Morgunblaðið - 18.01.2020, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 18.01.2020, Qupperneq 23
23 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2020 Hér lét hann byggja, Íslands fyrsti faðir, á frjálsri tíð með heimild eigin valds. Mér hlotnaðist sá heiður að flytja setn- ingarræðu á fullveld- isdaginn í Valhöll. Efni fundarins var að stofn- setja félag sjálfstæð- ismanna um fullveld- ismál en stofnun slíks félags á sér heimild í skipulagsreglum flokksins og hefur verið rædd lengi innan flokksins. Fundurinn var einstaklega vel heppnaður og hátt í hundrað flokks- menn sátu fundinn og komu að hon- um með einum eða öðrum hætti. Öllum þeim má færa sérstakar þakkir. Á fundinum töluðu tveir þing- menn Sjálfstæðisflokksins, þeir Ás- mundur Friðriksson og Jón Gunn- arsson, ritari Sjálfstæðisflokksins, Jónas Elíasson háskólaprófessor, Erlendur Borgþórsson, formaður okkar sjálfstæðismanna hér í Smá- íbúðahverfinu, og Styrmir Gunn- arsson, fyrrverandi ritstjóri Morg- unblaðsins, sem á fundinum var kjörinn formaður hins nýstofnaða félags. Í kjölfar fundar var svo hald- in aðventuhátíð og séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson flutti fallega jólahugvekju. Fyrir fundinn birtist auglýsing um stofnfundinn eins og hefðir gera ráð fyrir. Auglýsingin var unnin úr kosningaefni Sjálfstæðisflokksins frá gullöld flokksins; þegar flokk- urinn var með hreinan meirihluta í borginni og afgerandi forystu á landsvísu. Þar stóð teiknaður nútímamaður, sjálfstæðismaðurinn, í Almannagjá á hörðu bergi sem á voru meitluð einkunnarorð Sjálfstæðisflokksins um frjálsa þjóð í frjálsu landi, en sagt er að þegar eitthvað er meitlað í stein sé það eilíft. Almannagjá er tákn þeirrar frelsisástar sem þjóðin fékk í vöggugjöf. Á þjóðveldisöld hittust landsmenn við þennan stað, á þessu elsta og merkasta þingi ver- aldar, settu lög og kváðu upp dóma. Þingvellir eru nefni- lega meira en ferða- mannastaður í huga okkar sjálfstæð- ismanna. Lands- fundur Sjálfstæð- isflokksins var haldinn þar hinn 17. júní 1943 og flutti Bjarni Benediktsson þar mjög merkilega ræðu sem allir ættu að kynna sér. Fyrir aftan nútímamanninn var víkingur, mikill að vexti, sem táknar bar- áttugleði þjóðar sem hefur þrátt fyrir smæð sína aldrei látið mótlæti stöðva sig. Fyrir aftan víkinginn stóð biskupinn sem er tilvísun til ís- lensku þjóðkirkjunnar sem hefur verið sameiningartákn okkar lands- manna og staðið vörð um tengsl okkar við Guð, þótt að markvisst sé búið að brjóta niður þá varðstöðu í síðari tíð. Í allri umræðunni um okkar stjórnarskrárvörðu þjóð- kirkju hefur því miður aldrei farið fram sú umræða um hvað gerist þegar menn rjúfa tengslin við Guð. Margt bendir til þess að þegar klippt er á þau tengsl gerist menn sínir eigin guðir og sé þar í sjálfs- valdi sett að ákveða hvað sé rétt og hvað sér rangt, kasti fyrirgefning- unni fyrir róða og grundvöllur skapist fyrir samfélagi dómhörku og fordóma þar sem fátt gleymist og óljósar línur kveði á um hvað sé rétt og hvað sé rangt, hvað megi segja og hvað megi ekki segja. Að því sögðu má segja að sú umræða, þeir fordómar og sú dómharka sem skapaðist um þessa einstaklega fal- legu auglýsingu bendi til þess að slíkt ástand sé farið að gera vart við sig. Í stað þess að taka auglýsingunni með jákvæðu hugarfari um frelsi manna – enda er fyrrnefnd teikning eins og áður segir mjög fallegt lista- verk með sjaldséðri dýpt fyrir kosn- ingaefni – fóru sumir að væna fé- lagsskapinn um eitthvað sem ekki stóðst og ekki stenst. Einn þeirra, þekktur fjölmiðlamaður hjá Ríkis- útvarpinu, bendlaði auglýsinguna við feðraveldið, hvað sem það á nú að þýða en það orð hefur oft verið notað til að níða karlmenn og tala niður til þeirra. Annar fjölmiðla- maður gerði sig þó sekan um verri fordóma og bendlaði félagið við fjöldamorðingja nasista. Það að hlutgera og líkja pólitískum and- stæðingum við fjöldamorðingja og kúgara er fyrir það fyrsta hættuleg aðferðafræði sem getur endað illa. Ofan á það hefði viðkomandi fjöl- miðlamaður, sem augljóslega hefur ekki vott af sómakennd, verið örlítið víðsýnni hefði hann líklega áttað sig á því að Ísland var hersetin þjóð þegar auglýsing birtist fyrst. Hefði auglýsingin þ.a.l. borið einhvern vott af nasisma eða stuðningi við hina viðurstyggilegu stefnu mönd- ulveldanna þá hefði mjög líklega öll ritstjórn blaðsins ásamt forystu Sjálfstæðisflokksins verið hneppt í varðhald allt til