Morgunblaðið - 27.01.2020, Side 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2020
Góð þjónusta í tæpa öld 10%afslátturfyrir 67 áraog eldri
Flugvallarþjónusta
BSR sér um að skutla þér út á flugvöll og aftur heim þegar þú ferð til útlanda.
5-8 manneskjur
19.500 kr.
1-4 manneskjur
15.500 kr.
Verð aðra leið:
„HANN ER MEÐ BAKKMYNDAVÉL – ÞÁ
GETURÐU SÉÐ HVER ER AÐ ÝTA.”
„HÚN FÓR TVO HRINGI OG STOPPAÐI Á
ÁTJÁN.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... koss á ströndinni.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
MITT ER FORNALDARSAGA!ÉG MAN
EKKI EFTIR
SÍÐASTA
STEFNUMÓTI
OKKAR
EN SÁ
DAGUR
ÉG MAN ÞAÐ Í
SMÁATRIÐUM!
ÉG FESTIST Í
YFIRFULLRI LYFTU
VÁ! ÞÚ
ERT
BETRI EN
ÉG!
OG ALLIR HINIR PÍNDU MIG
TIL AÐ ÉTA FARSÍMANN MINN
JA, VIÐ
EIGUM ÖLL
OKKAR
SÉRSVIÐ!
SUMT FÓLK
KANN BARA EKKI
AÐ META POLKA-
HRINGITÓNA
stödd í Kaíró og fagnar fertugsafmæl-
inu í nágrenni við píramídana.
Fjölskylda
Maki Ragnheiðar er Reynir Finn-
dal Grétarsson, f. 29.12. 1972, lög-
fræðingur. Foreldrar hans eru hjónin
Grétar Guðmundsson, f. 4.7. 1948,
húsasmíðameistari og Ingunn Gísla-
dóttir, f. 15.5. 1950, kennari. Þau eru
búsett í Kópavogi.
Synir Ragnheiðar eru: 1) Tristan
Gylfi Baldursson, f. 22.12. 2001,
barnsfaðir: Baldur Rafn Gylfason
hárgreiðslumeistari; 2) Hannes Guðni
Hafstein, f. 16.5. 2009, og 3) Hektor
Þór Hafstein, f. 31.1. 2016, barnsfaðir:
Tryggvi Þór Hafstein flugstjóri. Börn
Reynis eru Álfhildur Ösp, f. 18.9. 1994,
dóttir hennar er Amalía Alva Vil-
hjálmsdóttir, f. 4.7. 2018; og Grétar
Víðir, f. 7.6. 2001. Einnig á Ragnheið-
ur hundinn Dreka, f. í mars 2015.
Bræður Ragnheiðar eru Agnar
Guðnason, 11.2. 1966, skipstjóri; bús. í
Vestmannaeyjum; Sigurður Óli
Guðnason, f. 13.1. 1968, vélfræðingur,
búsettur í Hafnarfirði; Bjarki Guðna-
son, f. 27.11. 1972, framkvæmdastjóri,
búsettur í Grindavík.
Foreldrar Ragnheiðar: Hjónin
Guðni Ólafsson, f. 15.8. 1943, d. 20.
ágúst 1999, skipstjóri og útgerðar-
maður í Eyjum, og Gerður Guðríður
Sigurðardóttir, 27.12. 1944, húsfreyja
og myndlistarkona, búsett í Reykjavík.
