Morgunblaðið - 27.01.2020, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2020
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
Höllin Ak.: Þór Ak. – KR ..................... 19:15
Í KVÖLD!
Alfreð Finnbogason, landsliðs-
maður Íslands í knattspyrnu, sneri
aftur á knattspyrnuvöllinn um helgina
þegar félagslið hans, Augsburg, sótti
Union Berlin heim í þýsku 1. deildinni.
Alfreð hefur verið frá keppni frá því
14. nóvember síðastliðinn þegar hann
meiddist á öxl í landsleik Íslands og
Tyrklands í undankeppni EM á Laug-
ardalsvelli. Alfreð kom inn á sem
varamaður hjá Augsburg á 77. mínútu
en leiknum lauk með 2:0-sigri Union
Berlin. Augsburg er í tólfta sæti deild-
arinnar með 23 stig.
Tryggvi Snær Hlinason og liðs-
félgar hans í körfuknattleiksliði Zara-
goza halda áfram að þjarma að topp-
liðum efstu deildar Spánar en
Zaragoza vann sterkan útisigur gegn
Joventut Badalona á laugardaginn.
Leiknum lauk með 93;72-sigri Zara-
goza en Tryggvi Snær skoraði fjögur
stig, tók þrjú fráköst og gaf eina stoð-
sendingu á þeim sextán mínútum sem
hann spilaði. Zaragoza er í þriðja sæti
deildarinnar með 28 stig, tveimur
stigum minna en topplið Real Madrid
og Barcelona, eftir nítján umferðir.
Nacho Fernández reyndist hetja
Real Madrid þegar liðið tyllti sér á
toppinn í spænsku 1. deildinni í knatt-
spyrnu í gær. Fernández skoraði
sigurmark Real Madrid í 1:0-útisigri
gegn Real Valladolid en Real Madrid
er nú með 46 stig á toppi deild-
arinnar, þremur stigum meira en
Barcelona sem tapaði 2:0 á útivelli
gegn Valencia á laugardaginn.
Finnur Freyr Stefánsson og læri-
sveinar hans í danska körfuknattleiks-
liðinu Horsens eru komnir aftur á
beinu brautina í deildinni eftir stórt
tap gegn Bakken Bears í þar síðustu
umferð. Horsens heimsótti Svendborg
um helgina og vann sex stiga sigur,
82:76. Horsens er með 30 stig eftir
átján leiki, líkt og Randers. Bakken
Bears koma þar á eftir í þriðja sæti
með 28 stig en Bakken Bears eiga leik
til góða á Horsens og Randers.
Jacob Friis, þjálfari danska knatt-
spyrnufélagsins AaB, segir að Valgeir
Valgeirsson, hinn 17 ára gamli leik-
maður HK sem hefur verið til reynslu
hjá félaginu undanfarna daga, sé afar
áhugaverður fótboltamaður.
Valgeir lék í gær sinn annan æfinga-
leik með aðalliði AaB þegar hann lék
einn hálfleik gegn sænska liðinu
Gautaborg. Í vik-
unni spilaði hann
í jafnlangan tíma
gegn danska lið-
inu AGF. „Hann er
gríðarlega duglegur
og vel spilandi
bakvörður svo
það gæti alveg
verið að við mynd-
um vilja auka sam-
keppnina í þeim
stöðum hjá okk-
ur,“ sagði Friis í
samtali við
Nordjyske í
gær.
Eitt
ogannað
Bryant skoraði 31 stig að meðatali
það tímabil, tók tólf fráköst og gaf
sjö stoðsendingar. Bryant ákvað á
lokaári sínu að hann ætlaði sér
ekki í menntaskóla og hann stóð
við það.
Tuttugu ára farsæll ferill
26. júní 1996 var Kobe Bryant
valinn þrettándi í nýliðavali NBA-
deildarinnar. Það var hins vegar
ekki Los Angeles Lakers sem valdi
hann heldur Charlotte Hornets.
Hann var ekki lengi í herbúðum
Hornets því sextán dögum síðar
fékk Hornets Vlade Divac frá
Lakers og sendi Bryant í skiptum
til Los Angeles. Þrátt fyrir að vera
einungis 18 ára gamall vakti hann
strax athygli fyrir vasklega fram-
göngu. Hann var um tíma yngsti
leikmaðurinn til þess að spila í
deildinni, 18 ára og 72 daga gamall.
