Morgunblaðið - 27.01.2020, Blaðsíða 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2020
Afl Í Laugardalshöll mátti um helgina prófa keppnisgreinar sem keppt er í á Reykjavíkurleikunum. Aníta Dís Atladóttir úr HK keppti í samkvæmisdönsum en kynnti sér lyftingar og crossfit.
Eggert
Í kjölfar mann-
skæðu snjóflóðanna í
Neskaupstað 20. des-
ember 1974 setti bæj-
arstjórn kaupstaðarins
á fót snjóflóðanefnd
heimamanna sem
starfaði á annað ár og
skilaði af sér með ít-
arlegum tillögum árið
1976. Þar sagði m.a.
eftirfarandi:
„Við skipulag
byggðar gildi sú meginregla að
byggja ekki hús til íbúðar eða at-
vinnureksturs á svæðum, sem talið
er af sérfróðum aðilum að snjóflóð
geti náð til. Verði allt land kaupstað-
arins neðan við eðlileg byggðarmörk
flokkað og kortlagt með tilliti til
snjóflóðahættu eftir sama kerfi
(rauð, blá, gul og hvít svæði) og tek-
ið hefur verið upp víða erlendis í
þessu skyni (Sviss, Noregur). Komi
til álita að reisa hús á áður óbyggð-
um svæðum, sem snjóflóð gætu fall-
ið á, verði það aðeins gert að vand-
lega athuguðu máli og að fengnum
tillögum sérfróðra aðila um varnar-
virki og hönnun mannvirkja. Alls
ekki verði byrjað að byggja á slíkum
svæðum fyrr en skipulag þeirra með
tilliti til snjóflóðavarna hefur verið
fullmótað og staðfest af réttum að-
ilum og afstaða tekin til byggingar
varnarmannvirkja og fjármagn
tryggt í því skyni.“
Nefndin fékk til sín sérfræðinga
m.a. frá Sviss og Noregi. Hún skil-
aði af sér fyrstu til-
lögum um varnarvirki
fyrir byggðina og ráð-
inn var sérstakur at-
hugunarmaður vegna
snjóflóðahættu. Bæj-
arstjórnin samþykkti
niðurstöður nefnd-
arinnar og tillögurnar
voru framsendar til
stjórnvalda og sér-
stakrar nefndar sem
starfaði þá um tíma á
vegum Rannsóknaráðs
ríkisins.
Svifaseint kerfi og margir
lokuðu augunum
Þetta er rifjað upp hér í kjölfar
snjóflóðahrinunnar á Vestfjörðum
nú í byrjun árs og þeirrar umræðu
sem fram hefur farið um snjóflóða-
mál og brýnar aðgerðir. Sannleik-
urinn er sá að opinbera kerfið, Al-
þingi og skipulagsyfirvöld, tóku
seint við sér og þegar mannskæð
áföll dundu yfir í Súðavík og á Flat-
eyri árið 1995 var eins og flestir
væru enn á byrjunarreit, ekki síst
sveitarstjórnir víða um land á þétt-
býlisstöðum sem þó áttu langa snjó-
flóðasögu að baki. Það tók áratug
frá áföllunum á Norðfirði að sett
var, í framhaldi af þingsályktun frá
Helga Seljan o.fl., fyrsta löggjöfin
nr. 28/1985 um varnir gegn snjóflóð-
um og skriðuföllum. Þá var tekið
upp hugtakið ofanflóð um hvoru
tveggja. Breytingartillögur við þá
löggjöf komu fram á Alþingi í árslok
1994, röskum hálfum mánuði áður
en ósköpin dundu yfir Súðavík 16.
janúar 1995, en flóðin á Flateyri
fylgdu í kjölfarið þá um haustið.
Mér er minnisstæð þingumræðan
um þessa stjórnartillögu 2. febrúar
1995, því að þá var eins og margir
vöknuðu af værum blundi í kjölfar
atburðanna í Súðavík. Í framhaldinu
var síðan gerð endurskoðun á lög-
unum i heild og sett lög nr. 49/1997
sem síðan hafa gilt að stofni til með
ýmsum breytingum. Það sama ár
kom út hjá Veðurstofu Íslands ritið
Snjóflóðasaga Neskaupstaðar eftir
Svanbjörgu Helgu Haraldsdóttur og
er það aðgengilegt á netinu (https://
www.vedur.is/gogn/snjoflod/
haettumat/ne/ne_annall.pdf). Sam-
kvæmt lögunum fer umhverfis-
ráðherra með yfirstjórn málaflokks-
ins, Veðurstofan aflar gagna um
snjóflóð og snjóflóðahættu, annast
sérfræðiaðstoð við gerð hættumats
sem sveitarstjórnir skulu hafa frum-
kvæði að og stýrt er af hættumats-
nefnd á viðkomandi stað. Sérstakur
ofanflóðasjóður í umsjá ofanflóða-
nefndar á síðan að sjá um fjárhags-
þáttinn, bæði vegna hættumats,
byggingar varnarvirkja og kaupa á
fasteignum. Í sjóðinn renna 0,3 af
vátryggingarverðmæti allra bruna-
tryggðra húseigna. Sjóðurinn, sem
nú er mikið til umræðu, má greiða
allt að 90% framkvæmdakostnaðar
við gerð varnarvirkja og til kaupa á
fasteignum í öryggisskyni.
