Morgunblaðið - 18.01.2020, Qupperneq 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2020
Fyrri heimsstyrjöldin hefuraldrei verið sveipuð nein-um sérstökum dýrðar-ljóma og það eru fáar
kvikmyndir sem gerðar hafa verið
um hana eftir seinni heimsstyrjöld
sem hafa náð að vekja mikla athygli
nema ef ske kynni að vera hin stór-
fenglega mynd Stanleys Kubrick frá
1957, Paths of Glory. Þá má einnig
nefna bestu útgáfuna af Tíðindalaust
á vesturvígstöðvunum, sem gerð var
á millistríðsárunum. Báðar þær
myndir eiga það sameiginlegt að
draga enga dul á þann hrylling sem
fólst í fyrri heimsstyrjöld með skot-
grafahernaði og fórnum milljóna
manna.
Á sama tíma er vart hægt að hafa
tölu á þeim kvikmyndum sem gerðar
hafa verið um seinni heimsstyrjöld-
ina. Oftar en ekki er hægt að lýsa
þeim myndum þannig að góðu kall-
arnir ná að lumbra á þeim vondu, en
í seinni tíð hafa þónokkrar myndir,
eins og Dunkirk eða Saving Private
Ryan, reynt að sýna þá styrjöld í öllu
raunverulegra ljósi.
En enn má fyrri heimsstyrjöld
sitja á hakanum þegar kemur að
kvikmyndagerð. Leikstjóranum
Sam Mendes (American Beauty,
Skyfall) hefur greinilega þótt tíma-
bært að breyta því. Hann tileinkar
kvikmyndina 1917 afa sínum, með
þökk fyrir allar sögurnar úr fyrri
heimsstyrjöld og er víst að handrit
hans og Krysty Wilson-Carr er að
einhverju leyti byggt á þeim frá-
sögnum.
Undirforingjarnir Will Schofield
(George Mackay) og Tom Blake
(Dean-Charles Chapman) eru að
njóta vorsólarinnar í Belgíu þegar
yfirmaður þeirra kemur og vekur þá
af værum draumi. Þeir fá skipanir
frá hershöfðingjanum Erinmore
(Colin Firth) um að þeir þurfi að fara
í hættulega sendiför. Einn af
ofurstum Erinmores hefur fallið í
gildru Þjóðverja og allar símalínur á
milli hafa verið slitnar. Blake og
Schofield þurfa því að hætta sér út á
einskismannslandið milli skotgraf-
anna í þeirri von að þeir geti afstýrt
því að 1.600 manns verði sendir út í
opinn dauðann. Til að bæta gráu of-
an á svart er eldri bróðir Blakes liðs-
foringi í hersveitinni sem er í eldlín-
unni.
Ef einhverjir lesendur telja eftir
þessa lýsingu að söguþráðurinn í
1917 sé í raun nokkurs konar Saving
Private Ryan, bara í fyrri heims-
styrjöldinni, þá er hægt að fyrirgefa
það. Líkt og í Saving Private Ryan
er engum tíma sóað áður en áhorf-
andanum er dembt beint í skotgraf-
irnar og beint í hrylling heimsstyrj-
aldarinnar.
Og Quelle horreur! Blake og Scho-
field fara í gegnum eld og brenni-
stein, lenda í gaddavír, rottum, ótelj-
andi fjölda líka sem rotna út um allt,
bæði manna og dýra, auk þess sem
hættan af Þjóðverjum er alltum-
lykjandi.
Til að magna upp hættuna og láta
áhorfandann tengjast þeim Blake og
Schofield betur hafa Mendes og
kvikmyndatökumaðurinn Roger
Deakins (O, Brother Where Art
Thou, Blade Runner 2049) farið þá
leið að láta myndavélina elta þá
Schofield og Blake án þess að klippt
sé sýnilega á milli atriða, nema einu
sinni um miðja mynd.
Þessi einnar töku tækni, sem sást
einna fyrst í Hitchcock-myndinni
Rope, hefur bæði þau áhrif að mynd-
in, sem hefði auðveldlega getað orðið
að fremur dæmigerðri og óeftir-
minnilegri stríðsmynd, verður mikl-
um mun persónulegri. Áhorfandinn
er ekki bara að horfa á þá félaga
reyna að klára sendiför sína, hann er
með þeim hvert skref leiðarinnar.
