Morgunblaðið - 27.01.2020, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2020
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
GLÆSILEGIR „PLUG IN
HYBRID“ TIL SÖLU
AUDI A3 E-TRON, VW GOLF GTE,
VW PASSAT GTE OG M. BENZ E350E
M.BENZ E 350E
AVANTGARDE EQ POWER
nýskr. 02/2018, ekinn 22 Þ.km, bensín/
rafmagn, sjálfskiptur, stafræntmælaborð.
Glæsilegt eintakmeð fullt af aukahlutum!
Verð 7.450.000 kr.
TILBOÐ 6.999.000 kr. Raðnúmer 259893
getur tekið á sig ýmsar myndir, og er
undir frumkvöðlinum komið hvað
hann vill leggja áherslu á. „Trúnaðar-
maður frumkvöðla hjálpar fólki að
staldra við, skoða stöðuna, koma betri
fókus á markmiðin, bæta samskiptin
og ákveða hvernig best er að komast
þangað sem ferðinni er heitið,“ segir
Svava og bætir við að þessi aðstoð
geti snúið að stofnandanum og stjórn-
andanum einum, eða að öllu teyminu.
Þá segir hún að rétt eins og með
markþjálfa og ráðgjafa almennt sé
hlutverk trúnaðarmanns frumkvöðla
ekki að taka ákvarðanir um rekstur-
inn, heldur hjálpa stjórnendunum að
taka betri ákvarðanir upp á eigin
spýtur.
Frumkvöðullinn er það
sem knýr sprotann áfram
Í stuðningsverkefninu miðlar
Svava af reynslu sinni og samböndum
og leyfir frumkvöðlinum að viðra
áhyggur sínar tæpitungulaust. Hún
segir að sumir séu svo heppnir að búa
t.d. að leiðsögn reyndari aðila (e.
mentor) eða geta leyft sér að eiga í
mjög opinskáum samskiptum við fjár-
festa og aðra bakhjarla um þær per-
sónulegu áskoranir og vandamál sem
fylgja daglegum rekstri sprotafyrir-
tækis. Margir eru þó ekki svo lánsam-
ir, eða þá að þeim þykir óþægilegt að
sýna bakhjörlum fyrirtækisins og
samstarfsfólki sínu annað en sínar
bestu og sterkustu hliðar.
Trúnaðarmaður frumkvöðla er sér-
hæfður á sínu sviði, er hlutlaus í störf-
um sínum og gætir fulls trúnaðar í
viðtölunum. Segir Svava að fjárfestar
og sjóðir geti jafnvel séð ávinning í því
að búa svo um hnútana að stjórnend-
ur sprotafyrirtækja sem fjárfest er í
eigi reglulega fundi með trúnaðar-
manni frumkvöðla svo að þeir eflist í
starfi og séu sem best í stakk búnir til
að leiða sprotann áfram. Hluti af því,
segir Svava, er að frumkvöðullinn
kunni að finna rétta jafnvægið milli
vinnu og einkalífs: „Frumkvöðlum
hættir til að keyra sig út og verður að
gæta að því að þeir hlúi að sjálfum
sér. Frumkvöðullinn er aflið sem
knýr sprotafyrirtækið áfram og ef
hann er ekki í nógu góðu standi getur
vegferðin orðið erfiðari.“
Hjálpar frumkvöðlum
að efla sig og reksturinn
Morgunblaðið/Eggert
Stoð „Trúnaðarmaður frumkvöðla hjálpar fólki að staldra við, skoða stöðuna, koma betri fókus á markmiðin, bæta
samskiptin og ákveða hvernig best er að komast þangað sem ferðinni er heitið,“ segir Svava Björk Ólafsdóttir.
Trúnaðarmaður frumkvöðla er ný þjónusta sem leyfir frumkvöðlum að ræða
vandamál sín opinskátt Byggja sig upp sem stjórnendur og skerpa á stefnunni
Þurfa að ræða málin
» Frumkvöðlar þurfa að gæta
þess að keyra sig ekki út og
finna jafnvægi á milli vinnu og
einkalífs.
» Sumir vilja ekki sýna bak-
hjörlum sínum og samstarfs-
fólki annað en sínar bestu
hliðar.
» Trúnaðarmaður frumkvöðla
starfar ekki ósvipað og mark-
þjálfi.