Bryant lék allan feril sinn með
Lakers, á árunum 1996-2016. Átján
sinnum var hann valinn til að spila
í stjörnuleik deildarinnar, tvívegis
var hann valinn besti leikmaður úr-
slitanna og árið 2008 var hann val-
inn besti leikmaður deildarinnar.
Þá var hann tvívegis stigahæsti
leikmaður deildarinnar og er í dag
í fjórða sæti yfir stigahæstu leik-
menn deildarinnar frá upphafi.
Hann varð einnig Ólympíumeistari
með Bandaríkjunum árin 2008 og
2012.
Bryant spilaði síðasta leik sinn
13. apríl 2016 gegn Utah Jazz.
Hann skoraði 60 stig í leiknum og
varð um leið elsti leikmaður í sögu
deildarinnar til þess að afreka það.
Eftir að Bryant hætti voru tvær
treyjur hans, númer 8 og 24,
hengdar upp í Staples Center,
heimavelli Lakers, honum til heið-
urs, en enginn annar leikmaður í
sögu félagsins hefur fengið þann
heiður.
Árið 2018 vann Bryant til
Óskarsverðlauna fyrir stuttmynd
sína „Dear Basketball“.
Einn sá besti fallinn frá
Kobe Bryant lést af slysförum 41 árs að aldri Fimmfaldur NBA-meistari og
tvöfaldur ólympíumeistari Sá fjórði stigahæsti í deildinni frá upphafi
AFP
2009 Kobe Bryant fagnar fjórða meistaratitli sínum með Lakers.
KÖRFUBOLTI
Bjarni Helgsaon
bjarnih@mbl.is
Körfuknattleiksgoðsögnin Kobe
Bryant lést í þyrluslysi í Calabasas
í Kaliforníu í Bandaríkjunum í
gær, 41 árs að aldri. Í slysinu fórst
einnig þrettán ára gömul dóttir
hans, Gianna Maria, en hún var af-
ar efnileg körfuknattleikskona, og
þrír aðrir. Bryant lætur eftir sig
eiginkonu og þrjár dætur. Bryant
er af mörgum talinn besti körfu-
knattleiksmaður sögunnar en hann
varð fimm sinnum NBA-meistari
með liði sínu Los Angeles Lakers.
Kobe Bryant fæddist í
Philadelphiu í Bandaríkjunum 23.
ágúst árið 1978. Hann var yngstur
af þremur systkinum en faðir hans,
Joe Bryant, lék í NBA-deildinni á
árunum 1975-1983 með Phila-
delphia 76ers, San Diego Clippers
og Houston Rockets. Árið 1984
flutti Bryant ásamt fjölskyldu sinni
til Ítalíu þar sem faðir hans hélt
áfram með körfuknattleiksferil
sinn en fjölskyldan flutti svo aftur
til Bandaríkjanna árið 1991 þegar
Joe Bryant lagði skóna á hilluna.
Kobe byrjaði að spila körfubolta
þriggja ára gamall og uppáhaldslið
hans var Los Angeles Lakers.
Hann sló í gegn í körfubolta í
Lower Merion-miðskólanum í
Philadelphiu en á lokaári sínu í
skólanum leiddi hann háskólaliðið
til fyrsta fylkissigurs síns í 53 ár.
markinu úr vítaspyrnu í upphafi síðari hálfleiks.
Þá lentu Englandsmeistaraefnin í Liverpool í vand-
ræðum gegn C-deildarliði Shrewsbury á Montgomery
Waters Meadow-vellinum. Curtis Jones kom Liverpool
yfir í fyrri hálfleik og Donald Love, leikmaður Shrews-
bury, varð svo fyrir því óláni að skora sjálfsmark í upp-
hafi síðari hálfleiks. Á 60. mínútu kom Jason Cumm-
ings inn á í liði Shrewsbury og hann breytti heldur
betur gangi leiksins. Hann minnkaði muninn fyrir C-
deildarliðið á 65. mínútu með marki úr vítaspyrnu og
tíu mínútum síðar jafnaði hann metin eftir að Dejan
Lovren, varnarmanni Liverpool, mistókst að hreinsa
frá marki. Liverpool og Shrewsbury þurfa því að mæt-
ast á nýjan leik á Anfield, heimavelli Liverpool, 4. eða
5. febrúar næstkomandi.
bjarnih@mbl.is
Manchester City og Manchester United eru bæði komin
áfram í sextán liða úrslit ensku bikarkeppninnar í
knattspyrnu eftir afar sannfærandi sigra í 4. umferð
bikarkeppninnar í gær.
