Morgunblaðið - 16.01.2020, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 16.01.2020, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2020 BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Frá 2010 til loka árs 2019 er heildar- magn dýpkunarefnis úr Landeyja- höfn og innsiglingunni að henni rúmlega 4,1 milljón rúmmetrar (m³) eða nákvæmlega 4.148.764 rúm- metrar. Þetta er alveg geysilegt magn af sandi og margfalt meira en áætlað var þegar höfnin var hönnuð. Í matsskýrslu fyrir Landeyjahöfn (Bakkafjöruhöfn, 2008) og tengdar framkvæmdir var heildarmagn við- haldsdýpkunar áætlað um 30 þús- und m³ á ári og eftir aftakaveður var reiknað með að gæti þurft að fjar- lægja um 80 þúsund rúmmetra. Reyndin var sú að margfalt meira hefur þurft að losa úr höfninni. Til dæmis var 317.700 rúmmetrum af sandi dælt upp árið 2019 og árið 2020 er áætlað að dæla upp 300.000- 500.000 m³, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Forsendur áætlunar á umfangi viðhaldsdýpkunar hafa ekki staðist. Fyrir því eru nokkrar ástæður og vegur þar þyngst gosið í Eyjafjalla- jökli vorið 2010. Í kjölfar þess stór- jókst framburður frá jöklinum sem veldur meiri efnisburði í innsiglingu Landeyjahafnar en reiknað var með. Stækka þarf svæði losunar Eins og fram kom í frétt í Morgunblaðinu sl. þriðjudag hefur Vegagerðin birt til kynningar frum- matsskýrslu VSÓ Ráðgjafar um ný efnislosunarsvæði fyrir utan Land- eyjahöfn. Til þessa hefur efnið verið losað á afmörkuðu svæði. En nú er talið nauðsynlegt að stækka það svæði vegna þess hve umfangsmikil efnis- losunin hefur reynst. Eftir stækkun verður svæðið um 240 hektarar að stærð og getur tekur við um 10 milljón rúmmetrum af efni. Þessi svæði, sem eru í um 3,0 kílómetra fjarlægð frá Landeyjahöfn, eru talin duga til næstu 20-30 ára. Niðurstaða frummatsskýrslunnar var sú að losun á efni úr höfninni á nýjum svæðum í sjó er talin hafa óveruleg neikvæð áhrif á lífríki sjáv- ar og fjöru. Rannsóknir á kornadreifingu á dýpkunarefni úr Landeyjahöfn hafa sýnt að dýpkunarefnið er að lang- mestum hluta fínn og meðalgrófur sandur, þ.e. með kornastæð undir 1 millimetra, segir m.a. skýrslunni. Straumhraði sjávarfalla er yfir 0,15 m/s í 61% af tímanum og ölduhæð er yfir 2 metrar í um 35% af tímanum. Því eru korn að stærð 1 mm á hreyf- ingu að minnsta kosti 20% af tím- anum og hreyfing á minni kornum er enn tíðari. Hafstraumar eru með ríkjandi stefnu til vesturs við suður- strönd Íslands og ríkjandi öldu- stefna á svæðinu er suðvestan. Efnið færst til norðvesturs Dýptarmæling á núverandi og fyrirhuguðum losunarsvæðum við Landeyjahöfn hafa sýnt að efnið sem losað hefur verið er almennt að færast til norðvesturs. Einnig hafa þær sýnt að haugarnir sem voru á svæðinu 2017 hafa minnkað og færst um 50 metra til vesturs. Það sé því ljóst að efni á öllu losunarsvæðinu sé á mikilli hreyfingu. Eftir því sem sandurinn berst nær landi mun hann fara aftur inn í sandburðar- búskap suðurstrandarinnar. Þar munu straumar og öldur færa sand- inn til og móta ströndina þannig að hún haldi sinni náttúrulegu mynd. Með því að stækka losunarsvæðið og dreifa efninu yfir stærra svæði verði hægt að koma í veg fyrir að haugar myndist. Botnsýni, sem tek- in voru á svæðinu, hafa sýnt að við þessar aðstæður þrífst nær ekkert líf við botninn. Í frummatsskýrslunni er einnig gert ráð fyrir að hafa heimild fyrir því að losa efni á rifi sem er utan hafnargarðsins. Þessir losunarstaðir hafa ekki verið notaðir undanfarin ár, en talið mikilvægt að eiga mögu- leika á því ef nauðsyn krefur. Sandrifin myndast á ný Samkvæmt áratuga dýptarmæl- ingum liggur sandrif framan við suðurströndina í um 800-1.000 metra fjarlægð. Óvenjulegt veð- urfar og öldufar árin 2010 og 2011 breytti ströndinni framan við höfn- ina þannig að sandrifið minnkaði og hvarf að hluta. Veturinn 2012 færð- ist öldufarið í sitt vanalega ástand og sandrifið byrjaði að myndast aft- ur. Losun við sandrifin er ætlað að styrkja og flýta fyrir myndun á sandrifinu ef öldufar er þannig að það hverfi eða minnki verulega. Ekki er búist við reglulegri losun á þessum svæðum. Þegar sandrifið er utan við höfnina brotnar aldan á rif- inu og við það lækkar hún og missir orku. Hafnarmannvirkin verða því fyrir minni áraun og sandflutningar minnka. Samkvæmt rannsóknum er sandburður inn í höfnina minni þeg- ar sandrifið er fullmyndað. Sandfjallið úr Landeyjahöfn  Frá 2010 til loka árs 2019 er heildarmagn dýpkunarefnis úr Landeyjahöfn rúmlega 4,1 milljón rúmmetrar  Margfalt meira magn en áætlað var í upphafi  Mest fínn og meðalgrófur sandur Fróðlegt er fyrir lesendur að fá samanburð á sandmagninu við eitthvað sem hægt er að miða við. Hér til hliðar er saman- burður kortagerðarmanns blaðsins, Sigurðar B. Sigurðs- sonar, við pýramída. Morgunblaðið leitaði til verk- fræðinga Vegagerðarinnar og þeir gerðu auðvitað samanburð við snjómokstur: Þetta er jafnmikið og að moka 3 metra snjólagi af 152 km og 9 metra breiðum vegi á 10 árum. Ef því er deilt niður á ár er hægt að segja að þetta sé svipað og að moka 30 cm snjó- lag af 152 km löngum 9 metra breiðum vegi á hverju ári. Það er langleiðin í Vík frá Reykjavík. Snjómokstur að Mýrdal SAMANBURÐURSandurinn úr Landeyjahöfn er á stærð við pýramídana í Gísa Sandur sem dælt hefur verið upp úr Landeyjahöfn 4,1 milljón rúmmetrar Pýramídarnir í Gísa 5,0 milljón rúm-metrar alls Morgunblaðið/Hallur Már Algeng sjón Gamli Herjólfur siglir inn í Landeyjahöfn þar sem dýpkunar- skipið Dísa er að störfum. Efnið er síðan losað fyrir utan höfnina. LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.