Morgunblaðið - 16.01.2020, Síða 51

Morgunblaðið - 16.01.2020, Síða 51
MINNINGAR 51 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2020 blaðinu sem allar sneru að hans hjartans málum. Stjórnmálin voru hans líf og yndi og hans líf snerist um þau. Er leiðir okkar Jóns Vals lágu fyrst saman vorum við í flestu á öndverðum meiði í stjórn- málunum, hann til hægri en ég taldi mig þá þjóðlegan vinstri mann á móti veru bandaríska hersins í landinu. Engu að síður ræddum við oft pólitík okkur til ánægju og gagns. Þegar vinstrið varð undirlagt af ESB-óværunni og varð æ óþjóðlegra færðist ég endanlega frá vinstrinu og nær Jóni í stjórnmálunum. Leiðir okk- ar í baráttumálum stjórnmálanna hafa svo legið nokkuð þétt saman undanfarin áratug eða svo. Báðir höfum við verið virkir í baráttunni gegn ESB-innlimun landsins og verið harðir gegn EES-samningn- um. Við höfum staðið saman á Austurvelli við að mótmæla Evr- ópusambandinu, innleiðingu 3ja orkupakkans, útlendingalögunum og margt fleira mætti telja. Við komum báðir að stofnun Íslensku þjóðfylkingarinnar árið 2016. Þó svo að leiðir skildu síðan þegar ég og hópur fólks fórum og stofnuð- um Frelsisflokkinn var samt alltaf skilningur og gagnkvæm virðing okkar á milli. Hans stóra hugsjón var að sjá sameiningu og uppgang þjóðlegs stjórnmálaafls sem gæti af krafti leitt baráttuna fyrir sjálf- stæði lands og þjóðar og veitt landsöluöflunum sterkt viðnám. Jóns Vals verður sárt saknað en minningin um þennan góða en óvenjulega mann mun lifa og óeig- ingjörn barátta hans mun blása okkur sem eftir stöndum eldmóði í brjóst. Ég votta börnum og aðstand- endum Jóns Vals innilega samúð. Gunnlaugur Ingvarsson. Jón Valur Jensson var hug- sjónamaður, ódeigur í baráttu fyr- ir málefnum sem hann bar fyrir brjósti. Hann var gagnmenntaður mannvinur, tók málstað þjóðar sinnar og varði lífsrétt ófæddra barna. Jón Valur barðist fyrir hug- sjónamálum sínum af þekkingu og brást aldrei. Hann stóð vörð um sjálfstæði þjóðarinnar og fullveldi, barðist gegn Icesave með þjóðar- heiður að kjörorði og þriðja orku- pakkanum með áherslu á fullveldi þjóðarinnar yfir mikilvægum orkuauðlindum sínum. Jón Valur naut viðurkenningar sem einn fremsti ættfræðingur þjóðarinnar. Kynntist ég Jóni þegar ég sótti ættfræðinámskeið hjá honum fyrir margt löngu. Lagði hann mikla áherslu á gagn- rýna meðferð ættfræðiheimilda. Við hittumst oft á lífsleiðinni, ræddum saman, síðast eigi alls fyrir löngu, um sameiginleg hugð- arefni á sviði þjóðmála og menn- ingarmála. Blessi þig voru jafnan orð hans þegar við kvöddumst. Jón Valur barðist fyrir þjóðleg- um gildum og hag þjóðarinnar, var mikill áhugamaður um sögu lands og lýðs og hafði djúpan skilning á mikilvægi kirkju og kristni á leið þjóðarinnar frá ár- dögum til samtímans. Jón Valur bar eitt mál fyrir brjósti umfram öll önnur: Lífsrétt ófæddra barna sem var heilagur í hans augum. Hann fjallaði um þau málefni af þekkingu og virðingu án áreitni og af skilningi. Honum voru það mikil vonbrigði þegar meirihluti á Alþingi samþykkti að rýmka verulega tímamörk fóstur- eyðinga. Ég átti því láni að fagna að eiga vináttu Jóns Vals Jenssonar. Bros hans var kankvíst og einlægt og náði til augnanna sem höfðu mild- an blæ. Jón Valur var mannkosta- maður sem gekk fram af heilind- um og djörfung. Jón Valur Jensson féll frá um aldur fram og er sárt saknað. Börnum hans og ástvinum færi ég innilegar samúðarkveðjur. Með alúð og þakklæti kveð ég hann sem einlægt barðist fyrir góðum málstað með orðum hans sjálfs: Blessi þig. Ólafur Ísleifsson. Árið var nýhafið þegar sú sorgarfregn barst að fallinn væri frá Jón Valur Jensson. Hann var einn eftirminnilegasti þjóðmálarýnir þessarar aldar á Íslandi. Jón Valur tilheyrði kynslóð sem skipaði sér í fylkingar eftir hugmyndakerfum. Urðu þá