Morgunblaðið - 03.01.2020, Page 26

Morgunblaðið - 03.01.2020, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2020 G uðmundur Arnar var áður markaðsstjóri Wow air, Íslandsbanka, Nova og markaðsstjóri Icelandair í Bretlandi. Nú eru margir sem vilja verða betri á samfélagsmiðlum og þurfa jafnvel á því að halda vegna vinnunn- ar. Hvað mælir þú með að þetta fólk tileinki sér? „Á netinu þurfum við að hugsa um okkur sem vörumerki. Í grunninn snúast vörumerki um allar þær hug- myndir sem fólk hefur um okkur en vörumerki eru eingöngu til í hug- anum. Á samfélagsmiðlum getum við auðveldlega fylgst með fólki og þann- ig, meðvitað eða ómeðvitað, myndað okkur skoðun á því. Það sem fólk sér okkur skrifa og gera hefur mikil áhrif á hugmyndir fólks um okkur. Við þurfum því að hafa í huga að eitthvað sem við gerum eða segjum með nán- um vinum eða fjölskyldu á stundum ekkert erindi á netið, frekar en á kaffistofunni í vinnunni eða á öðrum opinberum stað. Þegar við erum að selja þjónustu eða sækja um vinnu eru netmiðlar ein af leiðunum sem mögulegir mótaðilar styðjast við til að kynna sér okkur. Það getur því haft mikil áhrif á tækifæri okkar á vinnumarkaði að passa vel upp á það hvernig við birtumst öðrum þar,“ segir Guðmundur Arnar. Hvað kennir þú fólki á þínum nám- skeiðum? „Markaðsakademían er með fjöl- breytta flóru af námskeiðum. Til dæmis um stjórnun markaðsstarfs, auglýsingakerfi Facebook og In- stagram, tekjustýringu og sölu og þjónustu. Ég kenni sjálfur Ofurþjón- ustunámskeið og Stjórnun markaðs- starfs. Á báðum námskeiðum er þátt- takendum hjálpað á hagnýtan hátt að ná mun meiri árangri í sínum störf- um. Það voru hátt í 1.000 þátttakend- ur á námskeiðunum okkar árið 2019 og hafa þátttakendur náð frábærum árangri í framhaldi. Markaðs- akademían hefur svo í auknum mæli verið að klæðskerasníða nám, nám- skeið og fyrirlestra fyrir fyrirtæki og þá sérstaklega fjarnám. Þá geta fyrirtæki verið að mennta nýtt og eldra starfsfólk hvar og hvenær sem er, og jafnvel með prófi til að tryggja skilning. Það hefur hentað mjög mörgum fyrirtækjum að útvista fræðslu og þjálfun á þennan hátt. 23. mars á næsta ári er svo stór dagur hjá okkur. Þá mun Disney Institute koma til Íslands og vera með fyr- irlestur um það hvernig Disney býr til sína þjónustugaldra ásamt því að kenna okkur hvernig öll fyrirtæki geta tileinkað sér Disney-trixin. Á ráðstefnunni eru einnig stjórnendur frá Toyota, Hjallastefnunni, Bláa lón- inu, 66°Norður og Hreyfingu með er- indi um hvernig þau hafa náð árangri með þjónustu.“ Hvernig er markaðsheimurinn að breytast? „Þegar ég starfaði hjá Icelandair fyrir mörgum árum átti að fara að kynna nýjung hjá fyrirtækinu. Yfir- menn mismunandi sölusvæða komu saman á fundi vegna þessa og það var farinn hringur þar sem allir fóru yfir hvernig ætti að kynna þessa nýjung í mismunandi löndum. Þegar kom að Íslandi sagði svæðisstjórinn: „Ég hugsa að við kaupum bara 1-2 heil- síður í Morgunblaðinu“ og salurinn hló, en á þeim tíma var það í raun nóg til að ná til nánast allra. Í dag er um- hverfið orðið flóknara og því þurfa flestir fleiri miðla og aðferðir. Í grunninn hefur markaðsstarf samt kannski ekki breyst mikið. Við þurf- um að vita hvað markhópurinn okkar vill, skapa boð sem uppfyllir þær þarfir og afhenda svo virðið á ein- hvern stöðugan hátt. Svo grunnurinn í því sem við kennum: að skilja fólk og markaði ásamt stefnumótun hefur kannski ekki breyst mikið en við höf- um í dag fleiri tæki og tól fyrir að- gerðirnar sem við notum til að ná markmiðunum.