Morgunblaðið - 16.01.2020, Side 66
66 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2020
60 ára Reynir er Akur-
eyringur en býr í
Reykjavík. Hann er
tæknifræðingur frá
Tækniskólanum og
lauk meistaragráðu í
byggingaverkfræði frá
DTU í Kaupmannahöfn.
Reynir er yfirverkfræðingur hjá Ístaki.
Maki: Anna Margrét Björnsdóttir, f.
1962, skjalastjóri hjá Orkuveitu Reykja-
víkur.
Synir: Björn Reynisson, f. 1984, og Birkir
Reynisson, f. 1991. Barnabarn er Salka
Björnsdóttir, f. 2013.
Foreldrar: Viðar Helgason, f. 1938, d.
1989, trésmíðameistari á Akureyri, og
Birna Eiríksdóttir, f. 1937, d. 2011, hús-
móðir á Akureyri.
Reynir Viðarsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þeim mun meiri orku sem þú setur
í samband, þeim mun betur tengist þið. Af-
staða þín mun þó gefa þér færi á að hugsa
ýmislegt til enda.
20. apríl - 20. maí
NautMundu að það er ekki bara það sem
sagt er sem skiptir máli heldur líka hvernig
það er sagt. Reyndu að láta strauminn bera
þér tækifæri sem þú getur notað.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Reyndu ekki að hespa hlutina af,
það virkar bara illa á samstarfsmenn þína
auk þess sem árangurinn verður slakur.
Smáatriðin dásamlegu munu heilla þig.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Láttu engan hafa svo mikil áhrif á
þig að þú gerir eitthvað sem stangast á við
réttlætiskennd þína. Bíddu með mikilvægar
ákvarðanir til morguns.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ert búin/n að bollaleggja og velta
vöngum nógsamlega yfir verkefni sem þú
vinnur að. Afgreiddu málið í eitt skiptið fyrir
öll og haltu svo áfram.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú nýtir þér bolmagn einhvers til
þess að hjálpa þeim sem minna mega sín.
Fólk ber virðingu fyrir þér.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú þarft ekki á neinum látalátum að
halda til að vekja athygli annarra. Láttu þér
ekki mislíka þótt einhverjir hörfi undan þeg-
ar þú sækir að þeim.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Einhver gæti gefið þér eða lán-
að þér eitthvað sem verður þér heilsubæt-
andi. Vertu vandlátur í vali á trúnaðarvini,
það borgar sig.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú hefur lagt hart að þér
undanfarið. Þú hefur látið aðra ganga fyrir
og nú er kominn tími til þess að þú sinnir
sjálfri/um þér.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Hættu að bíða eftir því að aðrir
geri hlutina. Þú ættir að eiga betra með að
einbeita þér nú þegar þú hefur sett þér tak-
mark. Nú byrjar verkið fyrir alvöru.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú ættir að geta komið ár þinni
vel fyrir borð í dag. Það eru oft einföldustu
hlutirnir sem veita manni mesta gleði.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú gerir mjög nákvæmar væntingar
til sjálfrar/s þíns sem þú myndir ekki gera
til annarra. Láttu það ekki fara í taugarnar á
þér þótt aðrir viti ekki alltaf hvað þeir vilja.
hefur verið félagsmaður í Hesta-
mannafélaginu Kóp frá unga aldri
og var í stjórn félagsins um nokk-
urra árabil og gjaldkeri í nokkur ár.
Fanney hefur verið félagsmaður í
Ungmennafélaginu Ármanni frá
unga aldri. Hún var virk sem iðk-
andi á yngri árum en er í dag að
þjálfa krakkablak yfir vetrartímann
og hefur þjálfað frá árinu 2013. Hún
ingu sauðfjárdóma fyrir fjórar sýsl-
ur auk þess sem ég fer um sveitir
og dæmi lömb hjá sauðfjárbændum
og aðstoða þá þannig við ásetnings-
valið.“
Fanney var virk í félagsmálum
bænda um nokkurra ára skeið. Hún
sat m.a. í stjórn Landssamtaka
sauðfjárbænda og stjórn Bænda-
samtaka Íslands í nokkur ár. Hún
F
anney Ólöf Lárusdóttir
fæddist 16. janúar 1970
á Kirkjubæjarklaustri
II og ólst þar upp. „Ég
stundaði hesta-
mennsku og íþróttir þegar færi
gafst en annars var unnið af kappi
við landbúnaðarstörf hjá foreldrum
mínum eftir að aldur og geta
leyfðu.“
Fanney gekk í Kirkjubæjarskóla
á Síðu og lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Laugarvatni
1990. Þá lá leiðin í Bændaskólann á
Hvanneyri og útskrifaðist hún sem
búfræðingur 1991 og búfræði-
kandídat 1995 frá Landbúnaðar-
háskólanum á Hvanneyri (þá Fram-
haldsdeildin á Hvanneyri).
Sumarstörf Fanneyjar þegar hún
var í námi voru meðal annars hótel-
störf á Hótel Eddu Kirkjubæjar-
klaustri, bankastarfsmaður við
Landsbankann á Kirkjubæjar-
klaustri og landbúnaðarstörf hjá
foreldrum á Kirkjubæjarklaustri II.
