Morgunblaðið - 18.01.2020, Page 39
DÆGRADVÖL 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2020
Kjartan Gestsson bókmenntafræð-
ingur og synir þeirra eru Óttar
Benedikt og Steinar Áki.
Systkini Óttars eru: Sveinn Rún-
ar Hauksson, f. 10.5. 1947, læknir,
búsettur í Reykjavík; Sigríður
Hauksdóttir, f. 1.11. 1951, kerfis-
fræðingur í Reykjavík. Systkini
Óttars Felix sammæðra eru: Sig-
fús Guðfinnsson, f. 27.11. 1959,
bakarameistari í Reykjavík; Guð-
mundur Guðfinnsson, f. 16.1. 1959,
bakari og framkvæmdastjóri í
Reykjavík; María Þorgerður Guð-
finnsdóttir, f. 17.5. 1960, kerf-
isfræðingur og kennari í Reykja-
vík.
Foreldrar Sveins: Ingibjörg
Guðmundsdóttir, f. 19.12. 1926, d.
30.9. 2006, húsfreyja og fram-
kvæmdastjóri í Reykjavík, og
Haukur Sveinsson, f. 13.10. 1923,
14.10. 2017, póstfulltrúi í Hafnar-
firði. Þau skildu. Seinni kona
Hauks var Hulda Guðjónsdóttir, f.
13.8. 1921, d. 14.3. 2010, banka-
fulltrúi í Hafnarfirði. Seinni maður
Ingibjargar og stjúpfaðir Sveins
Rúnars var Guðfinnur Sigfússon,
f. 14.4. 1918, d. 14.10. 1997,
bakarameistari.
Óttar Felix fagnar sjötugs-
afmæli sínu í dag með fjölskyldu
og vinum.
Úr frændgarði Óttars Felix Haukssonar
Óttar Felix
Hauksson
Jón Guðmundsson
fl ugm., rafvirkjam.
og framkvstj. í Rvík
Hörður
Felixson
knatt -
spyrnum.
í Val Stefán Jónsson
forstj. Vélsmiðju
Hafnar fjarðar
og forseti
bæjar stjórnar
Hafnarfjarðar
Tryggvi Jónsson
endurskoðandi
Leifur
Harðarson
lands-
liðsm. í
blaki
Kristín Friðbertsdóttir
húsfr., frá Vatnadal
Pálmi Bjarnason
b. á Meiribakka í Skálavík
Guðrún Pálmadóttir
húsfr. í Bolungarvík og í Garði
Þorvalda Hulda
Sveinsdóttir
húsfr. á Norðfi rði
Baldur Guðmundsson
trésmíðam. og sjóm.
Gylfi Guðmundsson
fv. skólastj. í Reykjanesbæ
Helgi Guðmundsson
fyrrv. bæjarfulltr. á Akureyri
og síðasti ritstj. Þjóðviljans
Eyjólfur Jóhannsson
forstj. í Rvík
Jóhann Eyjólfsson
form. knattspyrnuf. Vals, Íslandsm. í golfi
og þrisvar heims meistari öldunga í golfi
Jón Stefánsson
fyrrv. bæjarstj. í
Grindavík
Soffía Pétursdóttir
húsfr. í Kalastaðakoti
Jón Sigurðsson
hreppstj. í
Kalastaðakoti
Sigríður Jónsdóttir
húsfr. í Rvík
Guðmundur Jóhannsson
kaupm. og bæjarfulltr. í Rvík
Ingibjörg Guðmundsdóttir
húsfr. og framkvstj. í Rvík
Ingibjörg Jóhanna
Sigurðardóttir
húsfr. í Sveinatungu
Jóhann Eyjólfsson
b. og alþm. í Sveinatungu í
Hvítársíðu, af Háafellsætt
Haukur Sveinsson
póstfulltr. í Hafnarfi rði og skákmeistari
Sveinn Halldórsson
skólastj. í Bolungarvík og Garði
Ingunn Árnadóttir
húsfr. á Skeggjastöðum
Halldór Halldórsson
b. á Skeggjastöðum í Garði
Bankastræti 6 | sími 551 8588 | gullbudin.isBankastræti 12 | Sími 551 4007 | skartgripirogur.is
Tissot, Raymond Weil, Certina, Michael Kors,
Tommy Hilfiger, Casio o.f.l
á völdum vörum
30-70% afsláttur
ÚTSALA
„FREKAR SLÖPP MÆTING. ÞÚ
ÆTTIR KANNSKI AÐ HALDA ÞIG VIÐ
VEIÐARNAR.”
„ÉG ÆTLA AÐ FÁ KRÚTTÍ-BÚTTÍ-
BJÚTÍBOLLURNAR OG HÚN ÆTLAR AÐ FÁ
KAFFIBOLLA.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar þú ert
glampinn í augum hans.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
FÓÐRAÐU
MIG
ÞETTA KOSTAR
PENINGA!
FÓÐRAÐU
MIG ÞÁ
SAGT ER AÐ INNST INNI SÉU
DREKAR VÆNSTU GREY !
JÁ, EN HVER VILL VERA INNST INNI Í DREKA?
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Flytja manni ljúfust lög.
Lög í vegg ég hugsa’ um.
Sárum valda sviða mjög.
Svo eru þeir á buxum.
Harpa á Hjarðarfelli svarar:
Á hljóðfærum menn strengi strjúka.
Strengi í vegghleðslum má sjá.
Strengir vöðva meiða mjúka.
Mittisstrengir buxum á.
Eysteinn Pétursson segist fara að
dæmi Helga R. Einarssonar og
senda tvær vísur með lausn. Hér er
önnur þeirra:
Ómar ljúft frá stilltum streng.
Strengur í vegg er flatur.
Strengir koma strák í keng.
Minn strengur buxna er latur.
Guðrún Bjarnadóttir svarar:
Gítarstrengur gaf þeim tón
þá gæðastreng í hleðslu stungu.
Strengi í vöðva hrepptu hjón,
hertu buxnastreng og sungu.
Baldur Hafstað leysir gátuna
þannig:
Vísnagátan gleður sál
– gott er að daginn lengir.
Það er alveg augljóst mál
að orðið það er „strengir“.
Þá er það lausnin frá Helga R.
Einarssyni:
Í hljóðfærum og hleðslum er.
Með harðsperrum þá fengir.
Á buxunum um mitti mér.
Mismunandi strengir.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Hljóma lög frá hörpustrengjum.
Í hlöðnum vegg ég strengi sá.
Stirðleik valda strengir drengjum.
Strenginn buxna herða má.
Þá er limra:
Strengina strauk oft lengi
strákurinn Lars á Engi
af dýslegum funa
á dansleik í Hruna,
og daginn eftir fékk strengi.
Síðan er ný gáta eftir Guðmund:
Vetrartíð þá gerist grimm,
geisa hríðarélin dimm,
gáta lýði getur kætt
geðið víða hresst og bætt:
Allvel nefið nærir sá.
Nota undir klinkið má.
Óþekkur skal á hann fá.
Orðið stundum haft um krá.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Þrefaldur strengur
slitnar trautt