Morgunblaðið - 16.01.2020, Síða 47

Morgunblaðið - 16.01.2020, Síða 47
MINNINGAR 47 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2020 laugur, maki hennar, sem einnig er úr Húnaþingi, ráku lengi mat- vöruverslunina Gunnlaugsbúð á Freyjugötu 15 í Reykjavík. Þegar við hjónin fluttum suður árið 1972 höfðu þau nýlega byggt sér hús í Haðalandi 17 í Fossvogi en Egg- ert hafði fengið lóð í Haðaland 21. Við leigðum húsnæði nokkru ofar í Fossvoginum meðan Eggert byggði húsið okkar. Ekki var matvörubúð í næsta nágrenni en Eggert hafði samband við frænku sína sem tók stundum með sér matvöru til okkar á heimleið. Ég man þegar Erla, sem var hörku- dugleg, hress og hagsýn kona, kom með fyrsta matvörukassann. Hún opnaði frystihólfið á kæli- skápnum og benti mér á að ég gæti komið hálfum lambsskrokki þar inn – það væri mun ódýrara að kaupa hálfan skrokk heldur en í eina máltíð. Svo baðst hún afsök- unar á afskiptaseminni en ég þakkaði henni fyrir og hef síðan farið eftir þessum góðu leiðbein- ingum. Annað dæmi um greiðvirkni Erlu og Gunnlaugs er að stuttu eftir að yngri sonur okkar fæddist sumarið 1974 þurftum við hjónin að lakka stórt parketgólf. Veðrið var gott og gátum við verið með opið út yfir daginn en þótti vara- samt að láta drengina sofa í hús- inu meðan lakkið var blautt. Leit- uðum við þá til þeirra hjóna. Þau buðu okkur umsvifalaust vera með drengina hjá sér og sváfum við þar öll fjögur í einar tvær næt- ur. Yngsta barn þeirra hjóna, Ás- laug, er fætt árið 1973, en drengir okkar Eggerts 1972 og 1974. Þau þrjú voru eins og systkin og léku sér oftast saman, ýmist inni eða úti á milli heimilanna. Áslaug gætti líka oft með þeim bræðrum dóttur okkar sem fæddist 1979. Þau fjögur voru og eru perluvinir. Þegar þau hjón héldu upp á fermingar, útskriftir o.fl. var það oftast heima og sá Erla um veisl- urnar. Hún bakaði líka glæsilegar kransakökur í fermingarveislur barna okkar Eggerts. Þau hjón voru höfðingjar heim að sækja og dugnaði þeirra var við brugðið, eins og framkvæmd þeirra í Hverafold í Grafarvogi, uppbygg- ing á Gelti og endurnýjun heim- ilisins ber vott um. Við bjuggum í Haðalandinu rúm 34 ár og aldrei bar nokkurn skugga á vináttuna við þau hjón. Eggert vann oft fyrir Gunnlaug og skrapp iðulega yfir til þeirra og þá voru rifjaðar upp skemmtileg- ar minningar frá bernskuárum í Húnaþingi. Eftir að Eggert veikt- ist studdu þau okkur ómetanlega. Á seinni árum færðu þau Eggert konfekt og vínflösku á gamlárs- dag og eftir að hann flutti á hjúkr- unarheimili fóru þau einfaldlega þangað með konfektið. Ég og börnin munum ávallt minnast Erlu með þakklæti og gleði. Hún var einstök kona, hreinskiptin og heil. Við vottum Gunnlaugi, börnum þeirra hjóna og fjölskyldum einlæga samúð okkar. Blessuð sé minning Erlu Levy. Guðrún Pálsdóttir. Ég var svo heppin að fá að alast upp í Fossvoginum frá sex ára aldri og í næstu götu við okkur Bensa, tvíburabróður minn, Haðalandi, bjuggu jafnaldrar okkar næstum í hverju húsi. Í Haðalandi 17 átti Hildur heima en við urðum góðar vinkonur sem brölluðum ýmislegt saman ásamt öllum hinum skemmtilegu krökk- unum í götunni. Við vorum alltaf velkomin inn á heimili Hildar, tjalda í garðinum, leika okkur á lóðinni, búa til karamellur eða hvað við vildum, stundum fylgdi því reyndar að passa Áslaugu