Morgunblaðið - 27.01.2020, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2020
England
Bikarkeppnin, 4. umferð:
Burnley – Norwich.................................. 1:2
Jóhann Berg Guðmundsson lék ekki með
Burnley vegna meiðsla.
Millwall – Sheffield United .................... 0:2
Jón Daði Böðvarsson kom inn á hjá Mill-
wall á 71. mínútu.
Brentford – Leicester .............................. 0:1
Coventry – Birmingham.......................... 0:0
Newcastle – Oxford United..................... 0:0
Portsmouth – Barnsley............................ 4:2
Reading – Cardiff ..................................... 1:1
Southampton – Tottenham...................... 1:1
West Ham – WBA.................................... 0:1
Hull – Chelsea........................................... 1:2
Manchester City – Fulham ..................... 4:0
Tranmere – Manchester United............. 0:6
Shrewsbury – Liverpool .......................... 2:2
Ítalía
Orobica – AC Milan ................................. 0:1
Berglind Björg Þorvaldsdóttir lék allan
leikinn með AC Milan.
B-deild:
Crotone – Spezia...................................... 0:1
Sveinn Aron Guðjohnsen var varamaður
hjá Spezia og kom ekki við sögu.
C-deild:
Carpi – Padova ........................................ 1:1
Emil Hallfreðsson lék allan leikinn með
Padova.
Þýskaland
Union Berlín – Augsburg ....................... 2:0
Alfreð Finnbogason kom inn á hjá Augs-
burg á 77. mínútu.
Freiburg – Paderborn ............................ 0:2
Samúel Kári Friðjónsson var varamaður
hjá Paderborn og kom ekki við sögu.
Grikkland
Larissa – Panathinaikos ......................... 0:2
Ögmundur Kristinsson lék í marki Lar-
issa og varði vítaspyrnu.
Frakkland
Montpellier – Dijon ................................. 2:1
Rúnar Alex Rúnarsson var varamark-
vörður Dijon.
Ungverjaland
Debrecen – Újpest ................................... 4:0
Aron Bjarnason lék síðasta hálftímann
með Újpest.
Kýpur
Doxa – APOEL Nikósía .......................... 0:3
Björn Bergmann Sigurðarson var ekki í
leikmannahópi APOEL.
Lakatamia – Apollon Limassol ............ 0:10
Jasmín Erla Ingadóttir lék seinni hálf-
leikinn með Apollon.
Belgía
B-deild:
Union St. Gilloise – Lommel................... 2:2
Aron Sigurðarson lék allan leikinn með
Union St. Gilloise og Kolbeinn Þórðarson
lék allan leikinn með Lommel.
Olísdeild kvenna
Fram – HK............................................ 32:22
ÍBV – KA/Þór ....................................... 26:15
Valur – Stjarnan ................................... 35:22
Staðan:
Fram 13 12 0 1 409:274 24
Valur 13 10 1 2 366:266 21
Stjarnan 13 6 3 4 321:308 15
Haukar 13 5 2 6 283:314 12
HK 13 5 2 6 348:361 12
ÍBV 13 4 2 7 286:311 10
KA/Þór 13 5 0 8 297:365 10
Afturelding 13 0 0 13 248:359 0
Meistaradeild kvenna
Kristiansand – Esbjerg....................... 31:35
Rut Jónsdóttir skoraði eitt mark fyrir
Esbjerg.
Þýskaland
Göppingen – Neckarsulmer............... 33:22
Birna Berg Haraldsdóttir skoraði ekki
fyrir Neckarsulmer.
Svíþjóð
B-deild:
Hallby – Kristianstad.......................... 23:28
Andrea Jacobsen skoraði 6 mörk fyrir
Kristianstad.
Spánn
Joventut Badalona – Zaragoza.......... 72:93
Tryggvi Snær Hlinason skoraði 4 stig
fyrir Zaragoza, tók 3 fráköst og átti eina
stoðsendingu. Hann lék í 16 mínútur.
1. deild kvenna
Hamar – ÍR........................................... 50:69
Grindavík b – Tindastóll ...................... 70:60
Grindavík b – Tindastóll ...................... 90:65
Njarðvík – Fjölnir ................................ 68:81
Staðan:
Keflavík b 15 11 4 1134:1052 22
Fjölnir 15 11 4 1122:980 22
ÍR 16 10 6 1038:914 20
Njarðvík 16 9 7 1049:939 18
Tindastóll 17 8 9 1137:1187 16
Grindavík b 16 4 12 922:1148 8
Hamar 15 2 13 872:1054 4
með 42% markvörslu. Domagoj
Duvnjak, sem var valinn besti leik-
maður EM fyrr í gær, var marka-
hæstur Króata með fimm mörk.
