Morgunblaðið - 03.01.2020, Qupperneq 29
Viskígerð blómstrar um allan heim. Mikil breidd
er í framboðinu og spannar viskí allt frá mildum
og mjúkum útgáfum yfir í rammar og reyktar.
bragð og áhrif við greinum og getur verið mjög breytilegt á
milli fólks.“
Þarf ekki að vera dýrt áhugamál
En er ekki stórhættulegt fyrir budduna að þróa með sér
brennandi áhuga á viskíi? Dýrustu flöskurnar geta jú kostað
á við sjónvarpstæki af stærstu og bestu gerð og ekki nokkur
vandi að eyða árslaununum í stórt safn af viskíflöskum frá öll-
um heimshornum. Jakob segir óþarft að hafa áhyggjur af að
viskínámskeiðið leiði þátttakendur út á þessa braut enda viskí
ekki drykkur sem á að svolgra í sig heldur upplifa í ró og
næði við sérstök tækifæri svo að ein flaska ætti að endast
lengi. Þá sé það raunin að finna má mikið af afskaplega
góðu viskíi á fínu verði, og viskíáhugamálið ekki dýrara en
margt annað: „Sjálfum dettur mér ekki í hug að kaupa þess-
ar flöskur sem kosta fúlgur fjár og úti í Bretlandi get ég
fengið prýðilegt gamalt og gott viskí á þetta 50 pund
flöskuna sem gerir um 8.000 kr. Í Fríhöfninni í Keflavík má
finna gott viskí á u.þ.b. 7-10.000 kr. og því fer fjarri að mað-
ur þurfi að eyða ígildi mánaðarlauna til að fá góða viskíupp-
lifun.“
Þegar hann er spurður hvar í viskílitrófinu byrjendur
ættu að taka fyrstu skrefin upplýsir Jakob að hann hafi
sjálfur byrjað á „röngum enda“ með reyktu og bragð-
miklu viskíi sem sumum getur þótt fráhrindandi í fyrstu
atlögu. „Hefðbundna leiðin er að byrja á mildu og léttara
viskíi og busla þar aðeins í grunnu lauginni, en í fram-
haldinu vinna sig smám saman upp í þyngri tegundir,“
segir hann en nota má sem þumalputtareglu að viskí 12
ára og eldra sé mildara á bragðið. „Aldur er samt ekki
endilega trygging fyrir gæðum eða bragðeinkennum visk-
ísins, og hægt að finna mjög mikið af bragðgóðu ungu vis-
kíi.“
AFP
FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2020 MORGUNBLAÐIÐ 29
Fjarnám
í ferðaþjónustu
Frá og með vorönn 2020 verða allir áfangar
Ferðamálaskólans kenndir í fjarnámi með þremur
staðbundnum lotum. Staðlotur verða sem hér segir:
1. lota: 9.-11. janúar
(kynning á námsefni og kennslu-
hugbúnaði, verkefnavinna)
2. lota: 27.-29. febrúar
(verkefnavinna sem ekki er hægt
að sinna í fjarnámi)
3. lota: 16.-18. apríl
(kynningar, munnleg próf,
verkefnavinna)
Getum bætt við nemendum á vorönn, hægt er að nálgast
umsóknareyðublöð á heimasíðu skólans,
mk.is (Ferðamálanám)
Námsgreinar á
vorönn 2020
• Ferðaenska (3 einingar)
• Ferðalandafræði Ísland (3 einingar)
• Ferðalandafræði útlanda (5 einingar)
• Markaðsfræði ferðaþjónustu (5 einingar)
• Stjórnun (3 einingar)
• Umhverfi og ferðaþjónusta (5 einingar)
• Upplýsingatækni ferðaþjónustu ( 5 einingar)
Ferðamálaskólinn
í Kópavogi
Nám með nýju sniði: Fjarnám með þremur staðbundnum lotum
A l la r nánar i upp l ýs ingar fás t h já fagst jó ra í s íma 594 4020 eða með þv í að senda tö l vupóst t i l fe rdamalasko l inn@mk. i s