Morgunblaðið - 18.01.2020, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 18.01.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2020 Andrés Magnússon, blaðamaðurog fjölmiðlarýnir, ritaði um fyrirhugaða fjölmiðlastyrki í fjöl- miðlapistli sínum í Viðskipta- blaðinu. Þar benti hann á að Kjarn- inn berðist fyrir hærra endur- greiðsluhlutfalli en óbreyttu þaki á endurgreiðslur, 50 milljónir króna. Eins og Andrés benti á skerti þetta stuðninginn við „einmitt þá fjöl- miðla, sem auk Ríkisútvarpsins ástunda mesta frumfréttaöflun í landinu og bera mestan kostnað af, en eiga allir undir högg að sækja. Nú standa minni fjölmiðlar örugg- lega engu betur að jafnaði, en frómt frá sagt skiptir ekki jafn- miklu hvort þeir lifa eða deyja, styrkjast ögn eða þurfa að rifa segl- in. Frumfréttavinnsla þeirra er sáralítil, en meira um endursagnir, skýringar og skoðanir.“    Þá greindi Andrés frá hlutfalls-legum fjölda frétta á helstu fréttamiðlum og þar má sjá að Morgunblaðið er með 29% fréttanna og mbl.is er með 22%, eða samtals 51%. Ríkisútvarpið er með 12% fréttanna, Fréttablaðið 15%, Sýn og visir.is samtals 22%.    Minni miðlar geta vissulega átterindi og haft þýðingu en augljóst er, eins og fjölmiðlarýn- irinn bendir á, að sú frumvinnsla frétta sem fram fer á stærri miðlum skiptir meginmáli þegar rætt er um fjölmiðlun í landinu og framtíð hennar.    Ætli ríkið sér að styðja við slíkafjölmiðlun og fréttavinnslu hlýtur stuðningurinn að taka mið af því og má í það minnsta ekki mis- muna þeim miðlum sem hafa burði til að frumvinna fjölbreyttar frétt- ir. Andrés Magnússon Hvar verða fréttirnar til? STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Biskup Íslands, sr. Agnes M. Sigurð- ardóttir, hefur staðfest ráðningu sr. Arnaldar Bárðarsonar í embætti sóknarprests í Eyrarbakkapresta- kalli. Umsóknarfrestur um Eyrar- bakkaprestakall í Suðurprófasts- dæmi rann út 18. desember og sótti einn um, sr. Arnaldur. Kjörnefnd kaus hann til starfans og mun hann taka við embættinu frá og með 1. febrúar næstkomandi. Í samræmi við þær breytingar sem nú hafa orðið á starfsmannamál- um þjóðkirkjunnar er sr. Arnaldur ráðinn ótímabundið í starfið með hefðbundnum uppsagnarfresti, segir í frétt á heimasíðu kirkjunnar. Eru sr. Arnaldur og Sigrún Óskarsdóttir fangaprestur þau fyrstu sem ráðin eru til starfa sam- kvæmt hinu nýja fyrirkomulagi. Í Eyrarbakka- prestakalli eru þrjár sóknir, Eyr- arbakka-, Stokks- eyrar- og Gaul- verjabæjarsókn og kirkja er í hverri sókn. Íbú- ar í prestakallinu eru 1.443. Prestakallið er í tveimur sveitarfélögum og nær yfir þann hluta Árborgar sem næst er sjó og syðsta hluta Flóahrepps. Einn sókn- arprestur starfar í prestakallinu, en umtalsvert samstarf er við presta Selfossprestakalls. Arnaldur Bárðarson er fæddur 2. júní 1966 á Akureyri og ólst þar upp. Hann hefur verið prestur í Rauf- arhafnarprestakalli, Ljósavatns- prestakalli og Glerárprestakalli auk þess að starfa í norsku kirkjunni. Eiginkona sr. Arnalds er sr. Ingi- björg Jóhannsdóttir og eiga þau fimm syni. sisi@mbl.is Prestar nú ráðnir ótímabundið  Séra Arnaldur Bárðarson þjónar á Eyrarbakka  Tekur við 1. febrúar Arnaldur Bárðarson Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Alls var um 19,5 milljónum króna út- hlutað úr styrktarsjóði til fjórtán húsfélaga í Reykjavík á síðasta ári vegna uppsetningar hleðslubúnaðar fyrir rafbíla á lóðum fjöleignarhúsa. Um er að ræða sjóð á vegum Reykjavíkurborgar og Orkuveitu Reykjavíkur sem liðka á fyrir stór- felldri uppbyggingu innviða í borg- inni fyrir rafbílaeigendur. Hvor aðili um sig leggur 20 milljónir á ári til sjóðsins í þrjú ár, alls 120 milljónir króna. Þetta var fyrsta árið sem úthlutað var úr sjóðnum. Samkvæmt upplýs- ingum frá Magnúsi A. Sveinbjörns- syni á skrifstofu umhverfisgæða hjá Reykjavíkurborg bárust alls 19 um- sóknir til sjóðsins árið 2019. Fjórtán þeirra voru samþykktar en fimm var hafnað þar sem þær uppfylltu ekki skilyrði fyrir styrkveitingu. Dæmi eru um að umsóknir hafi ekki upp- fyllt skilyrði reglna um styrkveit- ingar þar sem bílastæðin eru í einka- eigu eða í eigu leigufélaga. Styrkirnir eru greiddir út eftir að framkvæmdum lýkur hjá viðkom- andi húsfélagi. Fjallað er um sjóðinn á vefsíðu verkfræðistofunnar Verkís og segir þar að mörg húsfélög hafi leitað til stofunnar á síðasta ári vegna að- stoðar við gerð umsókna. Þar segir ennfremur að lægsta upphæðin sem úthlutað hefur verið til húsfélags sé 775.726 krónur. Hæsta upphæðin er 1.500.000 krónur, sem er jafnframt hámarksupphæð til hvers húsfélags. Greidd upphæð skal ekki nema meira en 67% af heildarkostnaði verksins með virðisaukaskatti. Fjórtán fengu styrk fyrir hleðslustöðvar  Sjóður fyrir hús- félög úthlutaði 19,5 milljónum í fyrra Morgunblaðið/Hari Rafhleðsla Húsfélög í Reykjavík geta fengið styrki til uppsetningar. 13 vítamín og 16 steinefni · 18 aminósýrur · Blaðgræna · Omega GLA fitusýrur SOD eitt öflugasta andoxunarensím líkamans Hrein orka, eflir einbeitingu, eykur súrefnismettun, gefur heilbrigða næringaríka orku sem virkar allan daginn. Eflir mótstöðu og er góð vörn gegn flensum. Frábært gegn þreytu, sleni og pirringi, auðugt af járni. Inntaka: Allur aldur. Nánari upplýsingar á www.celsus.is Fæst í apótekum, Hagkaup, Heilsuhúsinu og víðar | netsala á celsus.is Fjölvítamín náttúrunnar, hreint og ómengað Engin tilbúin næringaefni 22 ára VELGENGNI Á ÍSLANDI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.