stríðsloka. Slíkt gerðist auðvitað ekki enda var teikningin ekkert annað en fallegt kosningaefni sem náði að sameina sögu, hug og hjörtu landsmanna með listrænum hætti; ekki síður en hið fagra ljóð Einars Benedikts- sonar um Ingólfsbæ. Vort fjallaland, í heiðum himintjöldum, rís hátt og frjálst, svo langt sem strönd þín nær. Vort ættarland vér með þér – með þér höldum á meðan nokkurt íslenskt hjarta slær. Og aldrei skaltu selt við veg og völdum, svo víst sem heill og sæmd þín er oss kær. Þar stendur fólkið fast sem bjarg í öldum og fremsta vörðinn heldur Ingólfs bær. Eftir Viðar Guðjohnsen » Í allri umræðunni um okkar stjórn- arskrárvörðu þjóð- kirkju hefur því miður aldrei farið fram sú umræða um hvað ger- ist þegar menn rjúfa tengslin við Guð. Viðar H. Guðjohnsen Höfundur er lyfjafræðingur og sjálfstæðismaður. Frjáls þjóð í frjálsu landi Veisla Gæsirnar við Reykjavíkurtjörn hópuðust að fuglavini sem kom færandi hendi með brauð í poka en fuglafræðingar hvetja fólk til að gefa fuglunum þar yfir vetrartímann. Ómar Óskarsson Um þessar mundir er VR að vinna könnun með- al félagsmanna sinna um hvar sé best að vinna. Könnunin hefur verið gerð í rúmlega 20 ár og hafa hundruð fyrirtækja á íslenskum vinnumark- aði tekið þátt með alla sína starfsmenn enda mikilvægt að allir hjá fyrirtækinu fái tækifæri til að taka þátt en þannig fæst nið- urstaða sem fyrirtækin geta nýtt til umbóta ef þörf krefur eða viðhalda góðum árangri. Hugmyndafræðin að baki Fyrirtæki ársins Í könnun VR á Fyrirtæki ársins er viðhorf starfsmanna til lykilþátta í starfsumhverfi vinnustaðarins metið. Könnunin er vettvangur fyrir fé- lagsmenn til að koma skoðunum sínum á framfæri og láta stjórnendur vita af því sem vel er gert og hvað betur má gera. Niðurstöðurnar eru stjórnendum hafsjór upplýsinga og hagnýtur leið- arvísir um hvort úrbóta sé þörf og hvar. Þær sýna ekki einungis hver staða fyrirtækisins er í augum starfs- manna heldur einnig hver staða þess er í samanburði við önnur fyrirtæki á vinnumarkaði. Virkjum mannauðinn Hugmyndafræðin sem býr að baki Fyrirtæki ársins er sú að innra starfs- umhverfi fyrirtækja hafi mikil áhrif á afkomu þeirra ekki síður en ytri rekstrarskilyrði. Þau fyrirtæki sem virkja mannauð sinn illa eða alls ekki geti hvorki fært sér hagstæð ytri skil- yrði í nyt né brugðist við neikvæðum rekstrarskilyrðum eða utanaðkomandi áföllum. Þetta má mæla á marga vegu. Í könnun VR byggjast niðurstöðurnar á viðhorfi til níu lykilþátta: stjórnunar, starfsanda, launakjara, vinnuskilyrða, sveigjanleika vinnu, sjálfstæðis í starfi, ímyndar fyrirtækis, jafnréttis, ánægju og stolts. Þessir þættir endurspegla það traust sem ríkir í samskiptum inn- an fyrirtækisins, hversu stolt eða hreykið starfsfólkið almennt er af starfi sínu og fyrirtækinu sem það starfar hjá, þá virðingu sem yfirmenn bera fyrir starfsfólki sínu og það andrúmsloft sem ríkir á vinnustaðnum. Neytendavakning Það má einnig færa fyrir því sterk rök að hin mikla neytendavakning sem átt hefur sér stað undanfarin ár sé til marks um enn meira mikilvægi þess að fyrirtæki láti sig gott starfsumhverfi og orðspor varða. Aðrir þættir eins og mikil starfsmannavelta og brottfall af vinnumarkaði vegna álagstengdra kvilla hafa verið gríðarlega kostn- aðarsamir fyrir fyrirtækin og sam- félagið allt. Könnunin segir hvað þarf að gera betur Fyrirtæki ársins gerir stjórnendum kleift að nálgast innra starfsumhverfi sitt með markvissum og árangurs- ríkum hætti. Í fyrsta lagi eru nið- urstöðurnar áreiðanlegt mælitæki á frammistöðu fyrirtækisins sem vinnu- staðar. Þær segja til um hvort og þá hvaða vanda er við að etja og um leið hvaða sóknarfæri það á. Í öðru lagi veitir Fyrirtæki ársins mikilvægan samanburð á milli ára. Í þriðja lagi fela skilgreiningar Fyrirtækis ársins í sér öflug verkfæri sem stjórnendur geta beitt í samvinnu við starfsfólk til að gera vinnustaðinn eftirsóknarverðan. Niðurstöður könnunarinnar gefa VR skýra og viðamikla mynd af viðhorfum félagsmanna til vinnustaða sinna og ætti því að vera eftirsóknarvert fyrir öll fyrirtæki að vera fyrirmyndar vinnustaður. Tala nú ekki um sá besti. Besti vinnustaðurinn Eftir Ragnar Þór Ingólfsson Ragnar Þór Ingólfsson »Hugmyndafræðin sem býr að baki Fyrirtæki ársins er sú að innra starfsumhverfi fyrirtækja hafi mikil áhrif á afkomu þeirra ekki síður en ytri rekstrarskilyrði. Höfundur er formaður VR.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.