Mikið áunnist en fram-
kvæmdir ganga alltof hægt
Eftir miklar tafir á aðgerðum og
andvaraleysi í skipulagsákvörð-
unum víða á hættusvæðum allt fram
undir síðustu aldamót hefur mikið
áunnist í þekkingu og vöktun á snjó-
flóðahættu, ekki síst innan Veður-
stofu Íslands, varnarvirki verið reist
á allmörgum stöðum og skilningur
almennings á þörf aðgerða tekið
stakkaskiptum. Eftir endurtekin
áföll vegna snjóflóða nú nýverið er
eðlilegt að gagnrýnt sé að fjár-
söfnun í ofanflóðasjóð til snjóflóða-
varna hafi ekki verið látin ganga til
framkvæmda nema að takmörkuðu
leyti. Margir eiga hér vissulega hlut
að máli, Alþingi sem fjárveitinga-
vald, ríkisstjórnir sem flestir stjórn-
málaflokkar hafa átt aðild að síðasta
áratuginn og sveitarstjórnir og sam-
tök þeirra sem ekki hafa haft uppi
háværan eftirrekstur í fjölmiðlum.
Það er brýnt að á þessu verði nú
breyting og skipulega verði unnið að
gerð varnarvirkja sem undirbúin
hafa verið og annarra sem eru á
undirbúningsstigi. Þótt eðlilegt sé
að þéttbýl svæði hafi forgang má
ekki gleyma snjóflóðahættu á um-
ferðaræðum, skíðasvæðum og ann-
ars staðar þar sem fólki er stefnt
saman. Snjóflóðahætta tengist
sveiflum í veðurfari og gengur því
yfir í hrinum. Þannig hagaði til um
áratugi á öldinni sem leið, t.d. í
meira en aldarþriðjung fyrir 1974,
að engin stór mannskæð snjóflóð
féllu hérlendis. Á sama hátt varð hlé
á slíkum hamförum í tvo áratugi
1975-1995 og aftur síðar. Slíkar
sveiflur mega ekki verða til þess að
draga úr árvekni og fyrirbyggjandi
aðgerðum, einnig með tilliti til lang-
tímabreytinga í veðurfari. Það eru
verstu aðstæður sem skapast á ára-
tuga eða alda fresti sem mestum
sköpum skipta.
Öryggi, umferð og
vetraraðstæður
Rysjótt veðurfar það sem af er
vetri hefur orðið mörgum dýrkeypt
lexía. Ljóst er að flutningskerfi raf-
orku er víða úrelt og alltof lengi hef-
ur dregist að færa flutningslínur í
jörð. Stóraukin umferð, m.a. vegna
fjölgunar erlendra ferðamanna,
birtist okkur í tíðum slysum á veg-
um við vetraraðstæður, að ekki sé
talað um glæfraferðir á vegum
ferðaþjónustuaðila inn á hálendið,
eins og gerðist á Langjökli nú viku
af janúar. Álag á björgunaraðila
hefur margfaldast sem og á heil-
brigðiskerfi sem var veikt fyrir.
Ástæða er til að þessi þróun sé
rædd og metin bæði af stjórnvöld-
um og almannasamtökum. Miklu
varðar að skipulega sé horft fram á
veginn af raunsæi og ábyrgð og
þess gætt að taka mið af ytri að-
stæðum í okkar annars frábæra
landi.
Eftir Hjörleif
Guttormsson » Það er brýnt að
skipulega verði unn-
ið að gerð varnarvirkja
vegna snjóflóðahættu
og fjármagn nýtt í því
skyni eins og lög mæla
fyrir.
Hjörleifur
Guttormsson
Höfundur er náttúrufræðingur.
Reynslan frá Neskaupstað 1974 skilaði
sér seint og um síðir fyrir landið sem heild