Morgunblaðið - 16.01.2020, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 16.01.2020, Qupperneq 33
33 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2020 Síðumúli 13 577 5500 108 Reykjavík www.atvinnueign.is Fasteignamiðlun Halldór Már Sverrisson Viðskiptafræðingur Löggiltur fasteignasali Löggiltur leigumiðlari 898 5599 halldor@atvinnueign.is Lagerhúsnæðimeð góðri lofthæð 1.335,4m2 Húsnæðið er mikið opið rými með góðri lofthæð og skiptist í um 1.200 m2 lagerrými og um 135 m2 skrifstofur og kaffistofu á annarri hæð. Möguleiki er að skipta húsnæðinu niður í tvö minni leigurými frá 550m2 til 800m2. Í húsnæðinu eru þrjár ca. 5 metra háar innkeyrsluhurðar. Stórt malbikað plan við húsið. Ekki vsk húsnæði. Húsnæðið er laust samkvæmt samkomulagi. Iðnaðar og lagerhúsnæði 390m2 Til leigu 390 fm iðnaðar- og lagerhúsnæði á vinsælum stað við Smiðshöfða. Lofthæð er um 8 metrar þar sem hæst er. Innkeyrsluhurð er ca. 4,5 metra há með rafmagnsopnun. Þriggja fasa rafmagn. Á 2. hæð eru tvær skrifstofur, parketi á gólfi og starfsmannaastaða. Húsnæðið er allt hið snyrtilegasta. Rýmið skiptist í 328 m2. iðnaðarhúsnæði á jarðhæð auk um 62 m2. millilofts, samtals 390 m2. TIL LEIGU TIL LEIGULYNGHÁLS 15, GARÐABÆ SMIÐSHÖFÐI 11, RVK Upplýsingar veitir: HalldórMár Sverrisson löggiltur fasteignasali og leigumiðlari í síma 898 5599 eða halldor@atvinnueign.is Aðstæður í snjóflóðinu á Flateyri í fyrrinótt hafa um margt sama svip og gerðist haustið 1995. Þá féll flóð kl. 4.07 aðfaranótt 26. októ- ber þegar flestir íbúanna voru í fastasvefni. Flóðið þá sem kom úr svonefndri Skollahvilft í fjallshlíð- inni ofan við bæinn féll á nítján íbúðarhús sem í voru 45 manns. Tuttugu létust. Leit og björgunar- aðgerðir heimamanna hófust þá þegar en undir hádegi komu björg- unarmenn frá Ísafirði á staðinn. Þeir fundu fjóra á lífi í rústunum, en 21 bjargaðist af eigin rammleik eða með aðstoð nágranna áður en skipulagðar björgunaraðgerðir hófust. Vel á fjórða hundrað björgunar- sveitarmenn héldu til Flateyrar sem meðal annars komu vestur með varðskipi. Aðgerðir tóku alls um hálfan annan sólarhring, en þær voru torsóttar meðal annars sakir þess að snjór var þéttur og harður. Ellefu ára stúlku, Sóleyju Eiríksdóttur, var bjargað eftir að hafa verið níu klukkustundir í köld- um snjónum. Sóley er í dag sagn- fræðingur og hefur meðal annars skrifað bók um snjóflóðið, Nóttin sem öllu breytti, sem kom út árið 2016. Varnargarðir reistir Aðeins efsta húsið, af þeim sem flóðið á Flateyri hreif með sér, tald- ist á hættusvæði. Sú staðreynd kallaði bæði á umræðu og aðgerðir og í kjölfarið voru reistir miklir varnargarðar á þeim stað þar sem flóðið kom. Sú framkvæmd sann- aði fljótt gildi sitt – og enn betur í atburðum líðandi viku. HAMFARIR Á FLATEYRI 1995 SVIPAÐAR ÞVÍ SEM GERÐIST NÚ Flateyri Björgunaraðgerðir sóttust seint sakir þess hve snjór var þykkur og harður. Morgunblaðið/RAX Flóð um miðja nótt féll 19 hús sem í voru 45 manns „Snjóflóðið og allt sem því tengist voru hrikalegir at- burðir sem munu fylgja mér alla ævi. Tæpast líður sá dagur að eitthvað því tengt komi ekki upp í hugann,“ segir Garðar Sigurgeirsson í Súðavík. Honum eru