Morgunblaðið - 16.01.2020, Side 71
MENNING 71
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2020
ICQC 2020-2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
LOKAKAFLINN Í SKYWALKER SÖGUNNI
F ROM T HE D I R E C TOR OF S K Y FA L L
dfgsdfg
Það er stundum erfitt aðhalda sönsum í janúar,enda jólin og ljósin kominofaní kassa, en sólin ekki
ennþá farin að skína almennilega á
mann. Þá er mikilvægt að dunda
sér eitthvað, hvort sem það er
dúkasaumur, bókalestur eða
hlustun á nýja og skemmtilega
tónlist. Ending Friendships með
Lauru Secord kom út í lok síðasta
árs á Bandcamp
og á hljómplötu
og er einmitt
rétta platan til
að hlusta á í jan-
úar.
Þarna er
kunnuglegur
hljómur á ferð og minnir óneitan-
lega á hljómsveitina Kimono, enda
er Alison MacNeil úr þeirri sveit,
en hún syngur og leikur á gítar í
Lauru Secord. Þetta er fyrsta
plata sveitarinnar og um er að
ræða skemmtilega og óræða
blöndu af grípandi og tilrauna-
kenndu rokk-poppi, með beygjum
og sveigjum sem koma á óvart.
Platan hefst á tveimur grípandi
og áleitnum lögum: „Embrace“ og
„I Thought, I Thought“, og það er
í hinu síðarnefnda sem maður
heyrir almennilega hve marg-
slungin þessi plata er. Hljóð-
heimurinn verður flóknari og enn
meira spennandi þegar þriðja lag-
ið, „Aeroplanes“, hefst með dular-
fullri og tilraunakenndri byrjun
sem springur út með framúrskar-
andi trommuinnkomu. Lögin
renna saman og birtast því hlust-
endum eins og kaflar í bók sem
ekki er til nema á þessari plötu.
Ég heyri grugg-áhrif við hliðina á
Elliott Smith og tilraunakenndari
tóna í anda Pink Floyd eða Velvet
Underground en jafnfram er
hljómurinn afskaplega frumlegur
og nýr. Það er kraftur í flutningn-
um og bandið skiptir um gír og
bætir í eða dregur úr, rétt eins og
á þarf að halda og lögin verða
tímalaus.
Hið sjö og hálfrar mínútu langa
„This Place Is the Answer to a
Question I’m not Asking“ er gott
dæmi um kaflaskipt lag sem held-
ur athygli manns óskiptri og held-
ur einnig áfram að koma manni á
óvart. „Crop Circles“ er annað
dæmi um ótrúlega kaflaskipta út-
setningu og þar eru jafnframt smá
svartmálms-áhrif sem smellpassa.
Ending Friendships er, eins og
nafnið bendir til, ekki beint um
gleðilega hluti og þarna eru sam-
bandsslit og uppgjör í textum.
Þetta ætti einhvern veginn ekki að
vera plata sem auðvelt væri að
hlusta á í janúar á Íslandi, en
gengur engu að síður alveg prýði-
lega upp. Líklega er það angurvær
og blíðleg rödd Alison í bland við
ómstríða gítarveggi og þrumandi
trommu- og bassaleik sem hristir
uppí manni en róar á sama tíma.
Þegar því er svo blandað saman
við grípandi lög og fyrirtaks til-
finningu fyrir útsetningum er ljóst
að útkoman er bráðnauðsynleg.
Hún er eiginlega platan sem ég
var ekki að leita að og þannig
plötur skipta oft mestu máli.
Það koma auðvitað alls ekki það
margar tilraunakenndar rokk/
popp-plötur út á Íslandi á ári
hverju. Þróunin er fremur sú að
poppið hafi orðið poppaðra og
rokkið harðara síðustu ár. Það er
þó ekkert því til fyrirstöðu að
blanda þessu kyrfilega saman til
að rugla aðeins í þreyttum janúar-
hlustendum og það tekst Lauru
Secord vel. Þessi plata hljómar al-
veg framúrskarandi í heyrnartól-
um undir teppi, eða sem hávær til-
tektarplata til að koma sér í gang.
Kaflar í bók sem ekki er til
Gott Gagnrýnandi segir ekki það margar tilraunakenndar rokk/popp-plötur koma út á Íslandi á ári hverju og að
þróunin sé fremur sú að poppið hafi orðið poppaðra og rokkið harðara hin síðustu ár. Ekkert mæli gegn því að
blanda þessu saman til að rugla í þreyttum janúar-hlustendum og það takist hljómsveitinni Lauru Secord vel.
Rokk/popp
Laura Secord – Ending
Friendshipsbbbbn
Julius Rothlaender, bassaleikur; Ægir
Sindri Bjarnason, trommuleikur; Erik
DeLuca, gítarleikur; Alison MacNeil,
gítarleikur og söngur. Ali Chant sá um
upptökur; Bob Weston hljómjafnaði.
Gefið út 2019 af Why not? plötuútgáfu.
RAGNHEIÐUR
EIRÍKSDÓTTIR
TÓNLIST
Ljósmynd/Óðinn Dagur Bjarnason
Bandaríska tón-
listarkonan Billie
Eilish semur og
flytur titillag
næstu kvik-
myndar um
njósnarann
James Bond, No
Time to Die.
Eilish er yngst
þeirra tónlistar-
manna sem samið hafa lag fyrir
Bond-mynd, aðeins 18 ára. Dag-
blaðið Guardian vísar í yfirlýsingu
frá Eilish, sem segir geggjað að fá
slíkt verkefni. „Að fá að semja tit-
illag kvikmyndar sem er hluti af
svo goðsagnakenndri syrpu er
gríðarlegur heiður,“ skrifar Eilish.
Kvikmyndasyrpan sé sú svalasta í
sögunni og hún í geðshræringu yfir
heiðrinum.
Eilish skaust upp á stjörnuhimin
tónlistarinnar með fyrstu breið-
skífu sinni When We All Fall
Asleep, Where Do We Go? sem kom
út í fyrra. Lögin á henni samdi hún
með eldri bróður sínum, Finneas
O’Connell. Systkinin semja Bond-
lagið í sameiningu og er haft eftir
bróðurnum að það hafi lengi verið
draumur þeirra að semja titillag
Bond-myndar. Framleiðendur
myndarinnar, Michael G. Wilson og
Barbara Broccoli, segja lag Eilish
og bróður hennar óaðfinnanlegt og
passa fullkomlega við þær tilfinn-
ingar sem finna megi í sögu Bond
að þessu sinni. Leikstjóri myndar-
innar, Cary Joji Fukunaga, hefur
lýst yfir aðdáun sinni á Eilish og
bróður hennar og segir þau ákaf-
lega hæfileikarík.
Í öðrum Bond-fréttum er það
helst að Phoebe Waller-Bridge var
ráðin til að hressa upp á handritið,
eins og það er orðað í frétt Guardi-
an en hún er höfundur og aðal-
leikkona verðlaunaþáttanna Flea-
bag. No Time To Die verður
frumsýnd 8. apríl.
Eilish yngsti höf-
undur Bond-lags
Billie Eilish