Morgunblaðið - 18.01.2020, Síða 40

Morgunblaðið - 18.01.2020, Síða 40
40 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2020 Holland B-deild: Excelsior – Telstar .................................. 3:3  Elías Már Ómarsson lék allan leikinn fyrir Excelsior og skoraði tvö mörk. Belgía B-deild: Lommel – Lokeren .................................. 1:0  Kolbeinn Þórðarson var í byrjunarliði Lommel. England B-deild: Fulham – Middlesbrough ........................ 1:0 Þýskaland Schalke – Mönchengladbach................... 2:0  EM karla 2020 MILLIRIÐILL II, Malmö: Slóvenía – Ísland .................................. 30:27 Noregur – Ungverjaland ..................... 36:29 Portúgal – Svíþjóð............................... 35:25  Kristján Andrésson þjálfar Svíþjóð. Staðan: Noregur 2 2 0 0 70:57 4 Slóvenía 2 2 0 0 51:46 4 Portúgal 2 1 0 1 63:59 2 Ungverjaland 2 1 0 1 53:54 2 Ísland 2 0 0 2 45:54 0 Svíþjóð 2 0 0 2 44:56 0 Svíþjóð B-deild: Kristianstad – Drott............................ 37:18  Andrea Jacobsen skoraði sjö mörk fyrir Kristianstad. Grill 66 deild kvenna Grótta – Fram U................................... 23:31 Fjölnir – ÍR ........................................... 23:23 Staðan: Fram U 13 13 0 0 434:301 26 FH 12 9 1 2 335:266 19 Selfoss 12 8 2 2 280:258 18 Grótta 13 8 1 4 321:306 17 ÍR 13 7 1 5 337:320 15 Valur U 12 6 1 5 323:304 13 ÍBV U 12 5 1 6 306:304 11 Fjölnir 13 4 1 8 310:348 9 Stjarnan U 12 3 1 8 287:331 7 HK U 12 3 1 8 296:349 7 Fylkir 12 3 0 9 236:269 6 Víkingur 12 0 0 12 270:379 0   Dominos-deild karla Þór Ak. – Þór Þ..................................... 83:76 Grindavík – Haukar ............................. 73:88 Stjarnan – Tindastóll ........................... 73:66 Staðan: Stjarnan 14 12 2 1288:1141 24 Keflavík 14 11 3 1252:1142 22 Tindastóll 14 9 5 1218:1159 18 Njarðvík 14 8 6 1179:1075 16 KR 13 8 5 1091:1073 16 Haukar 14 8 6 1244:1197 16 ÍR 14 7 7 1139:1203 14 Þór Þ. 14 6 8 1120:1146 12 Grindavík 14 5 9 1180:1239 10 Þór Ak. 13 4 9 1070:1207 8 Valur 14 4 10 1119:1204 8 Fjölnir 14 1 13 1196:1310 2 1. deild karla Höttur – Selfoss.................................... 85:64 Álftanes – Snæfell ............................ 127:110 Hamar – Skallagrímur....................... 110:78 Sindri – Vestri..................................... 75:101 Staðan: Höttur 14 13 1 1218:1060 26 Hamar 14 12 2 1397:1237 24 Breiðablik 13 11 2 1314:1086 22 Vestri 12 7 5 1058:956 14 Álftanes 14 6 8 1205:1241 12 Selfoss 12 4 8 909:964 8 Snæfell 14 2 12 1127:1370 4 Skallagrímur 12 2 10 999:1176 4 Sindri 11 1 10 883:1020 2 Evrópudeildin Rauða stjarnan – Alba Berlín ... (frl.) 85:94  Martin Hermannsson skoraði 13 stig og gaf tvær stoðsendingar fyrir Alba Berlín. Rússland Zielona Gora – UNICS Kazan.......... 89:100  Haukur Helgi Pálsson skoraði 13 stig, tók fjögur fráköst og gaf tvær stoðsend- ingar fyrir UNICS Kazan. Svíþjóð Jämtland – Borås............................... 75:103  Elvar Már Friðriksson skoraði 18 stig, tók fjögur fráköst og gaf ellefu stoðsend- ingar fyrir Borås. NBA-deildin New York – Phoenix .......................... 98:121 Milwaukee – Boston ......................... 128:123 New Orleans – Utah ................ (frl.) 138:132 Golden State – Denver ............ (frl.) 131:134 LA Clippers – Orlando....................... 