Morgunblaðið - 18.01.2020, Side 14

Morgunblaðið - 18.01.2020, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2020 BAKSVIÐ Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Hörð andstaða fólks í uppsveitum Árnessýslu við stofnun hálendis- þjóðgarðs kom fram á opnum fundi Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfisráðherra sem haldinn var í félagsheimilinu Aratungu í Biskups- tungum í fyrrakvöld. Ráðherrann hefur kynnt drög að frumvarpi um þjóðgarðinn, sem ná mun yfir nærri þriðjung landsins og nánast öll svæði ofan við hálendisbrúnina sem teljast þjóðlendur. Aðlaðandi hugmynd en vanreifuð Andstaða fólks á Suðurlandi við áform þessi felst meðal annars í því viðhorfi að þjóðgarður skerði veru- lega skipulagsvald og forræði sveit- arfélaga innan landamæra sinna. Svæðisráð sem meðal annars vinnur stjórnunar- og verndaráætlun fyrir þjóðgarðinn verði æðra sett sveit- arstjórnum og skerði völd þeirra í mikilvægum málum. Páll Magnússon, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins í Suðurkjördæmi, segir margt í hugmyndum um há- lendisþjóðgarð vera vanreifað. Til- tekur í því efni forræði skipulags- mála og að stopp verði sett á orkunýtingu og virkjanir innan þjóð- garðsmarka. Um síðarnefnda atriðið sé raunar skýr pólitískur ágrein- ingur. Sem sakir standa sé málið því í hnút. „Ég þekki enga sem bera meiri umhyggju fyrir hálendinu, eða þykir vænna um óbyggðirnar, en það fólk sem býr næst þeim og hefur kannski gert í margar kynslóðir,“ segir Páll. „Að mínu viti er algjörlega óhugs- andi að ríkið ráðskist með þessi mál í fullkominni andstöðu við þetta fólk – og ég mun aldrei styðja slíka máls- meðferð. Á hinn bóginn er það út af fyrir sig aðlaðandi grunnhugmynd að ósnortin víðerni Íslands verði stærsti þjóðgarður í Evrópu. Nú reynir á hvort hægt verður að búa til víðtæka sátt um útfærslu þeirrar hugmyndar – ekki síst við heima- menn. Ef það tekst ekki er hug- myndin andvana fædd. “ Þrengt að yfirráðarétti „Ég lít svo á að verið sé að þrengja yfirráðarétt sveitarfélaga og íbúa þeirra yfir afréttarlöndum sínum í mjög veigamiklum atriðum,“ segir Ólafur Björnsson frá Úthlíð í Biskupstungum, lögmaður á Sel- fossi. Hann tók til máls á Aratungu- fundinum og kveðst undrast þá veg- ferð sem umhverfisráðherra sé nú í. „Okkur er sagt að stofnun þjóð- garðs fylgi sáralitlar breytingar og í því ljósi er eðlilegt að spyrja hvers vegna þurfi að gera breytingar. Ég tel að með þjóðlendulögunum sem sett voru fyrir um tuttugu árum hafi náðst ágæt sátt um yfirráð og nýt- ingu hálendisins. Hér í Biskups- tungum hefur fólk sterkar taugar til afréttarins og þar höfum við lagt fram mikla vinnu, meðal annars við landgræðslu. Allar nytjar á svæðinu, svo sem ferðaþjónusta og sauðfjár- beit, er algjörlega sjálfbær. Því er óeðlilegt og rangt að taka yfirráða- rétt á svæðinu af okkur og færa til miðlægrar ríkisstofnunar.“ Í grein nú í vikunni í blaðinu Dag- skránni á Selfossi ritaði Helgi Kjart- ansson, oddviti Bláskógabyggðar, sem spannar meðal annars yfir Bisk- upstungur, að fyrirhugaður miðhálendis- þjóðgarður færi í umhverfismat áð- ur en ákvörðun um stofnun hans yrði tekin. Þar yrði farið yfir hugsanleg áhrif á samfélög, sam- göngur, álag á náttúruna og menningarminjar auk fjölmargra fleira þátta. Eignarhald í óvissu Helgi segir að allir þeir sem vilji að framkvæmdir, stórar sem smáar, séu metnar með þessum hætti hljóti að vera sjálfum sér samkvæmir og styðja þessa tillögu. Hann vekur jafnfram athygli á því að á hálendinu sé rekin margvísleg þjónusta sem byggð hafi verið upp eftir stefnumörkun viðkomandi sveitarfélags. Þessar eignir séu ým- ist í eigu almennings, fyrirtækja eða sveitarfélaga. Alger óvissa sé og verði með rekstur og eignarhald fasteigna sem þessari starfsemi til- heyri verði þjóðgarður stofnaður. Þá sé nú verið að vinna lagafrumvarp um Þjóðgarðastofnun og í drögum að því séu ýmsar heimildir um eignarnám sem ráðherra geti beitt. Hálendið sé og hafi verið í umsjón heimamanna á hverjum stað um ómunatíð og best sé að svo verði áfram. Ríkið ráðskast í full- kominni andstöðu  Á móti hálendisþjóðgarði  Oddviti vill umhverfismat Morgunblaðið/Sigurður