litlu systur hennar þar sem Erla og Gunnlaugur voru oft upptekin í búðinni. Búðin, Gunnlaugsbúð á Freyjugötunni, varð svo sá staður sem ég hef unnið einna lengst á, utan kennslustofunnar. Erla og Gunnlaugur voru einstaklega samhent hjón og gerðu allt fyrir kúnnann; ef varan var ekki til þá var því bara reddað, ef einhver fékk vitlausa pöntun þýddi það bara aðra hjólaferð heim til við- komandi og aldrei var rukkað fyr- ir þessar heimsendingar, allt gert með glöðu geði hver sem kúnninn var. Það er ekki skrýtið þótt nokkrar eldri konur í Þingholtun- um hafi brostið í grát þegar Gunnlaugsbúð flutti upp í Grafar- vog. Á þessum 10 árum sem ég vann með skóla í búðinni hlakkaði ég alltaf til að mæta í vinnuna. Mér var treyst til að skrifa niður tímana sem ég vann og svo fyrsta hvers mánaðar fór ég í Haða- landið þar sem Erla reiknaði sam- an tímana og borgaði mér með ávísun. Búðin virkaði oft eins og besta félagsmiðstöð fyrir íbúa hverfisins. Fastakúnnarnir áttu reikning í búðinni og þekkti mað- ur auðvitað alla með nafni og öll- um var treyst til að greiða skuldir sínar um mánaðamótin, sem oft- ast gekk eftir. Allt var svo per- sónulegt og átti Erla ansi stóran þátt í því að kenna okkur sem unnum í búðinni að bjóða öllum góðan dag, þakka fyrir viðskiptin og sýna einstaka kurteisi, kúnn- inn hafði alltaf rétt fyrir sér. Í dag er maður bara skammaður fyrir ef það er óvæntur hlutur á poka- svæði! Þegar búðinni var lokað á hádegi á laugardögum fékk ég iðulega að fara með fjölskyldunni heim í SS-pylsur og appelsín, það þótti mér æðislegt, ef vel bar í veiði fengum við Pipp-súkkulaði á eftir. Erla var skemmtileg, dugleg og klár kona sem gekk í öll verk, hvort sem var í búðinni, bókhald- inu eða á heimilinu. Þótt ég hafi lítið umgengist þessa góðu fjöl- skyldu seinni ár bý ég alltaf að því sem Erla og Gunnlaugur kenndu mér og þakka ég innilega fyrir það. Elsku fjölskylda, Gunnlaugur, Garðar, Sævar, Hildur, Áslaug, tengdabörn og afkomendur, inni- legar samúðarkveðjur til ykkar. Helga Sveinsdóttir. Mig langar til að minnast Erlu með nokkrum orðum. Í brúðkaupi Þórunnar, elsta barnabarns Erlu, var dreift auðum miðum, þar sem gestir áttu skrifa niður heilræði handa brúðhjónunum. Ég man að við Kristín heitin vorum einhuga um hvað við ættum að skrifa sem var eitthvað á þá leið að brúðhjón- in ættu að hafa hjónaband Erlu og Gunnlaugs að leiðarljósi og þá mundi þeim vel farnast. Ef minnst er á Erlu þá er Gunnlaug- ur aldrei langt undan. Við Kristín ræddum oft um það hvað þau væru skemmtileg og samrýnd hjón. Þau störfuðu samhent í verslunarrekstrinum þótt þau væru komin yfir miðjan aldur og hefðu dregið úr umsvifum í mat- vöruversluninni höfðu þau alltaf nóg annað fyrir stafni. Þau voru að stækka húsið í Haðalandinu, kaupa jörð í Grímsnesi, setja upp sportvöruverslun í Grafarvogi, innrétta hesthúsið, starfa innan Sjálfstæðisflokksins, svo nokkuð sé nefnt. En það voru ekki bara framkvæmdirnar, það var hugur- inn á bak við þær, gleðin og ánægjan með viðfangsefnin sem ég hreifst af. Þau höfðu gaman af að sýna og segja frá viðfangsefn- um sínum en ekki síður vildu þau vita um allt sem við vorum að gera og fannst mikið til þess koma. Erla og Gunnlaugur voru einlæg- ir sjálfstæðismenn, gerðu sér öðr- um betur grein fyrir mikilvægi einkaframtaks og