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Að vera frumkvöðull er ekki alltaf
tekið út með sældinni. Álagið er tölu-
vert, vinnudagarnir langir, pening-
arnir af skornum skammti, mikið í
húfi og oftar en ekki algjör óvissa um
framtíðina. Jafnvel þótt frum-
kvöðullinn sé með gott fólk í kringum
sig er allur gangur á því hve mikils
stuðnings hann getur leitað hjá fjár-
festum, stjórnarmeðlimum, sam-
starfsfólki sínu innan sprotafyrir-
tækisins eða annars staðar: „Þeir sem
ég hef fengið til mín í viðtal hafa iðu-
lega haft á orði hvað þeim þykir gott
að hafa einhvern til að tala opinskátt
við um áskoranirnar, og nefna að
makinn og vinirnir séu oft ekki að
tengja við frumkvöðlareksturinn á
sama hátt og aðili sem lifir og hrærist
í umhverfinu,“ segir Svava Björk
Ólafsdóttir, sem hefur margra ára
reynslu úr stuðningsumhverfi frum-
kvöðla í gegnum störf sín hjá Ice-
landic Startups. Hún starfar nú sjálf-
stætt og hefur, í félagi við Hafdísi
Huld Björnsdóttur, sett á laggirnar
ráðgjafarfyrirtækið RATA. Meðal
þess sem þar er í boði er þjónusta sem
Svava kallar trúnaðarmaður frum-
kvöðla, og mætti kannski best lýsa
sem markþjálfun fyrir frumkvöðla.
Að auki má láta RATA sjá um starfs-
daga, námskeið, fundarstjórnun,
stærri umbótaverkefni og ráðgjöf, en
tilgangur fyrirtækisins er að efla ein-
staklinga og teymi. Bæði Svava og
Hafdís eru miklir reynsluboltar þegar
kemur að verkefnastjórnun, en leiðir
þeirra lágu saman í meistaranámi í
verkefnastjórnun (MPM) við HR.
Að staldra við og
finna rétta leið
Undanfarin ár hefur markþjálfun
notið vaxandi vinsælda meðal stjórn-
enda stöndugra fyrirtækja og hjá
metnaðarfullu fagfólki sem stefnir á
toppinn. Minna hefur farið fyrir um-
ræðu um þörf frumkvöðla fyrir mark-
þjálfun, en að sögn Svövu er það ekki
síst á sprotastiginu sem frumkvöðlar
þurfa á góðri aðstoð að halda, bæði til
að efla sig í starfi en líka til að vega og
meta hvaða stefnu væri skynsamlegt
að taka með reksturinn.
Aðstoð trúnaðarmans frumkvöðla
27. janúar 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 124.35 124.95 124.65
Sterlingspund 162.91 163.71 163.31
Kanadadalur 94.59 95.15 94.87
Dönsk króna 18.359 18.467 18.413
Norsk króna 13.804 13.886 13.845
Sænsk króna 13.022 13.098 13.06
Svissn. franki 128.06 128.78 128.42
Japanskt jen 1.1344 1.141 1.1377
SDR 171.17 172.19 171.68
Evra 137.22 137.98 137.6
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 168.344
Hrávöruverð
Gull 1554.05 ($/únsa)
Ál 1781.0 ($/tonn) LME
Hráolía 62.01 ($/fatið) Brent
● Óvissa vegna mögulegra áhrifa
Wuhan-veirunnar svokölluðu hafði nei-
kvæð áhrif á markaði í liðinni viku. Á
föstudag varð töluverð niðursveifla á
Wall Street og lækkaði Dow Jones-
vísitalan um 0,58%, S&P 500 um
0.90% og Nasdaq-vísitalan um 0.93%.
Að sögn Reuters er þetta mesta lækk-
unin á bandarískum verðbréfamarkaði í
þrjá mánuði og var vikulækkun S&P 500
sú mesta í sex mánuði.
Lækkunin á föstudag er rakin til þess
að bandarísk heilbrigðisyfirvöld greindu
frá að skæð kórónaveira sem breiðst
hefur út um Kína hefði í fyrsta sinn
greinst í sjúklingi á bandarískri grundu.
Virðast fjárfestar hafa orðið það
hvekktir við þessar fréttir að þeir færðu
fjármagn sitt úr hlutabréfum yfir í örugg-
ari eignaflokka. Markaðsgreinendur sem
Reuters ræddi við telja þó sumir að fjár-
festar hafi notað Wuhan-veiruna sem af-
sökun til að innleysa hagnað af hækk-
unum undanfarinna mánaða enda þykir
hlutabréfaverð orðið nokkuð hátt.
Veiran smitaði fleiri eignaflokka en
hlutabréf, því Brent-hráolía lækkaði um
2,2% á föstudag og var vikulækkunin sú
mesta í heilt ár, eða 6,4%. Kína er næst-
stærsti olíunotandi heims og hætta á að
sjúkdómsfaraldur þar í landi dempi olíu-
eftirspurn.
Þá veiktist Bandaríkjadalur lítillega
gagnvart japanska jeninu á föstudag,
eða um 0,22% sem þykir til marks um
að fjárfestar séu að leita skjóls í öruggari
eignum þar til afleiðingar kínversku kór-
ónaveirunnar hafa komið betur í ljós.
ai@mbl.is
Einkenna veirunnar
gætir á mörkuðum
Stopp Piltur á lestarstöð í Hong Kong.
Veiran hefur raskað samgöngum í Kína.
AFP