Fanney þurfti að bíða eitt ár til að
komast í Framhaldsdeildina á
Hvanneyri, 1991-1992. Þá vann hún
m.a. í sláturhúsinu á Kirkjubæjar-
klaustri, síðan við fiskvinnslu hjá
Granda í sex vikur. „Ég bjó þá í
Reykjavík, sem er það lengsta sem
ég hef haldið til í Reykjavík sam-
fleytt.“ Eftir áramót 1991/1992 vann
Fanney fjóra mánuði við tamningar
í Austur-Landeyjum. Haustið 1992
hóf hún síðan nám við Framhalds-
deildina á Hvanneyri.
Að námi loknu hóf Fanney störf
hjá Landgræðslu ríkisins sem hér-
aðsfulltrúi í Skaftárhreppi 1995-
1997, ráðunautur hjá Búnaðar-
sambandi Suðurlands 1995-2012 og
síðan ráðunautur hjá Ráðgjafar-
miðstöð landbúnaðarins frá stofnun
þess 2013. Í ársbyrjun 2003 tóku
Fanney og eiginmaður hennar,
Sverrir, við sauðfjárbúi foreldra
Fanneyjar á Kirkjubæjarklaustri II
og eru með um 500 fjár.
„Að námi loknu frá Hvanneyri
fékk ég strax starf sem ráðunautur
hjá Búnaðarsambandi Suðurlands
og var strax sett í sauðfjárræktina
þar enda er það mitt mesta áhuga-
svið. Í dag sé ég t.d. um skipulagn-
hefur tekið þátt í blaki kvenna á
vegum Umf. Ármanns í um 10 ár og
er nú þjálfari á þessum æfingum.
Hún var kosin í stjórn UMFÁ vet-
urinn 2018 og tók við sem formaður
2019.
Vegna áhuga fyrir hreyfingu
barna og unglinga var Fanney feng-
in til afleysinga við íþróttakennslu á
vorönn 2019 við Kirkjubæjarskóla
og jafnframt sá hún um hluta sum-
aríþróttaæfinga UMFÁ fyrir börn
og unglinga sumarið 2018 og 2019.
Helstu áhugamál Fanneyjar eru
ferðalög innanlands með fjölskyld-
unni, hestamennska og íþróttir,
bæði þátttaka og að fylgjast með
því sem er að gerast í íþróttalífinu
hverju sinni. „Sérstakt áhugamál
þessi árin er mikilvægi hreyfingar
almennt og þá sérstaklega hreyfing
barna og unglinga.“
Fanney var mjög virk í hesta-
mennsku frá unga aldri og keppti
oft á hestamannamótum Kóps og
einnig stórmótum á Hellu hér áður
fyrr. „Ég hef lagt þá iðju á hilluna í
bili og snýst hestamennskan í dag
meira um góða útreiðartúra heima
fyrir og hestaferðir.
Á menntaskólaárunum var ég
mjög virk í öllum íþróttagreinum
sem í boði voru, gilti einu hvort það
var blak, körfubolti, fótbolti eða
frjálsar íþróttir. Mætt var á allar
æfingar sem voru í boði. Má segja
að blakáhugi minn hafi kviknað á
Laugarvatni.“
Sauðfé og sauðfjárrækt hefur
samt verið stærsta áhugamál Fann-
eyjar alla tíð. „Á uppvaxtarárunum
tók ég fullan þátt í búskapnum hjá
foreldrum mínum og átti sauðkindin
hug minn allan. Ef verið var að
vinna í fénu vildi ég alltaf vera með
og taka fullan þátt í því þótt ég réði
varla við hlutverkið þegar ég var
krakki. Heyskapur og smala-
mennska og allt tengt sauðfénu hef-
ur átt hug minn í gegnum tíðina.
Sauðburður stendur samt alltaf upp
úr. Að taka á móti lömbunum og sjá
allt lífið kvikna á vorin.“
Fjölskylda
Eiginmaður Fanneyjar er Sverrir
Gíslason, f. 6. apríl 1969, sauðfjár-
Fanney Ólöf Lárusdóttir, ráðunautur og sauðfjárbóndi – 50 ára
Fjölskyldan Fanney, Sverrir og börn á ferðalagi á Austurlandi í fyrra.
Sauðburður stendur alltaf upp úr
Í upphlut Fanney Ólöf við setningu
Búnaðarþings á Hótel Sögu.
Á Kirkjubæjarklaustri II Fanney
sex ára að hjálpa til í búskapnum.
30 ára Þórður ólst
upp á Eystri-Ásum í
Skaftártungu en býr í
Reykjavík. Hann er
með kirkjuorganista-
próf frá Tónskóla þjóð-
kirkjunnar og djass-
leikarapróf frá New
School í New York. Þórður er organisti og
kórstjóri í Lágafellskirkju í Mosfellsbæ og
kórstjóri Karlakórs Kjalnesinga.
Maki: Dominique Gyða Sigrúnardóttir, f.
1986, leikkona og leikstjóri.
Sonur: Högni Manuel, f. 2019.
Foreldrar: Sigurður Árni Þórðarson, f.
1953, sóknarprestur í Hallgrímskirkju, og
Hanna María Pétursdóttir, f. 1954, guð-
fræðingur og kennari í Öldutúnsskóla í
Hafnarfirði, bús. í Reykjavík.
Þórður Sigurðarson
Til hamingju með daginn
Reykjavík Högni Manuel Þórðarson
fæddist 9. júní 2019 kl. 2.52. Hann var
51 cm langur og vó 3.764 g. Foreldrar
hans eru Þórður Sigurðarson og
Dominique Gyða Sigrúnardóttir.
Nýr borgari