atvinnufrelsis. Ég varð þeirrar gæfu aðnjót- andi að kynnast Erlu og Gunn- laugi fyrir um 40 árum. Það var um það leyti sem nýlenduvöru- verslunin hætti á Fjölnisvegi 2 og foreldrar mínir hófu viðskipti við Gunnlaugsbúð og um svipað leyti kynntist ég syni þeirra Gunnlaugi Sævari og hefur sú vinátta varað síðan. Ég minnist þess að foreldr- um mínum varð tíðrætt um hversu gott væri að versla í Gunn- laugsbúð, hvað hjónin sem þar stóðu vaktina hefðu góða nærveru og veittu góða þjónustu. Svo var þeim einnig umhugað um hag for- eldra minna, spurðu frétta og reyndu að liðsinna eftir mætti. Þeim var annt um viðskiptavini sína. Foreldrar mínir báru alla tíð mikinn hlýhug til þeirra hjóna og aldrei kom annað til greina en að versla í Gunnlaugsbúð. Margar minningar koma upp í hugann. Maður minnist þess t.d. þegar maður kom ríðandi í Haðalandið í Fossvoginum sem var hægt í þá daga. Hestar bundnir fyrir utan og maður leiddur inn að veislu- borði sem Erla hafði útbúið. Hestarnir mínir voru dásamaðir sem miklir gæðingar og á slíkum stundum þá fann maður vel hvað sveitin þeirra Vatnsnesið í Húna- vatnssýslunni skipaði stóran þess í lífi þeirra þegar rifjaðar voru upp sögur af hestum og mönnum fyrir norðan. Stundum var bikar með sem ekki spillti fyrir. Maður fór alltaf glaðari og hressari af þessum fundum en þegar maður kom og mér fannst ávallt eins og ég væri á miklu betri hestum þeg- ar ég fór úr Haðalandinu heldur en þegar ég kom þangað. Svo var það árviss viðburður í mörg ár að hittast á uppskeruhátíð hesta- manna þar sem Erla og Gunn- laugur voru fastir gestir í góðra vina hópi. Þegar við hittum þau þar þá var Erla oft fyrri til að segja: „Gunnlaugur, ertu búinn að bjóða þeim upp á gin og tónik?“ Það var ekki valkostur að segja nei við slíku kostaboði. Þetta urðu ávallt fagnaðarfundir og vil ég þakka fyrir að fá að kynnast þeim og eiga að vinum Erlu og Gunnlaug og þeirra fjöl- skyldu. Sú vinátta hefur reynst mér dýrmæt. Ég sendi Gunnlaugi, börnum hans og hans stóru fjölskyldu innilegar samúðarkveðjur og bið þeim öllum Guðs blessunar. Sigurbjörn Magnússon. Ef hægt er að segja um ein- hverja konu að hún hafi verið lífið og sálin í sínum félagsskap þá var hægt að segja það um hana Erlu. Sem félagskona í Kvenfélagi Bú- staðasóknar lét hún sér ekkert óviðkomandi. Í mörg ár var hún þar í stjórn og tók þátt í öllu og leysti allt jafn vel af hendi. Ef eitthvað þurfti að gera var hún ævinlega fyrst til að bjóða fram krafta sína. Alltaf til í að baka fyr- ir fundi og jólakökurnar hennar slógu virkilega í gegn. Hún var líka einn af stofnendum kvenna- kórsins Glæða og söng lengi með kórnum. Þegar safna þurfti vinn- ingum hjá fyrirtækjum fyrir happdrætti félagsins lét hún ekki sitt eftir liggja. Hún safnaði flest- um vinningunum og keypti síðan marga miða sjálf ásamt manni sínum Gunnlaugi sem stóð ótrauður við bakið á henni í fé- lagsstarfinu. Sem dæmi um það má nefna að þegar hún gat ekki lengur sinnt þessu vegna veik- inda aðstoðaði hann félagið við þetta verkefni og styrkti þar með fjáröflun kvenfélagsins. Þegar við kvenfélagskonur fórum eitt sinn í sumarferðalag austur í sveitir bauð hún okkur öllum til sín, en þau hjón eiga þar jörðina Gölt. Áttum við þar ynd- islega kvöldstund með þeim hjón- um. Eitt sinn þegar kvenfélagið ætlaði að