Morgunblaðið - 16.01.2020, Page 52
52 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2020
Amma Baddý var
afar glæsileg kona,
ávallt vel til höfð og
með hárið nýtúberað
og blásið. Hún var félagslynd og
naut sín best meðal fólks og því
var ávallt líf og fjör í Safamýrinni.
Það var fastur liður hjá okkur að
kíkja til ömmu eftir píanó- og
íþróttaæfingar og hún tók ætíð vel
á móti lúnum íþróttagörpum sem
yfirgáfu heimilið aldrei svangir.
Amma kunni svo sannarlega að
laga dýrindis heimilismat, sem
hún galdraði fram án nokkurs
fyrirvara, og þá gilti einu hve
margir mættu, boðnir sem ekki.
Það sem sló þó öllu við var kara-
mellumarengstertan, sem klárað-
ist undantekningalaust – þrátt fyr-
ir að aldrei hafi verið bakaðar
færri en tvær. Hún hafði unun af
því að gefa okkur sætindi og
geymdi jafnan heimabökuðu
jólasmákökurnar í neðsta skápn-
um í eldhúsinu, þar sem auðvelt
var fyrir okkur barnabörnin að
laumast í þær, án þess að nokkur
sæi til, og því ómögulegt fyrir for-
eldra okkar að áfellast ömmu. Hún
dekraði við okkur og horfði yfir-
leitt í hina áttina þegar við gerðum
eitthvað af okkur, hvort sem við
vorum að snúa hvort öðru í rauð-
brúna leðurstólnum eða að spila
fótbolta tímunum saman inni á
gangi. Raunar var hún líklegri til
að slást með í leikinn en að segja
okkur að hætta. Amma var ætíð í
góðu skapi og við gleymum aldrei
kvöldinu þegar við frændurnir,
Ásgeir, Atli og Aron, vorum í
heimsókn hjá henni annan í jólum
fyrir fáeinum árum. Amma var þá
komin á níræðisaldur en lét það
ekki stoppa sig heldur spilaði með
okkur langt fram eftir kvöldi,
sagði skemmtilegar sögur af for-
Bjarney Guðrún
Ólafsdóttir
✝ Bjarney Guð-rún Ólafsdóttir
fæddist 17. desem-
ber 1928. Hún lést
3. janúar 2020.
Útför Bjarneyjar
fór fram 15. janúar
2020.
eldrum okkar og
drakk með okkur
jólaöl. Það var ekki
að sjá að á milli okk-
ar væri tveggja kyn-
slóða bil.
Amma Baddý var
sannkölluð fyrir-
mynd. Við kveðjum
hana með söknuði en
minnumst hennar
jafnframt fyrir hlýju,
dugnað, orku og
gleðina sem fylgdi henni ávallt.
Atli, Aron Björn, Ásgeir
Daði, Edda Björg og
Petra.
Elsku amma Baddý hefur kvatt
okkur. Söknuðurinn er mikill en
eftir sitja ótal góðar minningar um
einn þann mesta dugnaðarfork
sem við höfum kynnst. Þegar
stundirnar með ömmu eru rifjaðar
upp þá eiga þær það allar sameig-
inlegt að hún var alltaf að gera
eitthvað og græja. Minningarnar
um ömmu og afa úr Safamýrinni
eru sterkar. Þar var yfirleitt fullt
hús af fólki og mikið líf og fjör.
