Morgunblaðið - 27.01.2020, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 27.01.2020, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2020 Afl Í Laugardalshöll mátti um helgina prófa keppnisgreinar sem keppt er í á Reykjavíkurleikunum. Aníta Dís Atladóttir úr HK keppti í samkvæmisdönsum en kynnti sér lyftingar og crossfit. Eggert Í kjölfar mann- skæðu snjóflóðanna í Neskaupstað 20. des- ember 1974 setti bæj- arstjórn kaupstaðarins á fót snjóflóðanefnd heimamanna sem starfaði á annað ár og skilaði af sér með ít- arlegum tillögum árið 1976. Þar sagði m.a. eftirfarandi: „Við skipulag byggðar gildi sú meginregla að byggja ekki hús til íbúðar eða at- vinnureksturs á svæðum, sem talið er af sérfróðum aðilum að snjóflóð geti náð til. Verði allt land kaupstað- arins neðan við eðlileg byggðarmörk flokkað og kortlagt með tilliti til snjóflóðahættu eftir sama kerfi (rauð, blá, gul og hvít svæði) og tek- ið hefur verið upp víða erlendis í þessu skyni (Sviss, Noregur). Komi til álita að reisa hús á áður óbyggð- um svæðum, sem snjóflóð gætu fall- ið á, verði það aðeins gert að vand- lega athuguðu máli og að fengnum tillögum sérfróðra aðila um varnar- virki og hönnun mannvirkja. Alls ekki verði byrjað að byggja á slíkum svæðum fyrr en skipulag þeirra með tilliti til snjóflóðavarna hefur verið fullmótað og staðfest af réttum að- ilum og afstaða tekin til byggingar varnarmannvirkja og fjármagn tryggt í því skyni.“ Nefndin fékk til sín sérfræðinga m.a. frá Sviss og Noregi. Hún skil- aði af sér fyrstu til- lögum um varnarvirki fyrir byggðina og ráð- inn var sérstakur at- hugunarmaður vegna snjóflóðahættu. Bæj- arstjórnin samþykkti niðurstöður nefnd- arinnar og tillögurnar voru framsendar til stjórnvalda og sér- stakrar nefndar sem starfaði þá um tíma á vegum Rannsóknaráðs ríkisins. Svifaseint kerfi og margir lokuðu augunum Þetta er rifjað upp hér í kjölfar snjóflóðahrinunnar á Vestfjörðum nú í byrjun árs og þeirrar umræðu sem fram hefur farið um snjóflóða- mál og brýnar aðgerðir. Sannleik- urinn er sá að opinbera kerfið, Al- þingi og skipulagsyfirvöld, tóku seint við sér og þegar mannskæð áföll dundu yfir í Súðavík og á Flat- eyri árið 1995 var eins og flestir væru enn á byrjunarreit, ekki síst sveitarstjórnir víða um land á þétt- býlisstöðum sem þó áttu langa snjó- flóðasögu að baki. Það tók áratug frá áföllunum á Norðfirði að sett var, í framhaldi af þingsályktun frá Helga Seljan o.fl., fyrsta löggjöfin nr. 28/1985 um varnir gegn snjóflóð- um og skriðuföllum. Þá var tekið upp hugtakið ofanflóð um hvoru tveggja. Breytingartillögur við þá löggjöf komu fram á Alþingi í árslok 1994, röskum hálfum mánuði áður en ósköpin dundu yfir Súðavík 16. janúar 1995, en flóðin á Flateyri fylgdu í kjölfarið þá um haustið. Mér er minnisstæð þingumræðan um þessa stjórnartillögu 2. febrúar 1995, því að þá var eins og margir vöknuðu af værum blundi í kjölfar atburðanna í Súðavík. Í framhaldinu var síðan gerð endurskoðun á lög- unum i heild og sett lög nr. 49/1997 sem síðan hafa gilt að stofni til með ýmsum breytingum. Það sama ár kom út hjá Veðurstofu Íslands ritið Snjóflóðasaga Neskaupstaðar eftir Svanbjörgu Helgu Haraldsdóttur og er það aðgengilegt á netinu (https:// www.vedur.is/gogn/snjoflod/ haettumat/ne/ne_annall.pdf). Sam- kvæmt lögunum fer umhverfis- ráðherra með yfirstjórn málaflokks- ins, Veðurstofan aflar