gjarn- an skörp skil og hvergi gefið eftir. Um leið var hann heitur og ein- lægur trúmaður sem sótti kraft og fullvissu í trúna. Síðar á ævinni varð Jón Valur áberandi í hópi svonefndra blogg- ara sem sögðu skoðun sína á mönnum og málefnum á eigin net- síðum. Eftir efnahagshrunið urðu slík- ir höfundar áberandi í þjóðmála- umræðunni á Íslandi en bloggin birtust gjarnan sem krækja á fréttir netmiðla. Við bloggin mátti skrifa athugasemdir og urðu þræðirnir stundum langir. Þegar Jón Valur var annars vegar virtust sem sjö sverð væru á lofti. Slík voru afköstin. Mörg samtök nutu krafta hans. Á þessum árum tók Jón Valur eindregna afstöðu í Icesave-deil- unni; var meðal þúsunda Íslend- inga sem töldu teflt á tæpasta vað með þjóðarhag. Jón Valur skrifaði ótal blogg við fréttir, rökræddi við menn á förnum vegi, skrifaði greinar í blöð og hringdi í síma- tíma Útvarps Sögu. Það var sama hvar borið var niður. Hvarvetna skein í gegn einlæg barátta fyrir þjóðarhag. Jón Valur hafði engan persónulegan ávinning af málinu. Þvert á móti tók það frá honum mikinn tíma og orku á erfiðum tímum. Rétt er að halda þessu til haga. Baráttan gleymist ekki þeim sem lifðu hana. Söguritarar eiga að halda til haga skrifum Jóns Vals og annarra í Icesave-deilunni. Þau hafa ótvírætt sögulegt gildi. Á þessum árum starfaði Jón Valur um hríð sem prófarkalesari á Morgunblaðinu. Með málfari sínu, síðu hári, hæglátri festu og trúarlegri þjóð- rækni kom hann mér fyrir sjónir sem 19. aldar maður. Það mátti vel sjá hann fyrir sér sem stuðn- ingsmann Jóns forseta. Við- kvæmni í bland við mikla einlægni í hugsjónabaráttunni. Jón Valur tók ósjaldan um- deilda afstöðu í erfiðum málum. Eins og gengur var maður mis- jafnlega sammála. Eftir stendur að hann þorði að sigla á móti straumnum. Það gerði hann um margt einstakan í þessum tíðar- anda. Jón Valur mætti andstreymi en hafði sannfæringu manns sem tel- ur sig berjast góðu baráttunni. Baldur Arnarson. Ég var staddur í bókabúð í miðbæ Reykjavíkur, sem seldi notaðar námsbækur. Ég var ný- fluttur með foreldrum mínum suð- ur og var að skipta um skóla, fara úr MA eftir skemmtilegan vetur í 3. bekk og hefja nám í 4. bekk MR. Þetta var haustið 1968. Í bókabúð- inni var svipsterkur ungur maður sem vék sér að mér og spurði mig í hvaða bekk ég væri að fara. Í ljós kom að við vorum að fara í sama bekkinn og þetta var upphaf að rúmlega hálfrar aldar vinskap okkar Jóns Vals. Við urðum sam- ferða í MR og síðan í guðfræði- deild HÍ á áttunda áratugnum. Eftir háskólanám skildi leiðir en ávallt var samband á milli okkar. Við skrifuðumst á meðan hann lagði stund á framhaldsnám við trúarheimspeki og kristna sið- fræði við háskólann í Cambridge á Englandi og ég var prestur og bóndi norður á Miklabæ í Blöndu- hlíð. Strax í MR kom í ljós að Jón Valur var skarpgáfaður, hann náði frábærum árangri í þeim fög- um sem hann hafði áhuga fyrir og vann til að mynda gullpennann í ritgerðasamkeppni menntaskól- ans. Síðar varð hann landsþekktur penni á samfélagsmiðlum og þar barðist hann tíðum við andstæð- inga kirkju og kristni sem vönduðu honum ekki kveðjurnar en hann lét ekki deigan síga og þynnti aldrei út þau gildi sem grundvöllur kristninnar er byggð- ur á. Kristin lífsverndarstefna til varnar okkar minnstu bræðrum og systrum var tíðum eitt grunn- stefja í boðun hans. Það var gott að eiga góðan og tryggan vin og ekki var verra að við vorum með svipaða sýn á lífið og tilveruna, vildum útbreiða þá lífsskoðun að kenning Krists um kærleikann ætti að vera í fyrir- rúmi í lífi og starfi okkar hér á jörð. Ég er þakklátur fyrir að hafa átt samleið með vini mínum Jóni Val. Við Elsa færum börnum hans og öllum ástvinum okkar innileg- ustu samúðarkveðjur vegna and- láts hans. Við, sem eftir erum og kunnum að meta mannkosti hans, hefðum