Ragnheiður
Guðfi nna
Guðnadóttir
Guðríður Bjarnadóttir
húsfreyja í Brautarholti í
Eyjum, f. í Eyjum
Jón Jónsson
útvegsbóndi í Brautarholti og ráðsmaður
Sjúkrahússins í Vestmannaeyjum, f. í Eyjum
Bjarney Ragnheiður Jónsdóttir
húsfreyja og félagsmálafrömuður í Vestmannaeyjum
Gerður Guðríður Sigurðardóttir
myndlistarkona í Vestmannaeyjum
Sigurður Ólason
forstjóri Netagerðarinnar og þurrkhússins í Vestmannaeyjum
Hólmfríður Þórarinsdóttir
húsfreyja á Bakka og víðar,
síðast í Eyjum, f. á Grásíðu
Óli Jón Kristjánsson
bóndi á Bakka í Kelduhverfi og víðar í
S-Þing., síðast bús. í Eyjum, f. í Ærlækjarseli
Árni Óla rithöfundur og fræðimaður
Páll Jónsson sjómaður
og verkamaður í Eyjum
Steinunn Pálsdóttir
húsfreyja í Eyjum
Þorbjörg Bjarnadóttir
húsfreyja í Ásólfsskála-
fræðimaður
Elín Sigurðardóttir
húsfreyja í Ólafshúsum,
f. á Búðarhóls-Austur-
hjáleigu í A-Landeyjum
Jón Bergur Jónsson
útvegsbóndi í Ólafshúsum í Eyjum, f. á Hörgslandi á Síðu
Guðfi nna Jónsdóttir
húsfreyja í Vestmannaeyjum
Ólafur Ingileifsson
útgerðarmaður í Vestmannaeyjum
Þórunn Magnúsdóttir
vinnukona á Suður-
Götum í Mýrdal, f. á
Lyngum í Meðallandi
Ingileifur Ólafsson
vinnumaður og húsmaður víða í
V-Skaft., f. í Bakkakoti í Meðallandi
Úr frændgarði Ragnheiðar Guðfi nnu Guðnadóttur
Guðni Ólafsson
skipstjóri og útgerðarmaður í Vestmannaeyjum
Auðunn Atlason orti til eig-inkonu sinnar Sigríðar Rögnu
Jónsdóttur á afmælisdaginn:
Afmælisins njóttu nú
nýttu daginn, kát og blíð.
Vertu alltaf vænsta þú
vinkona mín, alla tíð!
Á miðvikudag orti Pétur Stef-
ánsson „Eftir leik“ á Leir:
Mikið ósköp á ég bágt,
ég eflaust kenni því um
hve mínir strákar lutu lágt
í leiknum móti Svíum.
Gústi Mar svaraði: „Við eigum
frábæra leikmenn en þeim gengur
oft illa að standa sig á stórmótum.“
Augljós vandi er að hrjá
undir tapsins svíða.
Virtust þarna flestir fá
frammistöðukvíða.
Níels skáldi skrifaði: „Þegar ég
var að byrja Frans rímur var í
kringum mig köttur, sem hálfvegis
fipaði fyrir mér, þangað til ég gaf
honum bragð af skornu tóbaki, en
hann stökk burt í annað rúm og
urraði lengi. Ég kvað þá:
Flest það gera, er gegni ver,
gæfan sér, þótt hafi hún ster,
sestum hér við kvæða kver
kötturinn er að bölva mér.“
Kötturinn Jósefína Meulengracht
Dietrich mjálmaði á Boðnarmiði:
Veðra harðan gerði garð
– gödduð jörð og freðin urð –
frostið herðir, fennir barð,
fjúk af norðan ber á hurð.
„Ketti er ekki út sigandi!“ bætti
Magnús Magnússon við.
Þröstur Óskarsson kvað um veðr-
ið á miðvikudag:
Rokið kemur rignir æ,
Reykjavík nú lemur.
Heldur yfir hýrnar bæ,
er hlýja veðrið kemur.
Þórhallur Pálsson svaraði:
Grenja yfir Gráuborg
garri, él og skýjafar.
Enga gleði, aðeins sorg
er að finna á strætum þar.
Að vestan barst vísa frá Indriða á
Skjaldfönn, - „Ótíð“:
Nú úr öllum áttum blæs.
Ekki þykir tíðin „næs“.
Ógnar hengjur hanga í brúnum
og hroðasvell á mínum túnum.
Þórhallur Pálsson svaraði:
Nú er tíðin næsta blíð,
næðir þó um tún og hlíð,
Í suðri vermir sólin blíð,
– en súrpungarnir yrkja níð.
Indriði kvað þetta góða vísu, - en
síðustu hendinguna að vísu út í
hött!
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Eftir leik og af köttum