Morgunblaðið - 18.01.2020, Page 45
MENNING 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2020
Rafvörumarkaðurinn við Fellsmúla | Sími: 585 2888
OPIÐ ALLA DAGA
Mán. til fös. kl. 9–18
Laugard. kl. 10–16
Sunnud. kl. 12–16
afsláttur af völdum
vörum.
Allt að
70%
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Raftónlistarútgáfa hérlendisvar með heilbrigðasta mótiá síðasta ári. Hérlendis er
næstum rangnefni reyndar, því að
margir af okkar helstu listamönn-
um gera að langmestu leyti út á er-
lendan markað. Agzilla gaf t.d. út á
Metalheadz, Bjarki gaf út á !K7 Re-
cords (Berlín) og Exos gaf út á Fig-
ure (Berlín). Hér heima voru Móat-
ún, Möller Records, Lagaffe Tales
og FALK iðin við kolann að vanda
og slatti af plötum
komu út á þeirra
vegum. Plássið hér
gefur mér ekki
færi á frekari upp-
talningu. FALK
gaf t.d. út þessa
ljómandi fínu
plötu Milenu Glowacka, Radiance,
og allt á hreinu, bæði tónlistarlega
og umslagslega. Fullorðins. Plöt-
unni er hægt að streyma en einnig
kom út snælda í takmörkuðu upp-
lagi. Milena Glowacka fluttist hing-
að til lands fyrir tveimur árum.
Hún er teknólistamaður í grunninn,
lögin eru naumhyggjuleg og nokk
köld, grúva vel en eru um leið með
nægilega mikið af „skrýtnum“ hlut-
um í gangi ef svo mætti segja. Mi-
lena fluttist frá Varsjá til Reykja-
víkur með það að markmiði að
komast í minna stressandi umhverfi
en hún hefur gefið út hjá merkjum
eins og Semantica, Delirio og Van-
ity Pill. Hún varð snemma tónlistar-
áhugamaður og hlustaði á uppá-
haldstónlistina sína, vopnuð
Ljómandi gott
Walkman-segulbandstækinu góða.
Einhverju sinni stillti hún fyrir til-
viljun inn á útvarpsstöð sem var að
senda út teknótónlist. Hrifin seild-
ist hún eftir kassettu og tók allt
saman upp. Enginn í nærumhverf-
inu gat upplýst hana um hvað þetta
væri nákvæmlega en hún hélt
áfram að hlusta, í hverri viku.
Þrettán ára fékk hún svo sína
fyrstu tölvu og hóf að semja tónlist
inn á hana.
Í viðtali við teknóritið Monu-
ment lýsir hún því hvernig hún
valdi Ísland sem stað fyrir nokkurs
konar endurræsingu. Í sama viðtali
viðurkennir hún að hún sé ekki
endilega í miklu sambandi við hér-
lenda teknólistamenn þó að það sé
allt að koma.
Eins og segir, það mætast
nokkrir straumar í tónlist Milenu,
a.m.k. á Radiance. Lögin eru takt-
viss en um leið dálítið drungaleg,
nánast lágstemmd og minni úr
„ambient“-tónlist og tilrauna-
mennsku gera vart við sig. Eitt lag-
ið er t.a.m. fremur hægt, grjóthart
og gæti verið úr einhverri hryll-
ingsmyndinni (kvikmyndatónlist er
eitthvað sem Milena gæti hugsað
sér að sinna í framtíðinni). Lagið
kallast þá hinu snilldarlega nafni
„You are such a Dissapointment“.
Milena staðfestir þessi hughrif
pistilritara í áðurnefndu viðtali,
hún leitist við að hafa lögin tilfinn-
ingaþrungin, sýruskotin og drunu-
miðuð jafnvel („drone“). Hún hefur
þá einnig gefið út „ambient“-tónlist
sem Plus Size, þar sem óhljóðalist
og vettvangsupptökur mynda m.a.
hljóðmyndina. Það verkefni sé hins
vegar á ís eins og er. Nú sé Milena
Glowacka, listamaðurinn, í for-
grunni og hún sé þá hætt að troða
upp sem plötusnúður, nú komi hún
eingöngu fram með eigin tónlist.
Þar finni hún sig algerlega, það sé
afar gefandi að leika eigin smíðar
fyrir fólkið. Eins og áður segir,
Radiance var með skemmtilegri út-
gáfum á síðasta ári, hressandi bú-
bót því að fyrir það fyrsta eru kon-
ur ekki fjölmennar í
raf/danstónlistarsenunni, hvað þá
að fólk af erlendu bergi brotið, bú-
sett hér, sé virkt í tónlistarsenu
landsins. Er þetta því vel. Lifi fjöl-
breytnin.
» Lögin eru naum-hyggjuleg og nokk
köld, grúva vel en eru
um leið með nægilega
mikið af „skrýtnum“
hlutum í gangi.
Ein besta útgáfan á síð-
asta ári úr heimi dans-
og raftónlistar var plat-
an Radiance. Höfundur
er Milena Glowacka,
Pólverji sem búsettur
er hér á landi.