halda fund í safnaðar- heimili Bústaðakirkju bilaði hita- kerfi hússins svo ekki var álitlegt að halda fundinn þar. Erla bauð strax að halda fundinn heima hjá sér og þangað var fundurinn fluttur með hraði og þar nutum við einnig gestrisni hennar. Við í Kvenfélagi Bústaðasóknar þökk- um henni fyrir áratuga óeigin- gjarnt starf, sem hefur skipt miklu máli fyrir félagið. Hennar sæti verður vandfyllt. Við vottum Gunnlaugi og fjöl- skyldunni og öðrum ættingjum og vinum innilega samúð við frá- fall hennar. Guð blessi minningu hennar. F.h. Kvenfélags Bústaða- sóknar, Laufey E. Kristjánsdóttir. ✝ Richard Daw-son Woodhead fæddist 6. apríl 1947 í Blackpool á Eng- landi. Hann lést 27. desember 2019 á gjörgæsludeild Hospiten á Tenerife. Foreldrar hans voru hjónin Kristín Gestsdóttir, f. 26.10. 1923, frá Siglufirði, og Franks Dawson Woodhead, f. 3.8. 1919 frá Dodworth á Englandi, þau eru bæði látin. Hálfbræður sammæðra eru: Svavar Óskar Bjarnason, f. 8.2. 1953, d. 3.9. 2019. Hilmar Grétar Bjarnason, f. 5.4. 1959. Hálfsystur samfeðra eru: Kar- en Withaker, f. 18.3. 1954, Lynne Cooper, f. 15.1. 1957. Richard kvæntist árið 1967 Sig- ríði Bragadóttur, f. 28.10. 1949, þau skildu. Richard og Sigríður eignuðust dótturina Kristínu Richardsdóttur, f. 15.11. 1966, í sambúð með Aðalsteini Jónatans- syni, f. 5.4. 1957. Börn Kristínar og Einars S. Jónssonar, f. 26.3. 1963: Val- gerður Einarsdóttir, f. 18.12. móðir Ásta Wiencke. Benjamín Ágúst Dawson Franksson, f. 27.3. 2007, barnsmóðir Steinunn Bríet Ágústsdóttir. Adam Ingi Wienkce Aronsson, f. 24.8. 1998, uppeldis- sonur. Lára Gestrún Woodhead, f. 18.5. 1988, í sambúð með Ólafi Tryggva Eggertssyni, f. 27.3. 1985. Börn Láru og Ólafs eru: Ástrós Anna Ólafsdóttir, f. 17.7. 2007. Jóhann Már Ólafsson, f. 17.1. 2011. Elínrós Anna Ólafsdóttir, f. 7.3. 2019. Eftirlifandi sambýliskona Rich- ards er Margrét Pétursdóttir, f. 11.2. 1947. Richard ólst upp á Siglufirði, í Njarðvík og Vogum, hjá móður sinni og móðurömmu, Láru Lars- dóttur Thorsen. Richard vann við ýmis störf, við síldarvinnslu á Siglufirði, hlaðmað- ur hjá Loftleiðum, rútubílstjóri hjá Steindóri Sigurðssyni, en hann vann þó lengst af á véladeild hjá Ís- lenskum aðalverktökum, þar til hann stofnaði Útfararþjónustu Suðurnesja árið 1999. Starfaði hann sem útfararstjóri fram á síð- asta dag. Richard var einn af stofnendum Lionsklúbbsins Garðs og aðal- hvatamaður að stofnun fyrsta Leo- klúbbs á Íslandi, Leoklúbbsins Sigga. Hann var félagi í Forn- bílaklúbbi Íslands og Félagi hús- bílaeigenda. Útför Richards fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, 16. janúar 2020, klukkan 13. 1984, gift Eysteini Má Guðvarðarsyni, f. 3.12. 1981. Börn þeirra eru Særún Lilja, f. 1.1. 2007, Ísak Logi, f. 14.7. 2008, og Bergrún Elva, f. 1.2. 2016. Jón Bragi Einarsson, f. 1.9. 1988, í sambúð með Maríu Sigurð- ardóttur, f. 3.6. 1993. Kristín Perla Jóns- dóttir, f. 28.9. 2014, móðir Guðný Hermannsdóttir. Drengur Jónsson, f. 21.12. 2019, móðir María Sigurðardóttir. Íris Einarsdóttir, f. 10.5. 1990, í sambúð með Gísla Frey Ólafssyni, f. 2.10. 1992. Dóttir þeirra er Dag- björt Freyja Gísladóttir, f. 4.9. 2019. Richard kvæntist 29.12. 1973 Jennýju Kamillu Harðardóttur, f. 15.3. 1953, þau skildu. Börn Rich- ards og Jennýjar eru: Agnes Ásta Woodhead, f. 26.4. 