Amma, sem var hárgreiðslumeist-
ari, sá um að klippa, blása og
greiða fjölskyldu og vinum, lita
augabrúnir og það oft á meðan
Hrefna systir hennar snyrti fætur
sömu aðila. Þá var setið í eldhús-
inu og heimsmálin rædd. Amma
hafði skoðanir á flestu og það al-
veg þar til hún kvaddi. Amma var
höfðingi heim að sækja og margar
eigum við minningarnar um
lambalæri, loftkökur, ananas-
frómas og fleira. Hún borðaði
samt ekki mikið sjálf, passaði upp
á að allir fengju nægju sína en svo
kláraði hún afgangana svo það
færi nú ekkert til spillis. Svo hag-
sýn var hún. Hún gat líka gert allt
sjálf, hún m.a. saumaði, prjónaði,
þreif bílana og minnisstætt er þeg-
ar hún tók sig til og málaði alla
íbúðina komin yfir áttrætt og með
lungnabólgu. Amma var mikill
málari og mörg falleg málverk eru
til eftir hana. Amma var létt á fæti
og líkamlega sterk. Hún fór í sund
á hverjum morgni og sótti vinkon-
ur sínar og tók þær með sér í
sundlaugina, allt þar til hún veikt-
ist 86 ára gömul. Amma fór í arm-
beygjukeppni við okkur 79 ára
gömul og gaf ekkert eftir. Amma
var alltaf tilbúin til þess að aðstoða
með allt, hvort sem það var að
passa barnabörnin, gera við fötin
okkar eða skutla út á Keflavíkur-
flugvöll og nýtti hún þá tímann til
að heimsækja systkini sín eða
koma við á æskuheimili sínu á
Stóra-Knarrarnesi, Vatnsleysu-
strönd.
Það var ekki fyrr en hún veikt-
ist árið 2015 og var komin á Hrafn-
istu að hún sat róleg yfir kaffiboll-
anum en var ekki á þönum fram og
til baka að sækja fleiri smákökur
eða áfyllingu á kaffibollann.
Amma var húmoristi og alveg und-
ir það síðasta mátti sjá glottið í
augunum þegar henni fannst eitt-
hvað fyndið.
Amma var frábær fyrirmynd,
gat allt, kvartaði aldrei, alltaf boð-
in og búin að hjálpa öðrum. Góðar
minningar um ömmu ylja okkur.
Það er því með þakklæti, ást,
væntumþykju og söknuði sem við
kveðjum elsku ömmu Baddý
okkar.
Áslaug Auður, Kristín Hrönn
og Páll Arnar.
Ég man fyrst eftir henni
Baddý, sem var konan hans
Mumma föðurbróður, þegar þau
hjónin úr Reykjavík komu í heim-
sóknir til okkar í sveitina að
Vorsabæjarhóli. Baddý var glæsi-
leg kona, ljóshærð, lagleg, hress í
bragði og röskleg í tali og hreyf-
ingum. Engin lognmolla þar.
Seinna kom maður stundum í
Safamýrina þar sem Baddý og
Mummi bjuggu í fallega húsinu
sínu og alltaf var manni jafn vel
tekið. Baddý var ræðin og við hana
var hægt að tala um flest milli him-
ins og jarðar.
Svo liðu árin, stundum hitti
maður Baddý í Laugardalslaug-
inni en þangað fór hún helst á
hverjum morgni. Og hún var svo
hjálpsöm við aðra, lengi tók hún
með sér vinkonu sína, fullorðna
konu sem var farin að daprast
sjón, en Baddý taldi ekki eftir sér
að aðstoða hana við að komast í
sund. Baddý náði háum aldri en
fyrir nokkrum árum varð hún
fyrir áfalli og var lengi rúmliggj-
andi. Eftir það steig hún ekki heil-
um fæti á jörð en var komin í
hjólastól.
Hún komst til nokkurrar heilsu
og ég heimsótti Baddý stundum
þegar hún var komin á Hrafnistu.
Með tímanum varð það fastur lið-
ur hjá mér á sunnudögum að líta
inn hjá Baddý og rabba smávegis.
Það þótti henni vænt um og þakk-
aði mér alltaf vel fyrir komuna.
Alltaf dáðist ég að því hvað hún
fylgdist vel með sínu fólki og var
stálminnug. Hún vissi alltaf hver
átti afmæli og hver var á ferðalagi
hvar en þetta var nú ekki lítill hóp-
ur allt hennar fólk. Svo komu
börnin hennar í heimsóknir með
börnin sín og þetta voru stundum
hálfgerð ættarmót kaffitímarnir á
sunnudögum. Þá var Baddý glöð
þótt hún segði ekki margt, það sá
maður á brosinu í augum hennar.
Baddý var hárgreiðslumeistari
og fær á sínu sviði en hefði gjarnan
viljað menntast meira hefði það
verið í boði á sínum tíma. Hún
sparaði heldur ekki að hvetja börn
sín til að ganga menntaveginn sem
þau gerðu öll með glæsibrag.
