Morgunblaðið - 18.01.2020, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 18.01.2020, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2020 Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000 – www.kemi.is - kemi@kemi.is ® Rafsuðuhjálmur Speedglas 9100XXi 3M Speedglas 9100XXi rafsuðuhjálmur Verð 84.144 kr ™ Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum AFP. Teheran. | Æðstiklerkurinn Ali Khamenei, leiðtogi Írans, lýsti því yfir í gær að mótmælin sem spruttu upp í landinu eftir að Íransher skaut niður úkraínska farþegaþotu væru ekki lýsandi fyrir íranskan almenn- ing. Sakaði Khamenei óvini Írans um að nýta sér mótmælin í áróðurs- skyni. Khamenei lét þessi ummæli falla þegar hann stýrði föstudagsbænun- um í höfuðborginni Teheran, en þetta er í fyrsta sinn frá árinu 2012 sem hann gerir það. Khamenei sagði í ræðu sinni að árásin á vélina hefði verið „bitur harmleikur“ sem hefði brennt sig í gegnum hjörtu allra Ír- ana. Hún ætti þó ekki að skyggja á þær fórnir sem hershöfðinginn Qas- sem Soleimani hefði fært, en hann var drepinn af Bandaríkjamönnum í Bagdad í upphafi mánaðarins. Khamenei þurfti reglulega að gera hlé á ræðu sinni svo að mannfjöldinn sem hlýddi á gæti hrópað „Dauði yfir Bandaríkin“. Gagnrýndi Evrópuríkin Khamenei gagnrýndi einnig ríkis- stjórnir Bretlands, Frakklands og Þýskalands harðlega fyrir að hóta því að fara með brot landsins á kjarnorkusamkomulaginu fyrir ör- yggisráð Sameinuðu þjóðanna. „Það hefur sannast nú, eftir um það bil ár, að þær eru í öllum skilningi orðsins taglhnýtingar Bandaríkjanna og þessar huglausu ríkisstjórnir bíða eftir uppgjöf írönsku þjóðarinnar,“ sagði Khamenei. Ræðu Khamenei var vel tekið af viðstöddum og þurfti hann oft að gera hlé á máli sínu svo að mann- fjöldinn gæti formælt Bandaríkjun- um og óskað þeim dauða. Gerði lítið úr mótmælunum  Khamenei æðstiklerkur stýrði föstudagsbænum í Íran í fyrsta sinn í átta ár AFP Íran Khamenei stýrði föstudags- bænum í fyrsta sinn í átta ár. Mikið var um dýrðir við opnun ljósahátíðar í þorpinu San Bartolome de Pinares í miðhluta Spánar í fyrra- kvöld, en hátíðin er haldin til heiðurs heilögum Antonio Abad, sérlegum verndardýrlingi dýra. Kveikja þorpsbúar í brennum víðs vegar um bæinn, en eldinum er ætlað að verja dýr þeirra gegn sjúkdómum. AFP Ljósahátíð til heiðurs verndardýrlingi dýra Vaðið gegnum eld og brennistein Taílensk heilbrigðisyfirvöld sögðu í gær að annað tilfelli af lungnabólg- unni dularfullu sem nýlega spratt upp í Kína hefði fundist í landinu. Var það í ferðalangi frá Kína, sem var stöðvaður við eftirlit á stærsta flugvelli Taílands. Er viðkomandi nú á sjúkrahúsi og ætla yfirvöld í Taílandi að herða eftirlit, þar sem gert er ráð fyrir auknum fjölda gesta frá Kína á næstunni. Tveir hafa þegar látist í Kína vegna hinnar nýju kórónaveiru, en einkennin þykja minna á SARS. Annað tilfelli lungnabólgunnar TAÍLAND Oleksí Gontsjarúk, forsætisráð- herra Úkraínu, bauðst í gær til þess að segja af sér eftir að hljóð- upptaka af hon- um birtist á net- inu þar sem hann virðist gera lítið úr þekkingu Vol- odymyr Zelenskí Úkraínuforseta á efnahagsmálum. Zelenskí ákvað síðar um kvöldið að hafna afsögn Gontsjarúks, sem sagði að forset- inn hefði „frumstæðan skilning“ á efnahagnum. Raunar bætti Gont- sjarúk við að hann sjálfur væri „moðhaus“ í fræðunum. Fyrsta prófraun forsetans Zelenskí var gamanleikari og hafði leikið forseta Úkraínu í vin- sælum sjónvarpsþáttum áður en hann bauð sig fram og vann Petró Porosjenkó, sitjandi forseta, með miklum yfirburðum. Skömmu síðar vann flokkur Zelenskís, sem bar sama heiti og gamanþátturinn, stór- sigur í þingkosningum. Zelenskí hefur að mestu siglt lygnan sjó heima fyrir, þrátt fyrir að símtal hans við Donald Trump Bandaríkjaforseta á síðasta ári hafi orðið til þess að demókratar á Bandaríkjaþingi reyna nú að fá Trump sviptan embætti. Stjórnmálaskýrendur sögðu í gær að uppsagnarbeiðnin væri fyrsta alvöru prófraun Zelenskís í innanríkismálum, en ekki þótti lík- legt að hann myndi samþykkja af- sögn Gontsjarúks, þar sem það myndi senda röng skilaboð til um- bótasinna í Úkraínu. Í fyrstu orð- sendingu forsetans um málið sagði einungis að afsagnarbeiðnin hefði borist, en síðar fyrirskipaði Ze- lenskí rannsókn á því hver hefði tekið upp samtöl ráðherra. Sjálfur gekkst Gontsjarúk við ummælum sínum en harmaði á sama tíma að upptakan hefði verið klippt þannig til að það hljómaði eins og hann styddi ekki Zelenskí. Til að taka af allan vafa hefði hann sent forsetanum bréf og boðið hon- um afsögn sína vegna málsins. Gontsjarúk, sem er 35 ára, er yngsti forsætisráðherra Úkraínu frá upphafi. Bauð Zelenskí afsögn sína  Hljóðupptöku lekið af Gontsjarúk Oleksí Gontsjarúk Alan Dershowitz, einn frægasti lög- fræðingur Bandaríkjanna, tilkynnti í gær að hann yrði hluti af lögfræð- ingateymi Donalds Trump Banda- ríkjaforseta, en réttarhöld til höfuðs honum hefjast í öldungadeild Bandaríkjaþings í næstu viku. Þá greindu bandarískir fjölmiðlar frá því í gær að Kenneth Starr yrði einnig í teyminu, en hann var sér- stakur saksóknari þegar Bill Clinton var ákærður til embættismissis árið 1998 og sýknaður af öldungadeild- inni. Dershowitz sagði í yfirlýsingu að hann myndi sjá um munnlegan mál- flutning fyrir öldungadeildinni varð- andi þá hluta málsins sem snúa að stjórnarskrá Bandaríkjanna, og kynna þau stjórnarfarslegu rök sem eru gegn því að svipta Trump emb- ætti. Telur Dershowitz að málið snú- ist um kjarna stjórnarskrárinnar. Dershowitz hefur áður tekið þátt í málsvörnum þekktra einstaklinga fyrir rétti, meðal annars O.J. Simp- son, Jeffrey Epstein, Roman Pol- anski og Mike Tyson. Dershowitz og Starr í slaginn  Standa að máls- vörn Trumps

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.