1974, í sambúð með Einari Gunnari Einarssyni, f. 13.2. 1970. Frank Dawson Wood- head, f. 6.10. 1981, í sambúð með Bennie May Wright, f. 24.7. 1975. Börn Franks: Richard Dawson Woodhead, f. 26.7. 2000, barns- Það var alltaf notalegt að setja upp í líkbílinn til Rikka að lokinni útför. Slíkar athafnir geta verið krefjandi en ég þjónaði við Kefla- víkurkirkju í hartnær áratug. Rikki hlýddi á minningarorðin, hann þekkti jú flest þau sem þarna fengu með honum hinsta farið í kirkjugarðinn. Stundum fannst honum prest- urinn hafa verið of háfleygur. Hann gantaðist með að greinilega væri fátt vænlegra til vinsælda en að geispa golunni. Ég svaraði um hæl á þá leið að ef það kæmi í minn hlut að flytja yfir honum líkræð- una myndi ég hefja hana á orð- unum: „Nú hefur þjónustudeild Útfararstofu Suðurnesja tekið til starfa.“ Já, nú væri hann kominn í félagsskap þeirra fjölmörgu sem hann hafði fylgt til hvíldu í helgum reit. Þeir gætu loks haft skoðun á þjónustu hans. Honum fannst þetta ágæt hugmynd og brosti út í annað, með vindilinn í munnvik- inu. Nú þjóna ég á öðru landsvæði og vinir Rikka og vandamenn munu njóta þess að hlýða á séra Erlu flytja yfir honum kveðjuorð. Öllu gamni fylgir þó nokkur al- vara. Það var merkilegt að fylgj- ast með því hversu nátengdur Rikki var þeim sem hann þjónaði. Hann sagði mér frá því að stund- um vitjuðu þeir hans í draumi. Hann var næmur og hann var vak- inn og sofinn í störfum sínum. Þá var Rikki góður félagi og stuðn- ingur okkur sem unnum með hon- um að því að undirbúa útför. Hann var líka alltaf jafn virðu- legur í svörtu einkennisklæðun- um, eins og enskur aðalsmaður. Mikil blessun hefur það verið fyrir samfélagið suður með sjó að hafa notið þjónustu Rikka á löngu skeiði en með honum kveður einn af þeim einstaklingum sem settu svip sinn á mannlífið. Guð blessi minninguna um Rikka og veri með öllum aðstandendum hans. Skúli Sigurður Ólafsson. Mig langar að minnast Rikka með nokkrum orðum. Ég kynntist Rikka útfararstjóra er ég hóf störf í Útskálaprestakalli fyrir rúmum 10 árum. Við fyrstu kynni minnti hann mig á persónu úr kvikmynd, skarpur svipur, yfirvaraskeggið, þykka hárið, erlent nafn. Það var einhver dulúð yfir þessum manni. Viðræðugóður frá fyrsta degi, húmoristi fram í fingurgóma, fag- maður á sínu sviði. Það var ein- hver glæsileiki yfir þjónustu hans. Hann var fágaður og tignarlegur en jafnframt hógvær og nærgæt- inn. Aldrei heyrði ég nokkurn mann hallmæla þjónustu hans. Mín upplifun var sú að hann mætti öllum af sömu virðingu og kær- leika í sinni þjónustu. Oft var haft orð á því hversu fagurlega hann gekk frá hinum látnu í kisturnar. Þjónustulundin rík dag sem nótt. Hann lét formlega af störfum fyrir nokkru er dóttir hans tók við rekstri útfararstofunnar en ætíð var hann tilbúinn að létta undir þegar álag var mikið og eins að standa við eldri „pantanir“ sem hann hafði lofað. Það er missir að Rikka. Sterkur persónuleiki sem skilur eftir sig margar minningar. Við prestarnir njótum þeirra for- réttinda að vera með fólki jafnt í gleði sem sorg en útfararstjórar eru einkum með fólki á erfiðustu stundunum í lífi þess. Þar stóð Rikki sína vakt með sóma. Byrjaði sem áhugamaður með Lions- klúbbnum sínum en gerði útfar- arþjónustuna síðan að sínu aðal- starfi í mörg ár eftir því sem umsvifin