Henni leiddist nú ekki að tala um
börnin sín og sagði þá margt
skemmtilegt. Núna rétt fyrir jólin
tilkynnti hún mér eftirfarandi:
„Hann Jason, hann getur gert
hvað sem er.“ Ég mátti til að gera
athugasemd og spurði: „Nú, en
ekki Bjarni?“ Þá kom svarið:
„Hann Bjarni er svo vandvirkur,“
og þá var ég mát. Og hún tók heils-
hugar undir þegar ég benti henni á
að dæturnar væru nú líkar henni í
dugnaðinum enda var hún mjög
stolt af börnunum sínum, sann-
kölluð ættmóðir.
Mest dáðist ég að Baddý fyrir
það að aldrei mælti hún æðruorð
yfir hlutskipti sínu að vera bundin
hjólastól, þessi drífandi kona sem
alltaf var að koma hlutunum í
verk. Hún bar sig alltaf vel en með
þverrandi líkamskröftum var séð
að hverju dró og hún kvaddi okkur
hægt og hljótt núna rétt eftir ára-
mótin. Ég votta öllum í hinni stóru
fjölskyldu Baddýjar samúð mína,
blessuð sé hennar minning.
Jón M. Ívarsson.
Elsku amma Baddý, við eigum
margar skemmtilegar minningar
úr Safamýrinni. Fyrst koma upp í
hugann þær fjölmörgu heimsóknir
eftir handboltaæfingar hjá Fram
og allar stundirnar þegar við vor-
um í pössun hjá ömmu og afa.
Amma var hágreiðslumeistari
og oftast var eldhúsið fullt af vin-
konum sem annaðhvort voru með
einhverjar skrítnar rúllur í hárinu
eða kolsvört augu. Hún amma lit-
aði nefnilega á þeim augnhárin og
verður að viðurkennast að við vor-
um stundum smeyk við þessar
konur sem sátu í eldhúsinu, með
hárþurrku yfir höfðinu og svarta
bómull á augunum.
Amma var líklega duglegasta
kona í heimi. Hún var alltaf að
mála myndir, uppi í stiga að mála
veggina heima hjá sér eða prjóna
peysur á fjölskyldumeðlimi og vini
þeirra. Þegar við vorum lítil sá hún
um að þrífa bankaútibú á Háaleit-
isbraut og við fengum stundum að
koma með og hjálpa henni. Há-
punkturinn var að tæma ruslaföt-
urnar og fá svo kex á kaffistofunni
í laun. Svo má ekki gleyma að
minnast á sunnudagsmatinn hjá
ömmu í Safamýrinni. Hún amma
eldaði alltaf dýrindis læri með
brúnuðum kartöflum og svo feng-
um við oft heimalagaðan ís í eft-
irrétt eða karamellu marengstert-
una hennar. Síðustu ár dvaldi
amma á Hrafnistu og laumaði því
nú reglulega að okkur að hún væri
á leiðinni heim til sín keyrandi
bráðlega. Það vantaði ekki viljann
hjá henni ömmu. Krakkarnir okk-
ar komu reglulega í heimsókn til
ömmu og alltaf brosti hún til
þeirra og spurði spurninga um
dagleg líf þeirra. Við munum
sakna hennar ömmu Baddý en vit-
um að hún er núna komin í faðm
afa. Elsku amma Baddý, Guð
blessi þig og varðveiti þig.
Þín barnabörn,
Bjarney Sonja, Jason
Kristinn og fjölskyldur.
Það var skömmu fyrir jólin 1991
að ég hitti Baddý í fyrsta sinn.
Hún kom sem gestur á heimili
okkar í tilefni stúdentsútskriftar
Tinnu. Ég dáðist þarna að þessari
hugrökku konu, sem þekkti mjög
fáa aðra en Tinnu og Jason, en
kom brosandi með fallegan rósa-
vönd og ljómaði sjálf, falleg eins og
rósirnar sem hún færði okkur. Það
sem ég fann strax og ég heilsaði
þessari lágvöxnu, grönnu og fal-
legu konu var hlýja og góð nær-
vera.
Árin liðu og við hittumst oft í
skírnum, fermingum og afmælum
hjá barnabörnunum okkar og þar
komu þessir eiginleikar hennar
alltaf fram, tilbúin að hjálpa, sama
hvað beðið var um.
