Morgunblaðið - 16.01.2020, Page 36
36 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2020
Verið velkomin í verslun okkar
Opið mán - fim kl. 8:30 –17:00, fös 8:30–16:45
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
ÞORRATILBOÐ
ER ALLT KLÁRT FYRIR
ÞORRABLÓTIN?
25%
AFSLÁTTUR
AF VÖLDUM
VÖRUM
HITALOGAR HITAKASSAR
MELAMIN BAKKAR
SNAFSAGLÖS SWAN POTTAR HITABORÐ
● Heildarviðskipti með fasteignir námu
560 milljörðum króna í fyrra í alls
12.200 kaupsamningum. Það var 24
milljörðum króna meira á nafnvirði en
árið 2018 og 53 milljörðum króna meira
en þensluárið 2017.
Þetta kemur fram í nýjum tölum
Þjóðskrár Íslands um veltuna í fyrra.
Þróunin frá 2014 er sýnd á grafinu
hér fyrir ofan. Veltan var 406 milljarðar
króna árið 2007 en það eru um 682
milljarðar á núverandi verðlagi miðað
við breytingu á vísitölu neysluverðs.
Á þensluárunum fyrir efnahags-
hrunið var lánsfjárhlutfallið gjarnan hátt
við fasteignakaup. Með innkomu bank-
anna á íbúðalánamarkaðinn 2004 varð
aðgengi að lánsfé greiðara.
Velta fasteignavið-
skipta 560 milljarðar
Fasteignavelta
Nafnvirði þinglýstra kaupsamninga
2004 2009 2014 2019
Allt landið 2004-2019, ma.kr.
Heimild: Þjóðskrá Íslands
406
560
227
99
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Álframleiðsla Kína var 10% af
heildarframleiðslu á málminum í
heiminum árið 2000 en er í dag 56%.
Framleiðsluaukningin í landinu
svarar til tvöfaldrar ársframleiðslu
Íslands á hverju ári. Þetta kom
fram í máli Martin Jackson, álsér-
fræðings hjá breska ráðgjafarfyrir-
tækinu CRU, á morgunverðarfundi
Landsvirkjunar í gær, sem haldinn
var undir yfirskriftinni Orkumark-
aðir í mótun: Íslensk orka á alþjóð-
legum mörkuðum. Erindi Jacksons
hét The rise of China and sustain-
able aluminium: where does Iceland
fit in? Eða Uppgangur Kína og
sjálfbær álframleiðsla: hvernig
passar Ísland inn í myndina?, í laus-
legri íslenskri þýðingu.
Mikil áhrif á heiminn
Kínverjar framleiða ál sitt að 87%
hluta með jarðefnaeldsneyti, og hef-
ur það því gríðarleg áhrif á samtölur
fyrir heiminn allan, þegar skoðað er
hlutfall jarðefnaeldsneytis í fram-
leiðslu áls. Með Kína eru nú tveir
þriðju hlutar alls áls í heiminum
framleiddir með jarðefnaeldsneyti.
Í máli Jacksons kom fram að um
50% af eftirspurn eftir áli í heim-
inum kæmu frá Kína. Þá sagði hann
að álverð í heiminum hefði lækkað
til lengri tíma litið, eða á tímabilinu
1990-2018, leiðrétt fyrir verðbólgu.
Hann sagði að mikil hækkun hefði
orðið á álverði árið 2018, en síðan þá
hefði verð lækkað. Þar spilar inn í
viðskiptastríð milli Bandaríkjanna
og Kína. Mikil samkeppni ríkir á ál-
markaði, að hans sögn.
Jackson segir að árið 2019 hafi
verið slæmt ár fyrir álframleiðend-
ur, en eftirspurn minnkaði þá um
eitt prósent. Er það í fyrsta skipti í
áratug sem það gerist. CRU spáir
hins vegar 1,7% aukningu eftir-
spurnar á þessu ári. Meðal þess sem
hafa mun áhrif er spá um að bílaiðn-
aðurinn muni ná sér á strik aftur
eftir talsverðan sölusamdrátt í
fyrra.
Þá kom fram í máli Jacksons að
sjö prósent álvera heimsins hefðu
verið rekin með tapi árið 2019, og
helmingur þeirra verið í Kína.