gagna um snjóflóð og snjóflóðahættu, annast sérfræðiaðstoð við gerð hættumats sem sveitarstjórnir skulu hafa frum- kvæði að og stýrt er af hættumats- nefnd á viðkomandi stað. Sérstakur ofanflóðasjóður í umsjá ofanflóða- nefndar á síðan að sjá um fjárhags- þáttinn, bæði vegna hættumats, byggingar varnarvirkja og kaupa á fasteignum. Í sjóðinn renna 0,3 af vátryggingarverðmæti allra bruna- tryggðra húseigna. Sjóðurinn, sem nú er mikið til umræðu, má greiða allt að 90% framkvæmdakostnaðar við gerð varnarvirkja og til kaupa á fasteignum í öryggisskyni. Mikið áunnist en fram- kvæmdir ganga alltof hægt Eftir miklar tafir á aðgerðum og andvaraleysi í skipulagsákvörð- unum víða á hættusvæðum allt fram undir síðustu aldamót hefur mikið áunnist í þekkingu og vöktun á snjó- flóðahættu, ekki síst innan Veður- stofu Íslands, varnarvirki verið reist á allmörgum stöðum og skilningur almennings á þörf aðgerða tekið stakkaskiptum. Eftir endurtekin áföll vegna snjóflóða nú nýverið er eðlilegt að gagnrýnt sé að fjár- söfnun í ofanflóðasjóð til snjóflóða- varna hafi ekki verið látin ganga til framkvæmda nema að takmörkuðu leyti. Margir eiga hér vissulega hlut að máli, Alþingi sem fjárveitinga- vald, ríkisstjórnir sem flestir stjórn- málaflokkar hafa átt aðild að síðasta áratuginn og sveitarstjórnir og sam- tök þeirra sem ekki hafa haft uppi háværan eftirrekstur í fjölmiðlum. Það er brýnt að á þessu verði nú breyting og skipulega verði unnið að gerð varnarvirkja sem undirbúin hafa verið og annarra sem eru á undirbúningsstigi. Þótt eðlilegt sé að þéttbýl svæði hafi forgang má ekki gleyma snjóflóðahættu á um- ferðaræðum, skíðasvæðum og ann- ars staðar þar sem fólki er stefnt saman. Snjóflóðahætta tengist sveiflum í veðurfari og gengur því yfir í hrinum. Þannig hagaði til um áratugi á öldinni sem leið, t.d. í meira en aldarþriðjung fyrir 1974, að engin stór mannskæð snjóflóð féllu hérlendis. Á sama hátt varð hlé á slíkum hamförum í tvo áratugi 1975-1995 og aftur síðar. Slíkar sveiflur mega ekki verða til þess að draga úr árvekni og fyrirbyggjandi aðgerðum, einnig með tilliti til lang- tímabreytinga í veðurfari. Það eru verstu aðstæður sem skapast á ára- tuga eða alda fresti sem mestum sköpum skipta. Öryggi, umferð og vetraraðstæður Rysjótt veðurfar það sem af er vetri hefur orðið mörgum dýrkeypt lexía. Ljóst er að flutningskerfi raf- orku er víða úrelt og alltof lengi hef- ur dregist að færa flutningslínur í jörð. Stóraukin umferð, m.a. vegna fjölgunar erlendra ferðamanna, birtist okkur í tíðum slysum á veg- um við vetraraðstæður, að ekki sé talað um glæfraferðir á vegum ferðaþjónustuaðila inn á hálendið, eins og gerðist á Langjökli nú viku af janúar. Álag á björgunaraðila hefur margfaldast sem og á heil- brigðiskerfi sem var veikt fyrir. Ástæða er til að þessi þróun sé rædd og metin bæði af stjórnvöld- um og almannasamtökum. Miklu varðar að skipulega sé horft fram á veginn af raunsæi og ábyrgð og þess gætt að taka mið af ytri að- stæðum í okkar annars frábæra landi. Eftir Hjörleif Guttormsson » Það er brýnt að skipulega verði unn- ið að gerð varnarvirkja vegna snjóflóðahættu og fjármagn nýtt í því skyni eins og lög mæla fyrir. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Reynslan frá Neskaupstað 1974 skilaði sér seint og um síðir fyrir landið sem heild

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.