Hún ku hafa gert besta hrís-
grjónagraut sem fannst á byggðu
bóli, því héldu ömmustrákarnir
mínir óhikað fram og mættu öðru
hvoru til ömmur Baddýjar í há-
deginu og nutu velgerða hennar
og gæsku.
Baddý var mjög handlagin, og
fljótvirk, saumaskapur lék í hönd-
unum á henni og naut ég sjálf góðs
af lagni hennar, bæði sagði hún
mér til, og tók fyrir mig föt og
minnkaði og breytti og svei mér þá
ef hún var ekki fljótari en sauma-
vélin.
Hún var hamhleypa til verka,
einhvertíma kom ég til hennar
seinnipart dags og fann málning-
arlykt, og fór að spyrja hverju
sætti þá var svarið: „Já, ég málaði
stigahúsið í morgun.“ Svona var
Baddý í hnotskurn, lét hlutina
ekki þvælast fyrir sér.
Þegar kom að því að í Múlabæ,
dagdvöl fyrir aldraða vantaði hár-
greiðslumeistara, var heppnin
með okkur, þar sem ég þekkti
Baddý og verkin hennar og sam-
viskusemina. Hún var mjög bón-
góð manneskja, og var alltaf sjálf-
sagt að taka að sér hvaða verk sem
hún var beðin um. Ég tel mér vera
óhætt, fyrir hönd þeirra sem nutu
hennar þjónustu að færa einlægar
þakkir. Einnig var samvinna
hennar við starfsfólk Múlabæjar
mjög góð og fyrir það ber einnig
þakka.
Árið 2014 féll Guðmundur, eig-
inmaður Baddýjar frá, en eins og
það var henni sárt tók hún því af
sama æðruleysi og öðrum erfið-
leikum sem yfir hana gengu.
Árið 2015 fékk Baddý heila-
blæðingu og náði hún sér aldrei til
fulls. En með góðri aðstoð gat hún
notið sl. aðfangadagskvölds ásamt
tveim barna sinna og þeirra fjöl-
skyldna á heimili annars þeirra.
Þær endurminningar eru þeim öll-
um ómetanlegar.
Með þessum orðum kveð ég
yndislega konu sem stráði gleði og
hlýju kringum sig og til annarra.
Ástvinum votta ég samúð mína.
Hallbera Friðriksdóttir.
Það er eitthvað
svo óraunverulegt
að vera að hittast fé-
lagarnir og skrifa
minningarorð um þig núna, Sig-
urgeir, þetta er svo allt of snemmt
og svo allt of erfitt. Það að þurfa
að horfast í augu við þá staðreynd
að þú sért farinn frá okkur og
komir ekki aftur er eitthvað sem
enginn okkar vill trúa. Í raun
finnst okkur enn þá eins og við
getum tekið upp símann, slegið á
þráðinn til þín og hlustað á Hotel
California óma í eyrunum á okkur
þangað til þú svarar.
Hópurinn okkar tók á sig
endanlega mynd á lokaárum okk-
ar í Árbæjarskóla og höfum við
staðið þétt saman síðan, enda
finnst okkur hópurinn okkar frá-
bær og er vinátta á borð við þá
sem við eigum allir saman
ómetanleg. Stundirnar sem við
eigum saman úr Hraunbænum á
heimili Sigurgeirs, sem var eigin-
leg félagsmiðstöð okkar á mót-
unarárunum, eru í dag frábærar
minningar um einfaldari tíma.
Mikið fótboltaáhorf, skyndibitaát
Sigurgeir Örn
Sigurgeirsson
✝ Sigurgeir ÖrnSigurgeirsson
fæddist 21. júlí
1992. Hann lést 29.
desember 2019.
Útför Sigurgeirs
Arnar fór fram 15.
janúar 2020.
og tölvuleikjaspil
eru meðal þeirra
hluta sem einkenndu
þessa tíma (og svo
undrumst við það að
enginn okkar varð
atvinnumaður í fót-
bolta). En þetta eru
bara nokkrar af
þeim fjölmörgu góðu
minningum sem við
eigum um stundir
okkar með Sigur-
geiri enda væru þær efni í góða
bók frekar en stutta grein.