ham- farirnar fyrir aldarfjórðungi í fersku minni og rifjar þær hér upp. Síminn á heimili Garðars og Önnu Lindar Ragnars- dóttur konu hans á Nesvegi 11 hringdi fljótlega upp úr klukkan hálfsjö að morgni 16. janúar. Í símanum var Auðunn Karlsson nágranni hans, sem komst svo að orði að húsið sem stóð ofan við hans hefði greinilega tekið of- an í snjóflóði og væri að hálfu komið upp á þakið á sínu húsi. Eitthvað al- varlegt hefði gerst eins og kom á dag- inn. Í umræddu húsi áttu heima þau Sveinn Salomonsson og Hrafnhildur Þorsteinsdóttir, sem létust bæði. Tveir menn aðrir sem voru í húsinu, sem var nyrst í jaðri snjóflóðsins, sluppu lifandi. „Við konan mín fórum út og hittum Bjarna Auðunsson og Fjalar Gunn- arsson, formann björgunarsveitar- innar. Við gengum inn eftir Nesveginum og á stað þar sem við sáum vel yfir – og gerðum okkur þá ljóst að snjó- flóðið hafði fallið yfir allan miðhluta þorpsins og brotið fjölda húsa. Þetta var hrikalegt að sjá, en þegar hér var komið sögu hafði óveðrinu slotað um stund. Það breyttist þó fljótlega og næstu fjóra daga var iðulaus stórhríð sem torveldaði mjög allt björgunarstarf,“ segir Garðar. Gekk í málin af æðruleysi Frystihúsið í Súðavík varð afdrep þorpsbúa eftir snjó- flóðið og miðstöð björgunarstarfs. Með skóflum og stöngum hófu heimamenn leit, en skriður á aðgerðir komst á ellefta tímanum um morguninn þegar djúp- báturinn Fagranes náði til Súðavíkur frá Ísafirði með björgunarsveitarmenn. Ferjan fór svo til baka síðdegis og með honum fjöldi Súðvíkinga, enda þótti í ljósi að- stæðna ráðlegast að flytja sem flesta á brott. Garðar og nokkrir fleiri voru þó áfram á staðnum. Leiðsögn stað- kunnugra var björgunarmönnum mikilvæg og auðveld- aði störf þeirra, svo sem við að bera kennsl á fólk sem fannst látið. „Við aðstæður eins og þarna voru uppi hefur maður ekkert val, heldur bara gengur í málin af æðruleysi og gerir sitt besta. Í svona verkefnum kemur líka fljótt í ljós úr hvaða efni fólk er gert, þó að ég geri hreint ekki lítið úr því að sumum sé þetta um megn. Ég á til dæmis erfitt með að setja mig í spor fólksins sem þarna missti ná- komna ættingja og börnin sín. Sjálfur slapp ég vel að því leyti, “ segir Garðar sem dvaldist fram á laugardag í Súðavík. Var þá viðstaddur fjölsótta minningarathöfn um þá sem létust, en henni var útvarpað og þjóðin hlust- aði. Hvatningin var mikilvæg „Langflestir sem bjuggu hér í snjóflóðinu völdu að vera hér áfram. Þar réði miklu sá stuðningur sem við fengum. Ekki síst höfðu mikið að segja yfirlýsingar og hvatning Vigdísar Finnbogadóttur, þá forseta Íslands, og Davíðs Oddssonar forsætisráðherra,“ segir Garðar, sem býr enn í dag í Súðavík, það er í hverfinu sem var reist eftir snjóflóðin. Er Garðar meðal eigenda Vest- firskra verktaka á Ísafirði og sækir þangað vinnu dag- lega en reynslan hefur þó kennt honum að gæta vel að veðri á viðsjárverðri leið. Fylgir mér alla ævi  Í Súðavík í snjóflóðinu fyrir 25 árum  Situr í huga  Torvelt björgunarstarf  Gekk í mál og gerði mitt besta Morgunblaðið/Sigurður Bogi Súðavík Minningarreitur um fórnarlömb snjóflóðsins. Garðar Sigurgeirsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.