Morgunblaðið - 16.01.2020, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2020
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Kollavíkurvatn við Þistilfjörð fylltist
af sjó í óveðri um miðjan desember og
vegna þrýstings gaf mölin á milli
vatns og sjávar sig með þeim afleið-
ingum að þar er nú um 60 til 70 metra
breitt skarð sem fer stækkandi. Lán í
óláni er að þarna getur orðið besta
hafnarsvæði norðausturhornsins, að
sögn Eiríks Kristjánssonar, bónda í
Borgum.
Eiríkur hefur búið í Borgum alla
sína tíð og man ekki eftir öðru eins
brimi. Hann segir að í norðaustan bál-
viðrinu hafi yfirborð vatnsins hækkað
vel á annan metra og sprengt skarð í
mölina. Fari allt á versta veg megi
ætla að skarðið haldi áfram að stækka
og ferskvatnið verði hluti af söltum
sjó. „Mölin hefur verið að smáminnka
og þar sem vatnið er djúpt hefur sjór-
inn ýtt henni inn og sópað henni
niður,“ segir hann. „Óvíst er að hann
nái að grafa hana upp aftur.“
Yfirborð Kollavíkurvatns hefur
stundum hækkað vegna úrkomu og
einu sinni gerði Eiríkur frárennsli á
öðrum stað í mölinni til þess að bjarga
æðarvarpinu. Hann segir að sjórinn
hafi áður gert skarð í mölina en þá
hafi verið að minnsta kosti metri nið-
ur í vatn og ekki runnið úr því.
Að sögn Eiríks hefur verið mikil
silungsveiði í vatninu alla tíð en verði
skarðið viðvarandi sé hætt við að sil-
ungurinn hverfi. „Haldi mölin áfram
að brotna getur þetta orðið mjög gott
hafnarsvæði,“ segir hann. Bætir við
að sjórinn velti mölinni inn í vatnið,
sem sé hyldjúpt. „Sex metrar eru nið-
ur á leðju og reynt hefur verið að
mæla þykkt hennar en enginn hefur
komist niður á botn. Dýpið getur þess
vegna verið 20 til 30 metrar.“
Eiríkur segir að svæðið henti sér-
staklega vel fyrir höfn enda aðdjúpt
fyrir utan mölina. „Hyldjúpur áll ligg-
ur hérna inn,“ áréttar hann. Segir að
lendingin hafi verið frekar léleg, því
brimasamt sé utan við mölina en verði
vatnið hluti hafs bjóði það upp á allt
aðra og betri möguleika. „Héðan er
gott að róa á sjó og hér mætti reisa
mikilvæga útflutningshöfn. Nóg er til
dæmis af vatninu sem flytja má út.
Hvað sem verður er ljóst að breytingin
verður mikil.“
Mölin rofnaði og vatnið fylltist af sjó
Með varanlegu skarði inn af Kollavík skapast möguleiki fyrir besta hafnarsvæðið á norðausturhorninu
Ljósmynd/Vigdís Sigurðardóttir
Kollavíkurvatn Erfitt hefur verið að komast að skarðinu vegna veðurs.
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Kollavíkur-
vatn
Kollavík
Viðarvík
Viðarfjall
Þistilfjörður
Borgir ■
ÞÓRSHÖFN
KÓPASKER OG
RAUFARHÖFN
Kollavíkurvatn við Þistilfjörð
Kollavík ■
Vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Sími 555 3100 www.donna.is
Honeywell keramik hitarar
Verð kr. 13.940
Verð kr. 3.970
Verð kr. 6.770
Fæst svartur eða hvítur
Fæst rauður eða hvítur
Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) hafa
undirritað 43 samninga um rekstur
og þjónustu hjúkrunarheimila á
landinu til næstu tveggja ára, en
samningslaust var um þjónustu
þeirra á árinu 2019. Gerðir voru
samhljóða samningar við rekstrar-
aðila hjúkrunar- og/eða dvalar-
rýma en ekki rammasamningur við
Samtök fyrirtækja í velferðar-
þjónustu og Samtök íslenskra
sveitarfélaga eins og verið hefur.
