Morgunblaðið - 03.01.2020, Side 12

Morgunblaðið - 03.01.2020, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2020 Æ tli besta leiðin sé ekki bara að beita dáleiðslu til að fanga athygli nemenda og halda henni? Ég hef þó aldrei prófað það og veit því ekki hversu árangursríkt það er,“ segir Elísa glettin þegar hún er spurð út í gagnlegar að- ferðir sem hjálpað geta kennurum að viðhalda athygli. Elísa hefur reglulega haldið námskeið hjá Endurmenntun Háskóla Íslands, sem og kennt fjölda námskeiða fyrir kennara, leik- skólakennara og foreldra um ýmis málefni sem snerta börn. Eins hefur hún sjálf verið nemandi hjá Endurmenntun HÍ og þar með líka setið hinum megin við borðið. „Þótt náms- efnið sé áhugavert þá getur margt stolið at- hyglinni. Kennarar verða því að vera með ein- hver veiðarfæri tiltæk til að fanga athygli nemenda. Því betri veiðarfæri þeim mun minna flögrar athyglin og þeim mun meira til- einkar nemandinn sér úr náminu og tekur með sér heim.“ Meðalgóður fyrirlesari getur orðið framúrskarandi Að sögn Elísu geta nemendur vissulega sjálfir gert margt til þess að halda athyglinni í tímum. Hún nefnir hluti eins og að sitja fram- arlega, taka glósur, mæta ekki of þreyttur í tíma, koma undirbúinn og slökkva á símanum. Þótt þessi ráð séu góð og gild þá er það samt á ábyrgð fyrirlesarans að reyna að koma efninu frá sér á sem áhugaverðastan hátt svo nem- endur fylgist með. „Meðalgóður fyrirlesari getur orðið framúrskarnadi með æfingu og því að leggja smá á sig,“ segir Elísa sem deilir hér tíu góðum ráðum til fyrirlesara sem vilja halda sem lengst í athygli nemanda sinna. Morgunblaðið/Eggert 10 veiðarfæri til að viðhalda athyglinni Að halda athyglinni, bæði sem nemandi og kennari, er áskorun fyrir marga. Sálfræðingurinn Elísa Guðnadóttir hefur verið báð- um megin við borðið en í gegnum tíðina hefur hún reynt að tileinka sér öll möguleg ráð til þess að láta athyglina ekki flögra. Snæfríður Ingadóttir|snaeja@gmail.com Elísa Guðnadóttir sálfræðingur. Unsplash Þín leið til fræðslu Sveitamennt styrkir starfsmenntun beint til sveitafélaga og stofnana þeirra á landsbyggðinni. Sjóðurinn veitir styrki í fræðsluverkefni á vegum stéttarfélaganna. Sjóðurinn veitir styrki til einstaklinga og sjá stéttarfélögin um afgreiðslu þeirra í umboði Sveitamenntar. Kynntu þér rétt þinn á www.sveitamennt.is Sveitamennt Guðrúnartún 1 • 105 Reykjavík • Sími 599 1450 • sveitamennt@sveitamennt.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.