Morgunblaðið - 18.01.2020, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2020
Bio-Kult Migréa
Fæst í apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaðanna.
14 góðgerlastofnar B6-Vítamín Magnesíum
Bio-Kult Migréa er háþróuð 14 stofna góðgerlablanda og hafa
rannsóknir sýnt að inntaka á þeim í 10 vikur dró úr tíðni mígrenikasta
um 40-45% og styrkur kastanna minnkaði einnig um allt að 31%. Þessi
vara inniheldur einnig magnesíum og B6 en það tvennt stuðlar að
eðlilegri starfsemi taugakerfisins og dregur úr þreytu og lúa.
Bio Kult Migréa er vegan og hentar einnig fyrir ófrískar konur.
Tengsl milli þarmaflóru og
annarar líkamsstarfsemi
eru vel þekkt og er talið að
léleg flóra hafi m.a. áhrif á
höfuðverki og tíðni þeirra.
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
ÚTSALAN
heldur áfram
30-50%afsláttur
Peysur • Bolir • Kjólar
Jakkar • Pils • Túnikur
Skoðið laxdal.is
Skipholti 29b • S. 551 4422
ENN MEIRI AFSLÁTTUR
GERRY WEBER - TAIFUN - BETTY BARCLAY
JUNGE - FUCHS SCHMITT OG FL.
Á GÆÐA MERKJAVÖRU
Dúnúlpur og ullarkápur
ALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
ÚTSALA
Meiri verðlækkun
40-60%
PBO blazer:
42.980 kr.
Nú: 25.788 kr.
PBO toppur:
18.980 kr.
Nú: 11.388 kr.
PBO buxur:
28.980 kr.
Nú: 11.592 kr.
Samninganefndir Félags íslenskra
flugumferðarstjóra og Samtaka at-
vinnulífsins fyrir hönd Isavia und-
irrituðu kjarasamning í húsakynn-
um ríkissáttasemjara í gær.
Kjarasamningar flugumferðar-
stjóra hafa verið lausir síðan 31.
desember 2018 og var kjaradeilu
FÍF og SA vegna Isavia vísað til rík-
issáttasemjara 13. apríl á seinasta
ári. Síðastliðinn sunnudag sam-
þykktu félagsmenn í FÍF verkfalls-
aðgerðir til að þrýsta á um lausn
deilunnar. Fundahöld hafa staðið
yfir seinustu daga og komu samn-
inganefndirnar saman klukkan
hálftólf fyrir hádegi í gær þar sem
nýi samningurinn var undrritaður.
Kári Örn Óskarsson, formaður
FÍF, vildi í gær ekki ræða efnis-
atriði samningsins áður en kynning
hans færi fram meðal félagsmanna
og atkvæði verða greidd um hann.
Nýi kjarasamningurinn er til
skamms tíma en hann gildir til 31.
desember næstkomandi skv. upp-
lýsingum á vef ríkissáttasemjara.
Flugum-
ferðarstjór-
ar semja
Gildir til 31. des-
ember næstkomandi
Fjórir dómarar við Landsrétt sem
fóru í leyfi eftir dóm undirréttar
Mannréttindadómstóls Evrópu
(MDE) eru enn á fullum launum.
Þetta kemur fram í svari dóm-
stólasýslunnar við fyrirspurn
Morgunblaðsins.
„Umræddir einstaklingar eru
samkvæmt 1. mgr. 21. gr. laga um
dómstóla nr. 50/2016 skipaðir ótíma-
bundið sem dómarar við Landsrétt.
Samkvæmt 61. gr. stjórnarskrár Ís-
lands verður dómurum ekki vikið úr
embætti nema með dómi, [en] þetta
er ætlað til að tryggja sjálfstæði
dómstólanna.
Stjórn dómstólasýslunnar getur
samkvæmt 4. mgr. 7. gr. laga um
dómstóla nr. 50/2016 veitt dómurum
leyfi frá störfum. Þeir Ásmundur
[Helgason] og Jón [Finnbjörnsson]
óskuðu eftir tímabundnu leyfi frá
störfum sem dómarar við Landsrétt
í júlí 2019 og voru beiðnirnar sam-
þykktar á fundi stjórnar dóm-
stólasýslunnar skömmu síðar. Þær
Arnfríður [Einarsdóttir] og Ragn-
heiður [Bragadóttir] óskuðu eftir
tímabundnu leyfi frá störfum sem
dómarar við Landsrétt í september
2019. Þær beiðnir voru einnig sam-
þykktar á fundi stjórnar dóm-
stólasýslunnar.“
Skulu vera um 1.700 þúsund
Þá var spurt um fjárhæð launa-
greiðslna síðan leyfið hófst og við
hvaða heimildir þær styðjast.
„Allar beiðnir voru háðar því skil-
yrði að dómararnir haldi óbreyttum
starfskjörum meðan á leyfinu stend-
ur, sbr. 4. mgr. 50. gr. laga um dóm-
stóla nr. 50/2016. Samkvæmt 3.
málsl. 2. mgr. 44. gr. sömu laga
skulu laun landsréttardómara nema
1.692.155 kr. á mánuði og þar af skal
greiðsla fyrir yfirvinnu og álag sem
starfinu fylgir nema 440.312 kr. á
mánuði.
Þess skal þó getið að þau laun
tóku breytingum til hækkunar 1.
maí 2019 og munu nú vera rúmlega
1.700.000 kr. Það skal þó tekið fram
að frá 12. mars 2019, þegar dómur í
málinu féll í Strassborg, hafa þau
ekki verið að störfum,“ sagði í svari
dómstólasýslunnar. Dómararnir
fjórir hafa því verið á fullum launum
frá því dómur MDE féll en síðan
fóru þeir formlega í leyfi, tveir og
tveir í einu, sumarið 2019.
Hinn 20. desember 2019 auglýsti
dómsmálaráðuneytið laus til setn-
ingar tvö embætti dómara við
Landsrétt. Þeir dómarar munu
koma inn í réttinn tímabundið til af-
leysingar vegna álags. Lauslega
áætlað hafa dómararnir fjórir fengið
40 mánaðarlaun, eða um 70 milljónir,
í leyfinu. baldura@mbl.is
Landsréttardómararnir enn á fullum launum
Dómararnir fjórir sem fóru í leyfi eftir dóm MDE 12. mars í fyrra héldu óskertum launagreiðslum