Teknó Milena
Glowacka er í
senn takföst og
tindilfætt.
Curver Thoroddsen opnar sýningu í
dag í Midpunkt í Hamraborg í Kópa-
vogi. Curver hefur komið víða við í
listinni, unnið sem myndlistamaður,
kennari og tónlistarmaður, og kanna
verk hans, oft á tíðum, bæði manns-
líkamann og tæknina með góðlátleg-
um húmor fyrir listamanninum sjálf-
um og næmu auga.
Á sýningunni sem Curver opnar í
dag, Kynslóðabil, mætast faðir og
sonur á stórum velli og taka hvor
annan upp, eins og því er lýst í til-
kynningu. Sonurinn, ungur drengur,
mætir vopnaður með flygildi sem
flýgur um með háupplausnarupp-
tökuvél og faðirinn beitir 8 mm
myndavél. Á sýningunni mætast því
ólíkar kynslóðir og ólík tækni og er
þessu líkt við boltakast feðga eða átök
kynslóða.
Curver er þekktur fyrir það sem
hann sjálfur nefnir raunveruleika-
gjörninga. Þar setur hann daglegt líf
og gjörðir í listrænt samhengi, færir
eigið einkalíf inn á vettvang liststofn-
ana eða beinir kastljósi myndlistar að
sjálfum sér í amstri hversdagsins.
Hefur hann tekið íbúðina sína í gegn,
haldið upp á jólin í beinni á netinu,
farið í megrun og borðað fjölda ham-
borgara í nafni myndlistar, svo dæmi
séu tekin. Verk hans vekja upp
spurningar um hlutverk listamanna í
samfélaginu og eðli listsköpunar og
-upplifunar en þau endurspegla jafn-
framt málefni líðandi stundar, dæg-
urmenningu og tíðaranda, segir í til-
kynningu.
Curver stundaði nám í myndlist við
Listaháskóla Íslands, útskrifaðist
þaðan með BA-gráðu árið 2000 og
hlaut MFA-gráðu frá School of Visual
Arts í New York árið 2009. Hann
starfar einnig sem tónlistarmaður í
ýmsum verkefnum og þá m.a. sem
hluti af hljómsveitinni Ghostigital.
Feðgar mæt-
ast í Midpunkt
Feðgafjör Curver og sonur hans,
Hrafnkell Tími Thoroddsen, árið
2009. Hrafnkell er orðinn 11 ára.
Páll Palomares fiðluleikari, Ólöf Sig-
ursveinsdóttir sellóleikari og Bjarni
Frímann Bjarnason píanóleikari
flytja tónlist úr austurvegi á fyrstu
tónleikum Kammermúsíkklúbbsins
á nýju ári sem haldnir verða í Norð-
urljósum Hörpu á morgun, sunnu-
dag, kl. 16. Fyrra verk tónleikanna
er Dúó fyrir fiðlu og selló op. 7 eftir
ungverska tónskáldið, heimspeking-
inn og málvísindamanninn Zoltán
Kodály. Hið seinna er Trio élég-
iaque nr. 2 í d-moll op. 9 eftir rúss-
neska píanóleikarann og tónskáldið
Sergei Rakhmanínov. Tónleikarnir
fara fram innan tónleikaraðarinnar
Sígildir sunnudagar í Hörpu.
„Meginframlag Zoltáns Kodálys
til evrópskrar menningar var þjóð-
lagasöfnunin sem hann stundaði um
árabil af mikilli elju ásamt vininum
og kolleganum Béla Bartók. Með
dugnað, ósérhlífni og afar frum-
stæðan upptökubúnað að vopni
tókst þeim félögum að safna þús-
undum þjóðlaga frá austanverðri
Evrópu í upphafi síðustu aldar.
Hefði ekki verið fyrir framsýni
Kodálys og Bartóks hefði þessi
merkilega tónlist glatast. Auk þess
að skrá og rita lögin niður birtast
þau í fjölda tónverka þeirra. Meðal
annars notaði Kodály ungversk
þjóðlög í Dúóið op. 7 fyrir fiðlu og
selló frá árínu 1914. Verkið er gott
dæmi um hvernig nota má þjóðleg
stef og ryþma í hefðbundinni vest-
rænni tónlist.
Sergei Rakhmanínov samdi tvö
píanótríó, sem bæði nefnast Trio
élégiaque. Hið seinna var samið árið
1893, er Rakhmanínov var tvítugur.
Líkt og í fyrra tríóinu er skuggi
Tsjajkovskíjs hér alls staðar og allt
um kring, enda er verkið samið í
minningu hins síðarnefnda. Er eins
konar sorgaróður um hið látna þjóð-
artónskáld Rússa, sem Rakhman-
ínov dáði mjög,“ segir í tilkynningu.
Hæfileikafólk Páll Palomares,
Bjarni Frímann Bjarnason og Ólöf
Sigursveinsdóttir á æfingu.
Tónlist úr austurvegi í
Norðurljósum Hörpu
Fyrstu tónleikar
ársins hjá Kamm-
ermúsíkklúbbnum