122:95   Í GARÐABÆ Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Ekkert fær Stjörnuna stöðvað í Dominos-deild karla í körfubolta. Liðið vann sanngjarnan 73:66-sigur á Tindastóli á heimavelli í 14. um- ferðinni í gær. Sigurinn var sá tí- undi í röð hjá meistaraefnunum. Allt annað en Íslandsmeistaratitill yrði vonbrigði í Garðabænum. Liðið var efst um áramótin, en þrátt fyrir það náði félagið bæði í Gunnar Ólafsson og Urald King, til að gera gott lið enn betra. Það er öllu tjaldað til og það er að skila sér. Nikolas Tomsick, sem spilaði vel með Þór Þorlákshöfn á síðustu leik- tíð, og Ægir Þór Steinarsson ná ein- staklega vel saman. Þeir bjuggu til ófá færi hvor fyrir annan. Bolta- hreyfing Stjörnunnar var til algjörr- ar fyrirmyndar og var alltaf beðið eftir besta færinu í sókninni. Hinum megin verjast Stjörnu- menn betur en flest önnur lið á landinu og það er eflaust mjög þreytandi að spila á móti liðinu. Ægir Þór Steinarsson og Gunnar Ólafsson eru eins og býflugur sem líma sig á sóknarmenn andstæðing- anna og hægja á þeim og pirra. Hlynur Bæringsson og Urald King eru svo eins og kóngar í ríki sínu að berjast um fráköstin. Það er fáa veikleika að finna hjá Stjörnuliðinu, enda hefur Stjarnan ekki tapað síð- an 25. október gegn Keflavík. Þá lék Hlynur Bæringsson ekki með liðinu og Urald King og Gunnar Ólafsson voru ekki komnir í félagið. Þeir verða væntanlega með þegar Stjarnan heimsækir Keflavík í næstu umferð í einvígi toppliðanna. Það verður fróðlegt að sjá hvort Keflavík geti töfrað fram einhverja lausn gegn Stjörnunni, en aðeins tvö stig skilja liðin að á toppnum. Eftir góðan kafla fyrir áramót hefur Tindastóll nú tapað þremur af síðustu fimm og virðist skrefi fyrir neðan bestu lið deildarinnar. Tinda- stólsmenn spiluðu ágætlega í gær, en mættu einfaldlega betra liði. Það þarf ekki að skammast sín fyrir að tapa á móti Stjörnunni á útivelli.  Haukar náðu að binda saman tvo sigra í röð þegar liðið heimsótti Grindavík í Mustad-höllina í Grinda- vík í gær en leikum lauk með 88:73- sigri Hauka. Grindvíkingar byrjuðu leikinn illa og Haukar leiddu með ellefu stigum í hálfleik, 46:35. Grind- víkingum tókst að minnka forskot Hauka í þrjú stig fyrir fjórða leik- hluta en Hafnfirðingar voru mun sterkari í fjórða leikhluta. Flenard Whitfield var stigahæstur í liði Hauka með 20 stig og tólf fráköst en Hafnfirðingar eru í sjötta sæti deildarinnar með 16 stig. Grindavík er áfram í níunda sætinu með 10 stig.  Þór Akureyri er komið úr fall- sæti eftir sjö stiga sigur gegn Þór frá Þorlákshöfn í Höllinni á Ak- ureyri í gær. Leiknum lauk með 83:76-sigri Þórsara en staðan í hálf- leik var 49:40, Akureyringum í vil. Terrence Motley var sem fyrr at- kvæðamestur í Akureyrarliðinu með 20 stig og átta fráköst. Þetta var þriðji sigur Akureyringa í röð en þeir fara með sigrinum upp í tíunda sæti deildarinnar í 8 stig og upp fyr- ir Valsmenn sem eru komnir í fall- sæti. Þá eiga Akureyringar leik til góða á liðin fyrir neðan sig, Val og Fjölni. Þór Þorlákshöfn er í áttunda sætinu með 12 stig. Meistaraefnin í Stjörnunni óstöðvandi  Þriðji sigur Akureyringa í röð sendi Val í fallsæti  Haukar unnu Grindavík Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Þristar Ægir Þór Steinarsson nýtti öll fimm þriggja stiga skotin sín. Liverpool og Manchester United mætast í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu síð- degis á morgun, á Anfield. United er eina liðið sem hefur tekið stig af Liverpool í vetur en liðin skildu jöfn á Old Trafford í fyrri umferðinni. Litlar líkur eru á Marcus Rashford verði með United vegna meiðsla en hann hefur skorað 14 mörk í deildinni í vetur. Hjá Liverpool eru Joel Matip og Fabinho báðir orðnir leikfærir eftir langa fjarveru en James Milner, Naby Keita og Dejan Lovren eru allir meiddir. Liver- pool er með fjórtán stiga forskot á Manchester City á toppi deildarinnar en United er í fimmta sæti, 27 stigum á eftir Liverpool.  