Morgunblaðið - 16.01.2020, Qupperneq 61
Ljósmyndir/Gunnar Sverrisson
við okkur, Karítas og Hafsteinn eru
einskærir snillingar og það kom held-
ur betur í ljós í sumar þegar við vor-
um í hönnunarferlinu og fram-
kvæmdum. Hlutabréfin þeirra eiga
bara eftir að fara upp og þau geta far-
ið eins langt og þau vilja í hönnunar-
bransanum. Ég er ótrúlega stoltur af
útkomunni og staðurinn hefur fengið
mjög góð viðbrögð varðandi útlit,
uppsetningu, efnisval og svo fram-
vegis,“ segir hann.
Setur heilsuna í forgrunn
Mataræði og heilsa er mikið í um-
ræðunni. Þegar Sindri Snær er
spurður að því hvernig hann hugsi
um sitt mataræði og sína heilsu kem-
ur í ljós að honum er annt um hvort-
tveggja.
„Alla tíð hef ég spilað fótbolta og
nú síðast með KR þar sem ég lauk
mínum ferli með Íslandsmeistaratitli,
ég hef því lítið þurft að hugsa þegar
kemur að æfingum og hef getað borð-
að nokkuð frjálslega. Eftir að ég
hætti er ég byrjaður í þjálfun hjá
ungum metnaðarfullum einkaþjálfara
sem heitir Guðmundur Emil og þjálf-
ar í World Class á Nesinu. Við
Gummi höfum verið að fara yfir mat-
aræðið og hreinsa aðeins til þar. Ég
borða nánast aldrei fyrir hádegi og
hef lengi verið nokkurn veginn á 16/8.
En auðvitað borða ég talsvert af píts-
um og hamborgurum, ætla ekki að
ljúga neinu um það. Það er samt ótrú-
legt að eftir að ég hætti í fótboltanum
fór ég að upplifa vanlíðan andlega og
ég kveikti ekki alveg strax hvað málið
snérist um, en þá var það hreyfingin
sem vantaði og eftir að ég byrjaði að
hreyfa mig reglulega aftur er hausinn
og andleg líðan miklu betri.“
Sindri Snær segist þurfa að passa
mjög vel upp á sig svo vinnan yfirtaki
ekki líf hans.
„Ég þarf að passa mig svakalega
því fyrirtækjarekstur er 24/7 vinna
og það getur verið erfitt að hreinsa
hugann og hlúa að sjálfum sér. Það
besta sem ég veit um er að gera eitt-
hvað þar sem síminn er ekki með í
för, sund, golf, spa, göngutúr eða góð
æfing. Það er merkilegt hvað sím-
arnir hafa gert mikla innrás í líf okk-
ar á skömmum tíma og stór hluti
fólks er orðinn algjörlega háður og
þar á meðal ég. Þessi tími sítengingar
við allt og alla getur ekki verið heil-
brigður til lengri tíma sem sést á alls
konar kulnun, streitu, kvíða og dep-
urð í samfélaginu.“
Hvernig er hefðbundinn dagur í lífi
þínu?
„Hver einasti dagur er frábrugðinn
deginum á undan. Dagsdaglega
starfa ég mest fyrir Húrra Reykjavík
og er mikið að flakka á milli búðanna
og skrifstofunnar. Ég held utan um
öll innkaup og birgjarnir eru yfir 30
talsins svo það fer talsverður tími í
samskipti og pantanir. Flatey Pizza
er einnig í mikilli sókn og stendur til
að opna nýjan stað á næstunni utan
Reykjavíkur. Svo er að mörgu að
huga á YUZU enda staðurinn ungur
og mikið að koma upp sem þarf að
breyta, bæta og bregðast við. Ég
vakna yfirleitt á milli 8 og 9 og svo
bara á fulla ferð, við Jón tölum oft um
að við séum staddir í púsluspili, suma
daga náum við að gera tíu púsl, aðra
bara tvö og svo framvegis. Það er
ágætis leið til að líta á starfið enda
hefur það engan endapunkt eða loka-
niðurstöðu, við getum alltaf gert bet-
ur, við getum alltaf bætt okkur,
möguleikarnir eru endalausir og allt í
boði.“
Hvað gerir þig hamingjusaman?
„Ég upplifi mesta hamingju þegar
ég finn að ég er að hafa jákvæð áhrif á
annað fólk. Það er ástæðan fyrir því
að tískubransinn og verslun heillaði
mig frá upphafi, mannlegi þátturinn,
að geta hjálpað öðrum að líða betur.
Þetta hefur svo fylgt mér í gegnum
fótboltaferilinn og í öllum mínum
störfum. Mér hefur svo liðið best þeg-
ar ég finn að ég er að gera nákvæm-
lega það sem ég á að vera að gera. Ég
get nefnt ferðalög erlendis þar sem
við erum að hitta spennandi vöru-
merki og hönnuði í tískubransanum
eða þegar ég hef verið að ferðast með
KR erlendis og ég get haft jákvæð
áhrif á liðsfélagana og hópinn.“
Fallegt
samspil
Viður og
steingólf
mætast á
heillandi
hátt.
Allt á útopnu Sindri Snær
Jensson rekur YUZU
ásamt félögum sínum.
ÚTSALA !
Mörkin 6 - 108 Rvk.
s: 781-5100
Opið: Mán-fös: 11-18
lau: 11-15
fyrir heimilið
Sendum
um
land allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Fallegar vörur
Stóll á snúningsfæti
í ítölsku nautsleðri
75 cm á breidd
Verð frá 120.000 kr.