Bogi Öræfi Hálendið stendur nærri hjarta Biskupstungnamanna. Horft af Hauka- dalsheiði að Jarlhettum, sem setja sterkan svip á landið og sjást víða frá. Páll Magnússon Helgi Kjartansson Ólafur Björnsson Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Starfsfólki Landgræðslunnar í Gunnarsholti er boðið að taka af- ganga af hádegismatnum á föstu- dögum með sér heim. Er þetta liður í átaki starfsfólks mötuneytisins til að draga úr matarsóun. Therese Sundberg yfirmatráður segir að yfirmenn og starfsfólk hafi tekið þessari viðleitni vel. Aðeins hefur þó reynt á þetta einu sinni, á föstudaginn fyrir viku, og þá tók starfsfólk í mötuneytinu og einn annar starfsmaður stofnunarinnar samtals um eitt kíló af plokkfiski með sér heim og þurftu matráðarnir að henda öðru eins. „Þetta var fyrsta skiptið og ég á von á að meira verði tekið þegar fólk áttar sig betur á þessu,“ segir Therese. Afgangar á föstudögum Hún segir að ekki sé miklum mat- arafgöngum fargað úr mötuneytinu. „Við nýtum allt hráefni eins vel og við getum. Eldum fjórum sinnum í viku og á föstudögum eru hitaðir upp afgangar. Þannig hefur þetta verið það eina og hálfa ár sem ég hef verið hér og lengur. Við vildum minnka matarsóun enn meira og bjóðum því upp á þennan valkost. Við tökum frá það sem við getum nýtt áfram en af- gangurinn fer í ísskáp sem fólk hef- ur aðgang að og við látum vita hvað er í boði,“ segir Therese og bendir á að afgangarnir sem starfsfólkið megi taki séu því í raun afgangar af afgöngum. Starfsfólk sem vill taka með sér mat eftir hádegismatinn á föstudög- um fær notuð ísbox undir matinn. Boxin eru einnig notuð undir nesti fyrir starfsmenn sem eru að vinna úti á mörkinni á sumrin. En þeir fá ströng fyrirmæli um að skila ísbox- unum aftur því Therese segir gott að nýta ísboxin áfram. Therese er fædd og alin upp í Sví- þjóð en hefur búið á Íslandi flest fullorðinsárin. Hún segir að í 500 manna mötuneyti sem hún vann í úti hafi yfirmenn heimilað að starfsfólk tæki með sér heim afganga sem ekki nýttust í mötuneytinu. „Ég er alin upp við að nýta allt sem hægt er, helst að henda engu. Við reynum að gera það hér heima líka.“ Therese og samstarfskona henn- ar, Hubertine Kamphuis, fóru á fyr- irlestra um matarsóun og fengu margar góðar hugmyndir þar. Hún segir að þær setji afgangana í moltugerð og vigti sérstaklega áður lífrænan úrgang og mat sem er sóað. Í mötuneytum getur verið erfitt að hitta á rétta matarskammtinn, ekki sé eldað of mikið en heldur ekki of lítið þannig að allir fái sitt. The- rese segir að þetta sé í nokkuð góðu lagi hjá Landgræðslunni. Yfirleitt borði um 30 manns í starfsstöðinni í Gunnarsholti. Allir þurfi að skrá sig í mat en stundum gleymi starfsfólk að afskrá sig ef það þurfi að rjúka á fund í Reykjavík og eins bætist stundum við iðnaðarmenn sem ekki hafi verið skráðir. Morgunblaðið/Eggert Dregið úr matarsóun Plokkfiskur og rúgbrauð er stundum á föstudögum í mötuneyti Landgræðslunnar í Gunnarsholti. Engu á að henda. Mega taka afganga af afgöngum Therese Sundberg Hubertine Kamphuis  Dregið úr matarsóun í Gunnarsholti Draghálsi 14 -16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is Þú finnur gæðin! Skoðaðu úrvalið í netverslun isleifur.is Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í gær að ráðast í endur- skoðun á lögum um ráðherra- ábyrgð annars vegar og lögum um Landsdóm hins vegar. Tillagan var lögð fram af Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráð- herra. Fram kemur í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu að á undan- förnum áratugum hafa lög um ráð- herraábyrgð og Landsdóm sætt gagnrýni hér á landi í ljósi réttar- þróunar í sakamálaréttarfari. Endurskoðun laganna mun með- al annars snúast um skýrleika refsiákvæða um embættisbrot, að- draganda ákæru, svo sem frum- kvæði að rannsókn á embættis- færslum, umgjörð máls og hlutverk þingnefnda í því sambandi, og skip- an Landsdóms. Forsætisráðherra mun í samráði við dómsmálaráð- herra fela sérfræðingi að leiða vinnuna og standa vonir til þess að henni verði lokið á haustmánuðum. Lög um ráðherra- ábyrgð endurskoðuð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.