Morgunblaðið - 03.01.2020, Side 18

Morgunblaðið - 03.01.2020, Side 18
„Í Hagaskóla var gangsterarappið aðalmálið og menn voru talsvert í klíkum þá að bandarískri fyrirmynd. Ég náði samt eiginlega aldrei að verða almennileg íslensk úthverfa- útgáfa af rappara, böstandi rímur um fáklæddar konur, peninga og lögreglu- ofbeldi, þannig að ég komst aldrei í svo- leiðis klíku.“ Árni Helgason Í saksskóli, Melaskóli, Hagaskóli,MR og HÍ er hin ofurklassískaleið sem lögmaðurinn, uppistand- arinn og hlaðvarpsstjórnandinn Árni Helgason fetaði á sínum námsárum. Hann segist hafa verið góður og þægur nemandi, svona framan af, en hafi aðeins villst af leið þegar hann kom í MR og síðar í Háskólann. „Ástundunin fór eitthvað að láta á sjá en það tengdist að einhverju leyti félagslífinu og störfum þar,“ segir hann léttur. „Svo taldist ég reyndar nemandi við háskólann í Jena í Þýskalandi í nokkra mánuði vet- urinn eftir stúdentsprófið en var meira í því að finna mig. Allir þessir skólar höfðu sinn sjarma en mér þykir nú samt alltaf sérstaklega vænt um MR,“ segir hann og rifjar um leið upp sinn eftirlætiskennara. „Af mörgum kennurum þá er Ragnheiður Briem sem kenndi ís- lensku í MR eftirminnilegust. Frá- bær kennari, hvort sem var í flókn- ustu reglum stafsetningarinnar eða íslenskum bókmenntum. Hún sinnti þessu af mikilli virðingu, var aug- ljóslega afburðamanneskja á sínu sviði og það einhvern veginn náði í gegn og smitaði nemendur. Maður vildi standa sig vel hjá henni,“ segir hann og bætir við að námið hafi reyndar verið einskonar sjokk- þerapía í byrjun. „Í fyrsta stafsetn- ingarprófinu sem við tókum í 3. bekk voru einkunnir ekki á bilinu 1-10 eins og vanalega heldur einhvers staðar langt fyrir neðan núllið en með hennar leiðsögn lagaðist þetta smám saman og fólk fór að ná tök- um,“ segir hann og bætir við að þótt mikið sé rætt þá breytist kennarar og kennsluaðferðir minna en margur haldi. „Kennsla snýst nú sem fyrr mikið um mannlega þáttinn, góða dóm- greind og að kunna að lesa rétt í hópinn og krakkana.“ Spurður að því hvort hann hafi til- heyrt einhvers konar klíku á skóla- árunum svarar Árni að sér hafi eig- inlega aldrei tekist það, þrátt fyrir góðan vilja. „Í Hagaskóla var gangsterarappið aðalmálið og menn voru talsvert í klíkum þá að bandarískri fyrirmynd. Ég náði samt eiginlega aldrei að verða almennileg íslensk úthverfa- útgáfa af bandarískum rappara böstandi rímur um fáklæddar konur, peninga og lögregluofbeldi, þannig að ég komst aldrei í svoleiðis klíku. En svo rjátlast þetta auðvitað af mönnum. Þetta eru meira og minna skrifstofumenn í dag með húsnæðis- lán og jeppling. Nema einn og einn sem er enn að rappa.“ Morgunblaðið/Ásdís Námið var sjokkþerapía 18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2020 K ennararnir geta bæði verið slæmir og góðir. Glaðlyndir, þreyttir, þolinmóðir, andfúlir, skrítnir, leiðinlegir og skemmtilegir. Eftirminnilegastir og bestir eru þeir kennarar sem með færni, hvatningu og kærleika hjálpa nemendum sínum að ná tökum á náminu og byggja þannig upp sjálfstraust en slíkt getur ráðið úrslitum um vegferðina í skóla- kerfinu og áfram út í allt lífið. Er námið sjokkþerapía eða beinn og breiður vegur? Öll eigum við góðar og slæmar minningar af skólagöngu okkar. Við vorum ýmist villingar, prúð og stillt eða einhvers staðar mitt á milli. Villt og stillt. Sum okkar hafa farið í marga skóla og eignast alls konar vini á leiðinni en aðrir eru í sama skóla og halda hópinn frá leikskóla upp í háskóla. Margrét Hugrún Gústavsdóttir | margret.hugrun@gmail.com Morgunblaðið/Ásdís Vorönn 2020: • Resin Art • Fluid Art - Akríl Pouring • Mixed Media Art • Alcohol Ink Art • Akríl Abstract Art • Macrame Stutt og vönduð Námskeiðatafla á facebook.com/fondurlist NÁMSKEIÐ Föndurlist-Vaxandi ehf, Strandgata 75, 220 Hafnarfjörður www.fondurlist.is Skráning s. 553 1800

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.