City, sem á titil að verja í keppninni, vann 4:0-sigur
gegn B-deildarliði Fulham á Etihad-vellinum í Man-
chester. Tim Ream, varnarmaður Fulham, fékk að líta
beint rautt spjald eftir sex mínútna leik og eftir það var
róðurinn þungur fyrir leikmenn Fulham. Ilkay Gün-
dogan og Bernardo Silva skoruðu hvor sitt markið fyr-
ir City og Gabriel Jesus skoraði tvennu.
Manchester United vann stórsigur gegn C-deildarliði
Tranmere Rovers á Prenton Park, 6:0. United leiddi 5:0
í hálfleik þar sem þeir Harry Maguire, Diogo Dalot,
Jesse Lingard, Phil Jones og Anthony Martial skoruðu
mörk United. Mason Greenwood bætti svo við sjötta
Manchester-liðin voru sannfærandi
AFP
Fyrirliði Harry Maguire skoraði sitt
fyrsta mark fyrir United í gær.
Sundkappinn Anton Sveinn McKee
setti tvö mótsmet í sundkeppni
Reykjavíkurleikanna fram fram fór í
Laugardalslauginni um helgina.
Það fyrra setti hann á laugardag-
inn í 100 metra bringusundi þegar
hann kom fyrstur í mark á tímanum
1:01,18. Alexander Dale Oen heitinn
átti fyrra metið sem var 1:01,38 og
Anton því að bæta metið umtalsvert.
Anton Sveinn bætti einnig met Alex-
anders Dales Oens í 200 metra
bringusundi í gær þegar hann synti á
tímanum 2:11,96 en met Alexanders
var 2:15,43.
Þá náði Jóhanna Elín Guðmunds-
dóttir lágmarki á Evrópumótið í 50
metra laug sem fram fer í Búdapest á
laugardaginn þegar hún kom í mark á
26,03 sekúndum í 50 metra skrið-
sundi. Stigahæstu sundmenn helg-
arinnar voru þau Anton Sveinn
McKee og Mie Nielsen, Danmörku.
Viktor Samúelsson, Kraftlyft-
ingafélagi Akureyrar, fagnaði sigri í
karlaflokki í kraftlyftingakeppninni
sem fram fór í Laugardalshöll í gær. Í
öðru sæti varð Friðbjörn Bragi
Hlynsson úr Kraftlyftingafélagi Mos-
fellsbæjar og í því þriðja Ingvi Örn
Friðriksson úr Kraftlyftingafélagi
Akureyrar.
Í kvennaflokki fagnaði Kimberly
Walford frá Bandaríkjunum sigri en
hún gerði sér lítið fyrir og setti heims-
met í réttstöðulyftu í -72 kg flokki.
Arna Ösp Gunnarsdóttir úr Kraftlyft-
ingafélagi Mosfellsbæjar varð önnur
og þriðja Kristín Þórhallsdóttir úr
Kraftlyftingafélagi Akraness.
Þá höfnuðu þeir Kári Gunn-
arsson og Davíð Bjarni Björnsson í
öðru sæti í badmintonkeppninni í
TBR-húsunum. Í úrslitum mættu
þeir sterku finnsku pari, Anton
Monnberg og Jesper Paul, í jöfnum
og spennandi leik sem endaði með
26:24- og 21:14-sigri Finnanna.
Morgunblaðið/Eggert
Árangur Anton Sveinn McKee er að eiga frábært tímabil í sundlauginni og
hann hélt áfram að toppa sig um helgina með tveimur mótsmetum.
Anton Sveinn
setti tvö mótsmet
Nýtt heimsmet í réttstöðulyftu