gjarnan viljað hafa hann lengur með okkur á vegferð jarð- lífsins. Guð blessi Jón Val Jensson. Þórsteinn Ragnarsson. Vinur minn, Jón Valur Jensson, er látinn. Tengsl okkar voru aðallega í kringum ritstörfin. Þannig sagði hann mér að hann hefði þegar uppgötvað líflega hlið á sér sem fagurkeralegu ljóðskáldi um nátt- úruna á námsárum sínum í menntaskóla. Og í Æviskrám samtíðarmanna minnist hann þess er hann hlaut Gullpennasjóðs- verðlaun MR fyrir ritgerð sína eina árið 1971. Ég kynntist honum fyrst um 1986, þegar við vorum báðir orðn- ir áberandi kjallaragreinahöfund- ar í DV. Næst var það í kringum 1997, er við vorum báðir orðnir félagar í Rithöfundasambandi Íslands, en í félagatali þess, frá aldamótunum síðustu, er hann flokkaður sem ljóðskáld, fræðiritahöfundur og ættfræðihöfundur. Hann gekk og til liðs við mig 1998 er ég hafði stofnað Hellasar- hópinn; árlegt upplestrarfélag skálda er höfðu vitnað mikið í forngríska menningararfinn í rit- verkum sínum. Síðan gekk hann í Vináttufélag Íslands og Kanada er ég hafði stofnað 1995. (Einnig kynntist ég þar betur dóttur hans, sem hafði áður lesið upp með mér í ljóð- skáldafélagi en gekk nú brátt í stjórn Vináttufélags Íslands og Kanada!) Einnig skrifuðumst við seinna á í Morgunblaðinu. Fyrir mér var Jón Valur Jens- son fyrst og fremst tilfinningaríkt ljúfmenni og hugsjónamaður og litlu eldri en ég sjálfur! Um árið kvaðst hann hafa ort reffilegt kvæði um hinn galvaska Pútín Rússlandsleiðtoga handa hópi sínum einum um stjórnmál. Gat ég þá bent honum á að ég hefði þegar birt langa rímu um Pútín í anda Sigurðar Breiðfjörð í einni af nýlegri ljóðabókum mín- um. Heitir hún Pútíns rímur, og er inngangsvísan þannig: Pútín, Rússlands pótentat pústum vil ég mæra, þann er þegi aðra gat þaggað með að særa. Tryggvi V. Líndal. Vinur minn og baráttumaður- inn Jón Valur var ekki allra en ég get borið að hann var hjarta- hreinn og ávallt einlægur. Jón Valur var sannkristinn og átti það til að vanda um við þá sem hann taldi fara út af sporinu, „hinum þrönga vegi“, sem Kristur boðaði. Veraldarhyggjumönnum líkaði þetta misvel og því var það sem saksóknarinn stefndi þessum ráð- vanda manni fyrir hatursorðræðu. En dómskerfið stóðst þessa þol- raun og Jón Valur var sýknaður, góðu heilli. Jón Valur hafði ríka réttlætiskennd og stóð jafnan fremstur í baráttunni fyrir full- veldi Íslands. Ég trúi því að vinir og andstæðingar Jóns viðurkenni að það er mikið skarð fyrir skildi í mannflórunni. Ég er viss um að Jón Valur Jensson saknar þess sárt að geta ekki tjáð sig á blogg- inu og vandað um við okkur ef þess þarf, sjálfur sakna ég þess líka. Farðu í friði gamli vinur. Sigurður Þórðarson. Að fornvini mínum, Jóni Val Jenssyni, gengnum verður ís- lenskt samfélag grárra og dauf- legra en áður. Við þurfum ekki endilega að vera sammála fólki til að virða gáfur þess, rökfestu og manngildi. Kynntumst við Jón í 4. bekk Menntaskólans í Reykjavík. Ungt fólk er stundum yfirborðskennt og fordómafullt og átti það sannarlega við um mig. Ef satt skal segja leist mér ekki meir en svo á þennan langa slána til að byrja með. Taldi ég víst í grunn- færni æskunnar að hann væri bæði treggáfaður og leiðinlegur. Ekki leið á löngu áður en í ljós kom að Jón var bæði fluggáfaður og með afbrigðum skemmtilegur. Urðum við brátt nánir vinir og fé- lagar. Entist sú vinátta ævilangt þó að samskiptin hafi minnkað frá menntaskóla- og háskólaárunum. Vinahópurinn með forgangs- röðunina á hreinu. Fyrsta krafan var að skemmta sér og hafa gam- an af þessu öllu saman. Uppátæki okkar voru mörg og af margvís- legum toga. Held ég að þau hafi oftast verið réttum megin við lögin. Þó vil ég ekki fullyrða að ekki hafi verið brotin einhver ákvæði lögreglusamþykktar Reykjavíkur. Ef svo var voru af- brotin ekki alvarlegs eðlis