En það sem einkenndi hann
Sigurgeir var hans mikla stolt,
ákveðni og sterka réttlætiskennd.
Einnig þurfti hann alltaf að hafa
rétt fyrir sér enda þótti okkur
hann búa yfir öllum nauðsynleg-
um kostum til að verða frábær
stjórnmálamaður. Hann var eld
klár og mikill keppnismaður sem
lagði það á sig að læra allar spurn-
ingar í spurningaspilum utan að
og skora svo aðra á hólm. Sigur-
geir var gömul sál og mikill
áhugamaður um tónlist. Þó var
hann einn tveggja meðlima hóps-
ins sem aldrei áttu að fá að stjórna
tónlistinni í partíum eða bílferðum
enda er smekkur manna misjafn.
Það er ekki hægt að rita minn-
ingarorð um hann Sigurgeir án
þess að koma inn á þá staðreynd
að hann var mikill Manchester
United-maður sem studdi lið sitt
alla tíð af heilum hug, alveg frá
barnsaldri. Það heyrði til undan-
tekninga ef hann missti úr leik og
var hann eins og alfræðiorðabók
um sitt ástkæra félag.
Þrátt fyrir að leiðir okkar allra
hafi oft á tíðum vísað í mismun-
andi áttir og jafnvel ólíkra landa,
og töluverður tími hafi liðið á milli
þess að við hittumst, þá hefur vin-
áttan alltaf haldist jafn sterk. Við
vitum því að þó svo að þú sért nú
farinn á feðra þinna fund þá verð-
ur þú alltaf einn af okkur og þegar
við hittumst næst verður það eins
og við höfum talast síðast við í
gær.
Hinsta kveðja frá Rauðu rós-
inni.
Arnar, Ásgeir, Davíð,
Elías, Friðrik, Jóhann,
Lárus og Ómar.
Það er þungbært að skrifa
ótímabæra hinstu kveðju til vinar
míns, Sigurgeirs. Ég hef ekki tölu
á öllum þeim stundum sem við
eyddum saman við hina ýmsu iðju
sem telst hversdagsleg eins og að
þrífa bílana okkar eða að grilla á
sólríkum sumarkvöldum. Þegar
ég upplifði þessar stundir með
Sigurgeiri gerði ég mér enga
grein fyrir því að þær yrðu nú svo
dýrmætar minningar um einstak-
lega traustan og góðan vin.
Við kynntumst 13 ára gamlir í
Árbæjarskóla og varð okkur strax
vel til vina. Við tókum saman þátt í
spurningakeppni grunnskólanna
og þegar í framhaldsskóla var
komið keppti Sigurgeir í Gettu
betur fyrir hönd Fjölbrautaskól-
ans í Breiðholti með góðum ár-
angri. Það var hægt að treysta á
Sigurgeir þegar íþróttaspurning-
ar bar á góma en hann var líka öfl-
ugur í stjórnmálaspurningunum.
Við Sigurgeir deildum ekki
stjórnmálaskoðunum en engu að
síður var gefandi að ræða stjórn-
málin við hann því hann hafði ein-
stakt lag á að draga fram áhuga-
verð sjónarmið sem vert var að
hlusta á. Ávallt einkenndust um-
ræður okkar um pólitík og önnur
þjóðfélagsmál af yfirvegun, létt-
leika og virðingu fyrir skoðunum
hvor annars.
Hversdagsleikinn verður ekki
samur eftir fráfall Sigurgeirs. Það
verður erfitt að geta ekki slegið á
þráðinn til að spjalla um daginn og
veginn eða skipuleggja næsta
bílaþvott. Um miðjan desember
fórum við Sigurgeir í leikhús, það
var gleðistund, mikið hlegið og við
nutum stundarinnar. Það er erfitt
að horfast í augu við þá staðreynd
að þetta var í síðasta skiptið sem
við Álfrún nutum einstakrar nær-
veru Sigurgeirs.
Mikill er missir fjölskyldunnar
og okkar sem þekktum Sigurgeir,
í hans stað mun enginn koma. Ég
votta Örnu og Jóhönnu innilega
samúð mína.
Takk fyrir samfylgdina Sigur-
geir minn, skilaðu kveðju til pabba
þíns.