Þetta var sjötti úrslitaleikur
Spánverja á EM, en þeir eru aðeins
önnur þjóðin til þess að verja Evr-
ópumeistaratitil sinn síðan Svíar
gerðu það á árunum 1998 til ársins
2002. Danir fengu tækifæri til þess
að gera það árið 2014 en þá töpuðu
þeir fyrir Frökkum í úrslitaleik í
Herning. Spánn varð Evrópumeist-
ari 2018 í Króatíu eftir 29:23-sigur
gegn Svíþjóð í úrslitaleik í Zagreb
en Spánverjar léku einnig til úrslita
2016 en töpuðu þá fyrir Þjóðverjum í
Kraká.
Þetta voru fjórðu gullverðlaun
Spánverja á stórmóti en Króatar,
sem hafa tvívegis fagnað sigri á Ól-
ympíuleikunum og einu sinni orðið
heimsmeistarar, bíða enn eftir
fyrsta Evrópumeistaratitli sínum.
Þá unnu Norðmenn sannfær-
andi sigur gegn Slóvenum í leik um
bronsið í Stokkhólmi á laugardag-
inn, 28:20. Sander Sagosen, stór-
skytta Norðmanna, skoraði fjögur
mörk í leiknum, en hann endaði sem
langmarkahæsti leikmaður mótsins
með 65 mörk. Enginn leikmaður hef-
ur skorað fleiri mörk á EM. Þetta
voru fyrstu bronsverðlaun Norð-
manna, sem bíða enn eftir gull-
verðlaunum á stórmóti í handbolta.
Í leiknum um fimmta sætið
höfðu Þjóðverjar betur gegn
spútnikliði Portúgala með 29 mörk-
um gegn 27. Portúgalar eru það lið
sem hefur komið einna mest á óvart
á mótinu, en besti árangur á EM,
fyrir leik laugardagsins, var sjöunda
sætið árið 2000. Þjóðverjar, sem
hafa tvívegis orðið Evrópu-
meistarar, voru að lenda í fimmta
sæti á EM í annað sinn.
Meistaravörn
hjá Spáni
Fyrirliði Króata besti maður mótsins
AFP
Vörn Spánverjar eru annað liðið í sögu EM sem tekst að verja titil sinn.
EM 2020
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Spánverjar vörðu Evrópumeistara-
titil sinn í handknattleik þegar liðið
vann 22:20-sigur gegn Króatíu í úr-
slitaleik á EM í Tele2 Arena-höllinni
í Stokkhólmi í gær. Þetta var annar
Evrópumeistaratitill Spánverjar en
Króatar, sem hafa aldrei orðið Evr-
ópumeistarar, voru að tapa þriðja
úrslitaleik sínum á EM frá árinu
2008.
Mikið jafnfræði var með liðunum
allan leikinn og var lítið skorað.
Króatar náðu mest þriggja marka
forskoti í fyrri hálfleik en staðan í
hálfleik var 12:11, Spánverjum í vil.
Spánverjar náðu svo fjögurra marka
forskoti í upphafi síðari hálfleiks en
Króatar jöfnuðu metin þegar tíu
mínútur voru til leiksoka. Spánverj-
ar skoruðu síðustu tvö mörk leiksins
og fögnuðu vel og innilega í leikslok.
Aleix Gómez var markahæstur
Spánverja með fimm mörk og þá
varði Gonzalo Pérez átta skot og var
Atvinnukylfingurinn Guðrún Brá
Björgvinsdóttir, Keili, tryggði sér
þátttökurétt á Evrópumótaröðinni í
golfi með góðum árangri á loka-
úrtökumóti mótaraðarinnar á La
Manga-golfsvæðinu á Spáni í gær.
Guðrún Brá lék fimm hringi á
lokaúrtökumótinu á samtals þrem-
ur höggum yfir pari. Hún endaði í
10.-17. sæti en tuttugu efstu kylf-
ingarnir fá keppnisrétt í flokki 9b á
næsta keppnistímabili.Valdís Þóra
Jónsdóttir er einnig með keppn-
isrétt á mótaröðinni sem hefst í lok
febrúar með móti í Ástralíu.
Frábær árangur
meistarans
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Best Guðrún Brá Björgvinsdóttir er
ríkjandi Íslandsmeistari í golfi.
Knattspyrnumaðurinn Hólmar Örn
Eyjólfsson gæti verið á leið í ensku
úrvalsdeildina, en það er vefmiðill-
inn 90min sem greindi frá þessu í
gær. Landsliðsmaðurinn er samn-
ingsbundinn Levski Sofia í Búlg-
aríu en enska úrvalsdeildarfélagið
Bournemouth er sagt íhuga tilboð í
hann. Bournemouth er í miklum
vandræðum í þriðja neðsta sæti
deildarinnar með 23 stig, stigi frá
öruggu sæti. Hólmar Örn er fædd-
ur árið 1990 en hann á að baki 14 A-
landsleiki þar sem hann hefur skor-
að tvö mörk. sport@mbl.is
Á leið í ensku
úrvalsdeildina?