“ Hvað þarf fólk að tileinka sér til þess að verða ekki undir? „Við lifum á tímum þar sem við þurfum sífellt að vera að mennta okk- ur. Þegar háskólanámi lýkur tekur við stöðug endurmenntun. Heim- urinn er að breytast hratt og störfin með. Til að tryggja framtíðarmögu- leika okkar á vinnumarkaði hefur því aldrei verið mikilvægara að við séum sífellt að læra. Þetta á ekki síður við markaðsstörf en önnur. Eitt sem ein- kennir sérstaklega markaðs- fræðsluna er magnið af, í raun, vit- leysu sem má finna á netinu og annars staðar. Það er alltof mikið skrifað og miðlað af vanþekkingu sem hefur áhrif á stjórnendur með oft afar neikvæðum og kostnaðarsömum af- leiðingum. Við þurfum því að passa hvaðan þekkingin kemur sem við lát- um hafa áhrif á okkar störf.“ Nú nota sumir Facebook sem önd- unarvél. Hefur þú heyrt að það hafi hamlað fólki að fá vinnu að hafa látið eins og bjánar á netinu? „Ég veit um mörg dæmi um slíkt. Einnig dæmi um að fólk hafi fengið áminningu í starfi vegna ummæla og mynda. Ef allt það sem fólk sér, heyr- ir og les um okkur hefur áhrif, þá þurfum við að passa að við séum á öll- um stöðum að endurspegla þá ímynd sem við viljum standa fyrir, rétt eins og fyrirtæki þurfa að gera. Ímynd fyrirtækja getur svo orðið fyrir áhrif- um af ímynd starfsmanna.“ Hvert verður næsta stóra mál í þessum rafræna heimi? „Við eigum eftir að sjá gervigreind leika stærra hlutverk í enn fleiri kerf- um sem hjálpa okkur að ná árangri. Meiri sjálfvirkni mun fækka starfs- fólki við störf sem skapa lítið virði. Mannleg samskipti verða þó enn mik- ilvægari en fjöldi þeirra minnkar. Þó að mest af samskiptum viðskiptavina við banka og í matvöruverslunum færist sífellt meira yfir í öpp og tæki fara þau samskipti sem eftir standa að hafa meiri áhrif á ímynd. Mik- ilvægi vörumerkja mun jafnframt aukast með sífellt fleiri kostum. Þeg- ar fólk verslar í Bónus gengur það yf- irleitt framhjá nánast öllum vörum í hillum. Allar hafa því tækifæri til að fá athygli frá okkur. Þegar fólk gúgl- ar eða leitar í vefverslun koma aðeins örfáar leitarniðurstöður upp í einu. Hvaða síðu fólk fer inn á, tengil fólk smellir á eða orð fólk gúglar stjórnast því mikið af vörumerkjunum sem við könnumst við eða þeim sem koma fyrst upp í hugann. Mikilvægasta leitarvélin er því enn sem áður sú sem er í huga okkar!“ Hegðun á netinu getur eyðilagt atvinnumöguleika Guðmundur Arnar Guðmundsson, markaðsráðgjafi og stundakennari við Háskólann í Reykjavík, er framkvæmdastjóri Markaðsakademíunnar. Hann heldur fjölbreytt námskeið sem tengjast hinum stafræna heimi. Hann segir að stafræni heimurinn taki stöðugum breyt- ingum og fólk þurfi að átta sig á því að það er að markaðssetja sig með hegðun á netinu. Marta María Jónasdóttir | mm@mbl.is Guðmundur Arnar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Markaðsakademíunnar. Ljósmynd/Thinkstockphotos Við þurfum að hugsa um okkur sjálf sem vörumerki á netinu, að mati Guðmundar Arnars. Spennandi námskeið 2020 Námskeið í boði fyrir börn og unglinga • Teiknun, málun & mótun Námskeið í boði fyrir fullorðna • Teiknun - Módelteiknun • Vatnslitamálun • Olíumálun & Akrýlmálun • Myndlist • Gömlu meistararnir • Módelmálun • Leirmótun

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.