Morgunblaðið - 16.01.2020, Blaðsíða 71

Morgunblaðið - 16.01.2020, Blaðsíða 71
MENNING 71 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2020 ICQC 2020-2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is LOKAKAFLINN Í SKYWALKER SÖGUNNI F ROM T HE D I R E C TOR OF S K Y FA L L dfgsdfg Það er stundum erfitt aðhalda sönsum í janúar,enda jólin og ljósin kominofaní kassa, en sólin ekki ennþá farin að skína almennilega á mann. Þá er mikilvægt að dunda sér eitthvað, hvort sem það er dúkasaumur, bókalestur eða hlustun á nýja og skemmtilega tónlist. Ending Friendships með Lauru Secord kom út í lok síðasta árs á Bandcamp og á hljómplötu og er einmitt rétta platan til að hlusta á í jan- úar. Þarna er kunnuglegur hljómur á ferð og minnir óneitan- lega á hljómsveitina Kimono, enda er Alison MacNeil úr þeirri sveit, en hún syngur og leikur á gítar í Lauru Secord. Þetta er fyrsta plata sveitarinnar og um er að ræða skemmtilega og óræða blöndu af grípandi og tilrauna- kenndu rokk-poppi, með beygjum og sveigjum sem koma á óvart. Platan hefst á tveimur grípandi og áleitnum lögum: „Embrace“ og „I Thought, I Thought“, og það er í hinu síðarnefnda sem maður heyrir almennilega hve marg- slungin þessi plata er. Hljóð- heimurinn verður flóknari og enn meira spennandi þegar þriðja lag- ið, „Aeroplanes“, hefst með dular- fullri og tilraunakenndri byrjun sem springur út með framúrskar- andi trommuinnkomu. Lögin renna saman og birtast því hlust- endum eins og kaflar í bók sem ekki er til nema á þessari plötu. Ég heyri grugg-áhrif við hliðina á Elliott Smith og tilraunakenndari tóna í anda Pink Floyd eða Velvet Underground en jafnfram er hljómurinn afskaplega frumlegur og nýr. Það er kraftur í flutningn- um og bandið skiptir um gír og bætir í eða dregur úr, rétt eins og á þarf að halda og lögin verða tímalaus. Hið sjö og hálfrar mínútu langa „This Place Is the Answer to a Question I’m not Asking“ er gott dæmi um kaflaskipt lag sem held- ur athygli manns óskiptri og held- ur einnig áfram að koma manni á óvart. „Crop Circles“ er annað dæmi um ótrúlega kaflaskipta út- setningu og þar eru jafnframt smá svartmálms-áhrif sem smellpassa. Ending Friendships er, eins og nafnið bendir til, ekki beint um gleðilega hluti og þarna eru sam- bandsslit og uppgjör í textum. Þetta ætti einhvern veginn ekki að vera plata sem auðvelt væri að hlusta á í janúar á Íslandi, en gengur engu að síður alveg prýði- lega upp. Líklega er það angurvær og blíðleg rödd Alison í bland við ómstríða gítarveggi og þrumandi trommu- og bassaleik sem hristir uppí manni en róar á sama tíma. Þegar því er svo blandað saman við grípandi lög og fyrirtaks til- finningu fyrir útsetningum er ljóst að útkoman er bráðnauðsynleg. Hún er eiginlega platan sem ég var ekki að leita að og þannig plötur skipta oft mestu máli. Það koma auðvitað alls ekki það margar tilraunakenndar rokk/ popp-plötur út á Íslandi á ári hverju. Þróunin er fremur sú að poppið hafi orðið poppaðra og rokkið harðara síðustu ár. Það er þó ekkert því til fyrirstöðu að blanda þessu kyrfilega saman til að rugla aðeins í þreyttum janúar- hlustendum og það tekst Lauru Secord vel. Þessi plata hljómar al- veg framúrskarandi í heyrnartól- um undir teppi, eða sem hávær til- tektarplata til að koma sér í gang. Kaflar í bók sem ekki er til Gott Gagnrýnandi segir ekki það margar tilraunakenndar rokk/popp-plötur koma út á Íslandi á ári hverju og að þróunin sé fremur sú að poppið hafi orðið poppaðra og rokkið harðara hin síðustu ár. Ekkert mæli gegn því að blanda þessu saman til að rugla í þreyttum janúar-hlustendum og það takist hljómsveitinni Lauru Secord vel. Rokk/popp Laura Secord – Ending Friendshipsbbbbn Julius Rothlaender, bassaleikur; Ægir Sindri Bjarnason, trommuleikur; Erik DeLuca, gítarleikur; Alison MacNeil, gítarleikur og söngur. Ali Chant sá um upptökur; Bob Weston hljómjafnaði. Gefið út 2019 af Why not? plötuútgáfu. RAGNHEIÐUR EIRÍKSDÓTTIR TÓNLIST Ljósmynd/Óðinn Dagur Bjarnason Bandaríska tón- listarkonan Billie Eilish semur og flytur titillag næstu kvik- myndar um njósnarann James Bond, No Time to Die. Eilish er yngst þeirra tónlistar- manna sem samið hafa lag fyrir Bond-mynd, aðeins 18 ára. Dag- blaðið Guardian vísar í yfirlýsingu frá Eilish, sem segir geggjað að fá slíkt verkefni. „Að fá að semja tit- illag kvikmyndar sem er hluti af svo goðsagnakenndri syrpu er gríðarlegur heiður,“ skrifar Eilish. Kvikmyndasyrpan sé sú svalasta í sögunni og hún í geðshræringu yfir heiðrinum. Eilish skaust upp á stjörnuhimin tónlistarinnar með fyrstu breið- skífu sinni When We All Fall Asleep, Where Do We Go? sem kom út í fyrra. Lögin á henni samdi hún með eldri bróður sínum, Finneas O’Connell. Systkinin semja Bond- lagið í sameiningu og er haft eftir bróðurnum að það hafi lengi verið draumur þeirra að semja titillag Bond-myndar. Framleiðendur myndarinnar, Michael G. Wilson og Barbara Broccoli, segja lag Eilish og bróður hennar óaðfinnanlegt og passa fullkomlega við þær tilfinn- ingar sem finna megi í sögu Bond að þessu sinni. Leikstjóri myndar- innar, Cary Joji Fukunaga, hefur lýst yfir aðdáun sinni á Eilish og bróður hennar og segir þau ákaf- lega hæfileikarík. Í öðrum Bond-fréttum er það helst að Phoebe Waller-Bridge var ráðin til að hressa upp á handritið, eins og það er orðað í frétt Guardi- an en hún er höfundur og aðal- leikkona verðlaunaþáttanna Flea- bag. No Time To Die verður frumsýnd 8. apríl. Eilish yngsti höf- undur Bond-lags Billie Eilish
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.