Morgunblaðið - 27.01.2020, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2020
Bi
ðf
i
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a
ð frá kr.
209.995
r
JÓGAÁKRÍT
– fáðumeira út úr fríinu
Hreyfiferð 2. júní í 10 nætur
Jafnt fyrir byrjendur
sem lengra komna
aaaaa
irv
a
DVALIÐ Á ALOE BOUTIQUE & SUITES
-meðAuði Bjarnadóttur
Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70
hitataekni.is
Sjálfvirk, raka-og hitastýring, fer sjálfkrafa í gang þegar
ljós eru kveikt eða við hreyfingu í rými.
Klimat K7 er fjölnota vifta, þróuð
og framleidd í Svíþjóð.
– sjö viftur í einni
Ein sú hljóðlátasta á markaðinum (17-25 dB)
„Sólarkaffið boðar nýtt upphaf, eftir erfiða tíð,“ segir
Guðmundur Gunnarsson bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ.
Hefðum samkvæmt voru pönnukökur víða bornar fram
vestra sl. laugardag, 25. janúar. Þann dag fer aftur að
sjást til sólar úr Sólgötu á Ísafirði eftir um tveggja
mánaða hlé. Veturinn er á undanhaldi.
Guðmundur og hans fólk litu inn á kaffihúsið Heima-
byggð á Ísafirði og gæddu sér á pönnukökum. Og hér
eru þau á mynd, Guðmundur, Bergrós Lilja Jónsdóttir
og Noella Pepins fjölskylduvinir, og loks Lóa Katrín
sem er dóttir þeirra Guðmundar og Kristjönu Millu
Snorradóttur, sem er lengst til hægri.
Ljósmynd/ Halldór Sveinbjörnsson
Loksins Sólarkaffi eftir erfiða tíð
Flóð í Hvítá í Árnessýslu er í
rénun. Ísstífla hefur valið því að
síðustu daga hefur áin flætt yfir
bakka sína milli bæjanna Austur-
kots og Brúastaða sem eru efst í
flóanum og liggur vatn nú yfir víð-
feðmum svæðum á þessum slóðum.
Vegir heim að bæjum á þessum
slóðum hafa aðeins verið færir
stórum bílum. Skemmdir af völdum
þessara hamfara koma ekki í ljós
fyrr en vatn sjatnar, en Steinþór
Guðmundsson, bóndi í Oddgeirs-
hólum, telur spjöllin verða óveru-
leg.
„Núna er heldur að kólna í veðri,
þá verður rennslið í ánni minna og
staðan skánar,“ segir Steinþór og
bætir við að flóðið nú sé í minna
lagi miðað við þær gusur sem
þarna hafa komið. Fylgst er vel
með framvindu við Hvítá af lög-
reglu og Veðurstofu. sbs@mbl.is
Hvítárflóð er á undanhaldi
Ljósmynd/Guðmundur Karl Sigurdórsson
Oddgeirshólar Flóðavatn fer yfir stór svæði í Flóa og vegir eru torfærir.
Flói á floti Kólnar og sjatnar Fylgst með framvindu
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Eflingarfólk sem starfar hjá
Reykjavíkurborg fer í verkfall í há-
deginu þriðjudaginn 4. febrúar tak-
ist ekki samningar fyrir þann tíma.
Atkvæðagreiðsla um boðun verk-
fallsins hófst í sl. viku og lauk í há-
deginu í gær og voru 1.894 manns
á kjörskrá. Úrslitin lágu svo fyrir í
eftirmiðdaginn og urðu þau að alls
greiddi 1.121 félagsmaður atkvæði,
eða 59,2% af þeim 1.894 sem voru á
kjörskránni. Verkfall samþykkti
1.071 eða 95,5%, 34 voru á móti eða
3,1% og 16 tóku ekki afstöðu eða
1,4%.
Fyrsta lotan er 4. febrúar
Fyrsta lota aðgerða í verkfallinu
er þriðjudaginn 4. febrúar. Vinna
verður lögð niður klukkan 12.30 og
stendur það út daginn. Aðgerðir ná
til ófaglærðra starfsmanna á leik-
skólum og hjúkrunarheimilum og
þeirra sem starfa í heimahjúkrun,
við sorphreinsun og gatnaþjónustu
svo eitthvað sé nefnt.