og aldr- ei neinn meiddur. Einhverju sinni ræddi Guðni Guðmundsson rektor þessi mál við okkur drengina í tíma. Sagði hann að hann hefði engar áhyggjur af okkur, því að við gerðum allt í gleði en ekki í ill- kvittni og mannvonsku. Sagði rektor að hér væri allur munur á. Þó held ég ekki að við félagarnir hefðum neitt sérstaklega viljað að ævintýri okkar væru skráð og birt almenningi. Lengst af vorum við Jón ósam- mála í mörgum efnum og þótti okkur það betra. Hann hafði ein- dregnar skoðanir og fór ekkert í felur með þær. Höfðum við ómælda ánægju af endalausum þrætum um stjórnmál, trúmál og önnur samfélagsmál. Nú dvel ég fjarri Íslands ströndum. Þá á ég það til að hlusta á Útvarp Sögu til að heyra ástkæra ylhýra málið talað. Ævinlega gladdi það mig að heyra í Jóni Val. Það minnti á ung- lingsárin, skoðanirnar eindregnar og málamiðlun ekki inni í mynd- inni. Bar hann af meðal margra þeirra sem hringdu inn hvað rök- festu og skýran málflutning varðar. Við Jón fórum í langt hand- færaúthald á Sigurði Sveinssyni SH37 þar sem bróðir minn Sig- urður Arnór var skipstjóri. Jón Valur var þannig maður að þar sem hann var gerðust sögur og skemmtilegheit. Það átti við um þennan túr. Jón stytti okkur stundirnar með fjörlegum skoð- anaskiptum og óhefðbundnum viðhorfum til málanna. Hann var kappsmaður mikill og hlífði sér ekki við að draga þann gula úr sjávardjúpunum. Átti hann það til að standa við rúlluna þegar aðrir áhafnarmeðlimir lágu fyrir og létu líða úr sér þreytuna. Var hann enda með efstu mönnum á bátnum. Vorum við Jón seinast í sam- bandi fyrir stuttu. Var ég glaður að heyra í honum og er feginn að hafa átt við hann samfélag svo ný- lega nú að honum gengnum. Hann var enn hinn góði og gamli Jón Valur með sitt sérstæða skopskyn og andlega fjör sem ætíð ein- kenndi hann. Votta ég vinum og aðstandendum innilega samúð við fráfall góðs drengs. Valdimar Hreiðarsson.  Fleiri minningargreinar um Jón Val Jensson bíða birt- ingar og munu birtast í blað- inu næstu daga. Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Jón G. Bjarnason, umsjón útfara Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, FRIÐRIK JÓHANN STEFÁNSSON Sléttuvegi 31, sem andaðist á Hrafnistu Reykjavík miðvikudaginn 8. janúar, verður jarðsunginn frá Áskirkju föstudaginn 17. janúar klukkan 14. Erla Friðriksdóttir Snorri Þórisson Valur Friðriksson Ragna B. Proppé Örn Friðriksson Aðalbjörg Pálsdóttir Metta Kristín Friðriksdóttir Jón Sigurðsson Björgvin Friðriksson Brynhildur Benediktsdóttir Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTRÚN SKÚLADÓTTIR Sléttuvegi 15, Reykjavík sem lést 8. janúar, verður jarðsungin frá Háteigskirkju föstudaginn 17. janúar klukkan 13. Starfsfólki á deild B2 í Fossvogi er þökkuð alúð og umhyggja undanfarnar vikur. Skúli Eggert Þórðarson Dagmar Elín Sigurðardóttir Gunnar Þorsteinsson Klara Lísa Hervaldsdóttir Gísli B. Ívarsson barnabörn og langömmubarn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍSABET Á. MÖLLER, sem lést föstudaginn 10. janúar, verður jarðsungin frá Garðakirkju á Álftanesi fimmtudaginn 23. janúar klukkan 13. Árni Möller Signý Pálsdóttir Helga Möller Hafliði Halldórsson Jóhann og Eiður Maggý Helga, Gunnar, Elísabet og langömmubörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, SIGURBJÖRG ÓLAFSDÓTTIR frá Vestmannaeyjum, Háaleitisbraut 121, Reykjavík, lést á hjúkrunardeild Hrafnistu miðviku- daginn 8. janúar. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 17. janúar klukkan 11. Hugheilar þakkir til starfsfólks A7 LHS Fossvogi, Vífilsstaða og Vitatorgs, Hrafnistu, fyrir ástúðlega og góða umönnun. Þóra Eyland Elíasdóttir Stefán Guðbjartsson Ólafur Magnússon Katrín I. Valentínusdóttir Elfur Magnúsdóttir Sæmundur Jónsson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.