jukust. Guði séu þakkir fyrir þjónustu hans. Ég hef því miður ekki tök á að vera viðstadd- ur útförina en votta aðstandend- um öllum samúð og bið Guð að hugga og styrkja á komandi tíma. Genginn er Rikki á frelsarans fund, fágaður ætíð með þjónustulund. Herramaður, hógvær að sjá, hneigir sig núna Guði hjá. Sigurður Grétar Sigurðsson. Nú í lok nýliðins árs, þegar okk- ur barst sú frétt að Rikki frændi væri farinn í lokaferðina sína, þá tók það okkur nokkra stund að átta okkur á því að þetta er veru- leiki sem ekkert fær breytt. Elsku Rikki frændi, eins og þú varst alltaf nefndur innan Hlíðar- vegs-fjölskyldunnar. Þú varst staddur á Tenerife þegar kallið kom og við trúum því að þeir sem á undan eru gengnir úr fjölskyld- unni okkar hafi tekið vel á móti þér og leitt þig inn í sumarlandið, inn í land ljóssins. Við móðurbróður-fjölskylda þín frá Hlíðarvegi 11 Siglufirði, þökk- um þér alla samfylgd og sam- veruna liðin ár. Við eigum margar góðar minn- ingar um þig sem munu fylgja okkur og lifa áfram. Við minnumst þín og þökkum allar góðu og skemmtilegu stundirnar sem við áttum saman hér fyrir norðan og eins þegar við komum suður til ykkar. Þú varst ætíð hrókur alls fagnaðar með glens og grín og það var alltaf líf og fjör í kringum þig. Seinna fækkaði ferðunum á milli eins og gengur, en alltaf þeg- ar komið var saman var eins og við hefðum hist í gær og ekki var vík milli vina Við minnumst líka stunda þar sem sorgin kom við sögu þegar kærir ástvinir voru kallaðir í Sum- arlandið, þangað sem leið okkar allra liggur svo að lokum. Á þeim stundum er það samvera og hlý- legheit fjölskyldu og vina sem er okkur öllum svo mikilvæg. Við sem ekki komumst í útförina sendum okkar hlýjustu hugsanir og kveðjur suður yfir heiðar til fjölskyldunnar. Þó allir hljóti að fara þessa ferð að finna andans björtu heimakynni, þá streymir um hugann minninganna mergð er mætur vinur hverfur hinsta sinni. (Vilhjálmur S.V. Sigurjónsson) Far þú í friði, elsku Rikki frændi. Við vottum ykkur öllum dýpstu samúð okkar, þeim Margréti Pét- ursd., sambýliskonu Richards, og fjölskyldu, börnum Richards og fjölskyldum þeirra, börnum Svav- ars og fjölskyldum þeirra. Hilmari bróður Richards og fjölskyldu hans sem og allri fjölskyldu og vinum hans Richards. Með innilegum samúðarkveðj- um. Líney Bogadóttir, börn og fjölskyldur frá Hlíðarvegi 11, Siglufirði. Kveðja frá Félagi ís- lenskra útfararstjóra Við félagsmenn í FÍÚ kveðjum góðan félaga og vin, Richard D. Woodhead, sem fallinn er nú frá og þökkum við honum allar góðar stundir og gott samstarf. Við sem eldri erum í félaginu höfum þekkt Rikka allt frá því að hann fór að starfa við útfarir með félögum sínum í Lions í Garði og svo eftir að hann stofnaði Útfar- arþjónustu Suðurnesja og tók yfir alla starfsemi þeirra þar. Sam- starf og samvinna félagsmanna FÍÚ við Rikka hefur ávallt verið með ágætum í gegnum árin og eft- ir að Kristín Richardsdóttir og sambýlismaður hennar Aðal- steinn Hákon Jónatansson tóku við rekstrinum af honum hefur það góða samstarf haldið áfram. Við útfararstjórar í Félagi ís- lenskra útfararstjóra vottum Kristínu og Aðalsteini og öðrum aðstandendum okkar dýpstu samúð. F.h. félagsins, Rúnar Geirmundsson, formaður. Richard Dawson Woodhead

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.