög flóknir og hraðinn mikill, svo að skólarnir hafa þurft að bregðast við.“ Vinsælt valfag Frá haustinu 2018 hefur í FB verið boðið upp á sérstakan áfanga í fjármálum, sem er valfag meðal nemenda. Raunar er fjármála- fræðsla í einhverri mynd nú í boði í flestum framhaldsskólum, rétt eins og vera ber samkvæmt aðalnáms- skrá. Víða er þetta efni þó kennt með öðru, til dæmis lífsleikni sem grunn- fag sem nemendur taka yfirleitt á fyrstu önnum framhaldsskólanáms- ins þótt vissulega bjóði einhverjir skólar upp á sér fjármálaáfanga. Í FB er fjármálaáfanginn kenndur tvisvar í viku á önn, klukku- stund í senn og gefur tvær námsein- ingar til stúdentsprófs. Stuðst er við bókina Lífið er rétt að byrja eftir Gunnar Baldvinsson og út frá henni hefur Þórunn svo unnið ýmis verk- efni, dæmi og fleira slíkt sem nýtist við kennsluna. Fræðslan sé óháð Leiðsögn um fjármál eins og bankarnir hafa boðið upp á fyrir ungt fólk á sér langa sögu. Þórunn Elfa segir allt gott um slíkt að segja en mikilvægt sé að fræðsla þessi sé á vegum óháðs aðila en ekki starfs- manna tiltekinna fjármálafyrir- tækja. Lengi vel hafi námsefni hins vegar skort en nú hafi verið leyst úr þeim vanda. „Þegar við í FB ákváðum að bjóða upp sér áfanga í fjármála- fræðslu haustið 2018 vorum við fyrst og fremst að svara kalli. Á skóla- fundi sem hér er haldinn einu sinni á önn kom fram sú ósk hjá nemendum, sem endurspeglar að krökkunum finnst slíkt skipta máli,“ segir Þórunn, sem kynnir fyrir nemendum hvernig vextir á inn- og útlán reikn- ast, fer yfir uppbyggingu sparnaðar, þætti í heimilisbókhaldi, fasteigna- kaup og svo framvegis. Einnig þær leikreglur sem gilda á vinnumarkaði út frá kjarasamningum. Þórunn segist oft heyra á nem- endum sínum að þeim finnist sem því sé tekið sjálfgefnu að þeir kunni til dæmis að lesa launaseðla og hvaða skyldur og réttindi þau hafa gagn- vart vinnu. Svo sé þó ekki og þar sem vinna með skóla sé algeng sé mikilvægt að ungmenni hafi grunn- atriði vinnuréttarins á hreinu. „Almenn kostnaðarvitund er sömuleiðis nokkuð sem lærist ekki endilega af sjálfu sér,“ segir Þórunn. „Mörgum reynist erfitt að fóta sig í frumskógi fjármálanna þar sem gylliboðin eru mörg og ekki alltaf auðvelt að sjá skóginn fyrir trjám. Kannski hefur fjármálafræðsla í gegnum tíðina verið einn af þessum þáttum sem ungmenni lærðu í nær- umhverfi sínu. Nú eru tímarnir breyttir og í fjölbreyttu samfélagi dagsins í dag hafa ekki allir þá þekk- ingu og getu sem þarf til að rata í gegnum flókin fjármál.“ Lífið byrji ekki í mínus Í fjármálafræðslunni í FB koma nemendur gjarnan með sögur og dæmi úr sínu daglega lífi sem á stundum eru tekin til rökræðu og lært af. „Stúlka sem var hjá mér í tímum gerði verkefni um heimilis- bókhald og sýndi síðan móður sinni, sem hafði ekki gert slíkt áður. Í framhaldinu ákváðu þær mæðgur í sameiningu að taka þann hátt upp, sem gafst vel,“ segir Þórunn og bæt- ir við að lokum: „Svo hefur maður heyrt um krakka sem eru í ógöngum með fjármál sín. Því þarf bókstaf- lega að líta á fjármálafræðslu sem forvörn. Það gengur ekki upp að ungt fólk hefji lífið í mínus bara vegna þess að það skorti almenna yfirsýn, kostnaðarvitund og þekk- ingu á skilmálum lána svo eitthvað sé nefnt. Því er svo óendanlega mikilvægt að fræða krakkana um þessi mál og með þekkingu eru þeim flestir vegir færir í leik jafnt sem starfi.