Samningarnir taka alls til 2.468
hjúkrunar- og dvalarrýma og nema
um 32,5 milljörðum króna á ári á
verðlagi ársins 2020.
Þetta kemur fram í frétt frá
Sjúkratryggingum í gær. Þar segist
stofnunin fagna því að þessir mikil-
vægu samningar séu í höfn og náðst
hafi samkomulag bæði um daglega
þjónustu svo og um leiðir til að
halda áfram að þróa samstarf aðila
samningsins.
Samið við 43
hjúkrunarheimili
Utanríkisráðuneytið gagnrýnir harð-
lega frumvarp átta þingmanna Vinstri
grænna um breytingar á varnarmála-
lögunum í nýrri umsögn og segir þær
gerbreyta forræði utanríkis- og
þróunarsamvinnuráðherra á sviði ör-
yggis- og varnarmála auk þess sem
ákvarðanir um varnarframkvæmdir
yrðu settar í uppnám ef þær væru
samþykktar.
Þingmennirnir leggja til þær breyt-
ingar á varnarmálalögunum að annars
vegar verði allar bókanir og viðbætur
við varnarsamning Íslands og Banda-
ríkjanna bornar undir Alþingi til sam-
þykktar og hins vegar skuli bera alla
uppbyggingu og framkvæmdir um-
fram eðlilegt viðhald á öryggissvæð-
um, varnarsvæðum og mannvirkjum
NATO undir Alþingi til samþykktar.
Í umsögn utanríkisráðuneytisins
segir m.a. um þessar tillögur að breyt-
ingarnar miði að því að skerða forræði
utanríkisráðherra á framkvæmd ör-
yggis- og varnarmála á Íslandi með
því að taka úr höndum hans ábyrgð og
umsjón með samningagerð við erlend
ríki, hermálayfirvöld og alþjóðastofn-
anir og vegna framkvæmda á öryggis-
svæðum.
„Með þessu væri Alþingi að færa til
sín framkvæmdavald sem gengur
gegn þrískiptingu ríkisvaldsins og
grundvallarreglum stjórnarskrár um
aðskilnað löggjafarvalds og fram-
kvæmdavalds. Með slíkri breytingu
væru ákvarðanir um byggingu íbúðar-
og athafnahúsnæðis á Keflavíkurflug-
velli, háðar sérstakri heimild lög-
gjafans,“ segir í umsögninni.
Veikir samningsstöðu Íslands
Minnt er á að ríkt og reglulegt sam-
ráð eigi sér stað við Alþingi um öll
meiriháttar utanríkismál og Alþingi
sé upplýst reglulega um öryggis- og
varnarmál. Síðan segir í umsögn utan-
ríkisráðuneytisins:
„Yrði frumvarp þetta samþykkt
myndi það hafa í för með sér ger-
breytingu á forræði utanríkis og þró-
unarsamvinnuráðherra á sviði örygg-
is- og varnarmála, sem væri í algeru
ósamræmi við samningsforræði og
samráð sem fer fram um aðra mála-
flokka sem undir utanríkisráðuneyti
heyra. Eðli verkefnanna, málaflokks-
ins og þörf á trúnaði við samnings-
gerð, umfjöllun og fyrirsvar í mála-
flokknum kallar á ríkan trúnað í
samráði og samskiptum við Alþingi á
meðan á samningsgerð stendur. Gjör-
breytt framkvæmd sem þessi breyt-
ingatillaga gerir ráð fyrir, myndi setja
ákvarðanir um tilteknar varnarfram-
kvæmdir í uppnám, veikja samnings-
stöðu Íslands í samskiptum við önnur
ríki á þessu sviði og getur valdið því að
ógerlegt verði að standa við varnar-
skuldbindingar okkar gagnvart
Bandaríkjunum og innan Atlantshafs-
bandalagsins.“ omfr@mbl.is
Gjörbreyting ylli uppnámi
Utanríkisráðuneytið gagnrýnir frumvarp átta VG-þingmanna um breytingar á
varnarmálalögum Ógerlegt gæti orðið að standa við varnarskuldbindingarnar
Hvar er næsta
verkstæði?
FINNA.is