„Við búumst við því að árið 2020
verði 8% álvera rekin með tapi.“
Hann segir að Noregur hafi verið
samkeppnishæfari en Ísland með
sína framleiðslu á síðasta ári, en
Norðmenn fullvinna vörur úr áli í
meiri mæli en Íslendingar.
Rafbílar auka eftirspurn
Jackson horfði einnig til framtíðar
og sagði að rafbílar yrðu 25% af allri
bílasölu heimsins fyrir árið 2030.
70% þess fjölda yrðu bílar sem nota
eingöngu rafhlöðu. Þetta þýðir
aukna eftirspurn eftir áli, því bein
tengsl eru á milli drægi bíla og þess
að hafa þá létta. Annað sem spilar
inn í aukna eftirspurn er að áldósir
munu samkvæmt spám ná markaðs-
hlutdeild af plastflöskum, eða 3% á
næstu tíu árum. Dósir eru um 10%
allrar eftirspurnar eftir áli í dag.
Álframleiðsla Kína úr 10%
í 56% heimsframleiðslunnar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ál Jackson segir að árið 2019 hafi verið slæmt ár fyrir álframleiðendur, en eftirspurn minnkaði þá um eitt prósent.
Orka
» Stórnotendur raforku nota
80% allrar raforku á Íslandi,
fyrirtæki 15% og heimilin 5%.
» Stórnotandi þarf að nota
ígildi 20 þúsund heimila.
» Raforkukostnaður fyrirtækja
er tvisvar sinnum meiri en stór-
notenda, og kostnaður heimila
er 3-4 sinnum hærri en stórnot-
enda.
» Landsvirkjun á og rekur 18
aflstöðvar.
Í Kína eru 87% áls framleidd með jarðefnaeldsneyti Eftirspurn minnkaði 2019
16. janúar 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 122.95 123.53 123.24
Sterlingspund 159.56 160.34 159.95
Kanadadalur 93.99 94.55 94.27
Dönsk króna 18.305 18.413 18.359
Norsk króna 13.807 13.889 13.848
Sænsk króna 12.985 13.061 13.023
Svissn. franki 126.8 127.5 127.15
Japanskt jen 1.1165 1.1231 1.1198
SDR 169.63 170.65 170.14
Evra 136.82 137.58 137.2
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.2717
Hrávöruverð
Gull 1544.95 ($/únsa)
Ál 1766.0 ($/tonn) LME
Hráolía 64.29 ($/fatið) Brent
STUTT
Fulltrúar þriggja japanskra fisk-
sölufyrirtækja, Maruha, Okada
Suisan og Azuma, munu á miðviku-
dag í næstu viku halda kynningu hjá
Þekkingarsetri Vestmannaeyja.
„Þetta eru risastór sölufyrirtæki
sem ætla að koma til okkar og ræða
japanska markaðinn og tengda
markaði, fjalla um tegundir og af-
urðir og hvort einhver tækifæri eru í
viðskiptum milli landanna,“ segir
Hrafn Sævaldsson, nýsköpunar- og
þróunarstjóri þekkingarsetursins.
„Þetta eru rosalega stór fyrir-
tæki,“ ítrekar Hrafn og vísar meðal
annars til veltu Maruha, en hún
nemur um 920 milljörðum japanskra
jena, jafnvirði um þúsund milljarða
íslenskra króna, og hefur fyrirtækið
11.300 starfsmenn samkvæmt Fin-
ancial Times.
Þróaður markaður
Okada Suisan sérhæfir sig í
vinnslu og sölu loðnu og loðnuafurða
og er með um 50% markaðshlutdeild
í Japan. Félagið, sem Vinnslustöðin í
Vestmannaeyjum varð meðeigandi í
árið 2017, selur til um 50 þúsund
verslana.
Hrafn segir tækifæri geta falist í
sölu íslenskra sjávarafurða til Jap-
ans. „Þessi fyrirtæki eru meðal ann-
ars í loðnu, loðnuhrognum, grálúðu,
karfa og makríl, bæði landfryst og
sjófryst. Þetta er rosalega þróaður
markaður og hægt að læra mikið af
þeim, enda alþjóðleg fyrirtæki sem
hafa þekkingu á þróuninni í grein-
inni.“ gso@mbl.is
AFP
Markaður Talið er að tækifæri séu
á Japansmarkaði.
Kynna tækifærin
á Japansmarkaði
Japönsk fisksölu-
fyrirtæki halda erindi
í Vestmannaeyjum