Morgunblaðið - 18.01.2020, Blaðsíða 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2020
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Hin margverðlaunaða andkapítal-
íska gjörningasveit Hatari og fem-
íníska hip hop-sveitin Cyber munu
leggja Evrópu að fótum sér í tón-
leikaferð sem ber yfirskriftina
Europe Will Crumble, þ.e. Evrópa
mun hrynja.
Fyrsti viðkomustaður er Nor-
egur og munu sveitirnar koma
fram í Osló 26. janúar. Næstu við-
komustaðir eru svo Stokkhólmur,
Kaupmannahöfn, Árósar, Varsjá,
Hamborg, Berlín, Prag, Vín, Míl-
anó, Reykjavík, Barselóna, Madr-
íd, Zürich, Köln, London, Manch-
ester, Brighton, Amsterdam,
Brussel og loks París.
Lokatónleikarnir fara fram 2.
apríl og er því mikil törn fram-
undan hjá sveitunum tveimur.
„Við hlökkum til að fylgjast með
hruni vestrænnar siðmenningar og
syrgja með aðdáendum okkar víðs
vegar um álfuna. Cyber hefur líka
lengi verið haukar í horni og það
er gott að eyða síðustu dögum
mannskyns með slíku hæfileika-
fólki,“ segir Matthías Tryggvi
Haraldsson, annar söngvari Hat-
ara og athafnastjóri Svikamyllu
ehf.
Ætla að heilla alla
upp úr skónum
Salka Valsdóttir, ein liðskvenna
Cyber, er spurð að því hvers
vegna Hatari og Cyber ætli saman
í Evrópuferð.
„Við höfum síðustu tvö árin ver-
ið mjög hrifin af sviðsframkomu
og tónlist hvor annarra. Við héld-
um okkar fyrstu tónleika saman
árið 2017 á Loft hostel og höfum
síðan þá spilað margoft saman. Í
lok árs 2017 sömdum við lagið
„Hlauptu“ saman sem kom út á
fyrstu plötunni okkar Horror,“
svarar Salka.
En hvert er markmiðið með
ferðinni og hvað eiga Hatari og
Cyber sameiginlegt?
„Markmið ferðarinnar er að
heilla alla upp úr skónum sem
verða á vegi okkar, „crumble them
with kindness“. Sveitirnar eiga
ýmislegt sameiginlegt. Við vinnum
bæði mikið með konseptverk, bæði
í tengslum við tónlist og sviðs-
framkomu. Báðar hljómsveitir eru
líka mjög innblásnar af leikhúsi og
við eigum það til að túra með allt
of mikið „props“ og aaallt of
marga búninga,“ segir Salka.
Neyslutrans
Hatari sendi í vikunni frá sér
tilkynningu vegna útgáfu Svika-
myllu ehf. á fyrstu hljómplötu
sveitarinnar, Neyslutrans, sem
kom út í gær, 17. janúar. Hefur
platan að geyma þrettán lög,
þeirra á meðal framlag Hatara í
Eurovision í fyrra, „Hatrið mun
sigra“ og áður óútgefinn dóms-
dagsspádóm.
Ýmsir listamenn leggja Hatara
lið á plötunni, þeirra á meðal sam-
kynhneigði palestínski popparinn
Bashar Murad og fyrrnefnd hip
hop-sveit Cyber. Þá heyrist einnig
rapp frá Svarta Laxness, fiðluleik-
ur Péturs Björnssonar og söngur
hinnar vinsælu og marglofuðu
GDRN.
Útfarartónar
„Platan er hugsuð sem sam-
ansafn af stöku útgáfum sem við
höfum fengist við að undanförnu
annars vegar og útfarartónum til
handa mannkyni hins vegar. Þetta
gæti vel verið síðasta plata sem
gefin er út af Homo Sapiens og
við vildum nálgast þá staðreynd af
virðingu,“ segir Matthías um plöt-
una og bætir við að útgáfutónleik-
ar verði haldnir í Austurbæ 22. og
23. febrúar.
„Hlökkum til að fylgjast með
hruni vestrænnar siðmenningar“
Hatari og Cyber halda saman í tónleikaferð um Evrópu Fyrsta breiðskífa Hatara komin út
Vígalegir Hatari árið 2020, tilbúnir í Evróputónleikaferð. Evrópa mun hrynja er yfirskrift þeirrar reisu.