Enginn Íslendingur tekur þátt í 23. umferðinni um helgina því bæði Gylfi Þór Sigurðsson og Jóhann Berg Guðmundsson missa af leikjum sinna liða. Gylfi glímir við minniháttar nárameiðsli og verður ekki með gegn West Ham í London í dag og Jóhann er ekki orðinn leikfær eftir að hafa tognað aftan í læri 5. janúar en er byrjaður að æfa á ný. Hann nær þó ekki að spila gegn Leicester á morgun. vs@mbl.is Erkifjendur mætast á morgun Marcus Rashford Hilmar Snær Örvarsson úr Víkingi heldur áfram að gera það gott í skíðabrekkunum. Í gær vann hann til silf- urverðlauna í svigi á alþjóðlegu heimsbikarmóti fatlaðra í Prato Nevoso á Ítalíu. Finninn Santeri Kilveri sigraði og var um þremur sek- úndum á undan Hilmari. Hilmar keppti á tveimur öðrum mótum á Ítalíu en féll í fyrstu tveimur. Hilmar Snær byrjar nýja árið á svipuðum nótum og hann lauk því fyrra en rétt fyrir jól fékk hann silfur í svigi í Sviss á Evrópumótaröð IPC en nú var um heims- bikarmótaröð IPC að ræða. Hilmar er væntanlegur aftur til Íslands í dag en í lok janúarmánaðar heldur hann til Jansa í Slóvakíu til að taka þátt í móti innan Evrópumótaraðarinnar. kris@mbl.is Hilmar fékk silfur á Ítalíu Hilmar Snær Örvarsson Þýska knattspyrnufélagið Paderborn hefur gengið frá kaupum á landsliðsmanninum Samúel Kára Friðjónssyni frá norska félaginu Vålerenga og hann hefur skrifað undir samning til sumarsins 2022. Samúel er 23 ára Kefl- víkingur og leikur sem miðjumaður. Hann fór 17 ára frá Keflavík til Reading á Englandi en þaðan til Vålerenga 2016. Á síðasta tímabili var hann lánaður til Viking Stav- anger og lék 28 af 30 leikjum liðsins í norsku úrvals- deildinni og skoraði 3 mörk. Samúel hefur leikið 8 A- landsleiki fyrir og var í landsliðshópnum sem var á HM í Rússlandi sumarið 2018. Hann lék 43 leiki fyrir yngri landsliðin og var í landsliðshópnum sem var valinn fyrir Kaliforníuferðina sem nú stendur yfir en þurfti að draga sig út úr honum. Paderborn er nýliði í þýsku 1. deildinni, efstu deildinni þar í landi, og lék í 3. deild fyrir tveimur árum. Það situr á botninum en náði góðum úrslitum í síðustu leikjum fyrir jól og styrkti stöðu sína talsvert. Liðið á heimaleik gegn Leverkusen á morgun. vs@mbl.is Samúel Kári til Þýskalands Samúel Kári Friðjónsson Emil Ásmundsson og Finnur Tómas Pálmason, leikmenn Íslandsmeist- ara KR í knattspyrnu, eru báðir meiddir þessa stundina en þetta staðfesti Rúnar Kristinsson, þjálf- ari KR, í samtali við 433.is í gær. Emil er með slitið krossband og leikur ekkert með liðinu næsta sumar en hann kom til félagsins frá Fylki í október á síðasta ári. Þá er Finnur Tómas ristarbrotinn og á leið í aðgerð. Það er því líklegt að efnilegasti leikmaður úrvalsdeild- arinnar á síðustu leiktíð missi af byrjun tímabilsins í sumar. Meiðsli herja ámeistarana Ljósmynd/@KRreykjavik Meiddur Emil Ásmundsson missir af tímabilinu með KR vegna meiðsla. Elvar Már Friðriksson heldur áfram að gera það gott fyrir topplið Borås í efstu deild Svíþjóðar í körfuknattleik en Íslendingurinn skilaði tvöfaldri tvennu í 28 stiga sigri gegn Jamtland á útivelli í gær. Leiknum lauk með 103:75-sigri Borås en Elvar skoraði 18 stig og gaf ellefu stoðsendingar. Elvar var næststigahæstur í liði Borås sem er nú með 40 stig á toppi deildarinnar. Koping Stars kemur þar á eftir með 36 stig en Koping Stars á leik til góða á Borås. Luleå er í þriðja sæt- inu með 36 stig. Tvöföld tvenna í stórsigri á útivelli Ljósmynd/Borås Tvenna Elvar Már Friðriksson hef- ur farið á kostum á tímabilinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.