Árni Freyr Magnússon.
Kær vinur er fallinn frá. Við
sem eftir sitjum reynum að rifja
upp og greina staðreyndirnar til
þess að fá skýringu á því sem
gerst hefur en alltaf rennur skýr-
ing úr greipum okkar. Hægt og
rólega byrja svo fallegar minning-
ar um þennan yndislega dreng að
seytla inn og finnst okkur við hæfi
að hefja nýjan áratug á því að
festa hér á blað þá mynd sem
birtist okkur af Sigurgeiri þegar
leiðir okkar lágu saman sem börn
og unglingar á fyrsta áratug þess-
arar aldar.
Við fylgdum Sigurgeiri í Ár-
bæjarskóla þar sem hann var
nemandi alla sína grunnskóla-
göngu. Sum okkar undirritaðra
voru með honum í bekk öll þau ár,
og jafnvel í leikskóla líka, á meðan
aðrir voru í skólanum skemur.
Merkilegt nokk höfum við öll
keimlíkar sögur að segja af honum
Sigurgeiri.
Æskuheimili hans var í
Hraunbæ, hinum megin götunnar
við Árbæjarskóla. Þangað var
krakkaskarinn alltaf velkominn.
Hlýlegt heimilið endurspeglaði þá
gömlu sál sem Sigurgeir hafði svo
augljóslega að geyma. Á hans
heimavelli fékk hann að ráða tón-
listinni og spilaði þá helst lög sem
samin voru löngu fyrir okkar
daga.
Ekki var það þó svo að Sigur-
geir lifði í einhverjum fortíðar-
heimi, heldur þvert á móti. Frá
unga aldri var hann virkur áhuga-
maður um þjóðfélagsmál sem
hann nálgaðist iðulega frá sínu
sérstaka sjónarhorni sem aldrei
mátti vera fyrirsjáanlegt. Ef eitt-
hvað einkenndi skoðanir hans
strax á þessum grunnskólaárum
var það réttsýni og samúð með
þeim sem eiga undir högg að
sækja.
Fróðleiksfýsi var Sigurgeiri í
blóði borin. Fyrir daga Wikipediu
fletti hann í gegnum alfræðiorða-
bækur og sögubækur og byggði
þannig upp þekkingu sem kom
honum vel í skóla og ekki síður
spurningakeppnum sem hann tók
þátt í fyrir hönd síns skóla, jafnt á
grunnskólastigi sem og í fram-
haldsskóla. Án hans hefðum við í
Árbæjarskóla aldrei komist í úr-
slit Nema hvað? spurningakeppni
grunnskólanna þar sem þekking
hans á sögu og íþróttum kom
sterk inn. Við hefðum ekki heldur
staðið okkur nærri eins vel í
Skrekk, hæfileikakeppni grunn-
skólanna en þar fór Sigurgeir á
kostum.
Sameiginlegar minningar frá
þessum sæluárum grunnskólans
mótuðu okkur öll, og hefðu þær
verið allt öðruvísi ef ekki hefði
verið fyrir Sigurgeir. Fremstur í
flokki, oftar en ekki klæddur í blá-
an íþróttagalla, stimplaði hann sig
inn sem ómissandi hluta af heild-
inni.
Á síðari árum tók að lengjast
tíminn milli þess að við vorum öll í
sambandi en Sigurgeir var þannig
gerður að maður lagði lykkju á
leið sína til að spjalla við hann ef
maður átti til dæmis erindi í
IKEA. Hann hafði þetta mikla að-
dráttarafl sem við erum sammála
um að hafi stafað af innri hlýju,
víðsýni og umburðarlyndi gagn-
vart öðru fólki og ekki síður því
hversu sannur og góður vinur vina
sinna hann var.
Óbærilegt er að hugsa til þess
að líf hans hafi verið rofið svo
snemma en við huggum okkur við
að nú fái Sigurgeir yngri að ræða
öll heimsins mál við föður sinn og
nafna. Við vottum Örnu, Jóhönnu
og fjölskyldu og öðrum aðstand-
endum Sigurgeirs okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur á þessum
erfiðu tímum.
Tryggvi Rúnar,
Halldóra Fanney,
Sóley og Elín Ástrós.