„Staðan er áhyggjuefni og mun
væntanlega hafa mjög víðtæk áhrif
á starfsemi borgarinnar. Slíkt segir
sig sjálft,“ segir Þórdís Lóa Þór-
hallsdóttir, formaður borgarráðs.
„Því eru sviðsstjórar og embættis-
menn að vinna að áætlun um
hvernig brugðist skuli við í mikil-
vægri starfsemi, svo sem á leik-
skólum og á velferðarsviði. Sú
vinna hófst fyrir nokkru. Við kjörn-
ir fulltrúar höfum hins vegar ekki
beina aðkomu að því og viðræður
við Eflingu eru alfarið í höndum
samninganefndar borgarinnar.“
Sólveig Anna Jónsdóttir, for-
maður Eflingar, sagði í samtali við
mbl.is í gær niðurstöður atkvæða-
greiðslunnar ekki koma sér á
óvart. Fólk væri ósátt við léleg
kjör sín vitandi hve mikilvæg störf
þess væru. Sá veruleiki skapaði
sjúkt og óbærilegt ástand.
Fólkið sjálft
smíðar kröfugerðina
„Hvernig má vera að fólkið sem
skiptir mestu máli á reykvískum
vinnumarkaði, þau sem til dæmis
halda leikskólunum gangandi og
sinna gamla fólkinu, sé með
lægstu launin á íslenskum vinnu-
markaði? Það er augljóst að fólk
sem hefur snefil af réttlætiskennd
sættir sig ekki við þetta,“ segir
Sólveig.
Um lífskjarasamninginn í þessu
samhengi, og hvort verið sé að
ganga á bak samkomulagi þar að
lútandi með verkfallsboðun, segir
Sólveig þá félagsmenn Eflingar
sem starfi hjá borginni hafa sjálf-
stæðan samningsrétt.
„Það er grundvallaratriði í sam-
félagsgerðinni að fólk fái sjálft að
smíða kröfugerð og koma að öllum
samningaviðræðum við atvinnu-
rekendur sína,“ sagði Sólveig
Anna í samtali við mbl.is í gærdag.
Áhrifin verða víðtæk
Eflingarfólk hjá Reykjavíkurborg samþykkti verkfall 96,5% sögðu já
Aðgerðir hefjast 4. febrúar Viðbrögð við ástandi eru í undirbúningi hjá borginni
Morgunblaðið/Eggert
Kjaramál Sólveig Anna heimsótti leikskóla þegar atkvæði voru greidd.
Niðurstaðan er skýr; hliðið hefur verið opnað og verkfall blasir við.
Húseigendur á
Íslandi borga
tæpa þrjá millj-
arða króna ár-
lega í ofanflóða-
sjóð en einungis
einn milljarður
er nýttur í slík
verkefni. Af-
gangurinn renn-
ur í ríkissjóð,
þrátt fyrir mikil-
vægi þess að ráðist sé í öflugar
framkvæmdir vegna varnargarða
og annars. Þetta sagði Halldór
Halldórsson, formaður ofanflóða-
sjóðs og fyrrverandi bæjarstjóri á
Ísafirði, í útvarpsþættinum
Sprengisandi á Bylgjunni í gær.
Þrátt fyrir að svo miklir fjármunir
eigi að renna í sjóðinn er ómögu-
legt fyrir ofanflóðanefnd að sækja í
hann.
„Ef þú opnar kistuna er ekkert í
henni,“ sagði Halldór, sem telur að
ef ráðist yrði í útboð á framkvæmd-
unum strax ætti að vera hægt að
ljúka þeim fyrir árið 2022. Halldór
og ofanflóðanefnd hafa ítrekað leit-
að til stjórnvalda vegna málsins.
„Ef við fengjum að ráða myndum
við nota allt fjármagnið. Það er
vont að völdin séu hjá Alþingi sem
hlustar ekki á okkur.“
Ekkert í
kistunni
Óánægja með
stöðu ofanflóðasjóðs
Halldór
Halldórsson