Morgunblaðið/Eggert
Bizness-konur Vinkonurnar í Cyber klæddar skrifstofufötum og tilbúnar í
tökur á myndbandi við lagið „Hold“ í nóvember árið 2018.
Neyslutrans Umslag fyrstu breið-
skífu Hatara grípur augað.
Vefsíða Hatara er á slóðinni
hatari.is og Cyber er með Face-
book-síðuna Unofficial: CYBER.
Valdís Thor opnar í dag kl. 16 sýn-
inguna Samsetningu / Assemblage,
í versluninni 12 tónum að Skóla-
vörðustíg 15. Sýningin verður við
Forsetabarinn í versluninni og mun
Dj Anna Margrét, einnig þekkt
sem Barbarella, sjá um tónlistar-
flutning. Valdís sýnir klippimyndir,
„collage“, sem hún vann úr gömlum
National Geographic-tímaritum,
árgöngum 1976-1982, nánar til-
tekið. Valdís sækir meðal annars
innblástur til Sigríðar Níelsdóttur
(ömmu lo-fi) við gerð myndanna, að
því er segir í tilkynningu.
Valdís nam ljósmyndun við Iðn-
skólann í Reykjavík og starfaði sem
ljósmyndari hjá Morgunblaðinu og
lauk sveinsprófi árið 2008. Hefur
hún upp frá því tekið að sér ýmis
ljósmyndaverkefni, m.a. fyrir
franska dagblaðið Liberation og
helgartímarit þess, Le mag,
Reykjavík Grapevine og íslenska
hönnunarmerkið KronbyKronkron.
Klippimynd Hluti verks eftir Valdísi.
Valdís opnar sýn-
ingu í 12 tónum
Hönnuðirnir Valdís Steinarsdóttir
og Tanja Huld Levý Guðmunds-
dóttir, sem mynda tvíeikið We are
studio, munu dvelja í Gryfjunni í
Ásmundarsal í u.þ.b. mánuð og
safna saman sögum af mistökum
sem munu svo birtast í sýningu.
Í tilkynningu segir að mistök séu
falleg og óumræðilega mannleg og
spurt hvað gerist ef fólk fylgi mis-
tökunum, hampi þeim og sveipi
töfraljóma. „Við munum leggja
áherslu á frásagnir fólks sem eiga
það sameiginlegt að hafa farið
leynt með og jafnvel skammast sín
fyrir. Hugmynd okkar um eigin
mistök geta oft leitt til skammar og
feimni þegar við miklum þau fyrir
okkur í eigin huga,“ skrifa þær Val-
dís og Tanja og spyrja hvers vegna
mistökin séu ekki upphafin og
hvers vegna fólk hafi ekki húmor
fyrir sjálfu sér.
Í Gryfjunni Valdís Steinarsdóttir og Tanja
Huld Levý Guðmundsdóttir.
Mistök eru falleg
og mannleg
Það er alveg ljóst að vasa- og höfuðljósin frá Fenix
standast ströngustu kröfur útivistarfólks um gæði,
endingu og styrkleika. Þau gera þér kleift að sjá
lengra og létta þér leit við krefjandi aðstæður.
Ljósstyrkur: 3200 lumens
Drægni: 408 m
Lengd: 266,2 mm
Þvermál: 28,6 mm
Þyngd: 365 g (fyrir utan rafhlöður)
Vatnshelt: IP68
Fenix UC35 V2
Létt og sterklegt vasaljós með 1000 lúmena
hámarksljósstyrkleika og allt að 266 m drægni.
Sannkallað ofurvasaljós hannað með öryggis-
og löggæslu í huga. 3200 lúmena ljósgeisli,
yfir 400 metra drægni og góð rafhlöðuending.
Vasaljósið er einnig útbúið fjölnota afturljósi
með fjórum stillingum, m.a. rauðu ljósi til
merkjasendinga.
FENIX HL60R
Lipurt og létt höfuðljós með góða rafhlöðu-
endingu. Ljósgeislinn getur náð allt að 950
lúmenum og allt að 116 m drægni.
SKÚTUVOGI 1C | 104 REYKJAVÍK | SÍMI 550 8500 | WWW.VV.IS
Fenix TK47UE
Hægt að hlaða
um USB snúru.
Hægt að hlaða
um USB snúru.