Manni bregður nánast við hverja
einustu byssukúlu sem þýtur, og hin-
ar fáu stundir sem gefast milli stríða
gera mann engan veginn reiðubúinn
til þess að takast á við næstu skref í
hinni ómögulegu sendiför. Það kæmi
allavega verulega á óvart ef 1917,
sem þegar hefur unnið til Golden
Globe-verðlaunanna, næði ekki að
hreppa nokkur Óskarsverðlaun, þá
ekki síst fyrir kvikmyndatökuna.
Vert er að hrósa þeim George
Mackay og Dean-Charles Chapman
sérstaklega fyrir leik sinn í aðal-
hlutverkum myndarinnar, sem hinir
dæmigerðu Bretar sem vita vart
hvers vegna þeir eru komnir í þessa
stöðu að vera að berjast í landi sem
þeir hafa aldrei komið til áður, kvíð-
andi öllum heimsóknum sínum aftur
heim með þá vitneskju að bráðum
þurfi þeir að snúa aftur í hinn
ómanneskjulega hrylling.
Þegar öllu var lokið sat ég eftir
skelkaður og hrærður, nánast í losti
eftir að hafa horft á þessa mynd. Það
eina sem ég get sagt 1917 til hnjóðs
er að á stundum skortir á tilfinninga-
dýpt myndarinnar. Aðrir karakterar
myndarinnar koma fyrir í stuttum
senum og það má velta fyrir sér
hvort rétt hafi verið af Mendes að
setja þekkta leikara í sum hlutverkin
þar sem athygli áhorfandans getur
þá frekar beinst að því að þarna sé
Colin Firth, eða Richard Madden
(Game of Thrones, Bodyguard), eða
Benedict Cumberbatch á ferð, held-
ur en myndinni.
Sú staðreynd dregur þó ekki úr
því að hér er á ferðinni einstakt
meistaraverk úr smiðju Sam Mend-
es, mynd sem hreinlega kallar á að
farið sé á hana í bíó. Á sama tíma er
1917 þörf og tímabær viðvörun um
hörmungar styrjalda.
Dembt beint í skotgrafirnar
Í skotgröfunum Myndin færir hrylling fyrri heimsstyrjaldar á hvíta tjaldið með mögnuðum hætti.
Sambíóin
1917 bbbbm
Leikstjóri: Sam Mendes. Handrit: Sam
Mendes og Krysty Wilson-Cairns. Aðal-
hlutverk: George MacKay, Dean-Charles
Chapman, Mark Strong, Andrew Scott,
Richard Madden, Claire Duburcq, Colin
Firth og Benedict Cumberbatch. Banda-
ríkin og Bretland, 2019. 119 mín.
STEFÁN GUNNAR
SVEINSSON
KVIKMYNDIR
Barbara Broccoli segir njósnarann
James Bond verða framvegis, líkt
og hingað til, karlkyns. Því er ljóst
að annar karl mun taka við kyndl-
inum af Daniel Craig sem leikið
hefur Bond í fimm kvikmyndum en
sú fimmta og síðasta, No Time To
Die, verður frumsýnd í apríl.
Broccoli og hálfbróðir hennar,
Michael G. Wilson, hafa yfirumsjón
með framleiðslu Bond-myndanna.
„Hvort sem fólki líkar betur eða
verr erum við forræðismenn þess-
arar persónu. Við tökum þá ábyrgð
alvarlega,“ segir Broccoli í viðtali í
kvikmyndatímaritinu Variety og að
Bond megi vera af hvaða kynþætti
sem er en þó alltaf karl. „Að mínu
mati ættum við að búa til nýjar per-
sónur fyrir konur, sterkar kvenper-
sónur. Ég hef heldur lítinn áhuga á
því að láta konu leika karlkyns per-
sónu. Ég tel konur mun áhugaverð-
ari en svo,“ segir Broccoli.
Í væntanlegri Bond-mynd mun
leikkonan Lashana Lynch taka að
sér starf njósnara eftir að Bond læt-
ur af störfum. Bond mun þó fljót-
lega snúa aftur, ef marka má fyrri
myndir um hann. Lynch kom fyrst
fyrir sjónir Bond-unnenda í stiklu
fyrir myndina og komst þá sá orð-
rómur á kreik að kona myndi taka
við sem 007.
Bond-konur Leikkonan Lashana Lynch
með framleiðandanum Barböru Broccoli.
Bond verður alltaf
karl, segir Broccoli
AFP
ICQC 2020-2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
LOKAKAFLINN
Í SKYWALKER SÖGUNNI
F ROM T HE D I R E C TOR OF S K Y FA L L
dfgsdfg
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
6 ÓSKARSTILNEFNINGAR