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss
Miðvörður Hólmar Örn Eyjólfsson
hefur leikið í Búlgaríu frá 2017.
Þórey Rósa skoraði níu mörk, þar
af fjögur úr hraðaupphlaupum, fyrir
Fram og Ragnheiður Júlísdóttir skor-
aði átta. Hjá HK var Jóhanna Mar-
grét Sigurðardóttir markahæst með
sjö mörk. Fram er áfram í efsta sæti
deildarinnar með 24 stig en HK er í
fimmta sætinu með 12 stig og í harðri
baráttu við Hauka um sæti í úrslita-
keppninni.
Eyjakonur eru ósigraðar í síðustu
þremur deildarleikjum sínum eftir ell-
efu marka sigur gegn KA/Þór í Vest-
mannaeyjum á laugardaginn. Leikn-
um lauk með 26:15-sigri ÍBV, sem
leiddi með sjö mörkum í hálfleik, 12:5.
Liðunum gekk illa að skora á fyrstu
mínútum leiksins og var staðan 1:1-
HANDBOLTI
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Íslandsmeistarar Vals styrktu stöðu
sína í öðru sæti úrvalsdeildar kvenna
í handknattleik, Olísdeildinni, þegar
liðið vann stórsigur gegn Stjörnunni í
Origo-höllinni á Hlíðarenda í þrett-
ándu umferð deildarinnar á laugar-
daginn. Leiknum lauk með þrettán
marka sigri Vals, 35:22, en Lovísa
Thompson fór mikinn í liði Vals-
kvenna og skoraði átta mörk.
Mikið jafnræði var með liðunum til
að byrja með og þau skiptust á að
skora á fyrstu tíu mínútum leiksins.
Þegar fyrri hálfleikur var rúmlega
hálfnaður var forskot Valskvenna
hins vegar allt í einu orðið fimm
mörk, 10:5, og Hlíðarendaliðið leit
aldrei um öxl eftir það. Valskonur
leiddu með sjö mörkum í hálfleik,
18:11, og þær héldu áfram að auka
forskot sitt. Það var aldrei spurning
hvoru megin sigurinn lenti.
Íris Björk Símonardóttir átti stór-
leik í marki Valskvenna og var með
47% markvörslu með sautján skot
varin. Ásdís Þóra Ágústsdóttir skor-
aði sjö mörk fyrir Valsliðið og Díana
Dögg Magnúsdóttir sex. Hjá Stjörn-
unni voru þær Karen Tinna Demian
og Sigrún Ása Ásgrímsdóttir marka-
hæstar með fjögur mörk hvor.
Valskonur eru áfram í öðru sæti
deildarinnar með 21 stig, þremur
stigum minna en topplið Fram, en
Stjarnan er í þriðja sætinu með 15
stig.
Þá unnu Framkonur níunda sig-
ur sinn í röð í deildinni þegar liðið
fékk HK í heimsókn, en lokatölur í
Safamýrinni urðu 32:22. Þórey Rósa
Stefánsdóttir og Ragnheiður Júlís-
dóttir voru atkvæðamestar í liði Fram
og Kópavogsliðinu gekk illa að ráða
við þær stöllur.
Framkonur voru með yfirhöndina í
leiknum frá fyrstu mínútu, en eftir
fimm mínútna leik leiddi Fram með
tveimur mörkum, 4:2. Fimm mínútum
síðar var munurinn orðinn fjögur
mörk, 10:6, og Framkonur leiddu með
sex mörkum í hálfleik, 17:11. Kópa-
vogsliðið var aldrei líklegt til þess að
minnka muninn í síðari hálfleik,
Framarar juku forskot hægt og ró-
lega og innbyrtu öruggan sigur.
eftir einungis fimm mínútna leik.
Eyjakonum gekk hins vegar betur að
skora eftir því sem leið á leikinn en
það sama verður ekki sagt um KA/
Þór.
Marta Wawrzykowska var stór-
kostleg á milli stanganna hjá ÍBV,
varði 15 skot, og var með 58% mark-
vörslu. Þá fór Ásta Björt Júlísdóttir
mikinn fyrir ÍBV og skoraði sjö
mörk, þar af fimm af vítalínunni. Hjá
KA/Þór voru þær Anna Þyrí Hall-
dórsdóttir og Rakel Sara Elvars-
dóttir markahæstar með þrjú mörk
hvor.
ÍBV fer upp fyrir KA/Þór með
sigrinum en bæði lið eru með 10 stig í
sjötta og sjöunda sæti deildarinnar.
Morgunblaðið/Eggert
Markahæst Lovísa Thompson reyndist Stjörnukonum erfið viðureignar.
Níu í röð hjá
Framkonum
Valskonur fóru illa með Stjörnuna