“ Fjármálafræðsla svarar kalli Leiðsögn um frumskóg! Laun, lán, sparnaður vextir, fasteignakaup og heimilisbókhald. Fjár- málafræðsla nýtur vin- sælda sem sérstakt fag við Fjölbrautaskólann í Breiðholti. Mikilvægt, segir kennarinn. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Kennari Líta verður á fjármálafræðslu sem forvörn. Að ungt fólk hefji ekki lífið í mínus bara vegna þess að það skorti almenna yfirsýn, kostnaðarvitund og þekkingu, segir Þórunn Elva Bjarkadóttir hér í viðtalinu. Morgunblaðið/Ómar FB Boðið hefur verið upp á fræðslu í fjármálum einstaklinga við skólann síðastliðin tvö ár. Reynslan er góð og nemendur eru áhugasamir um efnið. 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2020 Veldu vellíðan á nýju ári og komdu til okkar í heilsufarsmælingu í Lágmúla eða á Smáratorg. Afgreiðslutímar alla virka daga Lágmúli: 8:00–16:30 Smáratorg: 8:00–12:30 lyfja.is Komdu til okkar í heilsufarsmælingu VE LD U VELLÍÐAN Á N Ý J U ÁR I Í dag, fimmtudag, kl. 17.30 heldur Hrafnhildur Ming Þórunnardóttir fyrirlestur í Veröld – húsi Vigdísar við Brynjólfsgötu í Reykjavík. Hrafnhildur er nemi á öðru ári í Kvennaskólanum í Reykjavík, er ættleidd frá Kína og hefur búið á Íslandi frá því hún var fjórtán mán- aða. Í kynningunni mun hún tala um það hvernig það hefur verið fyrir hana að búa á Íslandi, með annað útlit og annan bakgrunn en flestir Íslendingar. Þá mun hún líka tala um ferðina sína aftur til Kína og upplifun þar, en þangað fór hún með móður sinni, Þórunni Svein- bjarnardóttur, formanni BHM og fyrrverandi umhverfisráðherra, árið 2011 til að heimsækja sínar gömlu slóðir. Þessi viðburður er á vegum Kín- versk-íslenska menningarfélagsins og Konfúsíusarstofnunarinnar Norðurljósa, sem býður upp á ókeypis veitingar að fyrirlestrinum loknum. Ættleidd frá Kína Hrafnhildur Ming Þórunnardóttir Hrafnhildur talar í Veröld Þórunn Svein- bjarnardóttir Fyrirlestrar í Snorrastofu í Reykholti í Borgarfirði hefj- ast á nýju ári með fyrirlestri sr. Geirs Waage sóknarprests þriðjudaginn 21. janúar kl. 20. Þar fjallar Geir um forvera sína á Reykholtsstað og staðinn sjálfan frá árinu 1569 til 1807, það er tíma svonefndra Reyk- hyltinga. Umbroti siðaskiptanna lauk í Reykholti með því að síra Jóni Einarssyni var falinn staðurinn árið 1569. Með honum hófst tímabil er sama ættin hélt staðinn óslitið í 185 ár, afkomendur síra Jóns. Allir voru Reykhyltingar merkismenn sinnar samtíðar. Sr. Geir Waage lauk embættis- prófi í guðfræði haustið 1978 og vígðist á sama hausti til Reykholts, sem hann hefur setið æ síðan sem sóknarprestur. Sr. Geir í Snorrastofu Geir Waage Fyrirlestur um Reykhyltinga

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.