Morgunblaðið - 16.01.2020, Page 60
Fallegt umhverfi Fegurðin ræður
ríkjum eins og sést á þessari mynd.
Viður skapar hlýleika Þegar þú ferð út að
borða viltu kannski ekki vera í beinni útsend-
ingu. Þess vegna er sniðugt að setja viðar-
klæðningu meðfram gluggunum. Það skapar
hlýlegra andrúmsloft og skyggir götusýn.
Marta María
mm@mbl.is
„Hugmyndin að YUZU er rúmlega
fimm ára gömul eða allt frá því að ég
og Jón Davíð viðskiptafélagi minn
smökkuðum sambærilega útfærslu af
hamborgara á ferðalögum okkar á
vegum Húrra Reykjavík. Þetta er
auðvitað smá skrýtið af því að við er-
um í pitsunum fyrir með Flatey Pizza
og svo beint í hamborgarana. En
YUZU er miklu meira en hamborg-
arastaður, við erum með brjálaða
smárétti sem hrista vel upp í bragð-
laukunum og eru frábærir til að deila.
Við njótum þess í botn að starfa með
meistarakokki líkt og Hauki Má
Haukssyni sem er meðeigandi okkar
en Haukur hafði áður starfað á Fisk-
markaðnum, Grillmarkaðnum &
Zuma í London. Þannig að hug-
myndin er að taka einfalda vöru líkt
og hamborgara, gera hana ferskari
og undir asískum áhrifum, ekkert
beikon, engin BBQ-sósa, ekki þessi
ameríska útgáfa sem allir þekkja.
Brauðin eru til að mynda gufubökuð
sem gerir það að verkum að þau eru
eins og létt ský undir tönn og maður
fær allt bragðið úr borgaranum beint
í pallettuna. Þar að auki hugsum við
mikið um upplifun og við vildum gefa
fólki færi á meiri út-að-borða upplifun
með mat sem flestallir elska og á
verði sem þykir sanngjarnt. Þannig á
maður að geta leyft sér að fara oftar á
YUZU, upplifunin er mikil, maturinn
framúrskarandi og veskið tekur
kannski eins mikið högg og að fara á
fine-dining stað,“ segir Sindri Snær.
Staðurinn hefur fengið mikið lof
fyrir fallega hönnun. Hafsteinn Júl-
íusson, hönnunarstjóri HAF STUD-
IO, segir að innblásturinn hafi komið
frá Japan.
„Við hönnun staðarins sótti HAF
STUDIO innblástur í japanska hönn-
un og hugmyndafræði. Við vildum að
staðurinn væri hæfilega góð blanda af
grófum óhefluðum strúktur og mjúk-
um fíngerðum efnum sem saman
mynda hlýlega og áreynslulausa
stemningu,“ segir Hafsteinn.
Innréttingar, efnisval og andrúms-
loft er heillandi á YUZU. Sindri Snær
segir að þeir Jón hafi vitað upp á hár
hvað þeir vildu.
„Við Jón höfum alltaf haft sterkar
skoðanir á innréttingum, efnisvali,
uppsetningu og öllu sem viðkemur
hönnun. Fyrst og fremst elskum við
að búa til konsept og hingað til hefur
það tekist þokkalega til með Húrra
Reykjavík, Flatey Pizza og nú sjáum
við hvernig YUZU reiðir af. En alveg
frá degi eitt af YUZU-verkefninu
vildum við fá HAF STUDIO til liðs
„Auðvitað borða
ég talsvert
af pítsum og
hamborgurum“
Sindri Snær Jensson opnaði nýlega hamborgara-
staðinn YUZU. Hann lifir annasömu lífi og leggur
áherslu á í annríki dagsins að eiga áhugamál sem
innihalda ekki farsíma. Það sem drífur hann áfram í
öldugangi lífsins er það að gleðja fólk, hvort sem
það er þegar fólk labbar alsælt út úr Húrra með nýja
peysu eða með magann fullan af bragðgóðum mat.
Stemning Barinn er flísalagður
með gráum flísum en fyrir ofan
barborðið eru viðarhillur sem
gera andrúmsloftið skemmtilegt.
Notalegheit Á staðnum er
líka hægt að sitja í sófa og
hafa það huggulegt.
Opið:
8-18 virka daga
10-14 laugardaga
Sími 588 8000
slippfelagid.is
Blár vinur í stofunni,
yndislegur litur sem nýtur
sín vel í flestum rýmum.
Skoðaðu litaúrvalið
okkar á slippfelagid.is
Notalegur