Morgunblaðið - 16.01.2020, Page 61

Morgunblaðið - 16.01.2020, Page 61
Ljósmyndir/Gunnar Sverrisson við okkur, Karítas og Hafsteinn eru einskærir snillingar og það kom held- ur betur í ljós í sumar þegar við vor- um í hönnunarferlinu og fram- kvæmdum. Hlutabréfin þeirra eiga bara eftir að fara upp og þau geta far- ið eins langt og þau vilja í hönnunar- bransanum. Ég er ótrúlega stoltur af útkomunni og staðurinn hefur fengið mjög góð viðbrögð varðandi útlit, uppsetningu, efnisval og svo fram- vegis,“ segir hann. Setur heilsuna í forgrunn Mataræði og heilsa er mikið í um- ræðunni. Þegar Sindri Snær er spurður að því hvernig hann hugsi um sitt mataræði og sína heilsu kem- ur í ljós að honum er annt um hvort- tveggja. „Alla tíð hef ég spilað fótbolta og nú síðast með KR þar sem ég lauk mínum ferli með Íslandsmeistaratitli, ég hef því lítið þurft að hugsa þegar kemur að æfingum og hef getað borð- að nokkuð frjálslega. Eftir að ég hætti er ég byrjaður í þjálfun hjá ungum metnaðarfullum einkaþjálfara sem heitir Guðmundur Emil og þjálf- ar í World Class á Nesinu. Við Gummi höfum verið að fara yfir mat- aræðið og hreinsa aðeins til þar. Ég borða nánast aldrei fyrir hádegi og hef lengi verið nokkurn veginn á 16/8. En auðvitað borða ég talsvert af píts- um og hamborgurum, ætla ekki að ljúga neinu um það. Það er samt ótrú- legt að eftir að ég hætti í fótboltanum fór ég að upplifa vanlíðan andlega og ég kveikti ekki alveg strax hvað málið snérist um, en þá var það hreyfingin sem vantaði og eftir að ég byrjaði að hreyfa mig reglulega aftur er hausinn og andleg líðan miklu betri.“ Sindri Snær segist þurfa að passa mjög vel upp á sig svo vinnan yfirtaki ekki líf hans. „Ég þarf að passa mig svakalega því fyrirtækjarekstur er 24/7 vinna og það getur verið erfitt að hreinsa hugann og hlúa að sjálfum sér. Það besta sem ég veit um er að gera eitt- hvað þar sem síminn er ekki með í för, sund, golf, spa, göngutúr eða góð æfing. Það er merkilegt hvað sím- arnir hafa gert mikla innrás í líf okk- ar á skömmum tíma og stór hluti fólks er orðinn algjörlega háður og þar á meðal ég. Þessi tími sítengingar við allt og alla getur ekki verið heil- brigður til lengri tíma sem sést á alls konar kulnun, streitu, kvíða og dep- urð í samfélaginu.“ Hvernig er hefðbundinn dagur í lífi þínu? „Hver einasti dagur er frábrugðinn deginum á undan. Dagsdaglega starfa ég mest fyrir Húrra Reykjavík og er mikið að flakka á milli búðanna og skrifstofunnar. Ég held utan um öll innkaup og birgjarnir eru yfir 30 talsins svo það fer talsverður tími í samskipti og pantanir. Flatey Pizza er einnig í mikilli sókn og stendur til að opna nýjan stað á næstunni utan Reykjavíkur. Svo er að mörgu að huga á YUZU enda staðurinn ungur og mikið að koma upp sem þarf að breyta, bæta og bregðast við. Ég vakna yfirleitt á milli 8 og 9 og svo bara á fulla ferð, við Jón tölum oft um að við séum staddir í púsluspili, suma daga náum við að gera tíu púsl, aðra bara tvö og svo framvegis. Það er ágætis leið til að líta á starfið enda hefur það engan endapunkt eða loka- niðurstöðu, við getum alltaf gert bet- ur, við getum alltaf bætt okkur, möguleikarnir eru endalausir og allt í boði.“ Hvað gerir þig hamingjusaman? „Ég upplifi mesta hamingju þegar ég finn að ég er að hafa jákvæð áhrif á annað fólk. Það er ástæðan fyrir því að tískubransinn og verslun heillaði mig frá upphafi, mannlegi þátturinn, að geta hjálpað öðrum að líða betur. Þetta hefur svo fylgt mér í gegnum fótboltaferilinn og í öllum mínum störfum. Mér hefur svo liðið best þeg- ar ég finn að ég er að gera nákvæm- lega það sem ég á að vera að gera. Ég get nefnt ferðalög erlendis þar sem við erum að hitta spennandi vöru- merki og hönnuði í tískubransanum eða þegar ég hef verið að ferðast með KR erlendis og ég get haft jákvæð áhrif á liðsfélagana og hópinn.“ Fallegt samspil Viður og steingólf mætast á heillandi hátt. Allt á útopnu Sindri Snær Jensson rekur YUZU ásamt félögum sínum. ÚTSALA ! Mörkin 6 - 108 Rvk. s: 781-5100 Opið: Mán-fös: 11-18 lau: 11-15 fyrir heimilið Sendum um land allt Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is Fallegar vörur Stóll á snúningsfæti í ítölsku nautsleðri 75 cm á breidd Verð frá 120.000 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.